Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun: Þróttur vann sinn fyrsta sigur Þróttur innbyrti sinn fyrsta sigur á Valbjarnarvelli í kvöld þegar liðið sigraði ÍBV 2-1. Mjög mikilvægur sigur fyrir Þróttara sem eru með sigrinum komnir með 5 stig en eyjamönnum mistókst að sigra þriðja leikinn í röð og eru því enn með 6 stig. 14.6.2009 23:05
Haukur Ingi: Brotnum við þriðja markið „Já þetta lítur ekki vel út, 4-1. Mér fannst við vera inni í leiknum þegar svona korter var eftir í stöðunni 1-1. Þá var í raun bara spurning hvar þriðja markið myndi detta. Svo þegar það kemur þá eiginlega bara brotnum við,“ sagði Haukur Ingi Guðnason eftir 4-1 tap Keflvíkinga gegn KR í kvöld. 14.6.2009 23:04
Fjöldi félaga vilja bjóða Tevez samning Samkvæmt heimildum Sky sports fréttastofunnar munu þau félög sem hafa áhuga á að fá Argentínumanninn Carlos Tevez í sínar raðir hitta umboðsmenn hans á morgun. 14.6.2009 23:00
Jónas Guðni: Ég er gríðarlega sáttur „Já ég er gríðarlega sáttur við þennan leik. Við vorum rólegir á boltanum og héldum boltanum vel innan liðsins. Þegar við höldum boltanum eins vel og við gerðum í dag þá erum við hrikalega góðir,“ sagði Jónas Guðni Sævarsson eftir 4-1 sigur KR á Keflvíkingum. Jónas spilaði frábærlega og skoraði eitt mark. 14.6.2009 22:46
Orri Hjaltalín: Hroðaleg einstaklingsmistök „Á móti liði eins og FH höfum við einfaldlega ekki efni á að gera svona mistök," sagði Orri Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkur, eftir tapið gegn Íslandsmeisturunum í kvöld. 14.6.2009 21:48
Bjarni: Kraftur, hraði og flott spil Bjarni Jóhannsson er þjálfari Stjörnunnar og hann var vitaskuld ánægður eftir stórsigur sinna manna gegn Frömurum. 14.6.2009 21:44
Atli Viðar: Við vorum á tánum Atli Viðar Björnsson skoraði tvívegis fyrir FH sem vann 3-0 útisigur á Grindavík í kvöld. Hann gerði út um leikinn í seinni hálfleik eftir að Matthías Vilhjámsson hafði brotið ísinn snemma leiks. 14.6.2009 21:40
Þorvaldur: Auðvitað hef ég áhyggjur Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var ekki kátur eftir leik sinna manna í Fram gegn Stjörnunni enda Framarar teknir í bakaríið gegn spútnikliði Stjörnunnar. 14.6.2009 21:24
Snorri Steinn: Hefur ekki liðið svona vel í mörg ár Snorri Steinn Guðjónsson lék sinn fyrsta leik í langan tíma þrátt fyrir að vera enn í endurhæfingu vegna meiðsla á hné og stóð sig vonum framar og virðist ekkert ryðgaður þrátt fyrir langa fjarveru. 14.6.2009 20:30
Umfjöllun: Norðmenn stálu stigi Ísland varð að sætta sig við jafntefli gegn Norðmönnum, 34-34, í leik liðanna í undankeppni Evrópumótsins í Austurríki í dag. 14.6.2009 20:15
Guðjón Valur: Þýðir ekkert annað en að vinna Makedóníu Guðjón Valur Sigurðsson var upplitsdjarfur eftir jafnteflið við Norðmenn og er strax kominn með hugann við stórleikinn á 17. júní. 14.6.2009 20:00
Þróttur vann sinn fyrsta sigur Þróttur sigraði ÍBV hér í Laugardal með tveimur mörkum gegn einu. Mörk Þróttar skoruðu Hjörtur Hjartarson og Dennis Danry en varamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson minnkaði muninn í uppbótartíma. Lokatölur 2-1. 14.6.2009 18:15
Umfjöllun: Stórsigur Stjörnunnar gegn Fram Stjarnan er í 2.sæti Pepsi-deildar karla eftir stórsigur á Fram í Garðabæ í kvöld. Framarar sitja hins vegar í 9.sætinu með 5 stig. 14.6.2009 18:15
Umfjöllun: Gjafmildir Grindvíkingar Atli Viðar Björnsson skoraði tvívegis og Matthías Vilhjálmsson var með eitt þegar FH vann 3-0 útisigur á Grindavík í kvöld. 14.6.2009 18:15
Umfjöllun: KR slátraði Keflavíkurgrýlunni Það var greinilegt frá fyrstu mínútu að leikmenn KR-liðsins ætluðu sér sigur í leiknum í gærkvöldi. Enda var sagan ekki búin að vera KR-ingum hliðholl undanfarin átta ár en það var síðast árið 2001 sem liðið sigraði Keflavík á heimavelli. Strax á fyrstu mínútu skoraði Baldur Sigurðsson fyrir KR en markið var dæmt af að því er virtist vegna brots Baldurs. 14.6.2009 18:15
Svekkjandi jafntefli gegn Norðmönnum Vísir var með beina lýsingu frá leik Íslands og Noregs í undankeppni EM 2010 en úrslitakeppnin fer fram í Austurríki á næsta ári. 14.6.2009 15:45
Alonso og Mascherano ekki á förum frá Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur sent frá sér tilkynningu um að miðjumennirnir Xabi Alonso og Javier Mascherano séu alls ekki á förum frá félaginu. 14.6.2009 14:30
Owen vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni Umboðsskrifstofan Wasserman Media Group sem hefur meðal annarra Michael Owen á sínum snærum hefur sent flestum toppliðunum í enska boltanum skýrslu þar sem færð eru rök fyrir því hvernig framherjinn geti nýst viðkomandi félagi. 14.6.2009 14:00
Crouch órólegur yfir óvissuástandinu hjá Portsmouth Enski landsliðsframherjinn Peter Crouch hjá Portsmouth vill fá skýr svör um hvað sé eiginlega að gerast hjá Portsmouth áður en hann ákveður að framlengja samning sinn við félagið. 14.6.2009 13:30
Phil Jackson sektaður fyrir ummæli sín Phil Jackson þjálfari Los Angeles Lakers hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara, rúmar þrjár milljónir króna vegna niðrandi ummæla í garð dómara í fjórða leik Lakers og Orlando í úrslitaeinvíginu um NBA titilinn í körfubolta. 14.6.2009 13:15
Barton fær borgað háar upphæðir fyrir ímyndarrétt Newcastle United greiðir hinum umdeilda Joey Barton 675 þúsund pund, 142 milljónir króna á ári fyrir ímyndarrétt leikmannsins en þetta kemur fram í mjög athyglisverði grein í the Sunday telegraph í dag. 14.6.2009 13:00
Rosicky áfram hjá Arsenal - Senderos líklega á förum Tékkneski landsliðsmaðurinn Tomas Rosicky heldur í vonina um að hann geti náð að rífa sig upp eftir hnémeiðsli sem hafa plagað hann frá því í janúar árið 2008 og spilað að nýju fyrir Arsenal. 14.6.2009 12:30
Ronaldo: Ég elska að vera hataður Portúgalinn Cristiano Ronaldo verður dýrasti leikmaður heims þegar félagsskipti hans frá Manchester United til Real Madrid ganga í gegn en Ronaldo segist ekki hafa áhyggjur af pressunni út af verðmiðanum og segist í raun þrífast best á því þegar aðdáendur andstæðinganna séu að kalla ókvæðaorð að sér. 14.6.2009 12:00
Howard: Við förum í sjötta leikinn í Los Angeles Miðherjinn kröftugi Dwight Howard hjá Orlando Magic er ekki tilbúinn að afhenda LA Lakers fimmtánda NBA titil sinn á gullfati og hefur fulla trú á því að Magic vinni fimmta leik liðanna á heimavelli sínum í Orlando í nótt. 14.6.2009 11:30
Fjórir leikir í Pepsi-deild karla í kvöld Sjöunda umferð Pepsi-deildar karla heldur áfram í kvöld með fjórum hörku leikjum. Íslandsmeistarar FH heimsækja Grindvíkinga en FH-ingar hafa unnið fimm leiki í röð eftir tap í fyrstu umferðinni. 14.6.2009 11:00
Álfukeppnin hefst í dag með tveimur leikjum Evrópumeistarar Spánar verða í sviðsljósinu í dag þegar leikar hefjast í Álfukeppninni í Suður-Afríku. Heimamenn í Suður-Afríku mæta Írak í opnunarleik keppninnar en Spánverjar mæta svo Nýja-Sjálandi síðar um daginn. 14.6.2009 10:00
Bolton ætlar loksins að kaupa Veloso Enska úrvalsdeildarfélagið Bolton hefur lengi verið á höttunum eftir Portúgalanum Miguel Veloso og er enska félagið nú sagt vera nálægt því að ganga frá tíu milljón punda kaupum á miðjumanninum frá Sporting. 14.6.2009 08:00
Þorsteinn Halldórsson: Griðarlega sáttir Þorsteinn Halldórsson, aðstoðarþjálfari Þróttar, var mjög sáttur við fyrsta sigur Þróttara og sagði nauðsynlegt að innbyrða sigur eftir smá stress í fyrri hálfleiknum 14.6.2009 23:41
Zidane: Real Madrid er enn á eftir Ribery Fæst virðist benda til þess að Real Madrid sé hætt kaupæðinu á leikmannamarkaðnum í sumar. Fregnir frá Spáni í dag greindu frá því að félagið væri nálægt því að ganga frá kaupum á framherjanum David Villa frá Valencia. 13.6.2009 23:30
Middlesbrough vill kaupa Neville og Scholes Gareth Southgate og lærisveinar hans í Middlesbrough búa sig nú undir baráttuna í b-deildinni á Englandi eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð. 13.6.2009 22:45
Belgar engin fyrirstaða fyrir Makedóna Makedónía vann í kvöld sjö marka sigur gegn Belgíu, 33-26, í undankeppni EM 2010 en leikurinn fór fram í Skopje í Makedóníu. 13.6.2009 22:00
Selfoss styrkti stöðu sína á toppnum Sóknarmaðurinn snjalli Sævar Þór Gíslason reyndist enn og aftur bjargvættur Selfyssinga þegar liðið vann dýrmætan 1-0 sigur gegn Þór í 1. deildinni á Selfossi í dag. 13.6.2009 21:30
Loksins sigur hjá Kristianstad í sænsku deildinni Þjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir stýrði liði sínu Kristianstad til síns fyrsta sigurs í sænsku úrvalsdeild kvenna í dag þegar liðið lagði Stattena 4-0. 13.6.2009 21:00
Umfjöllun: Fylkismenn skutust upp í annað sætið Fylkismenn gerðu góða ferð á Fjölnisvöll og unnu verðskuldaðan 1-3 sigur gegn Fjölnismönnum. Fylkir komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar en Fjölnir er áfram í erfiðum málum í neðri hlutanum. 13.6.2009 20:30
Ingimundur: Hefðum átt að drepa leikinn fyrr Hinn eldsnöggi Ingimundur Níels Óskarsson var mjög líflegur í 1-3 sigri Fylkis gegn Fjölni og skoraði tvö mörk og lagði eitt upp. Hann var ánægður með leikinn og þrjú mikilvæg stig en hefði viljað sjá Fylkismenn klára leikinn fyrr en þeir gerðu. 13.6.2009 20:00
Valur Fannar: Áttum að vinna stærri sigur Valur Fannar Gíslason átti fínan leik fyrir Fylki í 1-3 sigrinum gegn Fjölni í dag. Hann var vitanlega sáttur með stigin þrjú en hefði viljað sjá lið sitt skora fleiri mörk. 13.6.2009 19:30
Ásmundur: Mikið óöryggi í varnarleik okkar Fjölnismenn voru talsvert frá sínu besta í dag þegar liðið tapaði verðskuldað 1-3 gegn Fylki á Fjölnisvelli. Ásmundur Arnarsson þjálfari liðsins var svekktur í leikslok og viðurkennir að liðið hafi nú ekki verið spila vel. 13.6.2009 18:45
Ólafur: Vantar bara að við klárum færin betur Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var eðlilega sáttur í leikslok í dag eftir sannfærandi 1-3 sigur Fylkis gegn Fjölni á Fjölnisvelli. Fylkismenn voru mun beittari en heimamenn og stigin þrjú voru því fyllilega verðskulduð. 13.6.2009 18:30
Fylkir vann 1-3 sigur gegn Fjölni Fylkismenn gerðu góða ferð á Fjölnisvöll og hirtu öll stigin með 1-3 sigri gegn slökum Fjölnismönnum. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði tvö mörk fyrir Fylki. 13.6.2009 15:00
Líklegir endurfundir hjá Mourinho og Deco Flest virðist nú benda til þess að miðjumaðurinn Deco yfirgefi Chelsea til þess að fara til Inter og spila aftur fyrir knattspyrnustjórann José Mourinho en félagarnir unnu Meistaradeildina saman með Porto árið 2004. 13.6.2009 14:45
Maldini gæti fylgt Ancelotti til Chelsea Eftir að Carlo Ancelotti var kynntur til sögunnar sem nýr knattspyrnustjóri Chelsea hafa fjölmargir leikmenn AC Milan verið orðaðir við Lundúnafélagið og nægir í því samhengi að nefna Andrea Pirlo, Clarence Seedorf, Pato og Gennaro Gattuso. 13.6.2009 14:15
Robinho hvetur City til að kaupa Tevez Framtíð Carlos Tevez hjá Manchester United er enn í óvissu en tveggja ára lánssamningur kappans við Englandsmeistarana er senn á enda. Forráðamenn United hafa verið tregir til þess að mæta verðmiðanum sem settur er á Tevez upp á um 30 milljónir punda en það gæti nú breyst eftir að metkauptilboð Real Madrid í Cristiano Ronaldo var samþykkt. 13.6.2009 13:30
David Villa að ganga í raðir Real Madrid Samkvæmt spænska blaðinu Marca sem er hliðhollt Real Madrid segir að markahrókurinn David Villa hafi ákveðið að ganga í raðir Real Madrid frá Valencia fyrir fjörtíu milljónir evra, rúma sjö milljarða króna. 13.6.2009 13:05
Sverrir Garðars spilar ekki með FH á morgun Varnarmaðurinn sterki hjá Íslandsmeisturum FH, Sverrir Garðarsson tognaði í nára á æfingu í vikunni og verður ekki með gegn Grindvíkingum í Pepsi deildinni á morgun eins og búist var við. 13.6.2009 13:02
Eitt af stóru fjórum að kaupa Glen Johnson Peter Storrie stjórnarformaður Portsmouth hefur staðfest að bakvörðurinn Glen Johnson sé líklega á förum frá félaginu eftir að mjög hagstætt tilboð barst í leikmanninn. 13.6.2009 13:00