Enski boltinn

Fjöldi félaga vilja bjóða Tevez samning

Ómar Þorgeirsson skrifar
Carlos Tevez.
Carlos Tevez. Nordic photos/Getty images

Samkvæmt heimildum Sky sports fréttastofunnar munu þau félög sem hafa áhuga á að fá Argentínumanninn Carlos Tevez í sínar raðir hitta umboðsmenn hans á morgun.

En tveggja ára lánssamningur sem Tevez gerði við Englandsmeistara Manchester United rennur út á næstunni.

Ansi mörg félög eru talinn vera á höttunum eftir kappanum en í ensku úrvalsdeildinni eru það Manchester United, Manchester City, Liverpool og Chelsea og þá eru einnig félög frá Ítalíu og Spáni sem ætla að bjóða honum samning.

Tevez er þó sjálfur sagður vilja vera áfram á Englandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×