Fleiri fréttir

Howard: Við förum í sjötta leikinn í Los Angeles

Miðherjinn kröftugi Dwight Howard hjá Orlando Magic er ekki tilbúinn að afhenda LA Lakers fimmtánda NBA titil sinn á gullfati og hefur fulla trú á því að Magic vinni fimmta leik liðanna á heimavelli sínum í Orlando í nótt.

Fjórir leikir í Pepsi-deild karla í kvöld

Sjöunda umferð Pepsi-deildar karla heldur áfram í kvöld með fjórum hörku leikjum. Íslandsmeistarar FH heimsækja Grindvíkinga en FH-ingar hafa unnið fimm leiki í röð eftir tap í fyrstu umferðinni.

Álfukeppnin hefst í dag með tveimur leikjum

Evrópumeistarar Spánar verða í sviðsljósinu í dag þegar leikar hefjast í Álfukeppninni í Suður-Afríku. Heimamenn í Suður-Afríku mæta Írak í opnunarleik keppninnar en Spánverjar mæta svo Nýja-Sjálandi síðar um daginn.

Bolton ætlar loksins að kaupa Veloso

Enska úrvalsdeildarfélagið Bolton hefur lengi verið á höttunum eftir Portúgalanum Miguel Veloso og er enska félagið nú sagt vera nálægt því að ganga frá tíu milljón punda kaupum á miðjumanninum frá Sporting.

Þorsteinn Halldórsson: Griðarlega sáttir

Þorsteinn Halldórsson, aðstoðarþjálfari Þróttar, var mjög sáttur við fyrsta sigur Þróttara og sagði nauðsynlegt að innbyrða sigur eftir smá stress í fyrri hálfleiknum

Zidane: Real Madrid er enn á eftir Ribery

Fæst virðist benda til þess að Real Madrid sé hætt kaupæðinu á leikmannamarkaðnum í sumar. Fregnir frá Spáni í dag greindu frá því að félagið væri nálægt því að ganga frá kaupum á framherjanum David Villa frá Valencia.

Middlesbrough vill kaupa Neville og Scholes

Gareth Southgate og lærisveinar hans í Middlesbrough búa sig nú undir baráttuna í b-deildinni á Englandi eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð.

Selfoss styrkti stöðu sína á toppnum

Sóknarmaðurinn snjalli Sævar Þór Gíslason reyndist enn og aftur bjargvættur Selfyssinga þegar liðið vann dýrmætan 1-0 sigur gegn Þór í 1. deildinni á Selfossi í dag.

Umfjöllun: Fylkismenn skutust upp í annað sætið

Fylkismenn gerðu góða ferð á Fjölnisvöll og unnu verðskuldaðan 1-3 sigur gegn Fjölnismönnum. Fylkir komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar en Fjölnir er áfram í erfiðum málum í neðri hlutanum.

Ingimundur: Hefðum átt að drepa leikinn fyrr

Hinn eldsnöggi Ingimundur Níels Óskarsson var mjög líflegur í 1-3 sigri Fylkis gegn Fjölni og skoraði tvö mörk og lagði eitt upp. Hann var ánægður með leikinn og þrjú mikilvæg stig en hefði viljað sjá Fylkismenn klára leikinn fyrr en þeir gerðu.

Valur Fannar: Áttum að vinna stærri sigur

Valur Fannar Gíslason átti fínan leik fyrir Fylki í 1-3 sigrinum gegn Fjölni í dag. Hann var vitanlega sáttur með stigin þrjú en hefði viljað sjá lið sitt skora fleiri mörk.

Ásmundur: Mikið óöryggi í varnarleik okkar

Fjölnismenn voru talsvert frá sínu besta í dag þegar liðið tapaði verðskuldað 1-3 gegn Fylki á Fjölnisvelli. Ásmundur Arnarsson þjálfari liðsins var svekktur í leikslok og viðurkennir að liðið hafi nú ekki verið spila vel.

Ólafur: Vantar bara að við klárum færin betur

Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var eðlilega sáttur í leikslok í dag eftir sannfærandi 1-3 sigur Fylkis gegn Fjölni á Fjölnisvelli. Fylkismenn voru mun beittari en heimamenn og stigin þrjú voru því fyllilega verðskulduð.

Fylkir vann 1-3 sigur gegn Fjölni

Fylkismenn gerðu góða ferð á Fjölnisvöll og hirtu öll stigin með 1-3 sigri gegn slökum Fjölnismönnum. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði tvö mörk fyrir Fylki.

Líklegir endurfundir hjá Mourinho og Deco

Flest virðist nú benda til þess að miðjumaðurinn Deco yfirgefi Chelsea til þess að fara til Inter og spila aftur fyrir knattspyrnustjórann José Mourinho en félagarnir unnu Meistaradeildina saman með Porto árið 2004.

Maldini gæti fylgt Ancelotti til Chelsea

Eftir að Carlo Ancelotti var kynntur til sögunnar sem nýr knattspyrnustjóri Chelsea hafa fjölmargir leikmenn AC Milan verið orðaðir við Lundúnafélagið og nægir í því samhengi að nefna Andrea Pirlo, Clarence Seedorf, Pato og Gennaro Gattuso.

Robinho hvetur City til að kaupa Tevez

Framtíð Carlos Tevez hjá Manchester United er enn í óvissu en tveggja ára lánssamningur kappans við Englandsmeistarana er senn á enda. Forráðamenn United hafa verið tregir til þess að mæta verðmiðanum sem settur er á Tevez upp á um 30 milljónir punda en það gæti nú breyst eftir að metkauptilboð Real Madrid í Cristiano Ronaldo var samþykkt.

David Villa að ganga í raðir Real Madrid

Samkvæmt spænska blaðinu Marca sem er hliðhollt Real Madrid segir að markahrókurinn David Villa hafi ákveðið að ganga í raðir Real Madrid frá Valencia fyrir fjörtíu milljónir evra, rúma sjö milljarða króna.

Sverrir Garðars spilar ekki með FH á morgun

Varnarmaðurinn sterki hjá Íslandsmeisturum FH, Sverrir Garðarsson tognaði í nára á æfingu í vikunni og verður ekki með gegn Grindvíkingum í Pepsi deildinni á morgun eins og búist var við.

Eitt af stóru fjórum að kaupa Glen Johnson

Peter Storrie stjórnarformaður Portsmouth hefur staðfest að bakvörðurinn Glen Johnson sé líklega á förum frá félaginu eftir að mjög hagstætt tilboð barst í leikmanninn.

Portsmouth neitar að Shinawatra standi að baki yfirtökunni

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem sögusögnum, sem birtust í breskum fjölmiðlum í dag um að Thaksin Shinawatra væri viðriðinn yfirtöku félagsins, er staðfastlega neitað.

Sir Nick Faldo skal það vera

Nú hefur verið tilkynnt að golfarinn góðkunni Nick Faldo verði aðlaður á næstu dögum af Elísabetu Englandsdrottningu og mun því fá titilinn Sir Nick Faldo.

Leikið í Pepsi-deild og 1. deild karla í dag

Einn leikur fer fram í Pepsi-deild karla í dag þegar Fylkir heimsækir Fjölni á Fjölnisvöll. Fylkismenn hafa komið nokkuð á óvart í deildinni í sumar og eru sem stendur í fjórða sæti með ellefu stig og hafa aðeins tapað einum leik til þessa.

Moyes minnkar leikmannahópinn

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, hefur ákveðið að minnka leikmannahóp sinn hjá Everton með því að losa sig við þó nokkra leikmenn.

Fabianski áfram hjá Arsenal

Markvörðurinn Lukasz Fabianski hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal.

Saviola orðaður við Liverpool

Samkvæmt enska dagblaðinu The Daily Mail mun Rafael Benitez hafa áhuga á að fá Javier Saviola frá Real Madrid. Kaupverðið er sagt nema fimm milljónum punda.

Rose: Klíkumerkið var lélegur brandari

Nýliði ársins í NBA-deildinni, Derrick Rose hjá Chicago Bulls, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ljósmyndar af honum sem hefur flogið um netheima síðustu daga.

Pietrus sleppur með skrekkinn

NBA-deildin mun ekki aðhafast frekar yfir ruddaskap Mickael Pietrus, leikmanns Orlando Magic, í garð Pau Gasol hjá Lakers í leik liðanna í nótt.

Meistaradeildarmedalíu Riise stolið

Norðmaðurinn John Arne Riise þarf sárlega að eyða smá peningum í þjófavarnarkerfi því það er búið að brjótast inn hjá honum og ræna hann í annað sinn á nokkrum árum.

Það var Ferguson sem ákvað að sleppa Ronaldo

Glazer-fjölskyldan, sem á Man. Utd, hefur staðfest að það var á endanum ákvörðun Sir Alex Ferguson, stjóra félagsins, að leyfa Cristiano Ronaldo að fara til Real Madrid.

Manchester United búið að bjóða í Antonio Valencia

Dave Whelan stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Wigan staðfesti í samtali við Sky Sports fréttastofuna að Englandsmeistarar Manchester United væru búnir að leggja á borð kauptilboð í kantmanninn knáa Antonio Valencia.

Golfþrautir á Akranesi

Golfsambandið hefur einsett sér að fjölga áhorfendum á Íslensku mótaröðinni í sumar og til að ná því markmiði verður ýmis skemmtun í gangi á mótum sumarsins.

Ráðist á NBA-dómara í fangelsi

Fyrrum NBA-dómarinn Tim Donaghy á ekki sjö dagana sæla í fangelsi í Flórída. Þar var ráðist á dómarann og honum hótað lífláti.

Ferguson fær peninga til að versla

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur fengið græna ljósið frá eigendum félagsins, Glazer-fjölskyldunni, og getur látið til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar.

F1: Campos þakklátur fyrir valið

Adrian Campos, eigandi eins af þremur liðum sem hefur fengið grænt ljós frá FIA um að keppa í Formúlu 1 á næsta ári segist þakklátur að hafa orðið fyrir valinu.

Forseti Real: Erum ekki að steypa okkur í skuldir

Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir að félagið verði ekki stórskuldugt eftir risakaupin á Kaká og Cristiano Ronaldo. Perez er meira að segja á því að Real muni græða á kaupunum til lengri tíma litið.

Ferrari hótar enn að hætta

Samtök keppnisliða hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau vilji leysa hnútinn á milli sín og FIA, en einstrengingsleg vinnubrögð FIA verði ekki liðinn. FIA birti í morgun lista yfir leyfilega þátttakendur í Formúlu 1 á næsta ári og fimm núverandi lið eru á þeim lista með skilyrðum.

Stefán Þór gerir tveggja mánaða samning við IFK Norrköping

Skagamaðurinn Stefán Þór Þórðarsson hefur ákveðið að snúa aftur í sænska fótboltann og spila með IFK Norrköping í b-deildinni í júlí og ágúst. Stefán Þór lék við góðan orðstír hjá félaginu árin 2005-2007 þegar félagið komst meðal annars upp í efstu deild en á síðasta ári féll liðið hins vegar og hefur farið illa af stað á yfirstandandi keppnistímabili.

Leikið í VISA-bikar kvenna í dag og á morgun

Fyrsta umferð VISA-bikars kvenna hófst í vikunni með leik Hauka og Þróttar þar sem Haukar höfðu betur 1-0. Fimm leikir fara svo fram í kvöld og þar á meðal mætast Pepsi-deildarliðin Keflavík og Afturelding/Fjölnir á Sparisjóðsvellinum í Kefalvík.

Sjá næstu 50 fréttir