Fleiri fréttir

Juventus vill skipta á Trezeguet og Elano

Franski framherjinn David Trezeguet virðist ekki eiga framtíð hjá Juventus en ítalska félagið reynir nú að nota hann sem gjaldmiðil til þess að fá leikmenn í staðinn fyrir hann.

KA lagði topplið Hauka

Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í kvöld. Eftir leikina eru nú þrjú lið efst og jöfn á toppi deildarinnar með þrettán stig.

Burnley á von á spennandi lokaspretti

George Burley, landsliðsþjálfari Skota, á von á því að keppnin um annað sæti í 9. riðli undankeppni HM 2010 verði spennandi fram að síðasta leik.

Svíar tryggðu sér sæti á EM

Svíar tryggðu sér í kvöld sæti á EM í handbolta sem fer fram í Austurríki á næsta ári. Liðið gerði jafntefli við Rúmeníu á heimavelli, 26-26.

Ronaldo: Dágóð summa

Cristiano Ronaldo hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti um yfirvofandi félagaskipti sín til Real Madrid.

Mike Brown heldur áfram með Cleveland

Sögusagnir um óeiningu innan herbúða NBA liðsins Cleveland Cavaliers fóru víða í dag og þar var meðal annars talað um að þjálfarinn Mike Brown myndi hætta hjá félaginu. Innanbúðarmaður hjá Cleveland hefur nú borið þessar fréttar til baka.

Ronaldo innilegur með Paris Hilton

Slúðurblöð greina frá því í dag að Cristiano Ronaldo og Paris Hilton hafi látið vel að hvort öðru á skemmtistað í Los Angeles í gær.

Benzema fær ekki að fara frá Lyon

Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, hefur lýst því yfir að framherjinn eftirsótti, Karim Benzema, fái ekki að yfirgefa herbúðir félagsins í sumar.

Deco vill fara frá Chelsea

Brasilíski Portúgalinn Deco hefur lýst því yfir að hann ætli sér að yfirgefa herbúðir Chelsea eftir skamma viðdvöl á Brúnni.

Burnley eyðir ekki um efni fram í sumar

Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Burnley komumst sem kunnugt er upp í deild þeirra bestu á Englandi eftir frækinn 1-0 sigur gegn Sheffield United í umspili ensku b-deildarinnar á nýafstaðinni leiktíð.

Butragueno aftur til Real Madrid

Florentino Perez, forseti Real Madrid, er ekki bara á fullu í að kaupa bestu knattspyrnumenn heims þessa dagana. Hann er einnig í því að ráða til félagsins gömlu hetjurnar.

Rooney ætlar að bæta markamet Charlton

Wayne Rooney hefur sett það á markmiðaskrána sína að bæta markamet Bobby Charlton hjá enska landsliðinu. Rooney skoraði tvö mörk gegn Andorra í gær og hefur því skorað 24 mörk fyrir enska landsliðið.

Capello: Við spilum til að vinna

Ítalinn Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er eðlilega afar ánægður með þær framfarir sem enska landsliðið hefur tekið undir hans stjórn. Liðið hefur unnið alla sjö leiki sína í undankeppni HM og er með annan fótinn á HM og rúmlega það.

Sáttaleið reynd á síðustu stundu

FIA, alþjóðabílasambandið og FOTA, samtök keppnisliða ætla reyna semja til þrautar í dag um reglur og tilhögun á Formúlu 1 málum fyrir 2010 á fundi í London í dag.

Pato fær ekki að fara frá Milan

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að Milan muni ekki selja neina aðra stjörnu frá félaginu. Það hafi verið nóg að selja Kaká.

Patrick Vieira á leiðinni í franska boltann?

Framtíð Patrick Vieira virðist ekki vera á San Siro en miðjumaðurinn gamalreyndi náði ekki að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður hjá Inter undir stjórn José Mourinho.

Hughes hrósar eigendum Manchester City

Knattspyrnustjórinn Mark Hughes hjá Manchester City segir samband sitt við forráðamenn félagsins verði bara betra og betra. Miklar vangaveltur voru um framtíð Hughes eftir að Abu Dhabi Group fjárfestingarfélagið eignaðist City fyrir síðasta keppnistímabil en Hughes segir samstarfið við stjórnarformanninn Khaldoon Al Mubarak ganga vel og að framtíðin sé björt hjá félaginu.

Verður Ribery fenginn til að fylla skarð Ronaldo?

Breskir fjölmiðlar eru nú uppfullir af sögusögnum um hvað næsta skref Englandsmeistara Manchester United verði eftir að félagið samþykkti 80 milljón punda kauptilboð í Cristiano Ronaldo.

Abdul-Jabbar: Howard er dálítið fyrirsjáanlegur

Körfuboltagoðsögnin Kareem Abdul-Jabbar sér ekki bjarta framtíð fyrir miðherjann Dwight Howard hjá Orlando Magic ætli hann sér bara að byggja leik sinn á tröllatroðslum og líkamlegum styrk.

Mickelson tilbúinn að snúa aftur

Golfarinn Phil Mickelson mætir aftur til keppni á golfvellinum í dag þegar hann leikur á St. Jude Classic mótinu í Memphis en kappinn er búinn að vera í fríi frá keppni undanfarið til þess að geta staðið við hlið eiginkonu sinnar sem greindist nýverið með brjóstkrabbamein.

Megson vill breyta leikstíl Bolton

Knattspyrnustjórinn Gary Megson hjá Bolton vonast til þess að geta styrkt leikmannahóp sinn í sumar með nokkrum gæðaleikmönnum sem gætu hjálpað félaginu að taka næsta skrefið eins og hann orðar það.

United samþykkir metkauptilboð Real Madrid í Cristiano Ronaldo

Englandsmeistarar Manchester United hafa staðfest að þeir hafi samþykkt 80 milljón punda kauptilboð Real Madrid í Cristiano Ronaldo. Portúgalinn hefur því fengið leyfi til þess að hefja viðræður við spænska stórliðið og mun í framhaldi af því gangast undir læknisskoðun í Madrid.

Barcelona vonast til þess að halda Eto'o

Forseti Meistaradeildarmeistara Barcelona Joan Laporta segir Katalóníufélagið vilja halda framherjanum Samuel Eto'o innan sinna raða, en ekki fyrir hvaða pening sem er.

Ekvador lagði Argentínu

Diego Maradona og hans menn í argentínska landsliðinu urðu fyrir miklu áfalli í kvöld er liðið tapaði fyrir Ekvador, 2-0, í undankeppni HM 2010.

Enn eitt tapið hjá Kristianstad

Kristianstad féll í kvöld úr leik í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu kvenna. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari félagsins.

Holland og England enn með fullt hús stiga

Átta leikir fóru fram í dag í undankeppni HM 2010 og bar þar helst til tíðinda að bæði Holland og Noregur eru enn með fullt hús stiga í sínum riðlum.

Ecclestone berst gegn nýrri mótaröð

Bernie Ecclestone talar vanalega tæpitungulaust og gerði það í dag þegar hann sagði að hann myndi berjast á móti nýrri mótaröð bílaframleiðenda sem eru að keppa í Formúlu 1 í dag. Þeirri hugmynd hefur verið kastað fram, bæði síðustu vikur og síðustu misseri vegna deilna FIA og FOTA.

Skyldusigur á Belgum

Ísland vann átta marka sigur á Belgíu ytra í undankeppni EM 2010 sem fer fram í Austurríki á næsta ári, 33-25.

Ísland fer ekki á HM - tap í Makedóníu

Ísland tapaði í dag, 2-0, fyrir Makedóníu ytra í undankeppni HM 2010. Þar með er ljóst að þeir litlu möguleikar sem Ísland átti á að komast í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku eru ekki lengur fyrir hendi.

Westphal tekur við Kings

Sacramento Kings hefur ráðið reynsluboltann Paul Westphal sem næsta þjálfara liðsins. Hann er fjórði þjálfarinn hjá félaginu á fjórum árum.

Magni á leið í Fjölni

Fjölnismenn eiga von á góðum liðsstyrk í körfuboltanum en Ingvaldur Magni Hafsteinsson mun að öllum líkindum ganga í raðir félagsins frá Snæfelli á næstu dögum.

Toni: Barcelona hefur áhuga á að fá mig

Framherjinn Luca Toni hjá Bayern München staðfesti í samtali við Gazzetta dello Sport að Barcelona hefði áhuga á að fá hann í sínar raðir í sumar.

Sjá næstu 50 fréttir