Stefán Þór gerir tveggja mánaða samning við IFK Norrköping Ómar Þorgeirsson skrifar 12. júní 2009 12:03 Stefán Þór aftur til IFK Norrköping.
Skagamaðurinn Stefán Þór Þórðarsson hefur ákveðið að snúa aftur í sænska fótboltann og spila með IFK Norrköping í b-deildinni í júlí og ágúst. Stefán Þór lék við góðan orðstír hjá félaginu árin 2005-2007 þegar félagið komst meðal annars upp í efstu deild en á síðasta ári féll liðið hins vegar og hefur farið illa af stað á yfirstandandi keppnistímabili. Stefán Þór sammældist um að hlaupa undir bagga með félaginu í tvo mánuði en mikið er um meiðsli í framherjasveit félagsins um þessar mundir. „Ég væri ekki að þessu nema að ég væri mjög sáttur við þessa ákvörðun. Félagið á bara í miklum vandræðum og ég ætla að gera mitt besta til þess að hjálpa til. Þetta eru allt saman strákar í liðinu sem ég þekki og hef spilað með og sama gildir um fólkið í kringum félagið. Það hefur gengið illa hjá félaginu eftir fallið á síðasta tímabili og núna eru vandræði með meiðsli á framherjum og því leituðu þeir til mín. Ég mun vera þarna úti í júlí og ágúst og reyna að hjálpa til og vera þarna til taks," segir Stefán Þór. Það kemur ekki á óvart að IFK Norrköping hafi leitað til Stefáns Þórs en hann er sannkölluð goðsögn hjá félaginu og þegar hann hætti að spila í Svíþjóð var treyjan hans númer 18 til að mynda hengd upp í virðingarskyni við kappann. Stefán Þór segist vissulega finna fyrir smá pressu að koma aftur inn í þetta en það sé bara góður hlutur. „Það er alltaf pressa og það er það sem maður getur ekki slitið sig frá. Spennufíknin við að vera með fólkið á bakinu og að það ætlast til þess að maður geri eitthvað," segir Stefán að lokum.
Mest lesið Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Körfubolti Milljarðamæringur réttir nítján ára íþróttakonu hjálparhönd Sport Þorði ekki í mikilvægan landsleik af ótta við stefnu Trumps Fótbolti Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Enski boltinn Þrjár Guðmundsdætur í liði KR og Albert mætti Íslenski boltinn Með lögregluna á hælum sér vegna manndrápstilraunar Sport Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Körfubolti „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Enski boltinn Spaun steig ekki feilspor en stór nöfn í brasi Golf Dagskráin í dag: Erika berst við þá sænsku, úrslit NBA og US Open Sport Fleiri fréttir „Mamma! Segja áfram!“ Þrjár Guðmundsdætur í liði KR og Albert mætti Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Þorði ekki í mikilvægan landsleik af ótta við stefnu Trumps Borga fimm milljarða fyrir táning Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Freyr missir stjörnuleikmann í marga mánuði Draumur Cunha rættist Lindex-mótið á dagskrá í kvöld Morata og fjölskylda hans fékk morðhótanir Sané mættur til Tyrklands Mótherjar Íslands urðu fyrir áfalli rétt fyrir EM Forsetinn gaf öllum nýja bíla Bað þjóðina um að fyrirgefa þeim Íslensku konurnar niður um eitt sæti á FIFA-listanum Pólski þjálfarinn segir af sér eftir deilurnar við Lewandowski Alexander-Arnold kominn með númer Sú markahæsta frá upphafi „með hreina samvisku“ Mömmu þjálfarans fannst framkoma Bellingham viðbjóðsleg Sané fær ofurlaun hjá Galatasaray Leverkusen vill varnarmann Liverpool Grealish fer ekki með á HM félagsliða Sjá meira