Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
750 þúsund krónur söfnuðust í einvíginu á Nesinu 750 þúsund krónur söfnuðust til samtakanna „einstök börn“ þegar hið árlega góðgerðarmót í golfi, einvígið á Nesinu fór fram í dag. Venju samkvæmt er 10 sterkum kylfingum boðið til leiks og er leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Einn kylfingur dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn. 6.8.2007 20:22
Newcastle kaupir Enrique frá Villareal Newcastle hefur tryggt sér þjónustu spænska U21 árs landsliðsmannsins Jose Enrique frá Villareal. Newcastle borgar 6,3 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið. Enrique er sjöundi leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar. 6.8.2007 18:08
McClaren ætlar að fljúga til Bandaríkjanna til að hitta Beckham Steve McClaren, knattspyrnustjóri enska landsliðsins, ætlar að fljúga til Bandaríkjanna á fimmtudaginn til að hitta David Beckham og meta styrkleika bandarísku deildarinnar. Beckham hefur ekki ennþá spilað í deildinni vegna meiðsla og er ekki líklegt að hann verði tilbúinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Þýskalandi í næstu viku. 6.8.2007 17:33
Ballack: Ég er ekki á leiðinni til Madrid Miðjumaðurinn Michael Ballack hefur sagt að hann sé ánægður hjá Chelsea og að það sé ekkert til í þeim sögum að hann sé á leiðinni til Real Madrid. Ballack gekk til liðs við Chelsea síðasta sumar en fjölmiðlar á Spáni segja Real Madrid ætla að kaupa bæði Ballack og Arjen Robben frá Chelsea. 6.8.2007 16:25
Allardyce ver ákvörðun Newcastle um selja ekki Dyer Sam Allardyce, framkvæmdastjóri Newcastle, ver ákvörðun klúbbsins um að hætta við að selja Kieron Dyer til West Ham. Allt leit út fyrir að vera frágengið þegar Newcastle hætti skyndilega við að selja leikmanninn. Allardyce segist vera óánægður með vinnubrögð West Ham og Alan Curbishley, framkvæmdastjóra West Ham. 6.8.2007 15:47
Aston Villa og Sunderland á eftir markverði skoska landsliðsins Markvörður Celtic, Craig Gordon, verður ekki með liði sínu á mánudaginn í vináttuleik þar sem hann verður í Englandi að ræða við forráðamenn ensku Úrvalsdeildarliðin Aston Villa og Sunderland. Gordon er fyrirliði Celtic og einnig aðalmarkvörður skoska landsliðsins. Talið er að markvörðurinn kosti allt að tíu milljónum punda. 6.8.2007 14:58
Enska knattspyrnusambandið breytir reglum sem að lúta að leikmannaviðskiptum Deilan um Carlos Tevez varð til þess að enska knattspyrnusambandið hefur breytt reglum í tengslum við sölu á leikmönnum. 6.8.2007 14:48
John Terry verður frá í að minnsta kosti mánuð Það blæs ekki byrlega fyrir Chelsea í upphafi tímabils í enska boltanum. Komið hefur í ljós að fyrirliðinn John Terry verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð en hann meiddist illa á hné á æfingu fyrir helgi. Alls eru níu leikmenn á sjúkralista Chelsea. Auk John Terry eru það Didier Drogba, Paulo Ferreira, Wayne Bridge, Salmon Kalou, Andriy Shevchenko, Claude Makalele, Michael Ballack og Arjen Robben. 6.8.2007 14:44
Lyon hóf titilvörnina með sigri Frakklandsmeistararnir í knattspyrnu, Olympique Lyon hófu titilvörnina í gær á sigri en keppni í frönsku úrvalsdeildinni hófst um helgina að loknu sumarfríi. 6.8.2007 14:40
Tiger Woods sigraði örugglega í Ohio í gær Tiger Woods lék frábæran lokahring og fór með öruggan sigur af hólmi á heimsmótinu í golfi sem lauk í Ohio í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þetta var þriðja heimsmótið í röð sem að Tiger vinnur á Firestone golfvellinum. 6.8.2007 14:34
Everton kaupir Baines fyrir fimm milljónir punda Enska Úrvalsdeildarliðið Wigan hefur staðfest að varnarmaðurinn Leighton Baines hafi ákveðið að ganga til liðs við Everton og fær Wigan 5 milljónir punda í sinn hlut fyrir leikmanninn. Baines fékk leyfi til að ræða við Davis Moyes, framkvæmdastjóra Everton, um helgina og þá náðust samningar þeirra á milli. 6.8.2007 14:28
Mark Hannesar dugði skammt Hannes Sigurðsson skoraði fyrir Viking í Stafangri þegar liðið mætti Sandefjörd í norsku úrvalsdeildinni í dag. Hannes kom Vikingi yfir á 9. mínútu en Sandefjörd skoraði síðan 4 mörk og vann leikinn 4-1. 5.8.2007 18:44
AC Milan vann í vítaspyrnukeppni. Evrópumeistarar AC Milan unnu rússneska liðið Lokomotiv í Moskvu í leik um þriðja sætið á knattspyrnumóti í Moskvu í dag. 5.8.2007 17:54
Gummersbach sigraði á handboltamóti um helgina Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk þegar Gummersbach sigraði svissneska liðið Kadetten Schaffhausen 34-27 í dag. Leikurinn var úrslitaviðureign á móti fór fram í Ilsenburg í Þýskalandi. 5.8.2007 17:47
Alan Smith byrjar vel Alan Smith byrjar vel með nýja liðinu sínu Newcastle United. Newcastle er nú að spila við Sampdoria og staðan er 1-0. Smith skoraði markið á 59. mínútu. Fyrir helgi var Smith seldur frá Manchester United til Newcastle á 6 milljónir punda. 5.8.2007 15:38
Bendtner ekki nógu góður Þrátt fyrir að hafa skorað fyrir Arsenal í tveimur leikjum á undirbúningstímabilinu telur knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger, að danski landsliðsmaðurinn Nicklas Bendtner sé ekki nógu góður til þess að vera í byrjunarliðinu. 5.8.2007 14:46
Leeds fær markmann Danski markvörðurinn Casper Ankergren er ætlað að leysa markmannsvandræði enska 2. deildarliðsins Leeds United. Í gær gekk hann frá þriggja ára samningi við Leeds sem þarf að greiða Bröndby 3 milljónir danskra króna eða 35 milljónir íslenskra króna. 5.8.2007 14:41
Hamilton vann í Ungverjalandi Englendingurinn Lewis Hamilton sigraði í Ungverjalandskappstrinum í dag. Hamilton ók McMaren bíl sínum til sigur en hann hafði forystu frá upphafi. Annar í dag varð Kimi Raikkonen á Ferrari og Þjóðverjinn Nick Heidfeld á BMV varð í þriðja sæti. 5.8.2007 14:08
Birgir Leifur í 69. sæti í Rússlandi Birgir Leifur Hafþórsson lék á 4 höggum yfir pari á lokahring á opna rússnesku mótinu í golfi og er í 70. sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, einn skramba, 2 fugla og paraði 11 holur á lokahringnum. 5.8.2007 13:51
Manchester United vann Samfélagsskjöldinn Manchester United vann Chelsea í leik um Samfélagsskjöldinn eftir vítaspyrnukeppni á Wembley í dag. Markvörður Manchester Unied, Edvin van der Sar, varði þrjár vítaspyrnur 5.8.2007 13:41
Úrvalsdeildarlið keyptu sóknarmenn fyrir 163 milljónir punda í sumar. 30 sóknarmenn hafa verið keyptir til úrvalsdeildarliða í sumar og verðið fyrir pakkann er 163,2 milljónir punda eða tæpir 20,8 milljarðar króna. 18 félög í úrvalsdeild hafa keypt sóknarmenn, aðeins Everton og Reading hafa ekki krækt sér í sóknarmann en Everton er þó sagt hafa boðið 11 milljónir í Argentínumanninn Luis Gonzalez sem reyndar er miðjumaður. Enska blaðið Sunday Telegraph greinir frá þessu í dag. 5.8.2007 11:30
Ráðist á Ravelli í Gautaborg Fyrrverandi markvörður sænska landsliðsins í fótbolta, Thomas Ravelli, varð fyrir árás í gær í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg. Sá sem réðist á Ravelli hafði skömmu áður verið hent út af veitingastaðnum Tyrolen. Fyrir utan rakst hann á Thomas Ravelli og sló til hans. Ravelli komst óskaddaður frá árásinni sem minnir óneitanlega á tilefnislausa árás á landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen í Reykjavík í síðustu viku. Ravelli gerir lítið úr atvikinu í samtali við sænska blaðið Expressen. Líkt og landsliðsfyrirliðinn ákvað Ravelli að kæra ekki til lögreglu. 5.8.2007 09:55
Van Persie tryggði Arsenal sigur á Amsterdammótinu Arsenal vann Ajax 1-0 í úrslitaleik Amsterdammótsins. Hollendingurinn Robin van Persie skoraði sigurmarkið 3 mínútum fyrir leikslok. Markið kom eftir frábæran sprett Gael Clichy upp vinstri kantinn. 5.8.2007 09:55
Dean Ashton með fyrsta markið á Upton Park í tæpa 18 mánuði West Ham vann Roma 2-1 í vináttuleik á Upton Park í gær. Fyrrverandi leikmaður Barcelona, Ludovic Giuly kom Roma yfir áður en George McCartney jafnaði metin með föstum skalla á 64. mínútu eftir hornspyrnu Freddy Ljungberg. Dean Ashton skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar en þetta var fyrsta mark hans á Upton Park í tæpa 18 mánuði. Ashton lék ekkert með á síðustu leiktíð vegna öklameiðsla. 5.8.2007 09:54
Veigar Páll og félagar steinlágu Rosenborg burstaði Stabæk 3-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn með Stabæk og fékk að líta gula spjaldið. Brann er í 1. sæti deildarinnar með 32 stig en liðið mætir Valeringa í Osló nú síðdegis. Stabæk er enn í öðru sæti deildarinnar með 29 stig en Viking á möguleika á því að komast í annað sætið með sigri á Sandefjörd í dag. 5.8.2007 09:54
Mótherjar Liverpool töpuðu 3-1 Keppni í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu hófst í gærkvöldi. Toulouse, sem mætir Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu, tapaði fyrir Valenciennes. Johan Audel sem gekk í raðir Valenciennes í sumar frá Lille skoraði öll þrjú mörk liðsins. Nicolas Dieuze skoraði eina mark Toulouse. Fjörum leikjum 1. umferðar af 8 lauk með jafntelfi. Lyon hefur titilvörn sína síðar í dag þegar liðið mætir Auxerre. 5.8.2007 09:53
Dyer fer ekki til West Ham Alan Curbishley knattspyrnustjóri West Ham staðfesti við netútgáfu BBC nú áðan að ekkert yrði af kaupum félagsins á Kieron Dyer. Dyer var á leið til West Ham frá Newcastle fyrir 6 milljónir punda. Newcastle hækkaði skyndilega verðið og þá sagði West Ham hingað og ekki lengra. 4.8.2007 19:52
Brynjar skoraði Brynjar Björn Gunnarsson skoraði í dag fyrir Reading þegar liðið vann Wolves 3-2 í æfingaleik á Molineux heimavelli Úlfana í dag. Seyi Olofinjana kom Wolves í 1-0 en Stephen Hunt jafnaði metin. Brynjar kom Reading yfir þegar hann skoraði á 32. mínútu. 4.8.2007 16:57
Keypti leikmenn fyrir 5 milljarða án þess að sjá þá spila Knattspyrnustjóri Manchester City, Sven Göran Eriksson, hefur verið duglegur að kaupa leikmenn undanfarna daga. Hann er búinn að kaupa leikmenn fyrir tæpa 5 milljarða króna og marga þeirra hefur enn hann ekki séð spila. Sven Göran viðurkennir að hann hafi kíkt á myndbandsspólur og séð til leikmanna þar en ekki séð þá í leik. 4.8.2007 16:00
Rangers byrjar vel Keppni í skosku úrvalsdeildinni hófst í dag. Glasgow Rangers, sem hefur 51 sinni orðið Skotlandsmeistari byrjaði á því að vinna Inverness Caledonian 3-0 á útivelli. Fyrirliðinn Barry Ferguson skoraði tvö markanna og Spánverjinn Nacho Novo eitt. Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic hefja titilvörn sína á morgun en þá mætir liðið Kilmarnock á heimavelli. 4.8.2007 16:00
Leeds byrjar með 15 stig í mínus Hið fornfræga fótboltafélag Leeds United fékk í gær heimild til þess að hefja leik í 3. efstu deild á Englandi. Leiktíðin hefst eftir viku en Leeds byrjar boltasparkið með 15 stig í mínus. 4.8.2007 15:00
Teves ódýrasti framherjinn Darren Bent sóknarmaður Charlton var seldur til Tottenham fyrir 16 milljónir punda. Það er átta sinnum hærri upphæð en West Ham fær fyrir Carlos Teves. Enn liggur ekki fyrir hvað Manchester United þarf að borga fyrir Argentínumanninn en nokkrir sóknarmenn hafa verið keyptir til liða í ensku úrvalsdeildinni í sumar fyrir miklu hærri fjárhæð en 2 milljónir punda. 4.8.2007 14:53
Knattspyrnustjóri Sheffield United ósáttur við kaupverð á Carlos Teves Neil Warnock knattspyrnustjóri Sheffield United er allt annaður en ánægður með þá niðurstöðu að West Ham fái 2 milljónir punda fyrir Teves. Warnock skilur ekki hvers vegna 30 milljón punda leikmaður kostar ekki meira og telur að maðkur sé í mysunni. 4.8.2007 14:49
Róbert Gunnarsson frá í mánuð Róbert Gunnarsson, landsliðsmaðurinn í handbolta, fer á mánudag í aðgerð vegna meiðsla í liðþófa og þarf að hvíla í 3-4 vikur. Róbert sem leikur með Gummersbach í Þýskalandi framlengdi í maí samning sinn við félagið til ársins 2009. 4.8.2007 14:45
Vissi ekki að hann hefði skorað Paulo José de Oliveiera, brasilíski framherjinn hjá Häcken sem skoraði sigurmarkið gegn KR í Evrópuleiknum á fimmtudaginn, missti meðvitund í rúma mínútu þegar hann lenti í samstuði við markvörð KR. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. 4.8.2007 14:15
Spilar með KR í vetur ef ekkert breytist Helgi Már Magnússon, landsliðsmaður í körfubolta, gæti vel hugsað sér að spila með Íslandsmeisturum KR á næsta tímabili ef hann fær ekki freistandi tilboð erlendis frá. 4.8.2007 07:30
Hataði Benitez Neil Warnock, fyrrum stjóri Sheffield United, lýsir því í nýútkominni ævisögu sinni hversu mikið hann hataði kollega sinn hjá Liverpool, Rafael Benitez, eftir lokasprett síðasta tímabils. Liverpool tapaði fyrir Fulham í næstsíðustu umferð deildarinnar og segir Warnock að þau úrslit hefðu orðið Sheffield að falli. 4.8.2007 07:00
Sýnd veiði en ekki gefin Andstæðingar ensku liðanna Liverpool og Arsenal í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eru með þeim erfiðari sem hægt var að dragast á móti. Sigurvegarnir úr einvígi FH og FC Bate mætir Zaglabie Lubin eða Staua Búkarest. 4.8.2007 06:30
Van Gaal líkir tilboði Middlesbrough við þjórfé Louis van Gaal, knattspyrnustjóri AZ Alkmaar, hefur engan áhuga á að missa íslenska bakvörðinn Grétar Rafn Steinsson frá félaginu fyrir eitthvað klink, eins og hann orðaði það sjálfur í samtali við enska fjölmiðla í gær. Van Gaal gerði lítið úr nýlegu tilboði Middlesbrough í leikmanninn og líkti því við þjórfé. 4.8.2007 06:00
Verð að fara að skora fyrir Breiðablik Fanndís Friðriksdóttir 17 ára stelpa úr Breiðabliki varð markahæsti leikmaður Evrópumóts 19 ára landsliða kvenna sem fram fór hér á landi og lauk með sigri Þjóðverja um síðustu helgi. Fanndís skoraði jafnmörg mörk og þær Mary-Laure Delie hjá Frakklandi og Ellen White hjá Englandi en lék færri leiki en þær báðar. 4.8.2007 05:30
Eiður telur sig eiga góða möguleika Enskir fjölmiðlar héldu áfram að bendla Eið Smára Guðjohnsen við sölu til West Ham í gær eftir að Íslendingafélagið samþykkti tveggja milljón króna greiðslu frá umboðsmanninum Kia Joorabchian til að losa argentínska framherjann Carlos Tevez undan samningi við félagið. 4.8.2007 05:00
Alex fær atvinnuleyfi á Englandi Brasilíumanninum Alex hefur verið veitt atvinnuleyfi á Englandi og getur því gengið til liðs við Chelsea. Chelsea hefur lengi beðið eftir að fá leikmanninn frá PSV og getur nú loks reynt að semja við varnarmanninn sterka. 2.8.2007 21:19
KR úr leik eftir tap á heimavelli KR tapaði í kvöld fyrir sænska liðinu Häcken í Frostaskjóli. Leikurinn fór 1-0 fyrir gestina og þar með er KR úr leik í Evrópukeppni félagsliða þar sem fyrri leikurinn fór 1-1 í Svíþjóð. KR-ingar spiluð góðan bolta en voru óheppnir að fá á sig mark þegar aðeins 7 mínútur voru til leiksloka. KR hefði nægt markalaust jafntefli til að komast áfram. Þetta var fyrsti leikur Loga Ólafssonar sem þjálfari KR. 2.8.2007 20:49
Frank Lampard er tábrotinn Miðjumaðurinn Frank Lampard hjá Chelsea er tábrotinn á vinstri fæti og verður frá keppni á næstunni, en ekki er vitað hversu lengi hann verður frá. Talið er að táin hafi brotnað á fyrstu æfingu Chelsea í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, en það var ekki fyrr en í dag sem að hann fór í röntgenmyndatöku og í ljós kom að táin væri brotin. 2.8.2007 20:36
Tevez-málinu loksins að ljúka? Búist er við því að forráðamenn West Ham muni tilkynna á morgun að þeir hafi samþykkt að leysa Carlos Tevez undan samningi. Það þýðir að nánast er öruggt að kappinn fari til Manchester United áður en leikmannaglugginn lokar. 2.8.2007 20:04
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti