Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Evrópumótið í mýrarknattspyrnu haldið um helgina Evrópumótið í mýrarknattspyrnu verður haldið um helgina á Ísafirði. Þetta er í fjórða sinn sem að mótið verður haldið og verður umgjörðin flottari en nokkru sinni fyrr. Leikið verður á í það minnsta fjórum knattspyrnuvöllum og hafa á þriðja hundrað manns skráð sig. 2.8.2007 17:22
Finnan skrifar undir nýjan samning við Liverpool Varnarmaðurinn Steve Finnan hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Liverpool. Finnan er 31 árs gamall og var keyptur frá Fulham árið 2003 fyrir 3,5 milljónir punda. Finnan var búinn að samþykkja samninginn í síðasta mánuði en gat ekki skrifað undir strax vegna þátttöku Liverpool í Asíubikarnum. 2.8.2007 17:07
Eduardo da Silva fær leikheimild með Arsenal Króatinn Eduardo da Silva hefur fengið heimild til að spila með Arsenal eftir að félagið. Upphaflega stóð til að leikmaðurinn fengi ekki heimild vegna þess að hann hafði ekki spilað 75% af landsleikjum Króatíu síðastliðin tvö ár, en hann lék aðeins 50% leikja á því tímabili. 2.8.2007 16:22
Leik frestað í Rússlandi vegna eldinga Leik hefur verið frestað á Opna Rússneska meistaramótinu vegna eldinga. Birgir Leifur er meðal keppenda á mótinu og er hann á einu höggi yfir pari eftir 11 holur. Hann er búinn að fá fjóra fugla á hringnum, þrjá skolla og einn skramba. 2.8.2007 16:02
Pissilli settur í bann fyrir lyfjanotkun Ítalski golfarinn Allessandro Pissilli hefur verið settur í keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Pissilli greindist jákvæður af sterum á Omnium National mótinu þann 29 júní. Pissilli spilar á Ítalska atvinnumannmótaröðinni gæti hlotið allt að tveggja ára keppnibann fyrir þetta. 2.8.2007 15:37
Joey Barton ákærður fyrir líkamsárás Joey Barton, leikmaður Newcastle, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Hann er kærður fyrir að berja félaga sinn Ousmane Dabo á æfingu þann 1. maí síðasliðinn þegar hann var leikmaður Manchester City. Barton var handtekinn í maí vegna árásarinnar en sleppt gegn tryggingu. Hann á að mæta fyrir rétt þann 9. ágúst. Dabo endaði á spítala eftir árásina vegna meiðsla á gagnauga, nefi og vörum. 2.8.2007 15:33
City kaupir Brasilíumanninn Elano Manchester City hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á brasilíska miðjumanninum Elano frá Shakhtar Donetsk. Elano er þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir í dag, því áður hafði félagið tryggt sér þá Javi Garrido og Vedran Corluka. Elano kostar félagið átta milljónir punda og hefur City því eytt nálægt 20 milljónum punda í dag. 2.8.2007 14:52
Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland. Búist er við 10 þúsund áhorfendum á leikinn sem fram fer í Danmörku. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna sem fram fór fyrir hálfum mánuði í Keflavík. Danirnir náðu þá tveggja marka forystu en Keflvíkingar skoruðu þrjú mörk og unnu mikilvægan 3-2 sigur. 2.8.2007 14:29
KR mætir Häcken í kvöld KR-ingar taka á móti sænska liðinu Häcken í kvöld en þetta er síðari leikur liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppninnar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri viðureign liðanna í Gautaborg fyrir hálfum mánuði. Svíarnir komust í 1-0 eftir 10 mínútna leik, en Guðmundur Pétursson jafnaði metin fyrir KR á 68. mínútu og ættu KR -ingar því að teljast í ágætis málum fyrir leikinn í dag. 2.8.2007 14:24
Sagan heldur áfram með Tevez West Ham framhaldssagan heldur áfram í dag. Ráðgjafar Carlosar Tevez og West Ham funda í dag og reyna að komast að utanréttarsamkomulagi. Takist það ekki verður réttað í málinu þann 22. ágúst. 2.8.2007 14:19
Newcastle og United ná samkomulagi um Alan Smith Newcastle hefur náð samkomulagi um kaupverð á framherjanum Alan Smith. Talið er að Newcastle borgi sex milljónir punda fyrir leikmanninn ef að hann skrifar undir samning við félagið. Smith hefur verið orðaður við Middlesbrough, Everton, West Ham og Sunderland en nú er Newcastle líklegast til að hreppa hnossið. 2.8.2007 14:10
Logi lofar sókndjarfara liði Logi Ólafsson nýráðinn þjálfari KR segir að búast megi við sókndjarfara liði frá stjórnartíð forvera síns. Fyrsta verkefni Loga með KR liðið verður í Evrópukeppni félagsliða á KR velli í kvöld. 2.8.2007 13:50
Amsterdam mótið hefst í dag Hið árlega Amstardam mót í knattspyrnu hefst í dag en mótið er eitt það virtasta á undirbúningstímabili evrópskra knattspyrnuliða. Eins og ávalt er gestgjafinn Ajax og keppa alls fjögur lið um titilinn að venju. 2.8.2007 13:38
Manchester United tapaði fyrir Inter Englandsmeistararnir frá Manchester töpuðu í kvöld fyrir Ítalíumeisturum Inter. Leikurinn fór 3-2 og skoraði Wayne Rooney fyrra mark Manchester áður en Adriano skoraði sjálfsmark með skalla eftir aukaspyrnu frá Christiano Ronaldo. Davis Suazo skoraði tvívegis fyrir Inter og Zlata Ibrahimovic eitt. 1.8.2007 21:36
Dyer fær grænt ljós til að ræða við West Ham Miðjumaðurin Kieron Dyer hefur fengið grænt ljós til að hefja samningsviðræður við West Ham eftir að Newcastle og West Ham komust að samkomulagi um kaupverð á kappanum. Ekki er gefið upp hver upphæðin er en Newcastle hafði áður farið fram á fjórar milljónir punda fyrir leikmanninn. 1.8.2007 21:27
FH-ingar lágu í Kaplakrikanum FH-ingar töpuðu í kvöld fyrir Bate frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu, 1-3. FH-ingar komust yfir á 3. mínútu með marki frá Matthíasi Vilhjálmssyni en Hvít-Rússarnir náðu að jafna á 31. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik, en leikmenn Bate náðu að setja tvö mörk í seinni hálfleik. 1.8.2007 21:00
KR sigraði Breiðablik. KR sigraði Breiðablik í kvöld í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna með sex mörkum gegn tveimur. KR-ingar leiddu 2-0 í hálfleik. Með sigrinum er KR komið við hlið Vals á toppnum með 25 stig en Valur er með betri markatölu. Breiðablik er í 3. sæti með 13 stig. 1.8.2007 20:17
1-1 í Kaplakrika Flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign FH og Bate í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 1-1, en FH-ingar komust yfir á 3. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skoraði eftir góða sókn. Eftir markið náðu leikmenn Bate taki á leiknum og voru mun meira með boltann. Á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn með góðu marki en Daði Lárusson var nálægt því að verja. 1.8.2007 19:45
FH mætir Bate í Kaplakrika í kvöld Íslandsmeistarar FH leika fyrri leik sinn í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. FH-ingar mæta Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi og hefst leikurinn kl. 19:00 á Kaplakrikavelli. 1.8.2007 17:30
Casper gerir samning við Breiðablik út 2008 Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur framlengt samning við markvörðinn Casper Jacobsen sem verið hefur hjá félaginu frá því í byrjun júní þar sem Hjörvar Hafliðason þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2008. 1.8.2007 16:37
City að kaupa króatískan varnarmann fyrir 8,7 milljónir punda? Samkvæmt fréttamiðlum í Króatíu hefur Manchester City náð samkomulagi við Dinamo Zagreb um kaup á varnarmanninum Vedran Corluka. Kaupverðið er talið vera um 8,7 milljónir punda. Corluka þarf þó að fá atvinnuleyfi áður en gengið er frá kaupunum. 1.8.2007 15:51
United býst við að fá Beattie Bryan Robson, framkvæmdastjóri Sheffield United, er vongóður um að framherjinn James Beattie samþykki að ganga til liðs við Sheffield frá Everton eftir að samingsviðræður þeirra á milli áttu sér stað. Liðin hafa samþykkt kaupverð á kappanum, en Everton er talið fá um fjórar milljónir punda fyrir framherjann. 1.8.2007 15:05
Nesta hættur með landsliðinu Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar. 1.8.2007 14:55
Einn leikur í Landsbankadeild kvenna í kvöld Einn leikur verður leikinn í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Breiðablik heimsækir KR í vesturbæinn og hefst leikurinn klukkan 17:30. KR er í öðru sæti deildarinnar og Breiðablik í því þriðja en talsverður munur er á liðunum í stigafjölda. Leikurinn er mjög þýðingamikill fyrir KR því að með sigri komast þær við hlið Vals á toppi deildarinnar. 1.8.2007 14:42
Birgir Leifur í baráttunni í Rússlandi þessa vikuna Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram baráttunni sinni á evrópsku mótaröðinni þessa vikuna þegar hann spilar í Rússlandi. Hann hefur lækkað um 21 sæti á peningalistanum og er hann kominn í 177. sæti. 1.8.2007 14:38
Gallas vill verða næsti fyrirliði Arsenal Franski varnarmaðurinn William Gallas segist vilja verða næsti fyrirliði Arsenal. Arsene Wenger, framkvæmdastjóri klúbbsins, hefur nefnt Gallas sem einn af þeim þremur sem koma til greina til að taka við fyrirliðabandinu frá Thierry Henry sem gekk til liðs við Barcelona fyrr í sumar, en Gilberto Silva og Kolo Toure koma einnig til greina. 1.8.2007 14:34
City nær samkomulagi við Juventus um kaupverð á Bojinov Manchester City hefur náð samkomulagi við Fiorentina um kaupverð á búlgarska framherjanum Valeri Bojinov. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum borgar City 5,7 milljónir fyrir kappann. Bojinov, sem er aðeins 21 árs gamall, gekk til liðs við Fiorentina frá Lecce árið 2005 fyrir 10 milljónir punda, en þar fékk hann lítið að spila. 1.8.2007 14:25
Alan Curbishley áhugasamur um Smith Alan Curbishley, framkvæmdastjóri West Ham, hefur nú hafið viðræður við framherjann Alan Smith hjá Manchester United, í von um að krækja loksins í leikmanninn en Smith hefur verið lengi undir smásjá West Ham. Alan Smith er þó talinn vilja vera áfram á Old Trafford en hann hann getur nú valið á milli fjögurra liða eða Middlesbrough, Newcastle, Everton og nú West Ham. 1.8.2007 14:16
Kevin Garnett til Boston Celtics NBA stjörnuleikmaðurinn Kevin Garnett, hefur verið seldur til Boston Celtics, en þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í gær. Garnett hefur leikið með Minnesota Timberwolves síðastliðin 12 tímabil og var meðal annars kjörinn besti leikmaður deildarinnar árið 2004. 1.8.2007 10:19
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti