Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haukar og Keflavík í lykilstöðu Haukar og Keflavík skelltu sér í bílstjórasætið á ný í rimmum sínum í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar lögðu ÍS 78-61 á Ásvöllum og Keflavíkurstúlkur lögðu granna sína frá Grindavík 99-91. Haukar og Keflavík hafa því náð 2-1 forystu í einvígjum sínum og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í næsta leik. 27.3.2007 21:48
Stjarnan mætir Val Stjarnan lagði Breiðablik 96-87 í Smáranum í kvöld og tryggði sér þar með réttinn til að leika við Val um laust sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta. Stjarnan vann einvígið 2-1 og unnust allir leikirnir á útivelli. Þór vann 1. deildina og fer beint upp í úrvalsdeild. 27.3.2007 21:34
KR-ingar yfir eftir þrjá leikhluta KR hefur yfir 66-59 eftir þrjá leikhluta í öðrum leik sínum við Snæfell í Stykkishólmi. Gestirnir hafa verið sterkari aðilinn í leiknum eftir afleitan fyrsta leikhluta og stefnir í mikla spennu á lokasprettinum. 27.3.2007 21:16
Ekki búist við miklum breytingum hjá spænskum Ekki er búist við að Luis Aragones landsliðsþjálfari Spánar geri margar breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Íslendingum annað kvöld. Þó er víst að þeir Sergio Ramos og Carles Puyol komi í lið Spánar í hægri hluta varnarinnar. 27.3.2007 20:50
Aragones gagnrýnir Alonso og Iniesta Það er um fátt rætt annað á Spáni en það ósætti sem virðist ríkja milli nokkurra leikmanna spænska liðsins og þjálfarans, Luis Aragones. Hann lét ýmislegt misjafnt falla um leikmenn sína á blaðamannfundi eftir leik Spánverja gegn Dönum um helgina. 27.3.2007 20:43
90% svarenda vildu reka McClaren Breska blaðið Sun birti í dag niðurstöðu úr skoðanakönnun sem það framkvæmdi eftir leik Englendinga og Ísraela á dögunum. Þar var spurt hvort landsliðsþjálfarinn Steve McClaren væri rétti maðurinn til að stýra liðinu og niðurstöðurnar voru afdráttarlausar. Tæplega 90% aðspurðra vildu að hann yrði rekinn og aðeins 232 af 2055 vildu að hann yrði áfram í starfi. 27.3.2007 20:37
Cristiano Ronaldo meiddist á æfingu Svo gæti farið að vængmaðurinn eitraði Cristiano Ronaldo missti af leik Portúgala og Serba annað kvöld eftir að hann meiddist á hæl á æfingu liðsins í dag. Talsmaður portúgalska liðsins segir meiðslin ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu, en þó efast hann um að leikmaðurinn verði orðinn góður fyrir leikinn gegn Serbum. 27.3.2007 20:25
Spánverjar ætla að bræða Íslendinga Íslendingar mæta Spánverjum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu á morgun. Þrátt fyrir litla möguleika á hagstæðum úrslitum fyrir Ísland, eru veikir hlekkir í spænska liðinu. 27.3.2007 18:51
Viggó kominn aftur til Hauka (myndband) Viggó Sigurðsson er á ný kominn í þjálfarateymi Hauka í Hafnarfirði eftir þriggja ára fjarveru. Viggó mun aðstoða Pál Ólafsson þjálfara á lokaspretti Íslandsmótsins í handbolta en Haukar eru í bullandi fallbaráttu. Viggó útilokar ekki að snúa aftur til Flensburg í þýskalandi. 27.3.2007 18:45
Vilhjálmur í landsliðið í stað Loga Vilhjálmur Halldórsson hjá danska liðinu Skjern hefur verið kallaður inn í íslenska karlalandsliðið í handbolta í stað Loga Geirssonar sem er meiddur. Liðið tekur þátt í æfingamóti í Frakklandi um páskana þar sem það mætir Pólverjum, Frökkum og Túnisum. 27.3.2007 18:40
Neville frá í sex vikur? Breskir fjölmiðlar fullyrtu í dag að Gary Neville, fyrirliði Manchester United, yrði frá keppni í að minnsta kosti sex vikur vegna ökklameiðsla sem hann hlaut í leik gegn Bolton fyrir tíu dögum síðan. Þetta þýddi að Neville missti af mjög mikilvægum leikjum United á lokasprettinum í vor, þar sem framundan eru mikilvægir leikir í deild, bikar og Evrópukeppni. 27.3.2007 18:23
Saviola verður að vera þolinmóður Argentínski framherjinn Javier Saviola verður að vera þolinmóður og bíða lengur eftir því að forráðamenn Barcelona bjóði honum nýjan samning. Þetta segir Txiki Begiristain yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Samningur Saviola rennur út í sumar en hann hefur skorað 12 mörk í 21 leik fyrir Barca í vetur. 27.3.2007 18:16
Ólga í herbúðum Spánverja Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, hefur beðið fréttamenn að hætta búa til sögur af óeiningu í herbúðum liðsins fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni EM annað kvöld. Spænsku blöðin sögðu að ólga væri í herbúðum liðsins og gagnrýndi það harðlega eftir ósannfærandi sigur á Dönum um helgina, þar sem spænskir voru manni fleiri meira en hálfan leikinn. 27.3.2007 18:08
Rossi vill klára samninginn hjá Man Utd Ítalski framherjinn Giuseppe Rossi hjá Manchester United segist vilja klára samning sinn við félagið þrátt fyrir að hafa verið í láni í allan vetur. Hann fékk lítið sem ekkert að spila með Newcastle þar sem hann var í láni fram að áramótum og er nú að gera góða hluti með Parma í heimalandinu. 27.3.2007 18:01
Mido íhugar að fara frá Tottenham Framherjinn Mido hjá Tottenham segist vilja fara frá félaginu ef hann fái ekki að spila meira en verið hefur í vetur. Mido er sem stendur fjórði framherjinn í goggunarröð þjálfarans Martin Jol á eftir þeim Dimitar Berbatov, Robbie Keane og Jermain Defoe. 27.3.2007 17:56
New Orleans - Dallas í beinni á miðnætti Leikur New Orleans Hornets og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Dallas er í efsta sæti deildarinnar og hefur árangur liðsins í deildarkeppninni í vetur verið einstakur. Liðið getur í kvöld unnið sjötta útileikinn í röð á keppnisferðalagi sínu og leitast einnig við að vinna 21. leikinn í röð á Hornets. Dallas tapaði síðast fyrir Hornets árið 1999 þegar liðið var í Charlotte. 27.3.2007 17:30
Landsliðið skólaust Íslenska karlalandsliðið í fótbolta þarf að kaupa nýja fótboltaskó eftir að 19 af töskum liðsins týndust í för þess til Mallorca. 14 af töskur komu í síðar í leitirnar, en farangurinn var óvart sendur til Kanaríeyja. Reuters fréttastofan greindi frá þessu í dag. Íslenska liðið mætir Spánverjum í undankeppni EM annað kvöld. 27.3.2007 14:43
Arsenal og Chelsea sektuð Arsenal og Chelsea voru í dag sektuð um 100,000 pund hvort vegna ólátanna sem urðu á úrslitaleiknum í enska deildarbikarnum á dögunum. Bæði félög fengu líka aðvörun frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins, en uppúr sauð undir lok leiksins og setti það dökkan blett á annars ágætan leik. 27.3.2007 14:27
Úrslitaleikurinn verður á Wembley Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag formlega að úrslitaleikurinn í enska bikarnum í vor færi fram á nýja Wembley leikvangnum í London þann 19. maí. Afhending mannvirkisins hefur tafist mikið og farið langt fram úr fjárhagsáætlun, en nú er útlit fyrir að enskir þurfi ekki lengur að halda úrslitaleiki sína í Cardiff eins og verið hefur. 27.3.2007 14:22
Yfirtakan í Liverpool formlega komin í gegn Fyrirtæki Bandaríkjamannanna George Gillett og Tom Hicks hefur nú formlega klárað yfirtökuna í enska knattspyrnufélaginu Liverpool. Félagið heitir Kop Football Limited og á nú 98,6% hlut í Liverpool. 27.3.2007 14:19
McClaren mætti ekki á blaðamannafund Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga á yfir höfði sér refsingu frá Knattspyrnusabandi Evrópu eftir að hann mætti ekki á blaðamannafund sem haldinn var í dag fyrir leik Andorra og Englands í undankeppni EM. McClaren hefur verið milli tanna ensku pressunnar undanfarið vegna lélegs gengis enska liðsins. 27.3.2007 14:08
Boozer fór á kostum í sigri Utah Carlos Boozer fór á kostum í liði Utah í nótt þegar liðið lagði Washington í sjónvarpsleiknum á NBA TV. Shaquille O´Neal varð 12. stigahæsti leikmaður NBA frá upphafi þegar hann skoraði 22 stig í sigri Miami á Atlanta. Miami er nú komið í toppsætið í sínum riðli í Austurdeildinni. 27.3.2007 04:53
Wallace tryggði framlengingu með skoti frá miðju Detroit Pistons vann í nótt ævintýralegan sigur á Denver Nuggets á heimavelli sínum 113-109, þrátt fyrir að vera án tveggja byrjunarliðsmanna sinna sem voru með flensu. Rasheed Wallace tryggði heimamönnum framlengingu með skoti frá eigin vallarhelmingi um leið og flautan gall og var maðurinn á bak við sigur liðsins í aukahlutanum. 27.3.2007 04:28
Jafnt í hálfleik í Stykkishólmi Staðan í leik Snæfells og KR í Stykkishólmi er jöfn 41-41 þegar flautað hefur verið til leikhlés í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Snæfell hafði yfir 21-11 eftir fyrsta leikhluta, en gestirnir tóku 10-0 rispu í upphafi þess næsta og hafa verið betri aðilinn síðan. 27.3.2007 20:40
Snæfell yfir eftir fyrsta leikhluta Snæfell hefur yfir 21-11 gegn KR þegar fyrsta leikhluta er lokið í annari viðureign liðanna í Stykkishólmi. KR hefur yfir 1-0 í einvíginu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 27.3.2007 20:18
Snæfell - KR í beinni á Sýn í kvöld Snæfell og KR mætast í kvöld öðru sinni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. KR vann fyrsta leikinn naumlega á heimavelli eftir æsilegar lokamínútur. Þá verða einnig á dagskrá tveir leikir í undanúrslitum kvenna þar sem Keflavík tekur á móti Grindavík og Haukar mæta ÍS. Staðan í báðum rimmum er 1-1, en kvennaleikirnir hefjast klukkan 19:15. 27.3.2007 16:50
Grindavík jafnaði metin gegn Njarðvík Grindavík náði að jafna metin gegn Njarðvík í rimmu liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla með því að sigra, 88-81, í viðureign liðanna í kvöld. Frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að sigrinum en Njarðvíkingar komust býsna nálægt því að jafna metin í síðari hálfleik en minnstur varð munurinn þrjú stig. 26.3.2007 21:30
Grindvíkingar að niðurlægja Íslandsmeistarana Grindavík hefur haldið Íslandsmeisturum Njarðvíkur í 26 stigum í fyrri hálfleik í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Á sama tíma hafa Grindvíkingar skorað 56 stig og hafa því 30 stiga forystu í hálfleik. Hreint ótrúlegar tölur í Grindavík, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 26.3.2007 20:33
Artest að gefast upp? Ron Artest, hinn skrautlegri framherji Sacramento í NBA-deildinni, er sagður vera að íhuga það alvarlega að leggja skóna á hilluna að loknu núverandi tímabili. Ástæðan, að því er fjölmiðlar í Bandaríkjunum halda fram, er sú að hann vill eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. 26.3.2007 20:00
Foster ætlaði að hætta Ben Foster, markvörður Man. Utd. og enska landsliðsins, segist hafa íhugað alvarlega að leggja hanskana á hilluna skömmu áður en Sir Alex Ferguson ákvað að kaupa sig. Foster, sem hefur staðið sig frábærlega sem lánsmaður hjá Watford í vetur, var á mála hjá Stoke áður þar sem hann fékk engin tækifæri. 26.3.2007 19:45
Healy ætlar að halda áfram að skora Hinn sjóðheiti sóknarmaður Norður-Íra, David Healy, vonast til þess að hann haldi áfram að skora fyrir þjóð sína þegar Svíar koma í heimsókn á Windsor Park á miðvikudag. Healy hefur farið á kostum í undankeppninni til þessa og skorað alls sex mörk. Ef Norður-Írar leggja Svía af velli komast þeir á toppinn í F-riðli undankeppninnar. 26.3.2007 19:30
Parker vill að Lampard verði fórnað Paul Parker, fyrrum landsliðsmaður Englendinga í knattspyrnu, telur að Steve McLaren eigi að fórna Frank Lampard úr byrjunarliði enska liðsins til þess að geta spilað Steven Gerrard við hlið Owen Hargreaves á miðri miðjunni. Parker segir augljóst að Lampard og Gerrard geti ekki verið báðir inni á vellinum á sama tíma. 26.3.2007 18:30
Skoraði fjögur mörk gegn Rússum Kolbeinn Sigþórsson, 17 ára knattspyrnumaður í HK, skoraði 4 mörk gegn Evrópumeisturum Rússa um helgina, þegar drengjalandsliðið tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum Evrópukeppninnar. En Rússar sátu eftir í milliriðlinum með sárt ennið og komust ekki í úrslit. 26.3.2007 18:30
Makaay segr Bayern þurfa kraftaverk Hollenski framherjinn Roy Makaay hjá Bayern Munchen segir að liðið þurfi á kraftaverki að halda ætli það sér að verja meistaratitil sinn í Þýskalandi frá því í fyrra. Níu stigum munar á Bayern og toppliðinu Schalke þegar aðeins átta leikir eru eftir og telur Makaay að það sé einfaldlega of lítið. 26.3.2007 18:00
Alonso hefur trú á Liverpool Xabi Alonso, hinn spænski miðjumaður Liverpool, hefur fulla trú á að liðið getið endurtekið leikinn frá árinu 2005 og farið alla leið í Meistaradeild Evrópu á þessum tímabili. Alonso segir leikmenn liðsins spila af miklu sjálfstrausti í Meistaradeildinni. 26.3.2007 17:00
Ronaldo: Ég er einn af þeim bestu Cristiano Ronaldo leiðist ekki að tala um eigið ágæti sem knattspyrnumaður þessa dagana. Ekki er langt síðan hann titlaði sjálfan sig sem “of góðan” og eftir að hafa skorað tvö mörk fyrir Portúgal gegn Belgum um helgina sagði Ronaldo við portúgalska fjölmiðla að hann væri einn af besti leikmönnum í heimi. 26.3.2007 15:30
Tímabilið búið hjá Ray Allen Ray Allen mun ekki spila meira með liði sínu Seattle Supersonics í NBA-deildinni á tímabilinu en leikmaðurinn hefur ákveðið að bíða ekki lengur með að gangast undir óumflýjanlega aðgerð á ökkla. Allen hefur spilað sárþjáður í síðustu leikjum liðsins. 26.3.2007 15:15
Fabregas: Tímabilið er klúður Cesc Fabregas, hinn 19 ára gamli miðjumaður Arsenal, hefur viðurkennt að tímabilið í ár hafi verið klúður. Fabregas segir það óásættanlegt fyrir lið á borð við Arsenal að eiga ekki möguleika á neinum titlum á þessum tímapunkti leiktíðarinnar. 26.3.2007 14:30
Beckenbauer segir Þjóðverja með besta liðið Franz Beckenbauer, keisarinn í þýskri knattspyrnu, segir að þýska landsliðið sé það besta í Evrópu um þessar mundir, miðað við spilamennsku þess í síðustu leikjum. Beckenbauer segir að þjálfarar ættu að nota síðustu leiki þýska liðsins sem kennslumyndband í fótbolta. 26.3.2007 14:14
Romario kominn með 999 mörk Brasilíski framherjinn Romario skoraði eitt marka Vasco da Gama í 3-0 sigri liðsins á erkifjendunum í Flamengo í brasilísku úrvalsdeildinni í gær og hefur nú skorað 999 mörk á ferlinum, samkvæmt eigin talningu. Romario vantar nú aðeins eitt mark til að ná sínu stærsta markmiði á ferlinum. 26.3.2007 14:00
McLaren: Þetta er algjört kjaftæði Steve McClaren, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, segir ekki rétt að hann og framherjanum Wayne Rooney hafi rifist heiftarlega inn í búningsklefa eftir leikinn gegn Ísraelum á laugardag, eins og enskir fjölmiðlar sögðu frá í morgun. McLaren lýsir fréttunum sem “algjöru kjaftæði”. 26.3.2007 13:17
Woods vann í Miami í sjötta sinn Tiger Woods sigraði á CA-heimsmótinu í golfi í gær þrátt fyrir að hafa spilað illa á lokadeginum í Miami í gær og klárað hringinn á einu höggi yfir pari. Fjögurra högga forskot kappans fyrir lokadaginn gerði það hins vegar að verkum að aðrir kylfingar náðu ekki að ná efsta sætinu af honum. Þetta var í sjötta sinn sem Woods sigrar mótið. 26.3.2007 12:30
Saviola lofaður nýjur samningur Argentínski framherjinn Javier Saviola hjá Barcelona býst við því að vera boðinn nýr samningur við spænska stórveldið í vikunni. Verði sú raunin fá þær vangaveltur sem segja Eið Smára Guðjohnsen á förum frá Barcelona í sumar byr undir báða vængi. 26.3.2007 12:09
Adebayor rekinn úr landsliðinu Knattspyrnusamband Togo hefur tekið þá ákvörðun að reka Emmanuel Adebayor, framherja Arsenal og langbesta leikmann liðsins, og tvö aðra leikmenn vegna deilu þeirra við knattspyrnuyfirvöld landsins um bónusgreiðslur sem þeir telja sig eiga rétt á. Adebayor hafði hótað að hætta að spila fyrir landsliðið vegna málsins en nú hefur ákvörðunin verið tekin fyrir hann. 26.3.2007 11:59
Farangur landsliðsins skilaði sér ekki Á annan tug ferðataska í eigu KSÍ og leikmanna íslenska landsliðsins í fótbolta skiluðu sér ekki til Mallorca, þar sem liðið mætir því spænska í undankeppni EM á miðvikudag. Talið er að klúður á flugvellinum í Keflavík hafi orðið til þess að töskurnar fóru til Kanaríeyja í staðinn. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun. 26.3.2007 10:45