Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varalið Þjóðverja gegn Dönum Joachim Loew, þjálfari þýska landsliðsins, ætlar að gefa átta lykilmönnum liðsins frí þegar það tekur á móti Dönum í vináttuleik á miðvikudag. Loew ætlar að nota leikinn til að gefa ungum og óreyndum leikmönnum tækifæri, en Þjóðverjar unnu frækinn útisigur á Tékkum í gærkvöldi. 25.3.2007 19:15
Raikkonen á að fá að drekka að vild Eddie Jordan, ein af helstu goðsögnu formúlu 1, hefur beðið forráðamenn Ferrari um að hafa ekki áhyggjur af óhóflegri drykkju finnska ökumannsins Kimi Raikkonen, en sá er sagður vera mikið fyrir að fara út á lífið og fá í tána. Jordan segir að á meðan Raikkonen haldi áfram að aka eins og hann hefur verið að gera geti drykkjan ekki annað en verið að gera honum gott. 25.3.2007 18:30
Sanchez segir Healy vera í heimsklassa Lawrie Sanchez, þjálfari Norður-Íra í knattspyrnu, segir markamaskínuna David Healy vera heimsklassa sóknarmann. Healy skoraði þrennu í 4-1 sigri Norður-Íra á Liechtenstein í gær og hefur alls skorað sex mörk í undankeppninni. Alls hefur Healy skorað 27 mörk í 55 landsleikjum á ferlinum. 25.3.2007 17:55
HK og Fram skildu jöfn - ÍR lagði Fylki HK og Fram gerðu jafntefli, 25-25, í DHL-deild karla í handbolta í dag. Úrslitin þýða að HK er enn á eftir á Valsmönnum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en bæði lið hafa hlotið 25 stig. Valur á hins vegar leik til góða gegn nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar kl. 18 í dag. Í hinum leik dagsins vann ÍR lið Fylkis, 30-29. 25.3.2007 17:47
Olsen ósáttur við spænsku boltastrákana Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana, var allt annað en sáttur með spænsku boltastrákana sem voru við störf á leiknum við Spánverja á Bernabeu-vellinum í Madríd í gær og sakar þá um að tefja leikinn vísvitandi á síðustu mínútum hans. Olsen hraunaði enn fremur yfir svissneskan dómara leiksins. 25.3.2007 17:30
Aragones ekki ánægður Þrátt fyrir að Spánverjar hafi náð að halda í vonina á að komast áfram í lokakeppni EM með 2-1 sigri á Dönum í gærkvöldi var landsliðsþjálfarinn Luis Aragones ekki ánægður með frammistöðu lærisveina sinna. Aragones sagði sína menn hafa orðið alltof taugaveiklaða eftir að hafa náð forystu, en litlu munaði að 10 leikmenn Danmerkur næðu að jafna metin í síðari hálfleik. 25.3.2007 17:00
Arsenal fylgist með viðræðum Klose og Werder Bremen Forráðamenn Arsenal eru sagðir fylgjast vel með gangi mála í viðræðum Miroslav Klose og Werder Bremen um nýjan samning þýska landsliðsmannsins við félagið. Enn sem komið er hefur viðræðunum þokast hægt áfram og segja nokkur ensku blaðanna í morgun að Arsenal hyggist bjóða fimm milljónir punda í Klose ef samningar náist ekki. 25.3.2007 16:30
Portlandi lagði Kiel með tveggja marka mun Portland San Antonio frá Spáni lagði Þýskalandsmeistara Kiel af velli, 30-28, í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Ólíkegt verður að teljast að forskot Portland dugi til að komast í úrslit keppninnar, enda Kiel nánast ósigrandi á heimavelli sínum. 25.3.2007 15:37
Adebayor var hótað lífláti Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, er ekki viss um hvort hann hafi hug á að spila fyrir þjóð sína aftur eftir að hafa fengið lífslátshótanir fyrir landsleik Togo og Sierra Leone í Afríkukeppninni í gær. Adebayor segir að sér og fjölskyldu sinni hafi verið hótað hinu versta ef hann hefði ekki spilað leikinn. 25.3.2007 15:16
Terry segir McLaren hafa verið brjálaðan John Terry, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur greint frá því að þjálfarinn Steve McLaren hafði verið æfur út í leikmenn liðsins eftir markalausa jafnteflið gegn Ísrael í gær. Terry kveðst ánægður með hárblástur McLaren og segir leikmann hafa átt skammarræðuna skilið. 25.3.2007 14:39
Birgir Leifur lauk keppni á pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á pari á Madeira-mótinu í Portúgal og er í 45. sæti þegar um helmingur keppenda á eftir að ljúka leik. Sá árangur færir Birgi Leifi um 340 þúsund krónur í verðlaunafé, en hann lék á einu höggi yfir pari í morgun. 25.3.2007 13:40
Corradi: Manchester City er martröð Ítalski sóknarmaðurinn Bernardo Corradi fer ekki fögrum orðum um stjóra sinn Stuart Pearce í enskum fjölmiðlum í morgun og lýsir sínu fyrsta tímabili á Englandi sem “lifandi martröð”. Corradi kom til Manchester City frá Valencia síðasta sumar og hefur átt erfitt uppdráttar í ensku deildinni. Hann segir Pearce skorta tekníska þekkingu til að ná árangri. 25.3.2007 13:24
Garcia missti pútt og hrækti á völlinn Spænski kylfingurinn Sergio Garcia á yfir höfði sér væna fjársekt fyrir að hafa hrækt ofan í holuna á 13. braut á heimsmótinu sem fram fer í Miami um helgina. Garcia fékk skolla á brautinni eftir að hafa misst auðvelt pútt og brást við með fyrrgreindum hætti. Þess má geta að hrákan fór beint ofan í holuna. 25.3.2007 13:15
McLaren: Við verðum að skora mörk Steve McLaren, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, var ekki ánægður með framgöngu sinna manna fyrir framan marka Ísraela í viðureign þjóðanna í undankeppni EM í gærkvöldi. Enska liðið var mun meira með boltann og stjórnaði leiknum lengst af en gekk illa að skapa sér færi gegn vel skipulagðri vörn Ísraela. 25.3.2007 13:00
Miami missti niður 19 stiga forystu Philadelphia sýndi mikinn karakter í leik liðsins gegn Miami í nótt með því að vinna upp 19 stiga forskot meistaranna í síðari hálfleik og uppskera að lokum öruggan sigur, 93-85. Þetta var 10 sigur Philadelphia í síðustu 14 leikjum, en jafnframt þriðja tap Miami í síðustu fjórum leikjum. 25.3.2007 12:01
Spánverjar lögðu Dani Spánverjar unnu 2-1 sigur á Dönum í undankeppni EM í kvöld og ættu því að mæta fullir sjálfstraust í viðureignina gegn Íslendingum á miðvikudagskvöld. Danir léku manni færri lengst af leiknum eftir að Niclas Jensen fékk að líta rauða spjaldið strax á 20. mínútu leiksins. Þá burstuðu Portúgalar heillum horfna Belga, 4-0. 24.3.2007 22:40
Góður sigur Þjóðverja á Tékkum Þjóðverjar unnu góðan útisigur á Tékkum í uppgjöri efstu liða D-riðils undankeppni EM í fótbolta í kvöld. Kevin Kuranyi skoraði bæði mörk Þjóðverja. Þá vann Króatía 2-1 sigur á Makedóníu eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik og tryggði stöðu sína á toppi E-riðils. 24.3.2007 21:48
Norður-Írar halda sínu striki Norður-Írar unnu öruggan sigur á Lichenstein á útivelli í F-riðli undankeppni EM í fótbolta í kvöld, 4-1, og halda þannig sigurgöngu sinni í riðlinum áfram. Liðið hefur nú hlotið 10 stig af síðustu 12 mögulegu, eftir að hafa tapað fyrir Íslendingum í fyrsta leik sínum. Spánverjar hafa 1-0 forystu gegn Dönum eftir fyrri hálfleik og eru Danir einum manni færri. 24.3.2007 21:38
Ronaldinho leiddi Brasilíu til stórsigurs Ronaldinho skoraði tvö mörk og átti mjög góðan leik fyrir Brasilíu sem gjörsigraði Chile, 4-0, í vináttuleik liðanna sem fram fór í Svíþjóð í dag. Dunga, þjálfari brasilíska liðsins, stillti upp Kaka og Robinho við hlið Ronaldinho í fremstu víglínu með þessum góða árangri. 24.3.2007 21:30
Anelka var hetja Frakka Nicolas Anelka var hetja Frakka í dag þegar hann tryggði þjóð sinni afar mikilvægan 1-0 sigur á Litháum í B-riðli undankeppni EM í dag. Anelka skoraði sigurmarkið á 74. mínútu, en leikurinn þótti ekki upp á marga fiska. Með sigrinum náðu Frakkar að halda í við Skota í baráttunni um toppsætið í riðlinum en bæði lið eru með 12 stig eftir fimm leiki. 24.3.2007 20:46
Englendingar náðu aðeins jafntefli í Ísrael England og Ísrael gerðu markalaust jafntefli í undankeppni EM í knattspyrnu í kvöld þegar liðin áttust við í Ísrael. Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir Englendinga og er liðið nú í þriðja sæti E-riðilsins með átta stig. Á sama tíma unnu Rússar lið Eista og komust þannig í efsta sæti riðilsins. 24.3.2007 20:20
Öruggt hjá Njarðvík gegn Grindavík Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu öruggan sigur á Grindvíkingum í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í kvöld, en leikið var í Njarðvík. Njarðvík leiddi nánast allan leikinn og vann að lokum með 18 stiga mun, 96-78, og er þar með komið með 1-0 forystu í einvígi liðanna. Það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki fer í úrslit. 24.3.2007 19:41
Vieri við það að snúa aftur á völlinn Ítalski sóknarmaðurinn Chrstian Vieri er á góðum batavegi eftir að hafa verið frá keppni og æfingum síðasta árið vegna meiðsla og er jafnvel talið að hann muni spila sinn fyrsta leik um helgina frá því í mars á síðasta ári. Vieri er byrjaður að æfa af fullum krafti og er í skýjunum með að geta loksins byrjað að spila á ný. 24.3.2007 19:29
Frábær endasprettur tryggði Akureyri sigur Haukar máttu þola tap á heimavelli sínum fyrir Akureyri í DHL-deild karla í handbolta í dag, 27-28. Heimamenn fóru afar illa að ráði sínu á lokasprettinum eftir að hafa verið með forystu stærstan hluta leiksins. Akureyri er nú komið með 18 stig og fjarlægist óðum fallbaráttuna en Haukar eru áfram með 12 stig og í bullandi fallbaráttu. 24.3.2007 17:34
Grindavík jafnaði metin gegn Keflavík Grindavík hafði betur gegn Keflavík, 100-94, eftir framlengdan leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta sem var að ljúka rétt í þessu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 91-91 en Keflvíkingar náðu að jafna metin með góðum lokakafla. Heimamenn voru hins vegar mun sterkari í framlengingunni og tryggðu sér sigur. 24.3.2007 17:31
Írar og Skotar unnu sína leiki Írland hafði betur gegn Wales í leik liðanna í D-riðli undankeppni EM í dag en það var miðjumaðurinn Stephen Ireland sem skoraði eina mark leiksins. Í B-riðlinum er tveimur leikið lokið, Úkraína bar sigurorð af Færeyjum á útivelli, 2-0, og Skotar lögðu Georgíumenn af velli, 2-1. 24.3.2007 17:21
Kolbeinn skoraði fernu í sigri Íslands Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði fjögur mörk fýrir íslenska U-17 ára landsliðið sem lagði það rússneska af velli, 6-5, í undanriðli fyrir Evrópukeppnina í þessum aldurslokki. Íslendingar tryggðu sér þar með efsta sætið í undanriðlinum, hlutu alls fimm stig í þremur leikjum og tryggðu sér þáttökurétt í lokakeppni EM. 24.3.2007 16:58
Haukar með forystu í hálfleik gegn Akureyri Haukar hafa 15-13 forystu gegn Akureyri nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í DHL-deild karla í handbolta. Guðmundur Pedersen hefur skorað fimm mörk fyrir Hauka og Nikola Jankovic sömuleiðis fyrir Akureyri. Í DHL-deild kvenna er HK að bursta Gróttu og leiðir 18-10 eftir fyrri hálfleik. 24.3.2007 16:50
Defoe vill fá fleiri tækifæri Enski sóknarmaðurinn Jermain Defoe hjá Tottenham hefur viðurkennt að hann sé svekktur með hversu fá tækifæri hann hafi fengið með enska landsliðinu í gegnum tíðina. Búist er við því að það verði Andy Johnson sem spili við hlið Wayne Rooney í fremstu víglínu enska liðsins gegn Ísrael í dag, sem þýðir að Defoe þarf að taka sér sæti á bekknum - eins og svo oft áður. 24.3.2007 16:21
Íslandsmeistaratitillinn blasir við Stjörnustúlkum Kvennalið Stjörnunnar er komið með níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sigur á Haukum í Hafnarfirði í dag, 32-26 . Stjarnan er nú komin með 35 stig á toppi DHL-deildar kvenna, sex stigum meira en næsta lið, og á titilinn næsta vísan. 24.3.2007 15:27
55 þúsund manns mættu á Wembley 55 þúsund manns sáu ungmennalið Englendinga og Ítala gera 3-3 jafntefli í fyrsta opinbera knattspyrnuleiknum sem fram fer á nýjum Wembley-leikvangi í Lundúnum. Þetta var aðsóknarmesti U-21 árs landsleikur sögunnar, en miðar á leikinn seldust upp eins og heitar lummur á mettíma. 24.3.2007 15:08
Navarro vill vægari refsingu David Navarro, leikmaður Valencia á Spáni, vonast til þess að afsökunarbeiðni hans til Nicolas Burdisso, leikmann Inter, verði til þess að sjö mánaða leikbannið sem hann var dæmdur í hjá UEFA og FIFA fyrir skemmstu verði stytt. Navarro, sem nefbraut Burdisso í leik liðanna í Meistaradeildinni í síðasta mánuði, hefur áfrýjað dómnum. 24.3.2007 14:30
Birgir Leifur lék á einu höggi undir pari Birgir Leifur Hafþórsson er samtals á einu höggi undir pari þegar þremur hringjum er lokið á Madeira-mótinu í Portúgal. Birgir Leifur var að ljúka keppni rétt í þessu og lék hann hringinn í dag 71 höggi, einu höggi undir pari. Hann er í 35. sæti mótsins sem stendur ásamt 11 öðrum keppendum, en einum hring er ólokið. 24.3.2007 13:31
Owen fer ekki fet Glenn Roeder, þjálfari Newcastle, segir að Michael Owen sé ekki á förum frá Newcastle, en enski sóknarmaðurinn var sagður óánægður í enskum fjölmiðlum um að liðið spili ekki í Evrópukeppni á næsta ári. Newcastle er í 11. sæti deildarinnar og þarf kraftaverk til að komast í Evrópukeppni en Roeder segir Owen ekki óánægðan í herbúðum liðsins. 24.3.2007 13:20
Terry vill meiri samheldni John Terry, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að leikmenn liðsins verði að spila fyrir þjóð sína á sama hátt og þeir spili fyrir félagslið sín. Enska liðið hefur ekki verið upp á sitt besta í síðustu leikjum sínum en það mætir Ísrael í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM í dag. 24.3.2007 13:02
Kobe með yfir 50 stig fjórða leikinn í röð Kobe Bryant hjá LA Lakers hélt áfram að rita nafn sitt í sögubækur NBA-deildarinnar þegar hann skoraði yfir 50 stig fjórða leikinn í röð í nótt. Þá lagði Lakers lið NO/Oklahoma af velli, 111-105, og skoraði Kobe 50 stig. Einn annar leikmaður í sögunni hefur náð viðlíka árangri; goðsögnin Wilt Chamberlain. 24.3.2007 11:06
Naumur sigur Flensburg Flensburg frá Þýskalandi bar sigurorð af spænska liðinu Valladolid, 32 -30, í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Leikurinn, sem fram fór í Þýskalandi, var sá fyrri af tveimur en sá síðari fer fram í Valladolid um næstu helgi. 24.3.2007 10:36
Ármann Smári í stað Gunnars Heiðars Ármann Smári Björnsson hjá Brann í Noregi var í dag valinn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu í stað Gunnars Heiðar Þorvaldssonar sem er meiddur. Þetta er þriðja breytingin sem Eyjólfur Sverrisson þjálfari hefur orðið að gera á landsliðshópnum. 23.3.2007 19:28
Kobe skorar yfir 50 stig í þriðja leiknum í röð Kobe Bryant skoraði 60 stig í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers sigraði Memphis. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Kobe skorar yfir 50 stig. 23.3.2007 19:24
Haukar og Keflavík unnu Haukar og Keflavík unnu fyrstu leikina í undanúrslitakeppni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Haukar höfðu undirtökin allan tímann í leiknum gegn ÍS í gærkvöldi. Í hálfleik var staðan 38-29. Ifeoma Okonkwo var stigahæst í Haukaliðinu, skoraði 30 stig auk þess sem hún tók 13 fráköst. Helena Sverrisdóttir skoraði 14 stig og tók 13 fráköst. Signý Hermannsdóttir var stigahæst í liði ÍS, skoraði 16 stig en Casey Rost kom næst með 15. 23.3.2007 19:23
Búist við Richards í byrjunarliðinu Búist er við því að Micah Richards, hinn 18 ára varnarmaður Manchester City, eigi eftir að geta spilað með Englendingum á morgun.Hann náði að klára æfingu með enska landsliðinu í dag en Richards þurfti að fara af velli í sigurleik Manchester City gegn Middlesbrough í síðastliðinni viku. 23.3.2007 18:48
Birgir Leifur líklega áfram Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, lauk spilamennsku í dag á tveimur höggum undir pari. Í gær hafði hann spilað á tveimur höggum yfir og endar því á pari. Viðbúið er að hann komist í gegnum niðurskurðinn en Birgir er nú í 39. sæti ásamt hópi manna. 23.3.2007 17:34
Birgir Leifur á einu höggi yfir pari eftir 11 holur Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, er á einu höggi yfir pari þegar hann hefur leikið ellefu holur af átján á opna Madeira mótinu í golfi á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal. 23.3.2007 16:08
McClaren finnur ekki fyrir aukinni pressu Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist ekki finna fyrir meiri þrýstingi en venjulega fyrir viðureign Englendinga og Ísraela í undankeppni EM á morgun. Leikurinn er afar þýðingarmikill fyrir enska liðið enda er það nú í þriðja sæti í E-riðli eftir að hafa aðeins gert jafntefli við Makedóna og tapað fyrir Króötum í síðustu tveimur leikjum. 23.3.2007 14:55
Jóhann Gunnar eini nýliðinn í hópi Alfreðs Einn nýliði, Jóhann Gunnar Einarsson úr Fram, er í 17 manna landsliðshópi Alfreðs Gíslasonar sem tekur þátt í fjögurra landa í París um páskana. Tilkynnt var um hópinn í dag og er hann skipaður eftirtöldum leikmönnum: 23.3.2007 14:28