Fleiri fréttir

Tveir nýir stjórar berjast um England

England mun nötra í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Tveir nýir stjórar eru við stjórnvölinn og eins og svo oft áður verður allt lagt undir þegar þessi tvö lið etja kappi á Old Trafford.

Ætla sér sænska gullið

Arnór Smárason sendir stuðningsmönnum sínum og Helsingborg skýr skilaboð á samskiptamiðlinum Twitter.

Ekki sést í þrjá daga

Körfuknattleiksmannsins Lamar Odoms er leitað af fjölskyldu sinni. Odom hefur ekki sést í þrjá daga en kappinn glímir við eiturlyfjavanda.

Tíundi bikarmeistaratitill Blika

Breiðablik varð bikarmeistari kvenna í knattspyrnu um helgina er liðið bar sigur úr býtum í leik gegn Þór/KA á Laugardalsvellinum. Akureyringurinn Rakel Hönnudóttir var hetja Blika í leiknum og skoraði sigurmarkið. Tíu titlar í fimmtán leikjum hjá Breiðablik.

„Ég hef stefnt að þessu allan minn feril“

Íbúar Cardiff eiga eftir að muna eftir nafni Arons Einars Gunnarssonar í nánustu framtíð en leikmaðurinn skoraði í gær fyrsta markið í sögu félagsins í ensku úrvalsdeildinni. Cardiff vann Manchester City 3-2.

Tyson: Ég er alkahólisti við dauðans dyr

Hnefaleikakappinn Mike Tyson hefur viðurkennt að hann hafi logið því undanfarin ár að hann sé edrú. Þess í stað segist heimsmeistarinn fyrrverandi vera við dauðans dyr eftir misnotkun á áfengi og öðrum vímuefnum.

Yngri Curry bróðirinn líka til Warriors

Seth Curry, yngri bróðir Stephen Curry stærstu stjörnu Golden State Warriors í NBA körfuboltanum fær tækifæri til að vinna sér inn samning hjá Warriors nú í haust.

Stórliðin byrjuðu flest vel á Ítalíu

Ítalska A-deildin í fótbolta hófst um helgina og voru sjö leikir leiknir í dag. Juventus hóf titilvörnina í gær með 1-0 sigri á Sampdoria en Inter og Roma unnu bæði góða sigra í dag.

Rúnar Alex vissi hvar Davíð myndi skjóta

"Mér leið bara eins og ég ætti heima hérna. Ég vil fá að spila með þeim bestu. Það voru allir búnir að tala við mig og róa mig niður fyrir leikinn," sagði hetja KR-inga, Rúnar Alex Rúnarsson, sem sló í gegn í sínum fyrsta Pepsi-deildarleik.

Heimir: Þetta er búið

"Það eru vonbrigði að fá ekkert úr leiknum því mér fannst við spila á köflum mjög vel. Sköpuðum góð færi og áttum möguleika að jafna," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn.

Frábær sigur hjá Vettel á Spa

Sebastian Vettel sigraði nokkuð örugglega í Belgíska kappakstrinum í dag, Fernando Alonso náði öðru sæti eftir að hafa ræst af stað níundi og Lewis Hamilton varð svo í þriðja sæti eftir að hafa verið á ráspól í upphafi keppninnar.

Tottenham á eftir Lamela og Eriksen í stað Bale og Willian

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham eygir nú argentínska framherjann Erik Lamela frá Roma eftir að liðið þurfti að horfa á eftir Willian til Chelsea. Tottenham horfir einnig til Danans Christian Eriksen til að fylla skarð Gareth Bale sem á leið til Real Madrid.

Arnór Smárason skoraði í sigri Helsingborgar

Arnór Smárason skoraði fyrra mark Helsingborgar sem sigraði Gefle á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Guðjón Baldvinsson var einnig í sigurliði í sænsku deildinni í dag.

Tiger fjórum höggum frá sjötta sigrinum

Tiger Woods er fjórum höggum á eftir á Matt Kuchar og Gary Woodland sem eru efstir fyrir lokahringinn á Liberty National mótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem er fyrsta mótið í FedEx Cup úrslitakeppninni.

Sunna keppir fyrst kvenna fyrir Mjölni

Sunna Rannveig Davíðsdóttir mun keppa fyrst kvenna fyrir hönd Mjölnis á svokölluðu Euro Fight Night í blönduðum bardagalistum sem haldið verður í Dublin á Írlandi þann 14. september næstkomandi. Alls munu fimm keppendur keppa í fyrir hönd Mjölnis á mótinu.

Ari Freyr lék allan leikinn í sigri OB

Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyrir OB sem sigraði Nordsjælland 1-0 í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. OB lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum.

Tottenham á eftir Vlad Chiriches

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er langt komið í viðræðum við rúmenska félagið Steaua Bucharest um kaup á rúmenska landsliðsmanninum Vlad Chiriches.

Barcelona marði Malaga

Barcelona er með fullt hús stiga eftir 1-0 sigur á Malaga á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bakvörðurinn Adriano Correia skoraði eina mark leiksins.

Pellegrini vanmetur Cardiff ekki

Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri Manchester City segir enga hættu á að lið sitt vanmeti nýliða Cardiff City þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag klukkan 15:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.

Willian kominn til Chelsea

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest kaupin á brasilíska sóknartengiliðinum Willian frá rússneska félaginu Anzhi Makhackala. Leikmaðurinn á þó eftir að fá atvinnuleyfi en það ætti að berast á miðvikudaginn.

Pardew: Framtíð Cabaye þarf að ráðast

Alan Pardew knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle er allt annað en sáttur við stöðu Yohan Cabaye hjá félaginu en Cabaye lék ekki með liðinu í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við West Ham í tíðindalitlum leik.

Moyes: Rooney gæti byrjað gegn Chelsea

David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur gefið það í skyn að töluverðar líkur eru á því að Wayne Rooney verði í byrjunarliðinu gegn Chelsea á mánudagskvöl.

Podolski orðaður við Schalke

Lukas Podolski, leikmaður Arsenal, er sterklega orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Schalke um þessar mundir.

Rodgers: Erum jafnt og þétt að bæta okkur

„Það var mikilvægt að verjast vel í dag, Aston Villa er með gott lið og beitir erfiðum skyndisóknum,“ sagði Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir sigurinn á Aston Villa í dag.

Sjá næstu 50 fréttir