Fleiri fréttir

Vinna hafin við nýja Anfield

Vinna við nýjan heimavöll Liverpool er farin í gang. Völlurinn verður reistur í Stanley Park og mun hann rúma 60 þúsund manns í sæti með góðum möguleika á stækkun um 13 þúsund sæti til viðbótar.

Roberto Donadoni rekinn

Ítalska knattspyrnusambandið hefur rekið Roberto Donadoni en Ítalía féll úr keppni í átta liða úrslitum Evrópumótsins sem nú stendur yfir. Donadoni tók við þjálfun Ítalíu sumarið 2006.

Eiður Smári spilar golf fyrir gott málefni

Stjörnugolfmót Nova fer nú fram í fimmta sinn á morgun á Urriðavelli í Garðabæ. Um 20 þjóðþekktir Íslendingar taka þátt, þar á meðal Eiður Smári Guðjohnsen.

Fyrsta verkefni Ince að halda helstu mönnum

Paul Ince segir að hans fyrsta verkefni sem knattspyrnustjóri Blackburn verði að reyna að halda bestu leikmönnum liðsins. Hann ætlar að reyna að sannfæra David Bentley og Roque Santa Cruz um að vera áfram.

Sigurður Jónsson í 10 bestu í kvöld

Sigurður Jónsson verður til umfjöllunar í þættinum 10 bestu á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Í þáttunum er fjallað um tíu bestu knattspyrnumenn Íslands.

Snúa Nesta og Totti aftur ef Lippi tekur við Ítalíu?

Sögusagnir eru í gangi um að Francesco Totti og Alessandro Nesta ætli að taka landsliðsskóna úr hillunni ef Marcello Lippi tekur aftur við ítalska landsliðinu. Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Lippi sé að snúa aftur í stólinn.

Tottenham í markvarðarleit

Juande Ramos, knattspyrnustjóri Tottenham, virðist hafa misst alla trú á Paul Robinson markverði liðsins. Hann leitar nú logandi ljósi að nýjum markverði.

Ógnarsterkt bandarískt lið á Ólympíuleikana

Í gær var opinberaður tólf manna hópur bandaríska landsliðsins sem fer á Ólympíuleikana í Peking í ágúst. NBA-meistararnir í Boston eiga engan fulltrúa en hópurinn er þó gríðarlega sterkur.

Benayoun vill ekki fara

Yossi Benayoun vill vera áfram hjá Liverpool en hann hefur verið orðaður við Portsmouth. Harry Redknapp hefur viðurkennt áhuga sinn á að fá leikmanninn en þá er einnig talið að Manchester City sé að skoða málin.

Koller til Rússlands

Tékkneski risinn Jan Koller skrifaði í gær undir samning við liðið Krylya Sovetov Samara í Rússlandi. Eftir að Tékkar féllu úr leik á Evrópumótinu lagði Koller landsliðsskóna á hilluna eftir 90 landsleiki og 55 mörk.

Þjálfari Austurríkis hættir

Josef Hickersberger hefur sagt af sér sem þjálfari Austurríkis. Austurríki er annar gestgjafa Evrópumótsins en liðið hlaut eitt stig í riðlakeppninni og skoraði eitt mark, það kom úr vítaspyrnu.

Fjölnir vann í Keflavík

Fjórir leikir voru í Landsbankadeild karla í kvöld. Athyglisverðustu úrslitin urðu í Keflavík þar sem heimamenn biðu lægri hlut.

Grétar Hjartarson í Grindavík

Vefsíðan Fótbolti.net greinir frá því að sóknarmaðurinn Grétar Ólafur Hjartarson sé genginn í raðir Grindavíkur. Grétar varð markakóngur í Landsbankadeildinni þegar hann lék með Grindavík en fór í KR haustið 2004.

Nasri kominn til Arsenal

Á heimasíðu Arsenal er staðfest að félagið hafi gengið frá samningum við miðjumanninn Samir Nasri frá Marseille.

Byrjar og endar Evrópumótið

Ítalski dómarinn Roberto Rosetti fær þann heiður að flauta Evrópumótið á og einnig af. Hann dæmdi opnunarleik mótsins og nú hefur hann verið valinn til að dæma sjálfan úrslitaleikinn á sunnudag.

Zidane heldur að Real Madrid fái Ronaldo

Zinedine Zidane telur að Real Madrid muni á endanum krækja í Cristiano Ronaldo, vængmann Manchester United. Spænska stórliðið hefur ekki farið leynt með gríðarlegan áhuga sinn á leikmanninum.

Markmannsþjálfari Hauka leikur gegn þeim í bikarnum

HK-ingar munu mæta Haukum á gervigrasvellinum á Ásvöllum í sextán liða úrslitum VISA-bikarsins en dregið var í hádeginu í dag. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði HK, er markmannsþjálfari Hauka.

Drátturinn í sextán liða úrslit

Búið er að draga í sextán liða úrslit VISA-bikarsins en það var gert í herbúðum KSÍ á Laugardalsvellinum í hádeginu. Þrír úrvalsdeildarslagir verða á dagskránni.

Ince veitt undanþága

Samtök knattspyrnustjóra á Englandi hafa veitt Paul Ince undanþágu svo hann geti tekið við Blackburn. Ince er ekki með UEFA-Pro réttindi eins og krafist er í ensku úrvalsdeildinni.

Óvissa um framtíð Donadoni

Ítalska knattspyrnusambandið hefur enn ekki tekið ákvörðun um framtíð Roberto Donadoni landsliðsþjálfara. Talið var að Donadoni yrði látinn taka pokann sinn ef ítalska liðið næði ekki að komast í undanúrslit EM.

Wenger hrifinn af Rússlandi

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er staddur á Evrópumótinu og fylgist grannt með gangi mála. Hann segir að rússneska landsliðið hafi komið sér skemmtilega á óvart og er heillaður af spilamennsku liðsins.

Arshavin vill spila á Spáni

Rússneski leikmaðurinn Andrei Arshavin segist hafa tilboð frá liðum í Englandi og Þýskalandi en hann vilji sjálfur helst fara í spænska boltann.

Boltavaktin á tánum í kvöld

Að sjálfsögðu verður fylgst með öllum fjórum leikjum kvöldsins í Landsbankadeild karla á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Þrír leikir hefjast klukkan 19:15 og einn er 20:00.

Gæti sett markvörð í sóknina

Fatih Terim, landsliðsþjálfari Tyrkja, íhugar nú að nota markvörð í annað hvort vörn eða sókn þar sem níu menn geta ekki spilað með liðinu í undanúrslitunum gegn Þýskalandi vegna meiðsla eða leikbanns.

Sigrún Brá bætti eigið Íslandsmet

Sigrún Brá Sverrisdóttir, Fjölni, bætti í dag Íslandsmet sitt í 200 metra skriðsundi á aldursflokkameistaramóti Íslands í Reykjanesbæ.

Stórsigur KA á Leikni

KA vann í dag 6-0 stórsigur á Leikni frá Reykjavík á sama tíma og þrír aðrir leikir fóru fram í 1. deild karla.

Þórður Rafn vann í bráðabana

Þórður Rafn Gissurarson, GR, vann í dag mót sem fór fram á Garðavelli á Akranesi og var hluti af Kaupþingsmótaröðinni í golfi.

Ólöf María vann á Garðavelli

Ólöf María Jónsdóttir bar sigur úr býtum á móti á Garðavelli á Akranesi í dag en mótið er hluti af Kaupþingsmótaröðinni.

Löw hugsaði um að hætta

Joachim Löw íhugaði að hætta þjálfun þýska landsliðsins eftir að liðið tapaði fyrir Króatíu í riðlakeppninni.

Fyrsta tap Eyjamanna

Tveim leikjum er lokið í 1. deild karla í dag. ÍBV tapaði sínum fyrsta leik og sínum fyrstu stigum er þeir töpuðu fyrir Haukum á útivelli, 2-0.

Nihat úr leik

Tyrkir hafa orðið fyrir miklu áfalli þar sem sóknarmaðurinn Nihat Kahveci verður ekki meira með á EM 2008 vegna meiðsla.

Rússneskt kraftaverk

Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússa, sagði eftir sigur sinna manna á Hollandi í gær að hann hefði verið kraftaverki líkastur.

Sigur hjá Massa

Felipe Massa vann í dag sigur í franska kappakstrinum í Formúlu 1 þökk sé vandræðum sem félagi hans hjá Ferrari, Kimi Raikkönen, lenti í.

Myndasyrpa: Innköstin hennar Ástu

Ásta Árnadóttir kom vel flestum áhorfendum á Laugardalsvellinum í gær í opna skjöldu er hún tók svokölluð flikk-flakk innköst með miklum glæsibrag.

Eiður Smári á sölulista Barcelona

Spænska dagblaðið El Mundo Deportivo hélt því fram í gær að Eiður Smári Guðjohnsen væri í sömu stöðu og þeir Ronaldinho, Deco og Samuel Eto'o hjá Barcelona.

Ronaldo er sama þó hann komi Ferguson í uppnám

Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United kastaði fram sprengju í gær þegar hann sagði sér vera sama þó brottflutningurinn til Real Madrid kæmi stjóranum Alex Ferguson í uppnám. Þetta segir breska blaðið The Sun í dag.

Bilic vildi helst hætta þjálfun

Slaven Bilic, landsliðsþjálfari Króatíu, sagði eftir leik sinna manna gegn Tyrkjum í gær að hann vildi helst hætta þjálfun fyrst um sinn.

Öflugir Rússar sendu Hollendinga heim

Guus Hiddink og lærisveinar hans í öflugu liði Rússa gerðu sér lítið fyrir og slógu út Hollendinga í fjórðungsúrslitum EM 2008 í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir