Willum: Sigur í kvöld er miði fyrir okkur inn í mótið Elvar Geir Magnússon skrifar 24. júní 2008 13:15 Willum Þór Þórsson.
Það verður sannkallaður stórleikur í Landsbankadeild karla í kvöld þegar Valur tekur á móti FH. Leikurinn hefst klukkan 20:00 en með sigri geta FH-ingar komist í efsta sæti. Íslandsmeistarar Vals hafa ollið vonbrigðum það sem af er móti og ansi mikilvægt fyrir þá að vinna í kvöld. „Það má orða það þannig að þessi leikur sé miði fyrir okkur inn í mótið eins og staðan er núna," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, í viðtali í útvarpsþættinum Skjálfanda á X-inu. „Við höfum að undanförnu lagt áherslu á varnarleikinn þar sem við vorum að fá mikið af mörkum á okkur í upphafi móts. Við þurftum að laga til í okkar leik og það hefur tekist ágætlega. Við höfum ekki verið eins sókndjarfir og venjulega en náð upp betri jafnvægi í okkar leik," sagði Willum. Valsmenn litu feykilega vel út á undirbúningstímabilinu en lentu svo í meiðslavandræðum. „Við höfum ekkert efni á að vera að svekkja okkur eitthvað. Við lögðum mikla áherslu á að vinna þessi mót á undirbúningstímabilinu. Liðið sem var að virka þá átti að fara inn í mótið en við urðum fyrir skakkaföllum í meira lagi. Óvenju mikið af kjarnaleikmönnum duttu út." „Guðmundur Benediktsson hefur verið okkar leikstjórnandi sóknarlega og Barry Smith varnarlega. Þessir tveir höfðingjar hafa ekki verið með og það auðvitað tekur tíma að fá aðra í það hlutverk. Við eigum aðra leikmenn sem geta tekið því hlutverki en það tekur alltaf tíma," sagði Willum. Valsarar unnu báða leikina gegn FH í fyrra. „Þetta eru lið sem gjörþekkja hvort annað. Þetta verður hörkuviðureign. FH-liðið er auðvitað eitt öflugasta liðið á landinu, ef ekki það öflugasta. Það eru fá lið sem eru jafn vel spilandi," sagði Willum. Hann segir að Valur muni enn eiga möguleika á titlinum þó liðið muni ekki ná sigri í kvöld. „Fótbolti er sagan endalausa. Hinsvegar myndi viðfangsefnið fara að líta öðruvísi út. Við verðum að takast á við stöðuna eins og hún er hverju sinni. Við munum ekki sætta okkur við jafntefli í kvöld, það er ljóst," sagði Willum í útvarpsþættinum Skjálfanda á X-inu. Leikurinn í kvöld verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og þá verður að sjálfsögðu fylgst með gangi mála á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Fleiri fréttir „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Sjá meira