Atli Sveinn: Þurfum að eiga okkar allra besta leik Elvar Geir Magnússon skrifar 23. júní 2008 13:41 Atli Sveinn segir að Valur þurfi að leika sinn allra besta leik til að leggja FH á morgun.
Áttunda umferð Landsbankadeildar karla verður leikin í vikunni. Fjórir leikir fara fram í kvöld og einn verður á morgun en það er stórleikur Vals og FH á Vodafone-vellinum. Vísir ræddi við Atla Svein Þórarinsson, varnarmann Vals, í dag og spurði út í leikinn gegn FH. „Þetta verður bara skemmtilegt. Þeim hefur gengið talsvert betur en okkur, þeir hafa fleiri stig og þar af leiðandi líklega meira sjálfstraust. Við þurfum að eiga okkar allra besta leik til að vinna þá," sagði Atli. Valsmenn geta þó varla beðið um betri leik til að koma liðinu loks á almennilegt flug. „Leikurinn gæti orðið þannig. Ég veit ekki hvernig staðan er á leikmannahópi FH en þeir hafa alveg sýnt það undanfarin ár að þegar menn detta út hjá þeim kemur sterkur maður í staðinn. Við reiknum því að sjálfsögðu bara með hörkuleik." Valsliðið hefur saknað Guðmundar Benediktssonar sárt en hann er byrjaður að æfa aftur eftir meiðsli. „Já hann er byrjaður að æfa. Það verður frábært að fá hann til baka og við vonumst eftir honum sem fyrst. Ég get þó ekkert sagt um það hvort hann spili þennan leik á morgun," sagði Atli. Í hádeginu var dregið í sextán liða úrslit VISA-bikarsins en Valur fær útileik gegn Breiðabliki. „Við hefðum klárlega viljað fá heimaleik. Sumir eru að leita eftir því að fá betri drátt og eitthvað en þetta er bara orðið þannig að það er sama hvaða liði þú mætir, þetta eru allt hörkuleikir. Það eina sem ég hefði viljað fá öðruvísi er að spila heima," sagði Atli. „Það er alltaf gaman að spila við Breiðablik og eins og síðast þegar við mættumst þá voru mikil læti. Þeir eru á uppleið og hafa fengið Marel aftur sem hjálpar þeim mikið. Þetta verður erfiður leikur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira