Fleiri
Hafa ávallt komist yfir á Råsunda 5.6.2007 08:53 Ótvíræð krafa um sigur Svía gegn Íslandi 5.6.2007 08:53 Næ kannski hálftíma Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic vísaði því á bug á blaðamannafundi í gær að hann yrði í byrjunarliði Svíþjóðar gegn Íslandi á morgun. Hann hefur átt við meiðsli að stríða. 5.6.2007 08:53 KR á toppinn KR komst á topp Landsbankadeildar kvenna í kvöld. KR sigraði Fylki í Árbænum í kvöld 2-4. Þar með er KR með 9 stig eftir 3 leiki og situr á toppi deildarinnar. Keflavík burstaði ÍR á heimavelli, 7-0. Á Kópavogsvelli skildu Breiðablik og Stjarnan jöfn 1-1. 4.6.2007 21:37 U19: Ísland 5-2 Azerbaijan Íslenska U19 ára landslið Íslands lauk í dag keppni í milliriðli í Noregi fyrir EM með sigri á Azerbajian 5-2. Ísland hafði áður tapað fyrir Noregi og Spáni með litlum mun. Íslendingar enda því í öðru sæti riðilsins með 3 stig. 4.6.2007 19:24 Wigan fær Sibierski Antoine Sibierski skrifaði í dag undir 2 ára samning við Wigan. Þetta er annar leikmaðurinn sem að Wigan semur við í dag, en Titus Bramble skrifaði undir samning við félagið í morgun. 4.6.2007 18:53 Birkir Ívar með gegn Serbum Birkir Ívar Guðmundsson landsliðsmarkvörður í handbolta leikur með íslenska landsliðinu gegn Serbum. Málið var leyst síðdegis í dag. Vafi lék á hvort að Birkir Ívar gæti verið með þar sem lið hans í þýska handboltanum lenti í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. 4.6.2007 17:26 UEFA: Málið tekið fyrir á föstudaginn Aganefnd UEFA mun taka málið úr leik Danmerkur og Svíþjóðar fyrir á föstudaginn. Leikurinn var spilaður á Parken í Danmörku og upp úr sauð á lokamínútunum þegar reiður áhorfandi slapp inn á völlinn og réðst að dómara leiksins, Herbert Fandel. 4.6.2007 15:55 Sjá næstu 50 fréttir
Foster þarf í uppskurð Markvörðurinn Ben Foster hjá Manchester United getur ekki leikið með liði sínu í upphafi næstu leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni eftir að ljóst varð að hann þarf í uppskurð vegna hnémeiðsla. Foster stóð sig vel þegar hann var í láni hjá Watford í vetur og er inni í enska landsliðshópnum. 6.6.2007 13:24
Zlatan á bekknum hjá Svíum Sænska blaðið Aftonbladet hefur birt byrjunarlið Svía sem tekur á móti Íslendingum í Stokkhólmi í kvöld. Þar hefur verið staðfest að framherjinn Zlatan Ibrahimovic verði á varamannabekk sænska liðsins, en hann hefur átt við meiðsli að stríða. 6.6.2007 13:16
Fimm breytingar á íslenska landsliðinu Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í undankeppni EM í knattspyrnu í Svíþjóð í kvöld. Hann gertir fimm breytingar á liðinu frá leiknum við Liechtenstein um helgina. 6.6.2007 12:05
Milljón fyrir miða á leik með Cleveland Það er ekki tekið út með sældinni að vera stuðningsmaður Cleveland Cavaliers þessa dagana ef marka má fréttir af miðasölu fyrir heimaleiki liðsins gegn San Antonio í lokaúrslitum NBA sem hefjast annað kvöld. Dýrustu miðarnir á leikina í Cleveland kosta 940,000 krónur. 6.6.2007 11:48
Crouch og Owen verða í framlínu Englendinga Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að það komi í hlut Peter Crouch að leika við hlið Michael Owen í framlínu enska landsliðsins í kvöld þegar það sækir Eista heim í Tallin í kvöld. Þá er reiknað með því að miðvörðurinn Ledley King komi inn í vörnina í stað Jamie Carragher og að Wayne Bridge leysi Nickey Shorey af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar. Leikurinn verður sýndur á Sýn klukkan 20:30 í kvöld að loknum leik Svía og Íslendinga. 6.6.2007 11:27
Roberto Carlos á leið til Fenerbahce Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos hjá Real Madrid hefur samþykkt að ganga í raðir tyrkneska liðsins Fenerbahce í sumar þegar hann verður með lausa samninga. Carlos hefur verið hjá Real í 11 ár og er einn besti og sigursælasti bakvörður knattspyrnunnar af þessari kynslóð. Carlos er 34 ára gamall og sagðist hafa neitað tilboðum frá Englandi og Ítalíu til að fara til Tyrklands. 6.6.2007 11:22
250 öryggisverðir verða allt í kringum völlinn Svíar ætla ekki að taka neina áhættu í kringum leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM 2008 á miðvikudaginn í kjölfar þess sem gerðist á Parken um helgina. Öryggisgæsla á leiknum hefur verið hert til mikilla muna og alls munu 250 manns vera á vaktinni í kringum leikvöllinn á meðan á leiknum stendur. 6.6.2007 00:01
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Eistum í Tallin. Það var Joe Cole sem skoraði mark enska liðsins á 37. mínútu en enska liðið hefur aðeins einu sinni tapað leik þegar hann hefur verið í byrjunarliðinu. Það var gegn Portúgal á HM í fyrrasumar, en þá var Cole reyndar skipt af velli í síðari hálfleik. 6.6.2007 19:36
5-0 í leik Svíþjóðar og Íslands Markus Rosenberg skoraði strax á 48. mínútu kom Svíum í 4-0. Á 51. mínútu skoraði Marcus Allback mark sem verður að teljast hlægilegt þar sem Íslendingar héldu að búið væri að dæma inni í teig og Allback þurfti ekki annað að gera en að skjóta boltanum í netið. 6.6.2007 19:24
Svíar komnir í 2-0 Ander Svensson var að bæta við öðru marki Svía gegn Íslandi. Íslendingarnir voru að komast vel inn í leikinn þegar þetta gerðist og átti Brynjar Björn m.a. gott skot sem markvörður Svía varði í horn. Markið kom á 40. mínútu. 6.6.2007 18:58
Svíar búnir að skora Svíar eru búnir að skora og eru komnir í 1-0. Það var Marcus Allback sem skoraði markið eftir 10 mínútna leik. Það er ljóst að það verður á brattann að sækja fyrir íslensku strákana í Svíþjóð. 6.6.2007 18:28
Svíþjóð - Ísland í beinni á Sýn klukkan 18:15 Leikur Svía og Íslendinga í undankeppni EM í knattspyrnu hefst klukkan 18:15 og verður sýndur beint á Sýn. Þar er á dagskrá sérstakur upphitunarþáttur fyrir leikinn þar sem sérfræðingar Sýnar fara yfir stöðu mála. Hörður Magnússon lýsir leiknum svo beint frá Svíþjóð, en auk þess verður fylgst með gangi mála hér á Vísi. 6.6.2007 17:58
Saunders verður áfram með Detroit Pistons Flip Saunders verður áfram þjálfari Detroit Pistons í NBA deildinni á næsta keppnistímabili þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr keppni fyrir Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar á dögunum. Margir höfðu spáð því að hlutirnir yrðu stokkaðir upp í herbúðum liðsins í sumar, en þjálfarinn segir framtíð sína aldrei hafa verið í vafa. 5.6.2007 22:45
Ljungberg: Verðum að keyra upp hraðann gegn Íslendingum Freddie Ljungberg, leikmaður Arsenal og sænska landsliðsins, segir að sænska liðið verði að keyra upp hraðann á móti Íslendingum þegar þjóðirnar mætast í undankeppni EM ytra annað kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hér í fréttinni má sjá viðtal við Ljungberg og Zlatan Ibrahimovic, sem reiknar með að fá að spila í leiknum. 5.6.2007 21:15
Krefjast 200 milljóna í skaðabætur Danski áhorfandinn sem réðist að dómaranum í leik Dana og Svía á Parken á laugardaginn hefur verið krafinn um 200 milljónir íslenskra króna í skaðabætur af danska knattspyrnusambandinu. Smelltu á spila til að sjá frétt stöðvar 2 um atvikið fræga frá því á laugardaginn. 5.6.2007 20:45
McClaren hefur ekki áhyggjur af starfi sínu Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, segist ekki vera að hugsa um að bjarga starfi sínu þegar enska liðið mætir Eistum í Tallin í undankeppni EM annað kvöld. Enska liðið er í fjórða sæti E-riðilsins, fimm stigum á eftir efsta liðinu Króatíu, og fullyrt er að McClaren verði rekinn ef lið hans vinnur ekki sigur í leiknum. 5.6.2007 20:27
Eins marks sigur á Tékkum Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann í dag sigur á Tékkum 29-28 í fyrri æfingaleik þjóðanna á tveimur dögum en leikið var í Tékklandi. Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir umspilsleikina gegn Serbum síðar í þessum mánuði. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk. 5.6.2007 18:38
Totti lokar ekki á landsliðið Framherjinn Francesco Totti hjá Roma segist ekki vera búinn að útiloka frekari þáttöku með ítalska landsliðinu í knattspyrnu, en hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar. Ítalir mörðu 2-1 sigur á Færeyingum í undankeppni EM um helgina og virtist liðið sakna Totti í sókninni. 5.6.2007 18:27
Slúðrið á Englandi í dag Bresku slúðurblöðin eru full af safaríkum sögum í dag eins og venjulega, en mikið hefur verið um að vera á leikmannamarkaðnum undanfarna daga. Að venju eru stórliðin á Englandi orðuð við fjölda leikmanna. 5.6.2007 17:24
Aston Villa býður 7 milljónir punda í Reo-Coker Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa gerði í dag 7 milljón punda kauptilboð í miðjumanninn Nigel Reo-Coker hjá West Ham. Leikmaðurinn hafði fyrir nokkrum dögum farið fram á að verða seldur frá félaginu og var í kjölfarið settur á hann 8 milljóna punda verðmiði. Hann hefur einnig verið orðaður við Tottenham, Arsenal og Newcastle. 5.6.2007 17:21
Gildardino er falur hjá AC Milan Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að framherjinn Alberto Gilardino sé falur fyrir 24 milljónir evra eða 2 milljarða króna. Gilardino skoraði 12 mörk fyrir Milan í A-deildinni í vetur en er ósáttur við hlutskipti sitt hjá liðinu og vill gjarnan breyta til. 5.6.2007 17:09
Fabregas óttast að missa Henry Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal segist óttast að félagi hans Thierry Henry muni ganga í raðir Barcelona í sumar. Vitað er af áhuga Katalóníuliðsins á framherjanum skæða og Fabregas segir að það gæti reynst félaga sínum of freistandi að reyna fyrir sér á Spáni. 5.6.2007 16:38
Viduka á leið til Newcastle Framherjinn Mark Viduka hjá Middlesbrough er nú sagður vera við það að ganga í raðir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Hinn 31 árs gamli Ástrali hefur enn ekki framlengt samning sinn við Boro og hefur neitað öllum tilboðum félagsins til þessa. Fjöldi liða á Englandi hafa verið orðuð við framherjann, þar á meðal Birmingham, Portsmouth og West Ham. Viduka skoraði 19 mörk fyrir Boro á síðustu leiktíð. 5.6.2007 16:33
Ísland burstaði Andorra Íslenska karlalandsliðið í körfubolta byrjar vel á smáþjóðaleikunum í Mónakó. Liðið burstaði Andorra 94-65 í dag eftir að hafa verið aðeins 5 stigum yfir í hálfleik 47-42 í hálfleik. Brenton Birmingham skoraði 17 stig fyrir Íslenska liðið og þeir Páll Axel Vilbergsson og Helgi Már Magnússon 15 hvor. 5.6.2007 16:17
Nadal leggur vináttuna til hliðar Rafael Nadal hefur sagt að hann muni leggja vináttuna til hliðar þegar hann mætir Carlos Moya í fjórðungsúrslitum Opna Franska Meistaramótsins í tennis á morgun. Nadal er núverandi handhafi titilsins. 5.6.2007 15:48
Barton í læknisskoðun hjá Newcastle Joey Barton sást í dag með Sam Allardyce, stjóra Newcastle, og er hann talinn vera að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu. Þetta þýðir að allt bendi til að Barton muni velja Newcastle fram yfir West Ham. 5.6.2007 14:55
Aston Villa að undirbúa tilboð í Sneijder Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, mun á næstu dögum leggja fram tilboð í miðjumanninn Wesley Sneijder hjá Ajax í Hollandi. Sneijder var á leiðinni til Valencia en ekkert varð úr þeim kaupum. 5.6.2007 13:18
Harewood að yfirgefa West Ham Það er alltaf nóg að gerast í herbúðum West Ham, en nú hefur einum framherja liðsins, Marlon Harewood, hefur verið sagt að hann sé ekki inni í framtíðarplani Alan Curbishley. 5.6.2007 13:02
Newcastle fær leyfi til að ræða við Barton Það lítur allt út fyrir að Newcastle United sé að vinna kapphlauðið um ólátabelginn Joey Barton. Nú hefur Newcastle fengið leyfi frá Manchester City til að ræða við Barton en þetta kemur fram á sjónvarpsstöðinni Sky. West Ham hefur einnig verið á eftir Barton en virðast vera að missa af lestinni. 5.6.2007 11:31
Ísland - Andorra í Mónakó Íslenska landsliðið í körfubolta keppir sinn fyrsta leik á smáþjóðaleikunum í Mónakó í dag. Leikurinn er gegn Andorra og hefst hann klukkan 13:30. Þjóðirnar hafa mæst átta sinnum og Ísland hefur unnið sjö sinnum. 5.6.2007 11:04
Tölvuleikur gerður í kjölfar atviksins á Parken Eftir að atvikið í leik Danmerkur og Svíþjóðar á Parken varð eitt vinsælasta umræðuefni í Evrópu hefur danskt fyrirtæki ákveðið að nýta sér tækifærið og búið til leik sem er í anda atviksins. Sá er spilar leikinn er í hlutverki dómarans, Herbert Fandel. 5.6.2007 10:54
Gerrard segir sig og Lampard spila vel saman Steven Gerrard segir að hann og félagi hans í Enska landsliðinu, Frank Lampard, hafi sannað það fyrir öllum í vináttuleiknum gegn Brasilíu á föstudag að þeir geti vel spilað saman. 5.6.2007 10:33
16 kylfingar hafa farið holu í höggi í ár Þótt ekki sé langt liðið á golfvertíðina 2007 eru þegar komnar til skrifstofu GSÍ 16 tilkynningar um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa náð draumahögginu í ár, en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði til GSÍ. Á meðan að svo er, þá er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum. 5.6.2007 10:25
Ramos orðaður við Manchester City Eftir að Claudio Ranieri samdi við Juventus í gær hafa forráðamenn Manchester City snúið sér að að Juande Ramos, stjóra Sevilla, til að fylla í skarð Stuart Pearce. Ramos hefur stjórnað Sevilla í næstum því sex ár. 5.6.2007 09:26
Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót um helgina Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót á Austurlandi fara fram í allmörgum aðildarfélögum að mótinu um næstu helgi, þar á meðal stærstu félögunum á Austurlandi: Freyfaxa, Hornfirðingi og Blæ á Norðfirði. Einnig fara héraðssýningar kynbótahrossa á svæðinu fram á næstu dögum: Þann 6. Og 7. Júní á Fljótsdalshéraði, 8. Júní á Hornafirði og 12. – 14 júní í Eyjafirði. 5.6.2007 09:01
Jafnt í Kópavogi Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í gær. Harpa Þorsteinsdóttir kom Stjörnunni yfir í Kópavoginum gegn Blikastúlkum en Greta Mjöll Samúelsdóttir jafnaði metin í fyrri hálfleik. Greta misnotaði svo vítaspyrnu þegar skot hennar small í stönginni og hvorugt liðið náði að bæta við marki í litlausum síðari hálfleik. 5.6.2007 08:54
Án Eiðs Smára í þriðja sinn Íslenska landsliðið hefur aðeins tvisvar sinnum verið án Eiðs Smára í keppnisleik undanfarin átta ár en stjarna íslenska landsliðið verður fjarri góðu gammni í næsta landsleik. Eiður Smári átti mjög slakan leik gegn Liechtenstein og hefur nú leikið í yfir 500 mínútur án þess að skora með landsliðinu. 5.6.2007 08:54
Næ kannski hálftíma Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic vísaði því á bug á blaðamannafundi í gær að hann yrði í byrjunarliði Svíþjóðar gegn Íslandi á morgun. Hann hefur átt við meiðsli að stríða. 5.6.2007 08:53
KR á toppinn KR komst á topp Landsbankadeildar kvenna í kvöld. KR sigraði Fylki í Árbænum í kvöld 2-4. Þar með er KR með 9 stig eftir 3 leiki og situr á toppi deildarinnar. Keflavík burstaði ÍR á heimavelli, 7-0. Á Kópavogsvelli skildu Breiðablik og Stjarnan jöfn 1-1. 4.6.2007 21:37
U19: Ísland 5-2 Azerbaijan Íslenska U19 ára landslið Íslands lauk í dag keppni í milliriðli í Noregi fyrir EM með sigri á Azerbajian 5-2. Ísland hafði áður tapað fyrir Noregi og Spáni með litlum mun. Íslendingar enda því í öðru sæti riðilsins með 3 stig. 4.6.2007 19:24
Wigan fær Sibierski Antoine Sibierski skrifaði í dag undir 2 ára samning við Wigan. Þetta er annar leikmaðurinn sem að Wigan semur við í dag, en Titus Bramble skrifaði undir samning við félagið í morgun. 4.6.2007 18:53
Birkir Ívar með gegn Serbum Birkir Ívar Guðmundsson landsliðsmarkvörður í handbolta leikur með íslenska landsliðinu gegn Serbum. Málið var leyst síðdegis í dag. Vafi lék á hvort að Birkir Ívar gæti verið með þar sem lið hans í þýska handboltanum lenti í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. 4.6.2007 17:26
UEFA: Málið tekið fyrir á föstudaginn Aganefnd UEFA mun taka málið úr leik Danmerkur og Svíþjóðar fyrir á föstudaginn. Leikurinn var spilaður á Parken í Danmörku og upp úr sauð á lokamínútunum þegar reiður áhorfandi slapp inn á völlinn og réðst að dómara leiksins, Herbert Fandel. 4.6.2007 15:55
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti