Fleiri fréttir

Snjókoma í júlí
Miðhálendið er í vetrarbúningi nú þegar júlí er að líða undir lok. Kyngt hafði niður snjó á hálendinu í nótt og gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og miðhálendinu þessa helgina.

Gul viðvörun á hálendi og Austurlandi
Gul veðurviðvörun er í gildi á miðhálendi og Austurlandi nú um helgina. Útlit er fyrir slyddu eða snjókomu til fjalla með takmörkuðu eða lélegu skyggni og hvassviðri í dag.

Gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum
Gul veðurviðvörun tekur gildi um klukkan tíu í kvöld á Austurlandi, Austfjörðum og Miðhálendinu vegna snjókomu og hvassviðris. Viðvörunin er í gildi þar til á hádegi á morgun.

Vegagerðin varar við snjókomu og stormi
Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna aðgát um helgina vegna veðurs. Snjókomu er spáð á hálendinu og stormi Norðaustanlands.

Niðurstaðan liggur fyrir og Einar gefur veðrinu um versló falleinkunn
Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur verið nokkuð á reiki síðustu daga og kom fram í gær að tvær helstu langtímaveðurspárnar hafi sýnt gjörólíka spá fyrir helgina. Þannig gerði önnur þeirra ráð fyrir því að lægð myndi ganga yfir landið með tilheyrandi áhrifum en hin ekki.

Gul viðvörun vegna hvassviðris í nótt
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris sem von er á að gangi yfir landið á morgun. Viðvörunin gildir fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og Miðhálendið.

Sérfræðingar ósammála um veður helgarinnar
Tvær helstu langtímaveðurspár, sem veðurfræðingar styðjast almennt við, sýna gjörólíka spá um verslunarmannahelgina. Ein spáin reiknar með því að lægð gangi yfir landið á meðan önnur býst ekki við neinni lægð.

Haugarigning á Suðurlandinu og gul viðvörun í gildi
Útlit er fyrir hellidembu á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gular viðvaranir eru enn í gildi vegna úrkomu sunnantil á landinu og hvassviðris á Miðhálendinu og verða fram á kvöld hið minnsta.

Væta í kortunum víðast hvar um verslunarmannahelgina
Spár gera ráð fyrir því að tvær lægðir gangi yfir landið í vikunni. Skil þeirrar fyrri ganga inn á landið seint á morgun, þriðjudag, og þeirrar síðari á föstudag, fyrsta dag stærstu ferðahelgi landsins.

Vara við akstursleiðum á Suðurlandi vegna úrhellis
Frá þriðjudagskvöldi til miðvikudagskvölds er útlit fyrir mikla rigningu undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli, og viðbúið að þar hækki talsvert í ám. Rigningin getur haft áhrif á akstursleiðir þar sem aka þarf yfir óbrúaðar ár, til dæmis inn í Þórsmörk, sem og á öðrum svæðum á Suðurlandi og að Fjallabaki.

Þokkaleg veðurspá fyrir Verslunarmannahelgi
Eftir því sem nær dregur fara línur að skýrast í veðri fyrir verslunarmannahelgina, en margir eru eflaust með augun daglega á veðurkortinu. Eins og spáin lítur út nú á mánudegi má gera ráð fyrir rigningu um allt land á föstudag, en þá gengur lægð yfir landið sem kemur frá suðri og færist til norðausturs.

Vætusamt næstu daga
Nokkuð vætusamt veður er í kortunum þessa vikuna.

Ágætis ferðaveður um helgina
Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir ágætis ferðaveður vera um helgina, hægur vindur verði á landinu en skin og skúrir einkenni helgina. Leifar hitabylgjunnar sem hefur geisað í Evrópu skili sér ekki hingað, að minnsta kosti ekki næstu vikuna.

Ágætlega viðrar til ferðalaga um helgina
Hæglætisveður verður á landinu um helgina. Hægir vindar verða um helgina, skýjað með köflum en víða skúrir síðdegis í dag, einkum inn til landsins.

Veðrið best á Suðausturlandi í dag
Veðurstofan spáir norðlægri átt og rigningu á köflum á Norðurlandi en segir úrkomulítið fyrir sunnan og vestlægari átt. Í kvöld á að draga úr úrkomu og hiti á landinu verði í dag á bilinu sjö til sautján gráður, þar af hlýjast á Suðausturlandi.

Skýjað í dag og skúrir um allt land
Í dag verður skýjað að mestu og skúrir í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofunni. Hiti verði tíu til sautján stig og hlýjast norðaustan til. Næstu daga er áfram spáð skúrum eða rigningu.

Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða
Útlit er fyrir vestlæga átt vestantil en hæga norðlæga átt austantil á landinu í dag. Síst er útlit fyrir skúri á Suðurlandi en þó víða annarsstaðar. Hámarkshiti gæti náð 18 stigum suðaustan til og milt veður er á öllu landinu. Þegar kvölda tekur nálgast lægð úr suðvestri og hvessir sunnan og vestan til í fyrramálið.

Hæg vestanátt og skúrir en allhvasst austanlands
Veðurstofan spáir vestanátt, þremur til átta metrum á sekúndu, og víða stöku skúrum í dag. Hins vegar verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert og rigning með köflum norðaustantil fram að hádegi.

Gul viðvörun víða um land
Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland, miðhálendi og Norðurland eystra og vestra í dag. Á miðhálendi og Norðurlandi verður viðvörunin í gildi til klukkan 21 en á Suðausturlandi verður hún í gildi alveg fram á miðnætti. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þessum slóðum. Að auki verður rigning með köflum í flestum landshlutum.

Gul viðvörun gefin út fyrir Suðausturland
Gul viðvörun verður í gildi á Suðausturlandi frá klukkan 11 til klukkan 23 á morgun, fimmtudag.

Lítið um sumarveður næstu daga
Lítið virðist vera um sumarveður á næstu dögum en samkvæmt Veðurstofu liggur Ísland í lægðarbraut um þessar mundir. Því valdi öflug og þaulsetin lægð úti fyrir Biskajaflóa, sem beinir lægðum norður eftir til Íslands.

Leifar norðanáttarinnar lifa enn við ströndina
Útlit er fyrir breytilega átt á landinu í dag, víðast hvar á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Norðanátt hefur hrellt íbúa í norðausturfjórðungi landsins undanfarið og leifar af henni lifa enn úti við ströndina. Má reikna með norðvestan strekkingi þar þar til síðdegis.

Allhvöss norðvestanátt og gular viðvaranir í gildi
Áfram verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert í dag, en dregur úr vindi í kvöld og nótt. Annars staðar má reikna með mun hægari breytileg átt á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á austanverðu landinu.

Hægur vindur og víða líkur á skúrum
Nú í morgunsárið er víða þoka norðan- og austantil á landinu, en það mun líklega rofa til allvíða þegar líður á morguninn.

Víða skýjað og væta og hiti að sautján stigum
Veðurstofan spáir norðlægri eða breytilegri átt í dag og á morgun. Víða verður skýjað og sums staðar væta, en lengst af þurrt um landið vestanvert.

Fremur svalt og rigning með köflum víða um land
Veðurstofan spáir norðaustan kalda og fremur svölu veðri í dag. Rigning með köflum um norðan- og austanvert landið, en skúrir suðvestanlands, einkum síðdegis.

Svalt loft yfir landinu og mildast syðst
Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, yfirleitt fimm til þrettán metrum á sekúndu. Reiknað er með lítilsháttar vætu á Norður- og Austurlandi, en annars bjart með köflum. Þó má búast má við síðdegisskúrum suðaustantil á landinu.

Norðlæg átt ríkjandi á landinu
Norðlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, þar sem vindur verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Víða á Vesturlandi verður hins vegar tíu til fimmtán metrar, einkum í vindstrengjum á Snæfellsnesi og Barðaströndinni.

Hiti að fimmtán stigum og hlýjast suðaustantil
Veðurstofan spáir vestan átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag, skúrum á sunnanverðu landinu. Það snýst svo í norðlæga átt norðantil með rigningu.

Hvassir vindstrengir á norðanverðu Snæfellsnesi
Lægð er nú að myndast á Grænlandshafi og hún gengur til austurs fyrir norðan land í dag. Því gengur í sunnan kalda eða strekking og fer að rigna, en hægari vindur og þurrt norðaustanlands þangað til seinnipartinn.

Norðlæg átt og úrkoma á víð á dreif
Veðurstofan spáir norðlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, og skýjað að mestu með dálítilli úrkomu á víð og dreif.

Allt að 22 stiga hiti í dag
Í dag er spáð suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, hvassast norðvestanlands. Gert er ráð fyrir rigningu með köflum í flestum landshlutum. Byrjar fyrst að rigna vestantil fyrir hádegi en ekki fyrr en síðdegis austanlands. Hiti tíu til 22 stig, en hlýjast fyrir austan.

Gular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris og lítið ferðaveður
Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi vegna hvassviðris. Ekkert ferðaveður er fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi og Austfjörðum og blautur þjóðhátíðardagur
Gul veðurviðvörun tekur gildi fyrir Suðurland, Suðausturland og Austfirði í kvöld og verður í gildi þar til annað kvöld. Búast má við norðvestan hvassviðri eða stormi á svæðinu og varað er við óþarfa ferðalögum.

Gular viðvaranir á 17. júní
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland, Suðausturland og Austfirði vegna hvassviðris og taka þær gildi annað kvöld og eru í tildi fram á morgun eða kvöld á laugardag.

Lægð nálgast úr suðri og fer að rigna í nótt
Veðurstofan spáir sunnan golu eða kalda og skúrum í dag, en yfirleitt bjartviðri á norðaustanverðu landinu.

Suðlæg átt og hiti að átján stigum norðaustantil
Veðurstofan spáir suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, með skúrum í dag, einkum sunnan- og vestanlands.

Ekki útlit fyrir sólbjartan þjóðhátíðardag
Í dag er spáð suðlægri átt, fimm til tíu metrum á sekúndu og má gera ráð fyrir að það verði skýjað með köflum og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands. Þurrt að kalla norðvestantil framan af degi en þar einnig stöku skúrir seinnipartinn.

Væta um landið sunnan- og vestanvert en þurrt norðaustantil
Veðurstofan spáir suðlægum áttum og vætu um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil.

Allt að átján stiga hiti í dag
Veðrinu verður nokkuð misskipt í dag, ef marka má veðurspá. Spáð er svölu verði fyrir norðan en allt að átján stiga hita sunnan heiða.

Leifar af hvassviðri gærdagsins enn með suðurströnd landsins
Leifar af hvassviðri gærdagsins eru enn með suðurströnd landsins og eru gular viðvaranir í gildi þar fram á eftirmiðdag, til klukkan 14 á Suðurlandi og klukkan 16 á Suðausturlandi.

Gular viðvaranir í gildi til miðnættis
Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag sem gilda til miðnættis. Ástæðan er hvassviðri og varhugavert ferðaveður fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.

Víða skúrir á landinu eftir hádegi
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri eða breytilegri átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu. Sums staðar verður þoka við norður- og austurströndina, en víða skúrir á landinu eftir hádegi.

Allvíða síðdegisskúrir og hiti að sautján stigum
Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu, síðdegisskúrum allvíða.

Snjór og varasöm hálka á Öxnadalsheiði í nótt
Nú er regnsvæði á leið yfir landið frá vestri til austurs og því rignir um tíma í dag í flestum landshlutum. Í kvöld kemur kalt loft úr vestri og fer hratt yfir. Á Öxnadalsheiði og eflaust víðar á fjallvegum norðanlands gerir seint í kvöld og nótt snjó eða krapa með varasamri hálku.