Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir látnir og 28 er saknað eftir snjóflóð í Himalaya-fjöllunum Að minnsta kosti fjórir létust í snjóflóði í Himalaya-fjöllunum í gær og er 28 manns enn saknað. Fólkið var í þjálfun í indverska hluta fjallanna þegar snjóflóðið féll. 5.10.2022 06:41
Segjast hafa fundið pyntingaklefa Rússa Lögreglan í Úkraínu segist hafa fundið pyntingaklefa í þorpinu Pisky-Radkivski í Kharkív-héraði. Þar að auki hafi fundist kassi með gulltönnum sem taldar eru hafa verið dregnar úr fórnarlömbum. 4.10.2022 23:45
Trump biður Hæstarétt um að skerast í leyniskjalaleikinn Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, báðu Hæstarétt Bandaríkjanna um að láta gerðardómara fara yfir aragrúa leyniskjala sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu. Trump hefur áður haldið því fram að hann hafi haft vald til þess að aflétta leynd af skjölunum með því einu að hugsa um það. 4.10.2022 22:00
Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. 4.10.2022 21:08
Mannskaði í snjóflóði í Himalajafjöllum Að minnsta kosti fjórir fjallgöngumenn eru látnir og fjölda er saknað eftir að gönguhópur lenti í snjóflóði í Himalajafjöllum á Indlandi. Hluti hópsins er talinn fastur í jökulsprungu. 4.10.2022 19:41
Bandaríkjaforseti setur tugi milljarða í hernaðaraðstoð Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst setja aukinn kraft í hernaðaraðstoð. Bandaríkjamenn hyggist útvega Úkraínumönnum hergögn að andvirði 625 milljóna bandaríkjadala en þar á meðal eru HIMARS-eldflaugakerfi, skriðdrekar og stórskotaliðstæki. 4.10.2022 18:49
Neitar því að hafa borgað þungunarrof kærustu Herschel Walker, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarþingsætis Georgíu-ríkis, þvertekur fyrir það að hafa greitt fyrir þungunarrof fyrrverandi kærustu sinnar árið 2009. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum vestanhafs en Walker segist mikill andstæðingur þess að konur eigi rétt á þungunarrofi. 4.10.2022 16:32
Talinn hafa svívirt lík rúmlega hundrað kvenna og stúlkna David Fuller, breskur rafvirki sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða tvær konur árið 1987 og hefur játað að hafa svívirt 78 lík, hefur verið ákærður fyrir sextán brot til viðbótar. 4.10.2022 14:50
Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. 4.10.2022 13:55
Úkraínuforseti segir æ fleiri Rússa leggja á flótta Úkraínuforseti segir að hersveitir hans sæki fram í suðri og austri og frelsi æ stærri svæði undan Rússum. Á sama tíma leggi fleiri rússneskir hermenn á flótta. Forseti Frakklands vill mynda pólitískt bandalag lýðræðisríkja í Evrópu og segir að það geti tekið Úkraínu nokkur ár eða áratugi að gerast meðlimir að Evrópusambandinu. 4.10.2022 13:14
Rússar á undanhaldi í suðri Úkraínskir hermenn virðast sækja hratt fram gegn Rússum í suðurhluta Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komið verði fram við Úkraínumenn sem búa í byggðum sem búið er að frelsa frá Rússum af sanngirni. 4.10.2022 13:13
Boðaði ekki til þingkosninga Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því. 4.10.2022 12:32
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Eðlisfræðingarnir Alain Aspect frá Frakklandi, John F. Clauser frá Bandaríkjunum og Anton Zeilinger frá Austurríki hljóta Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. 4.10.2022 09:56
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. 4.10.2022 09:16
Krefur CNN um 68 milljarða vegna meintra ærumeiðinga Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur höfðað mál á hendur fjölmiðlarisanum CNN. Sakar hann sjónvarpsstöðina um að hafa vegið að æru sinni og fer fram á 475 milljónir dala í skaðabætur, jafnvirði 68 milljarða króna. 4.10.2022 08:42
Rannsaka lottóið í Filippseyjum eftir að 433 unnu Leiðtogi minnihlutans á filippseyska þinginu hefur kallað eftir því að dráttur lottósins þar í landi verði skoðaður eftir 433 manns unnu stærsta vinninginn. Allar tölurnar sem dregnar voru margfeldi af níu en líkurnar á svo mörgum sigurvegurum eru stjarnfræðilegar. 4.10.2022 08:08
Telja raðmorðingja vera á ferðinni í Kaliforníu Lögreglan í borginni Stockton í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum telur að raðmorðingi gæti verið á ferðinni í borginnu. Fimm manns hafa verið skotnir til bana síðustu þrjá mánuði en lögreglan telur að öll málin tengist. 4.10.2022 07:12
Skutu eldflaug í átt að Japan Norður-Kóreumenn skutu í gærkvöldi eldflaug sem flaug yfir Japan. Íbúar Japan fengu skilaboð um að koma sér í skjól vegna eldflaugarinnar en að lokum lenti flaugin í Kyrrahafinu. Talið er að Norður-Kóreumenn hafi með þessu viljað fanga athygli Japana og Bandaríkjamanna. 4.10.2022 06:48
Úkraínuher sækir fram í suðri og austri Varnir Rússa í Kherson-héraði í sunnanverðri Úkraínu voru brotnar á bak aftur í dag á sama tíma og Úkraínuher sótti fram í austanverðu landinu sem Rússar segjast hafa innlimað. Birgðaflutningaleiðum fyrir rússneska hermenn er sagt ógnað með gagnsókninni. 3.10.2022 23:55
Skellir skuldinni á Bandaríkin og Ísrael Æjatolla Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, kenndi Bandaríkjunum og Ísrael um mótmæli á götum landsins í fyrstu opinberu ummælum sínum um óróann í dag. Mótmælin brutust út eftir að ung kona lést í haldi siðgæðislögreglunnar. 3.10.2022 20:54
Sendiherra segir Musk að fara norður og niður Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi vandaði Elon Musk, auðkýfingnum sem hefur haslað sér völl sem nettröll, ekki kveðjurnar eftir að sá síðarnefndi viðraði hugmynd um forsendur friðar á milli Rússlands og Úkraínu. Bað sendiherrann Musk um að fara norður og niður. 3.10.2022 17:48
Harmar viðbrögð sonarins og fjölskyldu hans Margrét Þórhildur Danadrottning segist harma viðbrögð sonar síns, Jóakim prins, við ákvörðun hennar að svipta börn hans konungslegum titlum. Það hafi þó verið löngu kominn tími til að endurskoða hverjir beri titlana og þær skyldur sem þeim fylgja. Hún bindur vonir við að fjölskyldan fái frið til að vinna úr sínum málum. 3.10.2022 16:56
Strauk úr stofufangelsi og sögð á flótta með 11 ára dóttur Rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir Marinu Ovsyannikovu, fyrrverandi ritstjóra, eftir að hún slapp úr stofufangelsi. Hún er nú sögð vera á flótta ásamt 11 ára dóttur sinni. 3.10.2022 15:52
Fellibylurinn gæti reynst tryggingafélögum Flórída dýr Meira en 80 manns eru sögð látin eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir Flórída og Norður- og Suður-Karólínu. Búist er við því að viðgerðir og uppbygging ásamt aðstoð vegna fellibylsins muni kosta tugi milljarða Bandaríkjadala. Þar að auki muni fellibylurinn kosta tryggingafélögin augun úr. 3.10.2022 14:32
Leiðtogi Téténa sendir fjórtán til sextán ára syni sína til Úkraínu Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténa, hyggst senda þrjá syni sína til Úkraínu til að berjast með rússneskum hersveitum en synir hans eru fjórtán, fimmtán og sextán ára. Hann hefur lýst yfir óánægju með frammistöðu rússneskra hersveita upp á síðkastið og kallað eftir róttækari aðgerðum. 3.10.2022 14:04
Segja gas hætt að leka úr Nord Stream leiðslunum Rússneska orkufyrirtækið Gazprom segir að þrýstingur í Nord Stream leiðslunum í Eystrasaltinu sé kominn í jafnvægi eftir að leki kom upp í síðustu viku. Verið sé að vinna í að takmarka skaðleg áhrif á umhverfið en gas sé hætt að leka úr leiðslunum. 3.10.2022 11:01
Bolsonaro og Lula mætast í annarri umferð Önnur umferð fer fram í forsetakosningunum í Brasilíu þar sem enginn frambjóðandi fékk fimmtíu prósent atkvæða í kosningunum í gær. Forseti Brasilíu reyndist njóta meiri stuðnings en kannanir gerðu ráð fyrir en andstæðingi hans, fyrrverandi forseta Brasilíu, var spáð talsvert betra gengi. 3.10.2022 10:26
Hlýtur Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á genamengi útdauðra manntegunda Sænski erfðafræðingurinn Svante Pääbo hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífefnafræði og læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á erfðamengi útdauðra manntegunda og þróun mannsins. 3.10.2022 09:38
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. 3.10.2022 09:01
Petreaus segir bandamenn myndu þurrka Rússa út í Úkraínu David Petreaus, fyrrverandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA og fjögurra stjörnu hershöfðingi, segir að Bandaríkin og bandamenn þeirra innan Atlantshafsbandalagsins myndu grípa til afgerandi aðgerða ef Rússar notuðu kjarnorkuvopn í Úkraínu. 3.10.2022 07:53
Segja forsætisráðherrann mega sitja áfram Stjórnlagadómstóll Taílands hefur úrskurðað að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha sé heimilt að sitja áfram í embætti. Deilur hafa staðið um hvort hann hafi setið lengur í embætti en lög landsins gera ráð fyrir. 3.10.2022 07:52
Draga umdeilda tekjuskattslækkun til baka Kwasi Kwarteng, fjármálaráðherra Bretlands, staðfesti við BBC í morgun að ríkisstjórnin hygðist falla frá áætlunum um að afnema 45 prósenta tekjuskattsþrepið. 3.10.2022 07:21
Stefnir í aðra umferð í Brasilíu Miðað við talin atkvæði í brasilísku forsetakosningunum sem fram fóru í dag verða úrslitin á þá leið að efna þurfi til seinni umferðar kosninganna, þar sem Jair Bolsonaro, sitjandi forseti, og Luiz Inácio Lula da Silva, sem var forseti frá 2003 til 2011, munu mætast. 2.10.2022 22:51
Skotið á stúdenta og setið um háskóla Íranskar óeirðasveitir hafa setið um háskólann Sharif í Tehran, höfuðborg Írans og skotið þar á háskólanema. Ekkert lát er á kröftugum mótmælum sem hafa sprottið á götum borga í Íran, síðan 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu fyrir að hafa höfuðklút sinn ekki nægilega þéttan á höfði sínu. 2.10.2022 22:28
Góð helgi fyrir Úkraínumenn Frá því Vladimír Pútin lýsti yfir ólöglegri innlimun fjögurra héraða Úkraínu á föstudaginn virðist sem Úkraínumönnum hafi vegnað verulega vel gegn Rússum á vígvöllum landsins. Rússar eru víðast hvar á hælunum í Úkraínu. 2.10.2022 21:30
Beittu íbúa Izyum kerfisbundnum pyntingum Rússneskir hermenn eru sagðir hafa ítrekað pyntað íbúa Izyum í Úkraínu í þá sjö mánuði sem þeir stjórnuðu borginni. Sameinuðu þjóðirnar hafa skráð markvissa beitingu ofbeldis gegn óbreyttum borgurum og að pyntingar hafi verið beitt með kerfisbundnum hætti. 2.10.2022 18:00
Konungurinn heldur sig heima eftir ráðleggingar forsætisráðherrans Karl Bretlandskonungur mun ekki sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, sem fram fer í Egyptalandi í næsta mánuði. Ástæðan er sú að forsætisráðherra Bretlands ráðlagði honum að fara ekki. 2.10.2022 16:28
Gætu breytt bandarísku samfélagi næstu áratugina Hæstiréttur Bandaríkjanna kemur saman á morgun í fyrsta sinn frá því í júní en dómararnir munu taka fyrir mörg stór og umdeild mál á næstu mánuðum. Búast má við því að dómarar sem skipaðir voru af forsetum úr Repúblikanaflokknum, sem eru í miklum meirihluta (6-3), muni halda áfram að færa bandarískt samfélag til hægri. 2.10.2022 15:03
Líklegt að Bolsonaro fari sömu leið og Trump Allt bendir til þess að brasilíska þjóðin hafni Bolsonaro, forseta Brasilíu, í forsetakosningum sem fram fara í dag. Skoðanakannanir benda til þess að Lula, fyrrverandi forseti landsins, verði forseti á ný. Slæleg frammistaða Bolsonaro í Covid-19 faraldrinum er helsta ástæða þess að honum er spáð tapi. 2.10.2022 12:30
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. 2.10.2022 11:08
Lyman sýni að innlimunin sé farsi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að undanhald Rússa frá Lyman sýni að tilraunir Rússa til að innlima úkraínskt landsvæði væri „algjör farsi“. Úkraínumenn eru sagðir hafa elt þær rússnesku hersveitir sem hörfuðu og munu bardagar geisa á ný, austur af Lyman. 2.10.2022 10:17
Vel á annað hundrað látið í troðningi eftir tapleik Talið er að minnst 174 hafi látist í troðningi eftir óeirðir á knattspyrnuleik í Indónesíu í gærkvöldi. Um er að ræða einn mannskæðasta atburð íþróttasögunnar. 2.10.2022 07:44
Segir trúverðugleika Rússa minnkandi sem gæti aukið hömluleysið Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir sigur Úkraínumanna í Lyman í dag mikið áfall og bakslag í áróðursstríði Rússa. Áhyggjuefni sé að leið Rússa úr slíkum ógöngum sé að stigmagna aðgerðir og verða hömulausari. 1.10.2022 20:43
Afhjúpuðu enn meiri hrylling Úkraínumenn náðu í dag lykilborg í austurhluta landsins aftur á sitt vald, eftir að Rússar innlimuðu svæðið ólöglega í gær. Sigurinn þykir högg fyrir Rússa. Mun fleiri féllu í hryllilegri árás Rússa á almenna borgara um síðustu helgi en talið var. 1.10.2022 19:37
Tugir sagðir látnir eftir að Ian gekk yfir Flórída Björgunarstörf er enn yfirstandandi í Flórída eftir að fellibylurinn Ian olli þar gífurlegu tjóni og mannskaða. Vitað er til þess að tugir hafi dáið vegna fellibylsins og þar af flestir í Flórída en enn er verið að leita í rústunum sem Ian skildi eftir sig. 1.10.2022 17:53