Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rushdie kominn úr öndunarvél Salman Rushdie er kominn úr öndunarvél og farinn að tala og segja brandara. Þetta segir vinur rithöfundarins, en ráðist var á Rushdie á sviði í New York á dögunum þar sem hann ætlaði að halda fyrirlestur. Rushdie var stunginn ítrekað og fluttur á sjúkrahús. 14.8.2022 07:48
Einn látinn og að minnsta kosti fjörutíu særðir eftir að tónleikasvið hrundi á Spáni Einn lést og að minnsta kosti 40 særðust eftir að tónleikasvið hrundi vegna sterkra vindhviða á Medusa-tónlistarhátíðinni í Cullera-borg í Valensía-héraði á Spáni á laugardag. 14.8.2022 00:13
Skógareldar í nágrenni Íslendingabyggða á Spáni Skógareldur braust út í bænum Guardamar del Segura, skammt sunnan við Alicante síðdegis. Eldar loga í um tíu metra fjarlægð frá íbúðarhúsum. 13.8.2022 20:14
„Byssukúlan“ sem var þrjátíu og þrjú ár á leiðinni Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur um árabil þurft að fara huldu höfði vegna morðhótana. Undanfarin ár hafði hann þó farið að lifa eðlilegu lífi á nýjan leik en hann var stunginn margsinnis á sviði í New York-ríki í Bandaríkjunum í gær. 13.8.2022 18:00
Skyndilegur dauði mörg þúsund fiska vekur furðu Skyndilegur dauði mörg þúsund fiska í Oder-á í Póllandi hefur vakið mikla furðu. Vísindamenn hafa útilokað kvikasilfurseitrun sem mögulega skýringu en segja að selta í ánni hafi mælst óvenjuhá. Forsætisráðherra Póllands telur mikið magn efnaúrgangs valda fiskadauðunum. 13.8.2022 17:54
Lífríki í ám og sjó ógnað Loftslagbreytingar, mengun og innrásartegundir í dýraríkinu valda því að dýraríkið í vötnum og sjó hefur tekið miklum breytingum á Spáni á síðustu árum. 13.8.2022 13:00
Leitarheimildin byggði á grun um brot á njósnalögum Meðal þeirra leynilegu gagna sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna fjarlægðu úr sveitarklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída voru gögn sem höfðu hlotið einhverjar af hæstu leyndarskilgreiningum bandarískra stjórnvalda. 13.8.2022 08:19
Myrtu níu óbreytta borgara eftir áflog í fangelsi Meðlimir mexíkóska eiturlyfjahringsins Los Mexicles myrtu níu óbreytta borgara í borginni Ciudad Juárez í dag. Þeir gengu berserksgang á götum borgarinnar eftir að tveir fangar voru drepnir í fangelsi borgarinnar. 12.8.2022 23:51
Hafa borið kennsl á árásarmann Rushdie Lögreglan í New York hefur borið kennsl á manninn sem réðst á rithöfundinn Salman Rushdie er hann hélt fyrirlestur í dag. Rushdie var stunginn nokkrum sinnum í kviðinn og hálsinn. 12.8.2022 21:25
Gögnin innihéldu upplýsingar um forseta Frakklands Alls voru tuttugu kassar sem innihéldu meðal annars ljósmyndir, leynileg gögn og bréf, fjarlægð af heimili Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta á mánudaginn. Ekki er ljóst á hverju húsleitarheimild alríkislögreglunnar var byggð en von er á að heimildin verði birt í kvöld. 12.8.2022 20:39
Björguðu grunuðum bankaræningja úr göngum nærri Vatíkaninu Slökkviliðsmenn á Ítalíu björguðu í dag karlmanni sem hafði fests í göngum sem hann gróf sjálfur í Rómarborg nærri Vatíkaninu. Talið er að maðurinn hafi verið að grafa göngin til þess að ræna banka en hann festist eftir að þau hrundu. 12.8.2022 20:04
Skaut ellefu manns til bana Karlmaður var í dag skotinn til bana af lögreglu í borginni Cetinje í Svartfjallalandi eftir að hafa sjálfur myrt ellefu manns. Sex aðrir eru slasaðir eftir skotárásina. 12.8.2022 18:49
Salman Rushdie stunginn á sviði Ráðist var á rithöfundinn Salman Rushdie á meðan hann hélt fyrirlestur í New York í dag. Hann hefur um áratugabil mátt sæta stöðugum líflátshótunum vegna bókar hans Söngva Satans. 12.8.2022 15:29
Fundu mænusótt í skólpi í New York Yfirvöld í New York hafa greitt frá því að mænusótt (e. Polio) hafi fundist í skólpkerfi borgarinnar. Það þykir til marks um að veiran sé í meiri dreifingu meðal óbólusettra í borginni en áður var talið. Áður hafði mænusótt ekki greinst í Bandaríkjunum í meira en áratug. 12.8.2022 15:20
Samsung-prinsinn náðaður af forsetanum Forseti Suður-Kóreu ætlar að náða Samsung-prinsinn svokallaða Lee Jae-yong, ári eftir að honum var sleppt úr fangelsi á reynslulausn. Hann var dæmdur fyrir fjárdrátt og fyrir að múta Park Geu-hye, fyrrverandi forseta landsins. Yoon Suk Yeol ætlar einnig að náða aðra auðjöfra og með því markmiði að sporna gegn efnahagsvandræðum. 12.8.2022 11:58
Vann tveggja áratuga langt dómsmál vegna 35 króna ofrukkunar Indverskur lögmaður vann á dögunum dómsmál sem hann höfðaði fyrir 22 árum. Árið 1999 rukkaði lestarfyrirtæki hann 20 rúpíum, eða um 35 krónum, of mikið og hann fór með málið fyrir dómstóla. 12.8.2022 11:34
Mestu þurrkar Evrópu í fimm hundruð ár Lítið sem ekkert hefur rignt í Vestur-, Suður- og Mið-Evrópu í tæpa tvo mánuði. Veðurfræðingar búast ekki við rigningu á næstunni og hefur þurrkunum verið lýst sem þeim verstu í heimsálfunni í fimm hundruð ár. 12.8.2022 10:37
Sameinuðu þjóðirnar uggandi eftir ítrekaðar árásir á kjarnorkuver Rússar og Úkraínumenn benda enn hvorir á aðra vegna ítrekaðra árása á stærsta kjarnorkuver Evrópu í austurhluta Úkraínu. Árásir þessar hafa aukið á áhyggjur manna af því árásirnar leiði til stórslyss í kjarnorkuverinu sem hafi óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að svæðið í kringum kjarnorkuverið verði hlutlaust. 12.8.2022 10:00
Voru að leita að trúnaðargögnum um kjarnorkuvopn Fulltrúar Bandarísku alríkislögreglunnar FBI sem gerðu húsleit á heimili Donald Trump í Mar a Lago í Flórída voru meðal annars að leita að trúnaðargögnum er vörðuðu kjarnorkuvopn. Þetta herma heimildir Washington Post. 12.8.2022 07:52
Eistar meina flestum Rússum inngöngu í land sitt Eistland tilkynnti það í morgun að frá byrjun næstu viku mun landið meina allmörgum Rússum inngöngu í landið. Rússar sem hafa fengið vegabréfsáritun frá eistneskum yfirvöldum munu ekki lengur fá að heimsækja Eistland. 12.8.2022 07:51
Maður sem reyndi að brjótast inn í skrifstofu FBI skotinn til bana eftir eftirför lögreglu Brynklæddur og vopnaður maður sem reyndi að brjótast inn í skrifstofu FBI fyrr í dag og flúði af vettvangi var skotinn til bana af ríkislögregluþjónum eftir klukktíma langa eftirför um sveitavegi Ohio-ríkis. 12.8.2022 00:06
Skoða það að taka Freyju af lífi Yfirvöld í Noregi eru nú með það til skoðunar hvort það eigi að taka rostunginn Freyju af lífi. Freyja hefur upp á síðkastið tekið sér lúr í bátum í höfnum Noregs og sökkt einhverjum þeirra í leiðinni. 12.8.2022 00:02
Faldi sprengjuna í gervifæti Afganski sjeikinn Rahimullah Haqqani var í dag myrtur í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Talið er að morðinginn hafi falið sprengjuna í gervifæti sínum og sprengt sig er hann var við hlið Haqqani. 11.8.2022 23:29
Árásargjarn höfrungur nartar í Japani Höfrungur hefur bitið að minnsta kosti sex strandgesti í Japan en í gær þurfti að flytja eitt fórnarlamba hans á spítala vegna sára sinna. Yfirvöld hafa sett upp tæki og tól til að reyna að komast hjá árásunum. 11.8.2022 21:38
Rekin í gegn af fljúgandi sólhlíf Strandgestur í Garden City í Suður-Karólínu lést af sárum sínum eftir að sólhlíf sem hafði fokið úr festingu sinni lenti í bringu hennar. 11.8.2022 19:30
Tók banka í gíslingu til að geta tekið út sparifé sitt Maður tók banka í gíslingu í Beirút í dag til að krefjast þess að bankinn leyfði honum að taka út sparifé af læstum reikningi svo hann gæti borgað sjúkrareikninga föður síns. Mótmælendur hópuðust fyrir framan bankann til að krefjast þess að bankinn léti undan kröfum mannsins. 11.8.2022 18:42
Tveir alvarlega slasaðir eftir rússíbanaslys í Lególandi Alls eru 34 slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir rússíbanaslys í bænum Günzburg í suðurhluta Þýskalands. Öllum farþegum rússíbanans bauðst áfallahjálp eftir slysið. 11.8.2022 17:41
Færast nær fyrsta geimskoti Starship Starfsmenn geimferðafyrirtækisins SpaceX náðu nýjum áfanga í Texas í vikunni þegar tilraunir voru gerðar með Starship-geimfarið. Kveikt var á hreyflum fyrra og seinna stigs Starship en þetta var í fyrsta sinn sem tilraunir eru gerðar með fyrra stigið, sem kallast Super Heavy. 11.8.2022 16:33
Viðbrögðin sýna tangarhald Trumps á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gæti mögulega verið fundinn sekur um brot á lögum sem hann sjálfur þyngdi refsinguna við töluvert. Það er að segja ef hann braut lög með því að flytja opinber gögn, og þar á meðal leynilegt gögn, með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu. Trump er sagður vera að leita sér að lögmönnum til að mögulega verja sig. 11.8.2022 14:30
Segja Rússland vera hryðjuverkaríki Þingmenn Lettlands samþykktu í morgun ályktun um að Rússland væri hryðjuverkaríki og aðgerðir Rússa í Úkraínu væru tilraunir til þjóðarmorðs á úkraínsku þjóðinni. Þingmennirnir kölluðu eftir því að önnur ríki lýsi því einnig yfir að Rússland sé hryðjuverkaríki. 11.8.2022 11:29
Sífellt fleiri reyna að komast til Kanaríeyja og margir hafa dáið Minnst 9.589 manns hafa flúið frá ríkjum Afríku til Kanaríeyja á þessu ári. Það er aukning um 27 prósent, samanborið við sama tímabil í fyrra. Leiðin er þó mjög hættulegt og minnst þúsund hafa dáið við að fara hana, samkvæmt hjálparsamtökum sem starfa á svæðinu. 11.8.2022 10:37
Hyggjast banna „Parasite-kjallaraíbúðir“ í Seúl Yfirvöld í Suður Kóreu hyggjast banna ákveðnar tegundir kjallaraíbúða í Seúl, höfuðborg landsins í kjölfar dauða tveggja kvenna og ungrar stelpu sem fórust í miklum flóðum í borginni fyrr í þessari viku. 11.8.2022 08:20
Sjö ákærðir fyrir nauðgun í kjölfar hópárásar í námu í Suður-Afríku Yfirvöld í Suður-Afríku hafa ákært sjö manns fyrir 32 nauðganir eftir hópárás í yfirgefinni námu í nágrenni Jóhannesarborgar. 11.8.2022 07:50
Átta herflugvélar virðast hafa skemmst í sprengingum á herstöð á Krímskaga Að minnsta kosti átta rússneskar herflugvélar virðast hafa skemmst eða eyðilagst í sprengingum sem urðu á Saky herstöðinni á Krímskaga á þriðjudag, ef marka má nýjar gervihnattamyndir af herstöðinni. 11.8.2022 07:23
Þúsundir manna þurft að flýja heimili sín í Frakklandi Alls hafa um tíu þúsund manns þurft að flýja heimili sín í Frakklandi vegna mikilla skógarelda. Íbúar Gironde-svæðisins hafa þurft glíma við fjölda elda í ágústmánuði. 10.8.2022 23:58
„Guðfaðir glímunnar“ sem kenndi bæði Bruce Lee og Chuck Norris er allur Áhættuleikarinn og júdómeistarinn Gene LeBell, sem var gjarnan kallaður „Guðfaðir glímunnar“ og kenndi bæði Chuck Norris og Bruce Lee, er látinn 89 ára að aldri. Ásamt því að keppa í júdói og bandarískri glímu lék LeBell sem áhættuleikari í meira en þúsund myndum. 10.8.2022 23:38
Segir Norður-Kóreu vera lausa við Covid-19 Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, heldur því fram að landið sé nú alveg laust við Covid-19 sjúkdóminn. Hann segir að lág dánartíðni landsins „fordæmalaust kraftaverk“ en einungis 74 manns hafa látist vegna sjúkdómsins í landinu. 10.8.2022 22:38
Fundu málverk metið á átta milljarða undir rúmi svikahrapps Málverk eftir Tarsila do Amaral, einn þekktasta listmálara Brasilíu, fannst falið undir rúmi meints svikahrapps í lögreglurassíu á Ipanema-strönd í Rio de Janeiro á miðvikudagsmorgun. Rassían tengdist margra milljarða listaverkastuldi og fjársvikum sem beindust að 82 ára gamalli konu. 10.8.2022 20:15
Kærasti Kim Wall óánægður með framgöngu fjölmiðla Ole Stobbe, kærasti sænsku blaðakonunnar Kim Wall sem myrt var árið 2017, er ekki ánægður með hversu langt fjölmiðlar gengu í fréttaumfjöllun um morðið á Wall. Líf hans snúi enn um málið, fimm árum seinna. 10.8.2022 19:26
Rússnesk fréttakona sem mótmælti innrásinni handtekin fyrir að gagnrýna herinn Rússneska fréttakonan Marina Ovsyannikova, sem vakti athygli í mars síðastliðnum fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu í beinni útsendingu, hefur verið ákærð fyrir að dreifa falsupplýsingum um rússneska herinn. Hún gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára dóm verði hún sakfelld, segir lögmaður hennar. 10.8.2022 18:02
Hvalrekaskattur til skoðunar vegna gróða orkufyrirtækja Breskir borgarar mega búast við 82 prósenta hækkun á orkukostnaði í október en samkvæmt nýrri könnun eru sex milljónir breskra heimila í vanda stödd og skulda að meðaltali 206 pund til orkufyrirtækja. 10.8.2022 16:33
Reyndi að ráða þjóðaröryggisráðgjafa Trumps af dögum Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært íranskan hermann fyrir ráðabrugg um að að ráða John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna af dögum. Talið er að morðið hafi átt að vera hefndaraðgerð eftir að Bandaríkjamenn felldu íranskan herforingja í loftárás í Írak. 10.8.2022 15:59
Segist hafa átt eina erfiðustu viku lífs síns með Ezra Miller á Íslandi Ung tónlistarkona sem kveðst hafa verið í sambandi með Ezra Miller á meðan hán dvaldi á Íslandi sakar Hollywood-stirnið um að hafa beitt sig sálrænu ofbeldi og skapað aðstæður sem minntu einna helst á sértrúarsöfnuð. 10.8.2022 15:32
Neitaði að svara spurningunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, neitaði að svara spurningum rannsakenda ríkissaksóknara New York við vitnaleiðslur í dag. Til þess nýtti hann rétt Bandaríkjamanna til þess að sakbenda sjálft sig ekki. 10.8.2022 14:39
Seagal braut gegn Genfarsáttmálanum á hernumdum svæðum í Úkraínu Steven Seagal, hinn víðfrægi bandaríski leikari, er nú staddur í Úkraínu á svæðum sem Rússar hafa hernumið. Þar er hann sagður vinna að gerð heimildarmyndar sem ætlað er að varpa ljósi á sannleikann varðandi innrás Rússa í Úkraínu og breyta viðhorfi fólks til innrásarinnar. 10.8.2022 13:23