Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun. 23.11.2021 11:50
Höfðar mál eftir að hafa verið ranglega vistaður á geðdeild í tæp þrjú ár Joshua Spriestersbach, var handtekinn fyrir mistök á Honolúlú árið 2017 og vistaður á geðdeild í nærri því þrjú ár, því lögreglan fór mannavillt. Hann hefur nú höfðað mál gegn yfirvöldum á Havaí-eyjum, lögregluþjónum, lögmönnum og læknum sem að máli hans komu. 23.11.2021 10:42
Katarar létu njósna um forystumenn FIFA Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar. 23.11.2021 10:18
Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól. 23.11.2021 08:45
Ein ötulasta baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum látin Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri. 23.11.2021 08:37
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu er látinn Chun Doo-hwan, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, lést í morgun, níutíu ára að aldri. 23.11.2021 07:33
Spacey dæmdur til að greiða framleiðendum House of Cards fjóra milljarða Gerðardómur hefur ákveðið að leikarinn Kevin Spacey eigi að greiða MRC kvikmyndaverinu 31 milljón dala í skaðabætur fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum samnings síns við framleiðslu á þáttunum House of Cards, sem sýndir voru á Netflix. 23.11.2021 07:31
Að minnsta kosti 45 látnir eftir rútubruna í Búlgaríu Að minnsta kosti 45 létu lífið í rútuslysi í Búlgaríu í nótt. Slysið varð á hraðbraut í vesturhluta landsins en rútan er sögð hafa ekið á vegrið með þeim afleiðingum að mikill eldur kom upp í henni. 23.11.2021 06:51
Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað. 22.11.2021 23:46
Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“ Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag. 22.11.2021 22:37
„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“ Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“. 22.11.2021 15:53
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. 22.11.2021 15:19
Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil. 22.11.2021 14:59
Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. 22.11.2021 14:05
Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. 22.11.2021 13:05
Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu. 22.11.2021 12:03
Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. 22.11.2021 11:50
SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust. 22.11.2021 11:50
Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði. 22.11.2021 10:28
Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði. 22.11.2021 07:40
Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. 22.11.2021 07:00
Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. 22.11.2021 06:40
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. 21.11.2021 23:31
Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. 21.11.2021 22:54
Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit. 21.11.2021 16:51
„Auðvitað er þetta svikamylla“ Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið. 21.11.2021 15:00
Meina ferðamönnum aðgang að eyju á Ítalíu vegna gosóróa Bæjarstjóri eyjarinnar Vulcano, sem er í eyjaklasa í námunda við Sikiley á Ítalíu, hefur beðið fólk að yfirgefa ákveðið svæði á eyjunni vegna gosoróa. Um hundrað og fimmtíu manns búa á svæðinu og ferðamönnum hefur verið meinaður aðgangur að eyjunni allri. 21.11.2021 14:49
Óðagot þegar peningum rigndi yfir hraðbrautina Seðlum hreinlega rigndi á hraðbraut í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær, sem olli því að hraðbrautin lokaðist þegar ökumenn námu staðar og freistuðu þess að ná sér í skjótfenginn gróða. Peningarnir komu úr sendiferðabíl sem virðist ekki hafa verið nægilega vel lokaður. 21.11.2021 14:17
Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld. 21.11.2021 11:34
Sýknu í máli Rittenhouse mótmælt víða um Bandaríkin Lögreglan í borginni Portland í Oregon í Bandaríkjunum lýsti því yfir í gærkvöldi að mótmæli í borginni, sem voru til komin vegna sýknu Kyle Rittenhouse, væru orðin að óeirðum. 21.11.2021 08:58
Segja Peng Shuai hafa verið á tennismóti tæpum þremur vikum eftir hvarf hennar Kínverska tenniskonan Peng Shuai, sem ekkert hafði spurst til eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, er sögð hafa verið viðstödd tennismót í Kína í dag. Alþjóðlega tennissamfélagið hafði kallað eftir því að kínversk stjórnvöld sýndu fram á að hún væri örugg og á lífi eftir að hún setti ásakanirnar fram á samfélagsmiðlum. 21.11.2021 08:03
Fyrsta andlát af völdum Covid í Grænlandi Eldri maður lést af völdum Covid-19 á Grænlandi í vikunni en hann er sá fyrsti sem deyr vegna veirunnar í landinu. 20.11.2021 23:07
Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi. 20.11.2021 22:20
Hundruð Teslu-eigenda sátu fastir vegna bilunar í smáforriti Bilun í smáforriti rafbílaframleiðandans Teslu varð til þess að hundruð Teslu-eigenda gátu ekki startað bílum sínum í gær. 20.11.2021 18:45
Fjórtán ára drengur skotinn í Eskilstuna 14 ára drengur var skotinn í í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi, í dag. 20.11.2021 18:07
Sautján látnir og fleiri slasaðir eftir úrhelli á Indlandi Að minnsta kosti sautján eru látnir og fleiri slasaðir eftir gífurlega rigningu í ríkinu Andhra Pradesh á Suður-Indlandi. Úrhelli hefur verið í ríkinu síðan á fimmtudaginn, sem valdið hefur flóðum og hrint af stað aurskriðum. 20.11.2021 11:25
Börn bjartsýnni á betri heim en fullorðnir Niðurstöður nýrrar könnunar UNICEF og Gallup sýna að börn séu bjartsýnni á betri heim en fullorðnir. 21.000 manns, börn og fullorðnir, tóku þátt í könnuninni en hún var framkvæmd í tuttugu og einu landi. 20.11.2021 09:30
Lögregla skaut á Covid-mótmælendur Mótmælendur í hollensku borginni Rotterdam særðust þegar lögregla skaut á þá. Mótmælin í borginni, sem voru til komin vegna fyrirætlana stjórnvalda um að gera atvinnurekendum kleift að meina óbólusettum aðgang að ákveðnum svæðum, breyttust í óeirðir. 20.11.2021 08:42
Biden segist reiður yfir sýknu Rittenhouse Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að táningurinn Kyle Rittenhouse hafi verið sýknaður af öllum ákæruliðum á hendur sér í gær. Rittenhouse varð tveimur að bana og særði þann þriðja í óeirðum í borginni Kenosha á síðasta ári, og hafði verið ákærður fyrir morð. 20.11.2021 07:58
Líkti samstöðufundi við aftöku án dóms og laga Kevin Gough, verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery, sagði samstöðufund sem haldin var fyrir utan dómshúsið í Brunswick í Georgíu vera álíka aftöku mannanna þriggja. 19.11.2021 23:00
Krefjast svara um Peng Shuai Alþjóðatennissamband kvenna krefst þess að kínversk stjórnvöld bregðist við ásökunum tenniskonunnar Peng Shuai og að þau leggi fram sannanir um að hún sé örugg og á lífi. Að öðrum kosti muni sambandið ekki mæta til leiks á kínverskri grundu. 19.11.2021 19:21
Rittenhouse sýknaður af öllum ákærum Kyle Rittenhouse hefur verið sýknaður af því að skjóta tvo menn til bana og særa þann þriðja. Kviðdómur í Kenosha í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir nú fyrir skömmu. 19.11.2021 18:18
Saka Lúkasjenka um að flytja fólk aftur að landamærunum Yfirvöld í Póllandi segja Hvít-Rússa flytja farand- og flóttafólk í trukkum aftur að landamærum ríkjanna. Verið sé að reyna að þvinga fólkið til að gera tilraun til að fara yfir landamærin. Það gerðist nokkrum klukkustundum eftir að Hvít-Rússar rýmdu búðir fólks nærri landamærunum í gær og virtust flytja fólkið á brott. 19.11.2021 18:00
Skógareyðing í Brasilíu ekki verið meiri í fimmtán ár Eyðing brasilísku regnskóganna hefur ekki verið meiri í heil fimmtán ár samkvæmt opinberum gögnum þar í landi. 19.11.2021 14:37
Heilbrigðisráðherra Þýskalands útilokar ekki allsherjar útgöngubann Stjórnvöld í Þýskalandi segja neyðarástand ríkja í landinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og útiloka ekki að grípa til allsherjar útgöngubanns líkt og komið hefur verið á í Austurríki. 19.11.2021 12:12