Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjöldi starfsmanna Good Morning Britain kvartaði vegna ummæla Morgans Tugir starfsmanna sjónvarpsþáttarins Good Morning Britain, sem er á dagskrá ITV á morgnana, kvörtuðu til stjórnenda sjónvarpsstöðvarinnar vegna ummæla sem Piers Morgan lét falla um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, í þættinum á mánudaginn. 11.3.2021 09:09
Annar forsætisráðherra landsins til að falla frá á innan við ári Hamed Bakayoko, forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, er látinn, 56 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Þýskalandi í gær eftir baráttu við krabbamein. 11.3.2021 08:29
Öryggisráðið kallar eftir því að her Mjanmar stígi til hliðar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallaði í kvöld eftir því að forsvarsmenn herafla Mjanmar létu af valdaráni sínu og hættu ofbeldi gegn mótmælendum. 10.3.2021 23:58
Rússar hægja á Twitter Yfirvöld í Rússlandi hafa hægt á Twitter þar í landi vegna deilna ríkisstjórnar Vladímírs Pútíns, forseta, við samfélagsmiðlafyrirtæki. Sérstaklega hefur verið hægt á hraða internetsins þegar kemur að því að hlaða inn myndum og myndböndum á Twitter. 10.3.2021 23:29
Brúnt vatn og óætur matur: Líkir fangavistinni við pyntingar Það er niðurlægjandi hvernig farið er með Ghislaine Maxwell í fangelsinu í New York, segir bróðir hennar Ian Maxwell. Hann líkir fangavistinni við pyntingar en Maxwell hefur verið sökuð um að hafa útvegað vini sínum Jeffrey Epstein stúlkur undir lögaldri. 10.3.2021 21:56
Hundruð bólusettra barna í Ísrael upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir Um 600 ísraelsk börn á aldrinum 12 til 16 ára sem voru bólusett gegn Covid-19 með bóluefni Pfizer upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir. Ungmenni eru almennt ekki bólusett en yfirvöld í landinu hafa mælt með bólusetningu einstaklinga í áhættuhópum. 10.3.2021 21:08
Fundu lík í leitinni að Söruh Everard Breskir lögregluþjónar hafa fundið lík í leitinni að Söruh Everard. Líkið fannst í skógi í Ashford, suðaustur af Lundúnum. Lögregluþjónn er grunaður um að hafa rænt henni og myrt hana en hún hvarf þann 3. mars þegar hún var á leið heim eftir heimsókn til vinafólks. 10.3.2021 20:58
Lögregluþjónninn í Lundúnum nú grunaður um morð Breskur lögregluþjónn sem handtekinn var í gærkvöldi vegna hvarfs hinnar 33 ára Söruh Everard í Lundúnum er sakaður um morð. Hann var upprunalega handtekinn vegna gruns um mannrán. 10.3.2021 18:27
Dómur yfir kvenréttindabaráttukonu stendur óhaggaður Dómstóll í Sádi-Arabíu hafnaði áfrýjun Loujain al-Hathloul, baráttukonu fyrir réttindum kvenna, á dómi sem hún hlaut fyrir meint hryðjuverkabrot. Hathloul var ein þeirra jafnréttissinna sem stjórnvöld í Sádi-Arabíu tóku höndum árið 2018. 10.3.2021 16:59
Önnur tölvuárás gerð á norska þingið Tölvuþrjótar komust inn í tölvukerfi norska þingsins og stálu þaðan gögnum. Hálft ár er frá því að yfirvöld greindu frá annarri slíkri árás á þingið. 10.3.2021 16:02
Sendi sjálf inn formlega kvörtun vegna ummæla Piers Morgan Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, var sjálf í hópi þeirra sem sendu inn kvörtun vegna ummæla fjölmiðlamannsins Piers Morgan á ITV um geðheilsu hennar. 10.3.2021 14:31
Telja sjúkrahús í Brasilíu komin að þolmörkum Heilbrigðiskerfið flestum stærstu borgum Brasilíu er að hruni komið vegna fjölda sjúklinga með Covid-19, að mati heilbrigðisstofnunar landsins. Heimshlutanum er talin standa ógn af aðgerðaleysi brasilískra stjórnvalda við faraldrinum sem fær að geisa nær hömlulaust. 10.3.2021 14:24
Samkomulag um nýja bráðabirgðastjórn veitir vonarglætu Líbíuþing hefur samþykkt bráðabirgðastjórn sem ætlað er að stjórna hinu stríðshrjáða landi fram að fyrirhuguðum þingkosningum í desember næstkomandi. Litið er á málið sem mikilvægt skref í þá átt að binda endi á áratug af vopnuðum átökum og glundroða í landinu. 10.3.2021 13:27
Taka aftur upp skógarhögg í Bialowieza-frumskóginum Pólverjar hafa ákveðið að hefja skógarhögg á ný í Bialowieza-frumskóginum í austurhluta landsins sem er að finna á Heimsminjaskrá UNESCO. 10.3.2021 12:10
Lýsir yfir neyðarástandi á Hawaii vegna flóða Gríðarlegt úrhelli síðustu daga og flóð hafa valdið talsverðri eyðileggingu á eyjum Hawaii og hefur ríkisstjórinn David Ige nú lýst yfir neyðarástandi. Búist er við að úrhellinu sloti ekki fyrr en á föstudag. 10.3.2021 11:38
Morgan stendur við orð sín um Meghan og bætir í Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan, sem hætti í gær sem þáttastjórnandi í Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni vegna ummæla sinna um Meghan Markle, segist standa við það sem hann sagði. 10.3.2021 10:54
Draga til baka rannsókn á skammtatölvum vegna „mistaka“ Hópur sérfræðinga á vegum tæknirisans Microsoft hefur dregið til baka umdeilda rannsókn á svonefndum skammtatölvum sem birtist árið 2018. Mistök hafi verið gerð við rannsóknina og biðjast höfundarnir afsökunar á að hafa ekki stundað nægilega vísindaleg vinnubrögð. 10.3.2021 10:39
Fimm dæmdir vegna morðsins á Andrei Karlov Dómstóll í Tyrklandi hefur dæmt fimm menn í lífstíðarfangelsi vegna aðildar sinnar að morðinu á Andrei Karlov, sendiherra Rússlands í Tyrklandi, í Ankara árið 2016. 10.3.2021 10:09
Lögreglumaður í London handtekinn vegna hvarfs Söruh Everard Lögreglumaður í London hefur verið handtekinn í Kent í tengslum við rannsókn á hvarfi hinnar 33 ára Söruh Everard. Ekkert hefur spurst til Everard í heila viku en síðast sást til hennar þegar hún yfirgaf heimili vinar síns í Clapham í suðurhluta bresku höfuðborgarinnar að kvöldi miðvikudagsins 3. mars. 10.3.2021 08:41
39 látnir eftir að bátar sukku undan ströndum Túnis Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir að tveir bátar hlaðnir farandfólki sukku undan ströndum Túnis í gær. Fólkið var að freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið til ítölsku eyjunnar Lampedusa, að sögn varnarmálaráðuneytis Túnis. 10.3.2021 07:47
Heilbrigðiskerfi Brasilíu að sligast Heilbrigðiskerfi stærstu borga Brasilíu er komið að fótum fram vegna útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Fiocruz stofnuninni. 10.3.2021 07:32
Biden í basli á landamærunum Þrátt fyrir að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hafi skrifað undir forsetatilskipanir og gripið til annarra aðgerða á fyrsta degi í embætti, hefur það litlum árangri skilað á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Í ljósi þess öngþveitis sem ríkir þar. 9.3.2021 23:01
Nær tvöfalt fleiri munu eiga rétt á skimun fyrir lungnakrabba Skimunarráð Bandaríkjanna hefur uppfært tillögur sínar varðandi skimun fyrir lungnakrabbameinum, sem mun gera það að verkum að nær tvöfalt fleirum er ráðlagt að gangast undir árlega tölvusneiðmyndarannsókn en áður var. 9.3.2021 21:25
Tveggja alda gömul tré í spíru Notre Dame felld Franskir skógarhöggsmenn byrjuðu í gær að fella forn eikartré sem valin hafa verið vegna endurbyggingar spíru dómkirkjunnar Notre Dame í París. Fyrstu trén voru felld í í Berceskógi og var það fyrsta um 230 ára gamalt. 9.3.2021 21:01
Enginn Morgan á morgnana í kjölfar ummæla um Meghan Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan hefur ákveðið að hætta sem einn þáttastjórnenda Good Morning Britain, eftir uppákomu í þættingum í gærmorgun þegar viðtal hertogahjónanna Harry og Meghan við Oprah Winfrey bar á góma. 9.3.2021 19:03
Drottningin döpur yfir erfiðleikum Meghan og Harrys Elísabet Englandsdrottning segir alla konungsfjölskylduna dapra eftir að hafa komist að því til fulls í viðtali Opruh Winfrey við Harry og Meghan hversu erfið síðustu ár hafi reynst þeim. Almenningsálitið í Bretlandi virðist vera á sveif Meghan. 9.3.2021 18:25
Drottningin tjáir sig um viðtalið Elísabet Bretadrottning segir alla bresku konungsfjölskylduna sorgmædda yfir því hvað síðustu ár hafi verið erfið fyrir Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9.3.2021 17:46
Hundur Joes Biden til vandræða og sendur burt úr Hvíta húsinu Tveimur hundum bandarísku forsetahjónanna Joe og Jill Biden, hefur verið vísað burt úr Hvíta húsinu í Washington og þeir sendir aftur til heimilis Biden-hjónanna í Delaware. Þetta var gert í síðustu viku eftir að annar hundanna, Major Biden, sýndi af sér árásargjarna hegðun. 9.3.2021 14:19
Ætla að framleiða rússneska bóluefnið á Ítalíu Rússar hafa gert samkomulag um að framleiða Spútnik V-bóluefni sitt við kórónuveirunni á Ítalíu, fyrsta samninginn þess efnis í Evrópu. Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt Evrópusambandsríki til að veit ekki leyfi fyrir rússneska bóluefninu í bili. 9.3.2021 13:15
Ætlar að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til Meghan talar við hann Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynjunnar af Sussex og eiginkonu Harry Bretaprins, segist ætla að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til dóttir hans talar aftur við hann. 9.3.2021 12:12
98 látnir eftir sprengingarnar í Bata Fjöldi látinna eftir sprengingarnar á herstöðinni í hafnarborginni Bata í Miðbaugs-Gíneu er nú kominn í 98. Auk þeirra slösuðust rúmlega sex hundruð manns og gæti fjöldi látinna því hækkað enn frekar þegar fram í sækir. 9.3.2021 11:52
Halda áfram að nota nafn Trump þrátt fyrir mótbárur hans Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum ætlar að halda áfram að nota nafn Donalds Trump fyrrverandi forseta í fjáröflunarskyni og kynningarefni þrátt fyrir að hann hafi látið lögfræðinga sína krefjast þess að flokkurinn léti af því í síðustu viku. 9.3.2021 11:46
Bóluefni Pfizer virðist virka gegn brasilíska afbrigðinu Ný rannsókn bendir til að bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 vinni gegn meira smitandi afbrigði kórónuveirunnar sem kennt hefur verið við Brasilíu. 9.3.2021 11:44
Réttarhöldin vegna dauða Floyd gætu frestast um fleiri vikur Krafa saksóknara um að bæta nýjum lið við ákæru á hendur lögreglumanninum sem er ákærður vegna dauða Georges Floyd gæti þýtt að upphaf málflutnings tefjist um fleiri vikur og jafnvel mánuði. Byrjað er að velja kviðdómendur í málinu. 9.3.2021 10:25
Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9.3.2021 10:13
Svipta Puigdemont og tvo til viðbótar friðhelgi Meirihluti Evrópuþingsins hefur samþykkt að svipta Evrópuþingmanninn Carles Puigdemont friðhelgi. Puigdemont er fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, en auk Puigdemont hafa tveir Evrópuþingmenn til viðbótar verið sviptir friðhelgi. 9.3.2021 08:53
Krísufundir hjá konungsfjölskyldunni vegna viðtalsins Breska konungsfjölskyldan hefur haldið krísufundi í kjölfar viðtals Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex, þau Meghan Markle og Harry Bretaprins. Viðtalið var frumsýnt á CBS-sjónvarpsstöðinni á sunnudagskvöld en sýnt í Bretlandi í heild sinni í gærkvöldi. 9.3.2021 08:42
Ógildir dóm yfir Lula sem gerir honum kleift að bjóða sig fram á ný Dómari í Brasilíu hefur ógilt dóm yfir Luiz Inácio Lula da Silva, fyrrverandi forseta landsins, sem hann hlaut vegna spillingar. Niðurstaðan gerir það að verkum að Lula gæti boðið sig fram að nýju í forsetakosningunum 2022. 9.3.2021 07:37
Sjálfstæðir fjölmiðlar í Mjanmar sviptir útvarpsleyfinu Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur bannað fimm fjölmiðlafyritækjum í landinu að starfa og er ástæðan sú að fjölmiðlarnir sögðu frá hinum víðtæku mótmælum sem staðið hafa yfir síðan herforingjarnir tóku völdin í Mjanmar á dögunum. 9.3.2021 07:34
Þrettán ára stúlka játar lygar sem leiddu til grimmilegs morðs Frönsk stúlka hefur játað að hafa logið um Samuel Paty, kennara sem var myrtur á grimmilegan máta í október. Lygar hennar og ófrægingarherferð föður hennar eru sagðar hafa leitt til dauða kennarans. 8.3.2021 23:50
Ekkert fararsnið á ríkisstjóra þrátt fyrir röð ásakana Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segist ekki ætla að segja af sér þrátt fyrir að hafa misst stuðning leiðtoga Demókrataflokksins í ríkinu. Fjöldi kvenna hefur stigið fram og sakað Cuomo um kynferðislega áreitni. Stjórn Cuomo er einnig sökuð um að hafa reynt að hylma yfir fjölda dauðsfalla á hjúkrunarheimilum í kórónuveirufaraldrinum. 8.3.2021 17:04
Bólusettir geta hist grímulausir Fólk sem hefur verið bólusett við kórónuveirunni getur hist innandyra án þess að vera með grímu eða halda fjarlægðarmörk samkvæmt nýjum leiðbeiningum bandarísku sóttvarnastofnunarinnar sem voru kynntar í dag. 8.3.2021 16:27
Fórnarlömbum kongósks stríðsherra dæmdar metbætur Barnahermönnum og öðrum fórnarlömbum Boscos Ntaganda, kongóska stríðsherrans, voru saman dæmdar þrjátíu milljón dollara, jafnvirði meira en 3,8 milljarða íslenskra króna, miskabætur í Alþjóðasakamáladómstólnum í Haag í dag. Bæturnar eru þær hæstu sem dómstóllinn hefur dæmt til þessa. 8.3.2021 13:33
Assad-hjónin sögð smituð af kórónuveirunni Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, og Asma eiginkona hans greindust smituð af kórónuveirunni. Í opinberri yfirlýsingu forsetaembættisins segir að forsetahjónin þjáist aðeins af vægum einkennum. 8.3.2021 12:39
Réttarhöld yfir lögreglumanninum sem drap George Floyd að hefjast Taugar eru þandar í Minneapolis í Bandaríkjunum vegna réttarhalda yfir lögreglumanni sem varð George Floyd að bana sem hefjast í þessari viku. Byrjað verður að velja kviðdómendur í málinu í dag en upphaf réttarhaldanna gæti enn frestast. 8.3.2021 12:30