Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbúnaðarstig vegna flóðbylgjuhættu lækkað Í morgun var viðbúnaðarstig vegna flóðbylgjuhættu lækkað á Nýja-Sjálandi. Almannavarnir gáfu í gærkvöldi út viðvörun vegna flóðbylgjuhættu sem gæti ógnað landi og höfn. Nú er hætta aðeins talin steðja að sjávarsíðunni og höfninni. 5.3.2021 07:54
Ítalir stöðvuðu sendingu á bóluefni til Ástralíu Stjórnvöld á Ítalíu komi í veg fyrir að 250.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem voru framleiddir þar í landi yrðu fluttir til Ástralíu. Ákvörðunin nýtur stuðnings framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og byggir á nýjum reglum sem leyfa ríkjum að stöðva útflutning á bóluefni ef framleiðendur þess hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart sambandinu. 4.3.2021 23:22
Jarðskjálfti 8 að stærð á Nýja-Sjáland Jarðskjálfti sem mældist 8 að stærð reið yfir úti fyrir norðurströndum Nýja-Sjálands nú fyrir stundu, eða að morgni föstudags að staðartíma. Þetta er þriðji stóri skjálftinn sem mælst hefur á svæðinu í dag en sá fyrsti mældist 7,2 að stærð um klukkan hálf þrjú að nóttu að staðartíma. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út vegna skjálftanna. 4.3.2021 20:39
Þýsku leyniþjónustunni heimilt að fylgjast með AfD Þýska leyniþjónustan hefur breytt skilgreiningu á hægriþjóðernisflokknum Valkosti fyrir Þýskaland (þ. Alternativ für Deutschland (AfD)) á þann veg að hann er nú skilgreindur sem möguleg öfgahreyfing sem kunni að ógna lýðræðinu í landinu. Þessi nýja skilgreining veitir leyniþjónustunni auknar heimildir til að fylgjast með starfsemi flokksins á landsvísu. 4.3.2021 14:07
Í reipitogi um kosningaréttinn Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gær umfangsmiklar reglur varðandi kosningar og siðferði innan opinbera geirans. Frumvarpið var samþykkt að mestu eftir flokkslínum 220-210. 4.3.2021 13:44
Árásin í Vetlanda ekki rannsökuð sem hryðjuverkaárás Saksóknari í Svíþjóð segir að árásin sem gerð var í sænska bænum Vetlanda í sænsku Smálöndunum í gær sé ekki rannsökuð sem hryðjuverkaárás. 22 ára karlmaður gekk þar um í miðbæ Vetlanda og særði átta manns með eggvopni. Lögregla skaut manninn áður en hann var handtekinn, en árásin stóð yfir í alls nítján mínútur. 4.3.2021 11:48
Transkona sem var rekin úr hernum fannst látin á heimili sínu Ung kona sem vikið var úr her Suður-Kóreu eftir að hún gekkst undir kynleiðréttingu fannst látin á heimili sínu í gær. Byun hee-soo var rekin úr hernum í fyrra. 4.3.2021 11:44
Filippus gekkst undir hjartaaðgerð og verður áfram á sjúkrahúsi Filippus prins, hertoginn af Edinborg, hefur gengist undir hjartaaðgerð vegna eldri kvilla í hjarta. Hinn 99 ára gamli prins hefur nú varið 16 dögum á sjúkrahúsi vegna sýkingar en ástand hans er sagt hafa skánað á undanförnum dögum. 4.3.2021 10:40
Blóðugasti dagur Mjanmar hingað til en mótmælin halda áfram Mótmælendur í Mjanmar virðast ekki láta deigan síga þrátt fyrir að minnst 38 hafi verið skotnir til bana af öryggissveitum í gær. Fjölmargir hafa komið saman á götum borga landsins í morgun og hafa öryggissveitir aftur beitt valdi til að dreifa mótmælendum. 4.3.2021 10:08
Lyfjastofnun Evrópu hefur áfangamat á Sputnik V Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið svokallað áfangamat (e. rolling review) á rússneska bóluefninu Sputnik V gegn Covid-19. 4.3.2021 09:55
Frumgerðin sprakk í loft upp skömmu eftir lendingu Starfsmönnum fyrirtækisins SpaceX tókst í gær að skjóta enn einni frumgerðinni af geimfarinu Starship hátt á loft og lenda henni aftur. Frumgerðin, SN10, sprakk þó í loft upp nokkrum mínútum eftir lendingu vegna elds. 4.3.2021 08:34
Aukin öryggisgæsla við bandaríska þinghúsið Öryggisgæsla hefur verið aukin umhverfis þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum þar sem lögregla óttast að aftur verði reynt að ráðast inn í húsið líkt og gerðist þegar kjör Joe Bidens var formlega staðfest í byrjun janúar þar sem fimm létu lífið. 4.3.2021 07:02
Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. 4.3.2021 07:00
Átta sárir eftir axarárás í smábæ í Svíþjóð Að minnsta kosti átta manns særðust þegar karlmaður gekk berserksgang í smábænum Vetlanda, um 190 kílómetra suðaustur af Gautaborg. Sænskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi verið vopnaður öxi. Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglumenn særðu hann skotsárum. 3.3.2021 19:58
Skothríð gegn mótmælendum í Mjanmar Öryggissveitir Mjanmar hófu í dag skothríð á fólk sem hafði komið saman á götum borga og bæja landsins í dag til að mótmæla valdaráni hersins. Minnst átján eru sagðir liggja í valnum og tugir eru særðir. 3.3.2021 16:11
Fidesz segir skilið við EPP á Evrópuþinginu Evrópuþingmenn ungverska stjórnarflokksins Fidesz hafa ákveðið að segja skilið við þinghóp kristilegra demókrata (EPP) á Evrópuþinginu. 3.3.2021 12:40
Dolly Parton tók snúning á Jolene þegar hún var bólusett Bandaríska tónlistarkonan Dolly Parton var í gær bólusett gegn Covid-19 með bóluefni lyfjafyrirtækisins Moderna. 3.3.2021 12:17
Evrópuríki horfa annað í leit að bóluefni Danir og Austurríkismenn ætla að funda með Ísraelsstjórn á morgun um bóluefnissamstarf. Vaxandi óánægja er á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins um hægagang í bóluefnismálum. 3.3.2021 12:16
Öflugur skjálfti í Grikklandi Stór jarðskjálfti varð í Grikklandi í morgun (skömmu eftir hádegi að staðartíma) en engar fregnir hafa enn sem komið er borist af mannskaða eða tjóni. Skjálftinn varð nærri bænum Larissa í miðhluta Grikklands. 3.3.2021 11:29
Sakaður um drykkju og neyslu lyfja í starfi sem læknir Hvíta hússins Í starfi sínu sem læknir Hvíta hússins, talaði Ronny Jackson með niðrandi og kynferðislegum hætti um kvenkyns undirmann sinn. Þá drakk hann í vinnunni og neytti svefnlyfja svo samstarfsmenn hans höfðu áhyggjur af því að hann gæti ekki sinnt skyldum sínum. 3.3.2021 11:00
Tilkynnti sex ára son sinn týndan en reyndist hafa ekið yfir hann Brittany Gosner og kærasti hennar gengu inn í lögreglustöð í Middletown í Ohio í Bandaríkjunum um helgina og tilkynntu að sex ára gamall sonur hennar, James Hutchinson, væri týndur. Einungis degi seinna kom í ljós að þau voru að ljúga. 3.3.2021 10:04
Eldflaugum skotið að bandarískri herstöð í Írak Minnst tíu eldflaugum hefur verið skotið að herstöð í vesturhluta Íraks þar sem bandarískir hermenn og írakskir halda til. Írakski herinn segir árásina ekki hafa valdið miklum skaða. 3.3.2021 08:32
Sjö fórust þegar handrið gaf sig í bólivískum háskóla Að minnsta kosti sjö háskólanemendur eru látnir og fimm slösuðust alvarlega þegar handrið á fjórðu hæð í bólivískum háskóla gaf sig þannig að þeir hröpuðu fjórar hæðir niður á steypt gólf. 3.3.2021 08:06
Slaka á aðgerðum þrátt fyrir viðvaranir Yfirvöld í Texas í Bandaríkjunum ætla að afnema grímuskyldu og fjöldatakmarkanir þrátt fyrir viðvaranir alríkisstjórnarinnar og lækna um að kórónuveirufaraldurinn gæti farið aftur á flug. 2.3.2021 23:56
Smábarn lifði af fimmtíu metra fall Lífsbjörg varð þegar þriggja ára gamalt barn féll af svölum á tólftu hæð húss í Hanoi, höfuðborg Víetnam, á sunnudag. Barnið féll um fimmtíu metra en sendiferðabílstjóri sem átti leið hjá náði að grípa í það áður en það skall í götuna. 2.3.2021 22:24
Eldri Frakkar fá bóluefni AstraZeneca Frakklandsstjórn snerist í dag hugur og ákvað að eldra fólk með undirliggjandi sjúkdóma fái nú bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni. 2.3.2021 20:00
Þrettán fórust í árekstri jeppa og vöruflutningabíls Þrettán manns eru látnir eftir harðan árekstur jeppa og vöruflutningabíls á hraðbraut í sunnanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í dag. Talið er að 25 manns hafi verið um borð í jeppanum. 2.3.2021 19:28
Beita rússneska embættismenn refsiaðgerðum vegna eitrunarinnar Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í dag refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum og fyrirtækjum vegna eitrunar stjórnarandstæðingsins, Alexei Navalní. Meðal annars beinast aðgerðirnar gegn háttsettum embættismönnum í ríkisstjórn Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands. 2.3.2021 15:33
Flugu nýrri tegund dróna sem eiga að vinna með mönnuðum orrustuþotum Starfsmenn Boeing flugu um helgina nýrri frumgerð dróna í fyrsta sinn. Þetta er í fyrsta sinn sem herflugvél er þróuð og framleidd í Ástralíu í meira en 50 ár. 2.3.2021 14:27
Netanjahú má ekki gefa bóluefni Ísraels Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels, hefur varað Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, um að hann geti ekki einn tekið ákvörðun um að gefa aukaskammta ríkisins af bóluefni til bandamanna ríkisstjórnar sinnar. 2.3.2021 13:03
Heilu bæirnir á Sikiley þakktir ösku og gjalli úr Etnu Mikil virkni hefur átt sér stað í Etnu, hæsta virka eldfjalli Evrópu, frá því í desember. Nokkur stórfengleg eldgos hafa orðið þar en sem betur fer hafa þau ekki ógnað byggð eða fólki. 2.3.2021 11:11
Pashinyan kveðst reiðubúinn að flýta kosningum Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, hefur beðið þjóð sína fyrirgefningar og kveðst reiðubúinn að flýta þingkosningum í landinu, sé það vilji þingsins. Mikil spenna og óvissa hefur verið í armenskum stjórnmálum síðustu vikur og mánuði eftir átök Armena og Asera vegna héraðsins Nagorno-Karabakh. 2.3.2021 08:28
Tvöhundruð sjötíu og níu stúlkum bjargað úr haldi mannræningja 279 stúlkum hefur verið bjargað úr haldi glæpamanna í norðurhluta Nígeríu. Þeim var rænt úr skóla í bænum Jangebe í síðustu viku. Ráðamenn segja að þær upplýsingar um að 317 hafi verið rænt hafi verið rangar. Stúlkurnar hafi verið 279. 2.3.2021 08:25
Skaut á almenna borgara Lögreglan í Mjanmar skaut á almenna borgara í borginni Yangon í morgun, en þeir höfðu safnast saman til að mótmæla valdaráni hersins í landinu á dögunum. 2.3.2021 07:58
Auknar líkur á fjórðu bylgjunni í Bandaríkjunum Aukin útbreiðsla nýrra afbrigða kórónuveirunnar sem eru meira smitandi en hin hefðbundnu hefur aukið líkurnar á því að fjórða bylgja faraldursins sé að hefjast í Bandaríkjunum. 2.3.2021 06:48
Aðstoðarmaður Lady Gaga tjáir sig um skotárásina Ryan Fischer, aðstoðarmaður söngkonunnar Lady Gaga, er á batavegi eftir að hann var skotinn í síðustu viku þegar hann var á gangi með hunda söngkonunnar. Tveimur hundanna var stolið en þeim var komið aftur til söngkonunnar á föstudag. 1.3.2021 23:20
Tvær konur saka ríkisstjóra New York um kynferðislega áreitni Ríkisstjóri New York ríkis í Bandaríkjunum hefur verið ásakaður af tveimur fyrrverandi aðstoðarkonum sínum um kynferðislega áreitni. Hann hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum en önnur kvennanna segir hann hafa gert lítið úr áreitinu í afsökunarbeiðninni. 1.3.2021 22:56
Ein sprauta dragi verulega úr líkum á alvarlegum veikindum Ein sprauta af bóluefnum AstraZeneca eða Pfizer, sem bæði eru almennt gefin í tveimur skömmtum með nokkurra vikna millibili, dregur úr líkum á þörfinni á spítalainnlögn vegna Covid-19. Þetta hefur rannsókn sem gerð var á fólki yfir áttræðu í Englandi leitt í ljós. 1.3.2021 18:18
Hafnar öllum ásökunum um misgjörðir á K2 Nepalski fjallgöngumaðurinn Mingma Gyalje, sem ásamt hópi samlanda sinna náði fyrstur á tind K2 að vetrarlagi í janúar, fann sig í gær knúinn til að svara ásökunum gegn hópnum um ýmislegt misjafnt á leið á toppinn. Hann þvertekur meðal annars fyrir að hópurinn hafi skorið á klifurlínur í grennd við tindinn, sem fjallagarpar nota sér til aðstoðar á klifri sínu. 1.3.2021 17:07
Fyrrverandi fangar lýsa slæmum aðstæðum og ofbeldi í fanganýlendu Navalnís Fyrrverandi fangar í fanganýlendunni sem Alexei Navalní var nýverið fluttur í, segja kerfisbundið ofbeldi gegn föngum eiga sér stað þar og að aðstæður séu vægast samt slæmar. 1.3.2021 15:09
Fyrrverandi forseti Frakklands dæmdur fyrir spillingu Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar vegna spillingar. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að reyna að múta dómara í tengslum við rannsókn hvort hann hafi tekið við ólöglegri peningasendingu frá Liliane Bettencourt fyrir forsetaframboð hans árið 2007. 1.3.2021 14:00
Kosningar gætu fært forseta með einræðistilburði frekari völd Útlit er fyrir að flokkur Nayibs Bukele, forseta El Salvador, hafi unnið sigur í þingkosningum í Mið-Ameríkulandinu í gær. Gagnrýnendur Bukele saka hann um einræðistilburði og óttast að kosningasigur hans gæti grafið undan brothættu lýðræði í landinu. 1.3.2021 13:28
Ísjaki stærri en höfuðborgarsvæðið brotnaði af Suðurskautsísnum Risavaxinn borgarísjaki sem er stærri en höfuðborgarsvæðið að flatarmáli brotnaði af Brunt-íshellunni á Suðurskautslandinu á föstudag. Tæpur áratugur er liðinn frá því að breskir vísindamenn komu fyrst auga á sprungumyndun í ísnum. 1.3.2021 11:09
Fundu stærðarinnar sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í miðju íbúðahverfi Breskir sprengjusérfræðingar sprengdu í gær stóra sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni sem fannst í Exeter. Þeir voru kallaðir til eftir að um þúsund kílóa sprengja sem kallast „Hermann“ fannst á byggingarsvæði. 1.3.2021 11:03
Sakar Íran um árás á flutningaskip Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gengið hart fram gegn ráðamönnum í Íran á undanförnum dögum. Hann hefur sakaði Íran um árás á ísraelskt flutningaskip í Ómansflóa í síðustu viku. 1.3.2021 10:43