Fleiri fréttir

Slim enn auðugastur

Mexíkóski fjarskiptajöfurinn Carlos Slim Helu telst vera ríkasti maður heims, þriðja árið í röð, samkvæmt lista viðskiptatímaritsins Forbes. Alls er hann talin eiga 69 milljarða dala, en sú fjárhæð samsvarar 8.600 milljörðum króna eða ríflega fimmfaldri landsframleiðslu Íslendinga. Bandaríkjamennirnir Bill Gates og Warren Buffet eru í öðru og þriðja sæti listans, Gates með 61 milljarð dala og Buffet með 44 milljarða.

Myrti níu börn og sjö fullorðna

Bandarísk stjórnvöld búa sig nú undir mótmæli og hefndaraðgerðir, eftir að bandarískur hermaður skaut sextán óbreytta borgara til bana í suðurhluta Afganistan aðfaranótt sunnudags. Þar af voru níu börn. Engar skýringar eru á ódæðunum, en samkvæmt AP fréttastöðinni gekk maðurinn út af herstöð sinni að nóttu til og réðst inn á allavega þrjú heimili í nágrenninu og skaut á íbúana. Hamid Karzai, forseti Afganistan, sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í gær, þar sem hann sagði morðin ófyrirgefanleg. Hann krafðist skýringa frá yfirvöldum í Washington.

Lögreglan frelsaði 24 þúsund konur og börn

Árið 2011 frelsaði kínverska lögreglan 8.660 börn og 15.458 konur sem hafði verið rænt. Flestum þeirra var bjargað í áhlaupum lögreglunnar á gengi mannræningja. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá ráðuneyti öryggismála í Kína. Þau brottnumdu höfðu flest verið seld til ættleiðingar eða neydd til að stunda vændi.

Lifa í stöðugum ótta við ósýnilega hættu

„Í raun og veru er ekki óhætt að búa hér," segir Yoshiko Ota. „En við búum hérna." Hún býr í 40 kílómetra fjarlægð frá kjarnorkuverinu í Fukushima, sem eyðilagðist í náttúruhamförunum í Japan fyrir einu ári. Eins og margir aðrir íbúar þar er hún haldin stöðugum ótta.

Tókýó þagnaði í eina mínútu

Keisari Japans ávarpaði þjóð sína í dag þegar þess var minnst að eitt ár er liðið frá jarðskjálftinn skók landið og flóðbylgja fylgdi á eftir með þeim afleiðingum að minnst 20 þúsund manns. Þetta er í annað skiptið sem hann ávarpar þjóðina í beinni útsendingu, síðast var það skömmu eftir að jarðskjálftinn reið yfir.

Ár liðið frá náttúruhamförum í Japan

Í dag er eitt ár er liðið því að jarðskjálfti upp á 9 á richter skók japanska jörð og flóðbylgja skall á landinu með þeim afleiðingum að um tuttugu þúsund létu lífið og mörg þúsund neyddust til að yfirgefa heimili sín

Hátt í tvö þúsund heimilislausir eftir eldsvoða í Perú

Hátt í sexhundruð heimili urðu eldsvoða að bráð í tveimur íbúðarhverfum í Lima höfuðborg Perú í gær. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi látið lífið en þarlend yfirvöld hafa reist tjaldbúðir fyrir rúmlega sextánhundruð manns sem misstu heimili sín.

Grunur að olía leki úr gámaskipi nærri ströndum Noregs

Gámaskip strandaði skammt frá suðvesturströnd Noregs í gær en grunur leikur á að skipið leki olíu. Samkvæmt AP fréttastofunni var skipið með 280 þúsund lítra af olíu um borð og 67 þúsund lítra af dísel. Fjórtán manna áhöfn sem var frá Rússlandi, Filippseyjum og Úkraníu. Enginn þeirra slasaðist við strandið.

Flugfreyja fríkaði út: Sagði flugvélina vera að hrapa

Það varð uppi mikið fjaðrafok á alþjóðaflugvellinum í Dallas í gær þegar flugfreyja á vegum flugfélagsins American Airline tilkynnti farþegum sínum rétt fyrir flugtak að flugvélin myndi hrapa og nefndi í sömu andrá hryðjuverkaárásir.

Hvítlaukssvikari dæmdur í sex ára fangelsi

Írinn Paul Begley, sem var einn umsvifamesti ávaxtasali Írlands, var dæmdur í sex ára fangelsi á dögunum fyrir stórfellt skattasvindl. Hann flutti inn hvítlauk frá Kína yfir fjögurra ára tímabil en merkti vöruna sem epli.

Forseti Sýrlands útilokar pólitískar viðræður

Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, sagði á fundi með Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, að það væri ekki hægt að eiga í pólitískum samskiptum í Sýrlandi á meðan vopnaðir hryðjuverkahópar væri virkir. Þarna vísar hann til vopnaðra andspyrnu í Sýrlandi sem hefur reynt að koma al-Assad frá völdum.

Venizelos fagnar nýju tækifæri

„Í fyrsta sinn í sögu landsins höfum við tækifæri á að draga verulega úr skuldum ríkisins,“ sagði Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra Grikklands, þegar hann kynnti niðurstöður viðræðna við helstu lánardrottna ríkisins úr einkageiranum í gærmorgun.

Kofi Annan reynir að miðla málum í Sýrlandi

Kofi Annan, sérlegur sendimaður Sameinuðu Þjóðanna og Arababandalagsins, mun funda með Bashar al Assad Sýrlandsforseta í Damaskus í dag, degi eftir að sýrlenski stjórnarherinn felldi sextíu og átta manns hið minnsta í borginni Homs.

Titanic í nýju ljósi

Vísindamenn hafa birt sónarmyndir af áætlunarskipinu Titanic sem sökk fyrir tæpum 100 árum. Myndirnar sína slysstaðinn af mikilli nákvæmni og varpa nýju ljósi á skipsbrotið.

Setrið úr Home Alone slegið á 1.5 milljón dollara

Húsið úr kvikmyndinni Home Alone frá 1990 hefur loks verið selt. Eigendur hússin fengu rúmlega 1.5 milljón dollara fyrir glæsihýsið en það er margfalt minna en það sem upphaflega var farið fram á.

Bild hættir að birta nektarmyndir

Þýska æsifréttablaðið Bild hefur ákveðið að snúa baki við áralangri hefð sinni að birta ljósmyndir af nöktum konum á forsíðunni. Hefðin er rótgróin og hefur verið við lýði í 28 ár.

Obama fagnar Kony 2012 herferðinni

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fagnar Kony 2012 herferðinni og segir kvikmyndagerðamennina sem standa að baki verkefninu hafa unnið mikið afrek.

Grænlendingar furða sig á Greenpeace í Noregi

Grænlendingar furða sig á því að Greenpeace samtökin í Noregi eru farin að krefjast þess að öll fyrirhuguð olíuvinnsla við Grænland verði stöðvuð. Hinsvegar sjái Greenpeace í Noregi ekkert athugavert við að Norðmenn sjálfir séu að bora eftir olíu í Barentshafi.

Upprættu alþjóðlegan barnaklámshring

Lögreglan í Bandaríkjunum og Ítalíu hefur upprætt alþjóðlegan barnaklámshring. Tíu manns voru handteknir í Bandaríkjunum, Ítalíu, Frakklandi og Portúgal vegna málsins og yfir 100 manns eru þar að auki til rannsóknar vegna aðildar sinnar að hringnum.

Á fjórða þúsund enn saknað í Japan

Efnt verður til bænastundar í Grensáskirkju á sunnudag í tilefni af því að eitt ár er liðið frá því að öflugur jarðskjálfti skók norðausturhluta Japan.

Tóku á sig afskriftir fyrir Grikki

Grikkland náði í gær mikilvægum áfanga í baráttunni við skuldavanda þegar lánadrottnar ríkissjóðs í einkageirunum samþykktu niðurfærslu og breytingu skulda.

Ráðgáta hvað olli dauða tvíburasystra í Kaliforníu

Lögreglan í Bandaríkjunum hefur loks haft upp á ættingjum tvíbura sem létust með stuttu millibili á heimili sínu á afskekktu svæði í Kaliforníu. Síðustu áratugi höfðu konurnar lítið sem ekkert samband við umheiminn.

Heimildarmynd um Obama væntanleg

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, mun opinbera nýja heimildarmynd 15. mars næstkomandi. Myndin er liður í kosningabaráttu forsetans en hann sækist nú eftir endurkjöri.

Kony 2012 veldur fjaðrafoki í Úganda

Heimildarmyndin Kony 2012, sem hefur fengið rúmlega 32 milljón áhorf á internetinu, hefur valdið talsverðum deilum í Úganda. Hjálparsamtök þar í landi segja að myndin birti ranga mynd af landinu.

Ekkjur Osama Bin Laden ákærðar

Ekkjur Osama Bin Ladens hafa verið ákærðar fyrir að hafa komið til Pakistan með ólögmætum hætti. Konurnar voru handsamaðir af bandarískum hermönnum í bænum Abbottabad þegar Bin Laden var felldur á síðasta ári.

Nubo boðið til Danmerkur

Viðskiptaráðherra Danmerkur, Pia Olsen Dyhr, hefur boðið kínverska fjárfestinum Huang Nubo til Danmerkur til þess að hann geti kynnt sér danska menningu. Viðskiptaráðherranum finnst jafnframt tilvalið að Kínverjinn heimsæki Grænland.

Obama segir ástandið of flókið

Bandarískir ráðamenn sjá ekki ástæðu til að hefja árásir á Sýrland, þrátt fyrir að aðgerðir sýrlenska hersins gegn mótmælendum og uppreisnarmönnum hafi kostað meira en átta þúsund manns lífið.

Ákærður fyrir tvö hryðjuverk

Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur verið ákærður fyrir 77 morð, fjölmargar morðtilraunir og tvö hryðjuverk. Ríkissaksóknari Noregs telur Breivik ekki sakhæfan, en með þeim fyrirvara að eitthvað geti komið fram sem breyti því mati.

Kominn hálfa leið að markinu

Mitt Romney bætti við sig að minnsta kosti 212 kjörmönnum á „stóra þriðjudeginum“, þegar forkosningar voru haldnar í tíu ríkjum Bandaríkjanna.

Sex breskir hermenn féllu í Afganistan

Sex breskir hermenn féllu í suðurhluta Afganistans þegar farartæki ók á sprengju og sprakk í loft upp. Þetta er mesta mannfall sem Bretar hafa orðið fyrir í einu atviki frá því að Nimrod flugvél fórst þar árið 2006 með fjórtán manns innanborðs.

Facebook lá niðri í fjölda landa í morgun

Samskipavefurinn Facebook lá niðri á Norðurlöndunum, fyrir utan Ísland, um tíma í morgun sem og í nokkrum fjölda annarra landa í Evrópu og víðar um heiminn. Hann er kominn í gagnið að nýju.

Sjá næstu 50 fréttir