Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krókódíll réðst á garðsláttuvél Krókódíll í Ástralska skriðdýragarðinum olli miklum usla á dögunum þegar að hann réðst á slátturvél sem starfsmaður garðsins var með og sökkti henni í gryfjunni hjá sér. Krókódíllinn sem er fimm metra langur heitir Elvis, eftir söngvaranum sáluga. Hann dró slátturvélina ofan í vatn í gryfju sinni og vaktaði hana í meira en klukkustund. 28.12.2011 10:43
Kim Jong-Il borinn til grafar Tveggja daga útför norður-kóreska einræðisherrans Kim Jong-Il er hafinn. Viðbúnaður vegna hennar er gríðarlegur í höfuðborginni Pyongyang. Myndir þaðan sýna að þúsundir hermanna hafa safnast saman og lutu þeir höfði þegar stór mynd af leiðtoganum fallna var borin um götur borgarinnar. Myndirnar, sem birtar voru á ríkissjónvarpsstöð í landinu, sýndu jafnframt að arftaki hans og þriðji sonurinn, Kim Jong-un, gekk með fylkingu hermannanna. Fjölmiðlar í Norður-Kóreu segja að Kim Jong-il hafi látist úr hjartaáfalli þann 17. desember síðastliðinn. 28.12.2011 08:33
Danir hallir undir konungsfjölskylduna Engin evrópsk konungsþjóð styður konungsfjölskylduna sína meira en Danir. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem Megafon gerði fyrir danska blaðið Politiken. Niðurstöður könnunarinnar sýnir að um 77% Dana telja að Danmörk eigi áfram að vera konungsveldi en um 16% vilja breyta í lýðveldi. Fyrir rösku ári síðan lét Politiken gera samskonar skoðanakönnun sem sýndi að 25% Dana vildu lýðveldi. Lars Hovbakke Sørensen, prófessor í sagnfræði við Kaupmannahafnarháskóla, segir að samkvæmt þessum niðurstöðum sé stuðningur Dana við konungsveldið töluvert meiri en víða annarsstaðar í Evrópu. Stuðningur í sumum ríkjum við konungsveldið geti farið allt niður í 58%. 28.12.2011 08:05
Athugasemdir gerðar fyrir meira en áratug Meira en áratugur er síðan að gerðar voru athugasemdir við starfsemi franska fyrirtækisins PIP sem talið er hafa framleitt gallaða silikonpúða í brjóst. Fréttir af göllunum hafa valdið skelfingu á meðal kvenna um allan heim að undanförnu. 28.12.2011 08:00
Forseti Argentínu með krabbamein Cristina Fernandels de Kirchner, forseti Argentínu, greindist nýlega með krabbamein og mun þess vegna gangast undir aðgerð þann 4. janúar næstkomandi, eftir því sem ríkisstjórn hennar hefur greint frá. Meinið er í skjaldkirtlinum en það mun ekki hafa breiðst út í önnur líffæri. Fernandex hóf nýlega annað kjörtímabil sitt eftir að hafa unnið mikinn kosningasigur á landsvísu. Eiginmaður hennar, Nestor Kirchner, fyrrverandi forseti, lést á síðasta ári eftir að hann fékk hjartaáfall. 28.12.2011 07:06
Stjórnarherinn farinn frá Homs Sýrlandsstjórn kallaði herlið sitt frá borginni Homs í gær þegar fyrstu eftirlitssveitirnar frá Arababandalaginu voru komnar til landsins. 28.12.2011 01:00
Opið öllum en nýtist hernum Kínversk stjórnvöld hafa gangsett staðsetningarnet sem gegna mun sama hlutverki og GPS-staðsetningarkerfið. Kerfið verður opið almenningi eins og GPS-kerfið en mun gera kínverska herinn óháðan bandarískum gervitunglum sem hægt er að loka fyrir. 28.12.2011 00:00
Siku slær í gegn á netinu Rúmlega mánaðargamall grænlenskur ísbjarnarhúnn hefur náð að bræða hjörtu þúsunda netverja með augnaráðinu einu. 27.12.2011 20:00
Bandaríkjamaður sakaður um njósnir Réttað var yfir bandarískum ríkisborgara í Íran í dag en maðurinn var handtekinn á dögunum grunaður um að vera njósnari á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Hinn 28 ára gamli Amir Hekmati var fæddur í Arizona en á rætur að rekja til Írans. Faðir hans segir af og frá að sonur sinn sé njósnari. Hann hafi verið að heimsækja ömmur sínar í Íran þegar hann var handtekinn. Íranir segja hinsvegar að Hekmati sé þrautþjálfaður sérsveitarmaður sem hafi verið staðsettur í Írak og Afganistan áður en hann hafi farið til njósnastarfa í Íran. 27.12.2011 14:09
Breskur túristi myrtur á jóladag á Sri Lanka Breskur ríkisborgari var myrtur á jóladag á ferðamannastað á Sri Lanka. Lögregluyfirvöld í bænum Tangalle segja að ráðist hafi verið á manninn og rússneska konu sem var með honum í för, eftir að honum hafði sinnast við annan gest á hótelinu sem þau voru á. Fjórir hafa verið handteknir vergna málsins og á meðal þeirra er formaður bæjarstjórnarinnar í Tangalle. Konan sem var með fórnarlambinu berst nú fyrir lífi sínu á gjörgæslu. 27.12.2011 14:08
Pútín vill ekki rannsaka kosningarnar Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur vísað á bug áskorunum þess efnis að kosningarnar í landinu á dögunum verði rannsakaðar. Í til stuðningsmanna sinna sagði hann að þá sem kvartað hafi yfir úrslitum kosninganna skorti skýr markmið og óljóst sé hverju sé verið að mótmæla. Í kjölfar úrslitanna, þar sem flokkur Pútíns fór með sigur af hólmi þrátt fyrir fylgistap, hafa brotist út mestu mótmæli Rússlands í áratugi. 27.12.2011 13:57
Þúsundir mótmæla í Homs Þúsundir mótmælenda hafa í dag komið saman í sýrlensku borginni Homs en í dag komu til landsins eftirlitsmenn frá Arababandalaginu til þess að fylgjast með framferði stjórnvalda gegn aðgerðarsinnum. Bandalagið hefur ályktað um að ofbeldinu í landinu verði að linna og segja talsmenn mótmælenda að skriðdrekar stjórnarhersins hafi hörfað frá borginni nokkrum klukkutímum áður en eftirlitsmennirnir mættu á svæðið. 27.12.2011 13:56
Hitler hélt jólin Myndir af Adolf Hitler og öðrum leiðtogum Nasistaflokksins við jólatré um jólin 1941 voru nýlega birtar opinberlega. Á meðal þeirra sem eru á myndunum með Hitler er Heinrich Himmler. Það var Hugo Jaeger, einn af persónulegum ljósmyndurum Hitlers, sem tók myndirnar. Hann gróf þær í glerkrukku þegar stríðinu lauk. Þar voru þær í tíu ár, eða allt þar til þær voru fluttar í bankahólf. 27.12.2011 12:45
Hvítabjarnarhúnninn Siku bræðir hjörtu Netverja Nýjasta stjarna Netheima er hvítabjarnarhúnninn Siku. Hann er mánaðargamall og á heima í dýragarði í Kolind Í Danmörku. Hann fæddist 22. nóvember og umferð á vefsíðu garðsins hefur vaxið gríðarlega frá því sá stutti kom í heiminn. Þúsundir hafa fylgst með Siku og beðið í ofvæni eftir að hann opnaði augun, sem hann gerði víst í gær. 27.12.2011 12:15
Stunginn til bana á Oxford Street - ellefu í haldi Fjórtán hafa verið handteknir og ellefu eru í haldi lögreglu í kjölfar morðs sem framið var á einni fjölförnustu verslunargötu heims, Oxford Street í Lundúnum. Átján ára karlmaður var stunginn til bana fyrir framan íþróttavörubúð í götunni í gær. 27.12.2011 09:15
Einn skotinn til bana og tveir særðir í Malmö Einn var skotinn til bana og tveir særðust í skotárás sem átti sér stað að kvöldi annars dags jóla í sænsku borginni Malmö. Vitni segja að skotmaðurinn hafi allt í einu hafið skothríð á mennina þrjá. Hann var með einskonar öskudagsgrímu fyrir andlitinu og komst undan. Að sögn sænskra miðla er enginn grunaður í málinu sem stendur. Mennirnir þrír sem urðu fyrir kúlunum eru allir svokallaðir góðkunningjar lögreglunnar. 27.12.2011 09:14
Sænskir blaðamenn í ellefu ára fangelsi Tveir sænskir blaðamenn hafa verið dæmdir í ellefu ára fangelsi í Eþíópíu fyrir að fara inn í landið án vegabréfsáritunar og fyrir að styðja við hryðjuverkasamtök. mennirnir tveir, Martin Schibbie og Johan Persson voru handteknir í júlí þegar þeir fóru yfir landamærin frá Sómalíu með byltingarsamtökunum ONLF. 27.12.2011 08:43
Finni lést þegar tré féll á hann Óveðrið sem gekk yfir Svíþjóð og Noreg og Finnland í gær olli miklu tjóni. Þúsundir íbúa í Ardal og Hoyanger í Noregi eru einangraðir þar sem vegir hafa rofnað um fimmtíu íbúar í Ardal hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Í norðurhluta Svíþjóðar eru fimmtíu þúsund án rafmagns og lestarsamgöngur liggja niðri í Norrland. Í Finnlandi er einnig mikið um rafmagnsleysi og óvíst hvenær það mun lagast. Þar lést einn karlmaður á níræðisaldri þegar tré rifnaði upp með rótum og féll á hann. Í höfuðborginni Helsinki varð mikið tjón, ljósastaurar féllu í rokinu og þakplötur losnuðu af húsum. Stormurinn er nú að mestu genginn yfir. 27.12.2011 07:21
Gleymir aldrei illskunni í Útey Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segist aldrei munu gleyma þeirri illsku sem hann varð vitni að þegar 77 manns voru myrtir í landinu í júlí síðastliðnum. Í jólaviðtali við fréttastofuna NTB sagði Stoltenberg að hinar myrku minningar um atburðinn væru ennþá jafnsterkar nú og þegar hann hitti fyrst þá sem komust lífs af eftir árás Anders Behring Breivik í Útey 22. júli. 27.12.2011 05:00
Viðbrögðin gerðu illt verra í Fukushima JapanViðbrögð stjórnvalda jafnt sem starfsmanna kjarnorkuversins í Fukushima í kjölfar jarðskjálftans mikla og flóðbylgju fyrr á árinu voru ómarkviss og gerðu illt verra. Ringulreið, samskiptaleysi og rangar ákvarðanir einkenndu viðbrögðin, að því er fram kemur í nýrri 500 blaðsíðna skýrslu sem stjórnvöldum var afhent í gær. 27.12.2011 03:45
Piltur myrtur á Oxford Street Maður á tvítugsaldrinum var stunginn til bana á verslunargötunni Oxford Street í Lundúnum um hádegisbilið í dag. Lögreglan hefur handtekið nokkra aðila sem hugsanlega tengjast morðinu. Jólaútsölur eru í Bretlandi í dag. Dagurinn er kallaður Boxing day og er mesti verslunardagur Bretlands. 26.12.2011 15:47
Blóðug átök í Sýrlandi Að minnsta kosti 20 hafa látist í átökum hersins í Sýrlandi og mótmælanda í dag. Reuters greinir frá því að mótmælandi hefði sett myndband á netið sem sýni þrjá skriðdreka sem halda úti linnulausri skothríð á mótmælendur. 26.12.2011 15:06
Alvarleg mannleg mistök meðal ástæðna fyrir kjarnorkuslysi í Fukushima Samskiptaleysi, ringulreið og rangar ályktanir urðu meðal annars til þess að kjarnorkuslysið í Dai-ichi kjarnorkuverinu í Fukushima, fór verr en það hefði þurft að gera. 26.12.2011 13:53
Ekkja fyrrverandi forseta Suður-Kóreu vottar Kim virðingu sína Ekkja fyrrverandi forseta Suður-Kóreu vottaði Kim Jong-Il, nýlátnum leiðtoga Norður-Kóreu, virðingu sína um jólin. Sendinefndin fór til Norður-Kóreu og hitti son einræðisherrans alræmda, Kim Jong-Un. 26.12.2011 13:30
Uppáhaldsleikari Hitlers er látinn Þýski leikarinn, Johannes Heesters, er látinn. Líklega vita ekki margir hver hann er, en Heesters er frægastur fyrir að hafa verið uppáhaldsleikari Adolfs Hitlers. 26.12.2011 11:53
Jólahryllingur í Texas - fjölskylda fannst myrt við jólatréð Lögreglan í borginni Grapevine í Texas-fylki í Bandaríkjunum stendur frammi fyrir óhugnanlegu máli þar sem sjö manns fundust skotnir til bana á jóladag. 26.12.2011 09:49
Filippus við góða heilsu eftir hjartaaðgerð Filippus, eiginmaður drottningar Bretlands, Elísabetar, er sagður við góða heilsu eftir að hafa gengist undir hjartaaðgerð síðastliðinn laugardag. 26.12.2011 10:26
Óreglulegur vinnutími feðra eykur líkur á offitu barna Óreglulegur vinnutími feðra getur aukið líkur á að börn þeirra þjáist af offitu. Þetta er niðurstaða nýrrar ástralskar rannsóknar. 26.12.2011 10:22
Kaupóðir Bretar freista þess að gera reyfarakaup í dag Bretar flykkjast nú í verslanir í þeirri von um að gera reyfarakaup en jólaútsölurnar hefjast í dag þar ytra, á degi sem kallaður er "Boxing day". 26.12.2011 10:08
Á annað hundrað þúsund heimili rafmagnslaus í Svíþjóð Ofsaveður gengur nú yfir Svíþjóð, en fárviðrið Dagmar, sem leikið hefur norðurlandabúa grátt yfir jólin, er þess meðal annars valdandi að á annað hundrað þúsund heimili eru ragmagnslaus í landinu. 26.12.2011 12:08
Fárviðri í Svíþjóð - hitamet í Danmörku Fárviðrið Dagmar, sem hefur leikið marga norðurlandabúa grátt yfir jólin, er nú komið til Svíþjóðar, og eru á annað hundrað heimili rafmagnslaus vegna þess. 26.12.2011 10:30
Segja Rússa ekki líða spillingu lengur Tugir þúsunda komu saman í Moskvu í gær til að vekja athygli á meintu kosningasvindli í þingkosningunum fyrr í þessum mánuði. Skipuleggjendur mótmælana segja Rússa ekki líða spillingu lengur. 25.12.2011 13:00
Þessi er alveg með'etta Dýrin geta verið alveg yndisleg og þessi voffi er engin undantekning á því. Hann hlustar sko á tónlist, og það er ekki annað að sjá en að hann brosi út að eyrum þegar eigandi hans spilar á gítarinn. En um leið og hann hættir, þá fer brosið. Sjón er sögu ríkari. 25.12.2011 09:41
Hneykslaður á markaðsvæðingu jólanna Benedikt XVI páfi hneykslaðist á markaðsvæðingu jólanna í jólamessu í Péturskirkjunni í Róm í gærkvöld. Hann hvatti fólk til þess að horfa framhjá “yfirborðskenndu glysi jólahátíðarinnar og finna barnið sem lagt var í jötu í Betlehem.” Í predikun sinni harmaði páfinn líka ofbeldið í heiminum og bað fyrir þeim sem búa við fátækt. 25.12.2011 08:00
Þúsundir flykkjast til Betlehem Þúsundir kristinna manna, hvaðanæva að úr heiminum, flykkjast til Betlehem, fæðingarborgar Frelsarans, á hverju ári þegar jólahátíðin gengur í garð. Vænst er þess að um 90 þúsund manns ferðist þangað um þessi jól. Fjöldi tónleika verður haldinn og að sjálfsögðu verður messað í hinni 1700 ára gömlu Fæðingarkirkju sem byggð er á staðnum þar sem talið er að Jesús hafi fæðst. 24.12.2011 13:49
Drottningin heimsótti eiginmann sinn á spítala Elísabet II Bretadrottning heimsótti í dag Fillipus, eiginmann sinn, á spítala þar sem hann dvelur vegna kransæðastíflu. Filipus er orðinn 90 ára gamall. Hann gekkst undir hjartaþræðingu. Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að líðan Filipusar sé góð en grannt sé fylgst með honum á Papworth spítalanum. Þegar drottningin heimsótti Filipus í morgun var hún í fylgd barna sinna Edward, Andrew og Anne. 24.12.2011 13:18
Íslenski jólasveinninn sá fimmti versti í heimi Íslenski jólasveinninn er sá fimmti versti í heimi samkvæmt óvisindalegri úttekt danska blaðsins Jyllands Posten. Í umsögn blaðsins segir að á Íslandi séu þrettán jólasveinar sem séu vondir, bæði við dýr og menn. Einstakur kvikyndisskapur einkenni hvern og einn þeirra. Einn þeirra sé gluggagæir, annar bjúguþjófur og sá þriðji skelfi konur með því að kíkja undir kjólinn þeirra. Þá segir að jólasveinarnir þrettán eigi vonda móður, sem heiti Grýla og eigi jólakött. Grýla hati börn sem fái ekki ný föt í jólagjöf. Hún sigi því jólaketttinum á börnin og setji þau svo í pokann sinn. 24.12.2011 12:40
Gorbachev skammast sín fyrir Putin Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, segist skammast sín fyrir Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, vegna viðbragða þess síðarnefnda við mótmælendum sem krefjast úrbóta hjá rússneskum stjórnvöldum. 24.12.2011 09:30
Láta 2900 fanga lausa Stjórnvöld í Kúbu ætla að láta 2900 fanga lausa á næstu dögum, þar á meðal nokkra sem dæmdir hafa verið fyrir pólitíska glæpi. Raul Castro, forseti Kúbu, segir að þetta sé gert til að sýna góðvilja í verki eftir að hafa fengið nokkrar óskir frá ættingjum og trúarsamtökum. 24.12.2011 09:01
Íbúar fylltust skelfingu á ný Harðir jarðskjálftar riðu yfir í Christchurch í gær, tæplega fjórum mánuðum eftir að stóri skjálftinn reið þar yfir í haust. 24.12.2011 08:00
Amagermaður í lífstíðarfangelsi Amagermaðurinn, Marcel Lychau Hansen, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Á 23ja ára tímabili myrti hann tvær konur og nauðgaði sex öðrum, síðast táningsstúlku á síðasta ári. 24.12.2011 07:00
Beinast gegn leyniþjónustunni Tugir manna fórust í tveimur sjálfsvígsárásum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Árásirnar beindust að höfuð stöðvum lögreglu og leyniþjónustu í borginni. Yfir hundrað manns eru særðir. 24.12.2011 06:00
Lýðræðishetja syrgð í Tékklandi Útför Vaclavs Havel var gerð í Prag í gær að viðstöddum fjölda erlendra þjóðhöfðingja. 24.12.2011 05:00
Sakar Frakka um þjóðarmorð „Talið er að Frakkar hafi frá 1945 drepið um 15 prósent alsírsku þjóðarinnar. Það er þjóðarmorð,“ segir Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. 24.12.2011 02:00
Franska ríkið ætlar að greiða fyrir brjóstaaðgerðirnar Frönsk stjórnvöld ætla að greiða aðgerðir við að láta fjarlægja silikon úr brjóstum fyrir 30 þúsund konur þar í landi. Konurnar eru allar með silikon sem óttast er að sé gallað og geti hugsanlega lekið. 23.12.2011 21:30