Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Klukkunni breytt í nótt Klukkan var færð aftur um eina klukkustund í Evrópu í nótt þegar vetrartími tók gildi. Tímamunur á milli Íslands og Vestur Evrópu er nú ein klukkustund í stað tveggja. 30.10.2011 10:14
Þeldökkur kaupsýslumaður leiðir baráttuna Þeldökki kaupsýslumaðurinn Herman Cain er nú efstur þeirra sem sækjast eftir útnefningu Repúblikaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna í skoðanakönnunum í Iowa. Þrátt fyrir að íbúar ríkisins hafi tiltölulega lítil áhrif á útnefninguna, þá veita fjölmiðlar niðurstöðu forkosninga þar jafnan mikla athygli, þar sem kosningabaráttan hefst þar. 30.10.2011 09:54
Cameron vill vopnaða verði í hvert skip David Cameron hefur lýst því yfir að vopnaðir verðir verði um borð í breskum skipum sem sigla á alþjóðlegu hafsvæði. Er þetta gert til að verja þau gegn árásum sjóræningja, en á síðasta ári voru framin 53 sjórán. Cameron segir að Bretar verði að verja þegna sína, en í lögum einhverra landa eru lög sem banna skipverjum að hafa vopn undir höndum um borð í skipum. Cameron vék sér undan þeirri spurningu um hvort verðirinr hafi leyfi til að drepa, en sagði að taka yrði á sjóræningjum. 30.10.2011 09:51
Búist við fárviðri í Bandaríkjunum Svo virðist sem það ætli að gera aftakaveður á austurströnd Bandaríkjanna nú um helgina. Bandaríska veðurstofan hefur í þa minnsta gefið út aðvörun þar sem gert er ráð fyrir vindstyrk allt upp undir 72 km/klst, eftir því sem BBC greinir frá. Búist er við mikilli snjókomu með storminum. Óveðrið er þegar byrjað í Pennsylvaníu, Maryland og Vestur-Virginíu. Þar eru um 10 þúsund manns án rafmagns vegna óveðursins. 29.10.2011 19:04
Moore hvatti mótmælendur til dáða Rithöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Michael Moore hvatti mótmælendur í Oakland í Bandaríkjunum í dag til dáða. Hann sagði að þeir hefðu blásið lífi og von í fólk. Fólkið mótmælir launaójöfnuði, spillingu í fyrirtækjum og aðgerðarleysi stjórnvalda. 29.10.2011 16:24
Ætla með Legoland til Japan Legoland heldur áfram að teygja út anga sína. Nýlega opnaði Legoland í Orlando í Flórída, verið er að byggja Legoland í Malasíu og innan fárra ára verður enn eitt opnað í Japan. 29.10.2011 15:30
Kannabismaður sprengdi íbúð Sprenging varð í íbúð í Osló, höfuðborg Noregs, í gærkvöld þegar karlmaður á þrítugsaldri var að blanda saman kannabisolíum. Rúður í íbúðinni sprungu og hún er mikið skemmd, eftir því sem fram kemur í Aftenposten. Enginn meiddist í sprengingunni sem varð í íbúðinni á níundu hæð. Lögreglan segir að ekki hafi verið mikið af fíkniefnum í íbúðinni. Þetta verði vart kallað fíkniefnaverksmiðja. Ungi maðurinn hefur verið handtekinn fyrir að hafa valdið sprengingunni. 29.10.2011 15:12
Daglega gerðar 600 þúsund tilraunir til tölvubrota Á hverjum degi eru gerðar um 600 þúsund tilraunir til þess að brjótast inn á læstar Fésbókarsíður, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. Með innbrotunum vilja tölvuþrjótar ná aðgangi að skilaboðum, myndum og persónulegum upplýsingum sem almenningur hefur sett á síðurnar sínar. Sérfræðingar í öryggismálum segja að þessar tölur séu allt of háar og að fólk verði að huga betur að því hvaða lykilorð það velur sér og á hvaða hlekki það smellir á fésbókinni. 29.10.2011 11:54
Jackson sprautaði sig sjálfur Poppstjarnan Michael Jackson sprautaði sig sjálfur með lyfjunum sem drógu hann til dauða fyrir rúmum tveimur árum. Þetta er mat svæfingalæknis sem bar vitni í réttarhöldunum yfir Conrad Murray lækni söngvarans í gær. Hann telur engar sannanir vera fyrir því að Murray hafi gefið söngvaranum svæfingalyfið propofol rétt fyrir andlátið, líkt og áður hefur verið haldið fram, en vitnisburðurinn þykir styrkja vörn Murrays til muna. Réttarhöldin hafa staðið yfir í fimm vikur en svæfingalæknirinn var síðastur til að bera vitni fyrir lokamálflutning beggja málsaðila. 29.10.2011 10:18
Enn leitað að fólki í rústunum Nú sex dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter reið yfir Tyrkland eru þarlendar björgunarsveitir enn að leita að fólki í rústum fjögurra bygginga. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá yfirvöldum hafa fimmhundruð áttatíu og tveir látist í jarðskjálftanum, þar af fleiri en 450 í borginni Ersis í austurhluta Tyrklands, en sú borg varð verst úti í skjálftanum. 29.10.2011 10:14
Sigur íslamskra umbótasinna í höfn Sigurvegarar þingkosninganna í Túnis um síðustu helgi voru félagar í Endurreisnarflokknum, Ennahda, sem er sagður vera hófsamur flokkur íslamista. Þegar talningu atkvæða var lokið á fimmtudaginn reyndist flokkurinn hafa fengið 41,47 prósent atkvæða og 90 sæti á 217 manna stjórnlagaþingi, sem fær það tvískipta hlutverk að semja nýja stjórnarskrá og skipa bráðabirgðastjórn sem fer með völd í landinu þangað til hin nýja stjórnskipan tekur gildi. 29.10.2011 01:00
Mistök að hafa Grikkland með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir það hafa verið mistök að leyfa Grikkjum að taka upp evruna strax árið 2001. Grísk stjórnvöld hafi ekki verið reiðubúin og að auki beitt blekkingum í ríkisbókhaldinu til að fegra stöðuna. 29.10.2011 00:00
Í óformlegum viðræðum við son Gaddafís Saksóknarar hjá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum hafa verið í óformlegu sambandi við Saif al Islam, son Múammars Gaddafís fyrrum einræðisherra í Líbíu. Saif er eftirlýstur af dómstólnum sakaður um stríðsglæpi en hann hefur farið huldu höfði síðustu mánuði. 28.10.2011 13:32
Þingmannsfrú rændi ketti viðhaldsins Eiginkona þingmanns á breska þinginu hefur verið dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela ketti frá hjákonu eiginmannsins. Christine Hemming, sem er gift John Hemming þingmanni frjálslyndra jafnaðarmanna var einnig dæmd til að vinna 150 klukkustundir í samfélagsþjónustu og borga þúsund pund í málsvarnarlaun. 28.10.2011 10:57
Clinton myndi vinna stórsigur á frambjóðendum Repúblikana Könnunin sýnir að Hillary Clinton utanríkisráðherra landsins myndi vinna þrjá af helstu forsetaframbjóðendum Repúblikanaflokksins með miklum mun ef kosningarnar yrðu haldnar í dag. Obama Bandarríkjaforseti einnig vinna þessa menn í kosningum í dag en munurinn á Clinton og frambjóðendunum er sláandi mikill. 28.10.2011 07:42
Átök í Túnis eftir úrslit þingkosninganna Mikil átök brutust út í miðhluta Túnis eftir að úrslit fyrstu lýðræðislegu kosninganna voru gerð opinber í gærdag. 28.10.2011 07:39
Þrettán ára dreng bjargað úr rústunum í Tyrklandi Kraftaverkin gerast enn í björgunarstarfinu í rústunum eftir jarðkjálftana í Tyrklandi. 13 ára gömlum dreng var bjargað úr rústum hrunins húss í borginni Ercis snemma í morgun en hann hafði þá legið þar fastur í 108 klukkutíma eða yfir fjóra sólarhringa. 28.10.2011 07:22
Krókódílar valda skelfingu meðal íbúa Bangkok Íbúar Bangkok eru margir hverjir skelfingu lostnir því að um 100 krókódílar eru nú svamlandi um í flóðunum sem sett hafa stóran hluta af borginni undir vatn. 28.10.2011 07:19
Bíræfnir danskir þjófar stálu yfir 12 tonnum af koparvír Lögreglan á Jótlandi leitar nú bíræfinna þjófa sem tókst að stela 12,6 tonnum af kopar úr verksmiðju í bænum Lösning. 28.10.2011 07:16
Flókið kosningakerfi tefur úrslit Írar kusu sér nýjan forseta í gær. Talning atkvæða hefst í dag en úrslitin verða þó varla ljós fyrr en á morgun, því kosningakerfið á Írlandi er flókið. Sigurstranglegastur í skoðanakönnunum fram á síðustu daga var Sean Gallagher, 49 ára athafnamaður sem varð þjóðþekktur þegar hann stjórnaði írskum raunveruleikaþætti. 28.10.2011 01:00
Manni bjargað eftir fjóra daga Ungum manni var bjargað úr rústum í Tyrklandi fjórum dögum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Talið er að 534 hafi látist í skjálftanum og þúsundir manna misstu heimili sín. 28.10.2011 00:30
Vilja brjóstagjöf frekar í einrúmi Þremur af hverjum fjórum ungum Svíum finnst að konur ættu ekki að gefa börnum brjóst á veitingastöðum, börum eða í almenningsvögnum. 28.10.2011 00:00
Samuel L. Jackson er arðbærasti leikari allra tíma Samkvæmt heimsmetabók Guinness er Samuel L. Jackson arðbærasti leikari allra tíma. 27.10.2011 17:11
Lá í rústunum í 100 klukkutíma Fréttamiðlar í Tyrklandi greindu frá því í dag að björgunarmenn hefðu fundið ungan mann á lífi í rústum fjölbýlishúss í bænum Ercis. Maðurinn hafði legið í rústunum í rúma 100 klukkutíma. 27.10.2011 16:26
Þjóðarráð Líbíu rannsakar dauða Gaddafi Talsmaður Þjóðarráðsins í Líbíu sagði í dag að morðingjar Muammars Gaddafi, fyrrum einræðisherra Líbíu, yrðu dregnir fyrir dóm. 27.10.2011 16:10
Framleiðendur BlackBerry kærðir BlackBerry notendur í Bandaríkjunum og Kanada hafa kært framleiðendur snjallsímans vegna kerfisbilunar sem átti sér stað fyrr í mánuðinum. 27.10.2011 15:45
Indverjar hanna ódýrustu spjaldtölvu í heimi Yfirvöld í Indlandi hafa þróað ódýrustu spjaldtölvu veraldar. Mannauðsráðherra Indlands telur að spjaldtölvan eigi eftir að bylta menntakerfi landsins. Vonast er til að 10 til 12 milljónir námsmanna í Indlandi fái afnot af tölvunni. 27.10.2011 15:18
Boða til verkfalls í Oakland Boðað hefur verið til verkfalls í næstu viku í Oakland. Aðgerðarsinnar í hreyfingunni Hernemum Oakland (e. Occupy Oakland) standa fyrir verkfallsboðinu. 27.10.2011 14:58
Stallone sakaður um ritstuld Leikstjórinn, leikarinn og handritshöfundurinn Sylvester Stallone hefur verið kærður fyrir ritstuld. Bandaríkjamaðurinn Marcus Webb segir Stallone hafa notað smásögu sína þegar harðhausinn skrifaði spennumyndina The Expendables. 27.10.2011 14:35
Flóð í Bangkok Íbúar Bangkok búa sig undir hið versta þegar hvert hverfi borgarinnar á fætur öðru fyllist af vatni. 27.10.2011 14:12
Mannkynið nálgast 7 milljarða - númer hvað varst þú í röðinni? Talið er að mannkynið nái sjö milljörðum á næstu vikum. Eftir að fjöldinn jókst hægt í þúsundir ára tók fólksfjölgunin kipp fyrir fimmtíu árum og eru íbúar jarðar nú tvöfalt fleiri en þá. Á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, er reiknivél þar þú getur sett inn fæðingardag og ártal og séð hvar þú ert í röðinni. Þá er einnig hægt að sjá hversu margir jarðarbúar höfðu fæðst þegar þú komst í heiminn. 27.10.2011 14:11
Sprengja fannst í Halle Sprengja fannst við vegaframkvæmdir í Halle í Þýskalandi fyrr í dag. Yfirvöld í bænum hafa rýmt nærliggjandi hús, þar á meðal spítala bæjarins. Einnig hefur miðbær Halle verið rýmdur og öllum búðum lokað. 27.10.2011 13:46
Fallbyssa úr skipsflaki Svartsskeggs lyft út sjónum Rannsóknarmenn lyftu 13. fallbyssunni úr skipi Svartskeggs í dag. Gríðarlegu fjöldi gripa hefur fundist í skipinu síðan það uppgötvaðist árið 1997 rétt fyrir utan strendur Norður-Karólínu. 27.10.2011 11:56
Sony kaupir Ericsson út úr farsímafyrirtæki Talið er að sameiginlegt farsímafyrirtæki Sony og Ericsson verði yfirtekið af Sony. 27.10.2011 11:31
Fundu efnavopn í Líbíu Talsmaður Þjóðarráðsins í Líbíu greindi frá því í dag að efnavopn frá valdatíð Gaddafi hafi fundist í landinu. 27.10.2011 11:12
Facebook reisir netþjónabú í Svíþjóð Sænska héraðsfréttablaðið Norrbottens Kuriren greinir frá því í dag að samskiptasíðan Facebook ætli að reisa netþjónabú í norður Svíþjóð. 27.10.2011 10:54
Pillan einnig vörn gegn krabbameini Vísindamenn telja að getnaðarvarnartöflur séu góð forvörn við krabbameini í eggjastokkum. Niðurstöður rannsóknar voru birtar í The British Journal of Cancer sem sýna að konur sem taka pilluna yfir tíu ára tímabil eru helmingi ólíklegri til að þróa krabbameinið. 27.10.2011 10:37
523 látnir eftir jarðskjálftann í Tyrklandi Tyrkneskir fjölmiðlar segja nú að 523 hafi látið lífið í kjölfar jarðskjálftans sem gekk yfir austurhluta landsins um helgina. Að auki særðust 1.650 manns. Talið er að jarðskjálftinn hafi verið 7,2 stig. 27.10.2011 10:17
Ný kenning um upphaf lífs á jörðinni Grænland er nú talin vera vagga alls lífs á jörðinni. Þó svo að náttúra Grænlands sé ein sú kaldranalegasta sem fyrirfinnst á jörðinni þá telja vísindamenn nú að lífverur jarðar megi rekja ættir sínar til aur-eldfjalla á suðvesturhluta eyjunnar. 27.10.2011 10:01
Mozilla og Microsoft í samstarf Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla tilkynnti í dag um nýtt samstarf með Microsoft. Í tilkynningu á vefsíðu Mozilla kemur fram að sérstök útgáfa af vafra fyrirtækisins, Firefox, verði sérhönnuð fyrir leitarvél Microsoft, Bing. 27.10.2011 09:32
Aldrei fleiri kvenforstjórar í Bandaríkjunum Eftir að Heather Bresch tók við forstjórastól lyfjafyrirtækisins Mylan er ljóst að kvenforstjórar hafa aldrei verið fleiri en nú. Í nýjastu útgáfu Fortune 500 eru 18 konur titlaðar sem forstjórar. 27.10.2011 09:15
Argentínskur engill dauðans dæmdur í lífstíðarfangelsi Argentínski böðullinn Alfredo Astiz, betur þekktur sem Hinn ljóshærði engill dauðans, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegn mannkyninu. 27.10.2011 08:11
Peta segir íslenska háhyrninga vera í þrælahaldi Bandarísku dýraverndunarsamtökin Peta hafa stefnt sjávardýragarðinum Sea World fyrir þrælahald á háhyrningum. Fjórir af þeim fimm háhyrningum sem hér um ræðir voru veiddir við strendur Íslands. 27.10.2011 08:05
Fæddi barn í miðjum listagjörningi í New York Gjörningalistakonan Marni Kotak fæddi dóttur á listasafni í New York í gærdag. Fæðingin var hluti af sýningu Kotak á safninu en hún segir að fæðingin sé æðsta stig listsköpunnar. Dóttirin reyndist myndarstúlka og var yfir 18 merkur að þyngd. 27.10.2011 08:01
Slagsmál á ítalska þinginu Til handalögmála kom á ítalska þinginu í gærdag þegar verið var að ræða þar frekari aðhaldsaðgerðir á vegum hins opinbera. 27.10.2011 07:58