Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúar Kristjaníu áfrýja til Hæstaréttar Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, hafa ákveðið að áfrýja dómi dómsstóls frá því dag til Hæstaréttar landsins. Þetta var á ákveðið á fundi íbúanna í kvöld. 26.5.2009 22:14
Simpson áfrýjar og krefst frelsis Ruðningskappinn og leikarinn O.J. Simpson bað Hæstarétt Nevadafylkis í Bandaríkjunum í dag að snúa við sakfellingu yfir honum fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns. Hann krefst þess að honum verði veitt frelsi. 26.5.2009 21:19
Meira en 100 þúsund kólerutilfelli í Zimbabve Spá Rauða krossins gerir ráð fyrir að að kólerutilfelli í Zimbabve fari yfir 100.000 á næstu dögum. Þó hefur dregið úr nýjum tilfellum að undanförnu en rúmlega 4300 íbúar hafa dáið vegna kóleru í Zimbabwe síðan í ágúst í fyrra. 26.5.2009 20:45
Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins. 26.5.2009 18:15
Óbreyttur borgari og þrír hermenn myrtir í Afganistan Almennur borgari og þrír NATO-hermenn féllu þegar bílsprengja sprakk í austurhluta Afganistans í dag. Til viðbótar særðist einn hermaður. Sprengjan sprakk þegar hryðjuverkamaður keyrði Toyota Corolla bifreið á bílalest hermannanna. 26.5.2009 17:58
Obama útnefnir Soniu Sotomayor í Hæstarétt Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soníu Sotomayor sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna. Staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings skipan hennar í embættið verður Sotomayor fyrsti rómansk ættaði Bandaríkjamaðurinn til að taka við sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og þriðja konan. 26.5.2009 13:43
Farsímasmygl með leikfangaþyrlu Fjórir eru í haldi lögreglu í Sao Paulo í Brasilíu eftir að þeir voru gripnir við að reyna að smygla farsímum til félaga sinna innan múra öryggisfangelsis með fjarstýrðri leikfangaþyrlu. 26.5.2009 08:32
Norður-Kóreumenn segjast undirbúa stríð Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft tveimur eldflaugum í viðbót, báðum skammdrægum. Flugþol eldflauganna er um 130 kílómetrar og segir suðurkóreska Yonhap-fréttastofan að önnur eldflaugin sé til notkunar gegn skotmörkum á flugi en hinn gegn skotmörkum á sjó. 26.5.2009 08:17
Hörð viðbrögð um allan heim vegna kjarnorkusprengingar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi einróma kjarnorkusprengingu Norður-Kóreumanna í gær á neyðarfundi í New York í gærkvöldi. 26.5.2009 07:51
Hefðu getað náð Watergate-málinu Hugsanlegt er að blaðamennirnir Bernstein og Woodward hjá Washington Post hefðu aldrei komist á spjöld sögunnar hefðu tveir keppinautar þeirra fylgt ábendingum sem þeir fengu. 26.5.2009 07:33
Kveikt í myndbandaleigu í Nyborg Fimm íbúar við Dronningsvej í Nyborg í Danmörku áttu fótum fjör að launa í nótt þegar kveikt var í myndbandaleigu í húsinu og þeir forðuðu sér út þegar íbúðin tók að fyllast af reyk. 26.5.2009 07:31
Barinn til bana eftir fótboltaleik á Írlandi Fótboltabullur börðu tæplega fimmtugan mann til bana þegar hann var að leita að sonum sínum eftir fótboltaleik í bænum Coleraine á Norður-Írlandi í gær. 26.5.2009 07:27
Dregið úr miðstýringu fiskveiða ESB Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að draga stórlega úr miðstýringu á fiskveiðum bandalagsþjóðanna. 26.5.2009 07:17
Tengsl við táning í brennidepli Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur lofað að útskýra frekar fyrir þjóðinni hvernig sambandi hans er háttað við táningsstúlku sem er í brennidepli pólitísks og persónulegs hneykslismáls. 26.5.2009 04:30
Fangaverðir stóðu aðgerðalausir hjá Upptökur úr öryggismyndavélum sýna að vopnaðir fangaverðir í meintu öryggisfangelsi í Mexíkó horfðu aðgerðalausir á þegar 53 fangar gengu út og settust óáreittir inn í flóttabíla sem biðu þeirra. Á leiðinni út afgreiddu fangarnir sig meira að segja sjálfir um vopn úr vopnabúri fangavarðanna. 26.5.2009 04:15
Tilraunakjarnorkusprenging fordæmd Ráðamenn ríkja heims brugðust ókvæða við í gær þegar stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu að þau hefðu látið sprengja öfluga kjarnorkusprengju neðanjarðar. Jafnvel Kínverjar, hefðbundnir bandamenn N-Kóreu, fordæma tilraunina. 26.5.2009 04:00
Vísindakirkjan fyrir rétt Vísindakirkjan kann að verða dæmd til að vera leyst upp í Frakklandi í réttarhaldi sem hófst í París í gær. Sjö af æðstu forsvarsmönnum safnaðarins í Frakklandi eru ákærðir fyrir skipulögð svik og ólöglega lyfjastarfsemi. 26.5.2009 04:00
Tugir féllu í árásum uppreisnarmanna Eftir hörð átök í Darfur-héraði í Súdan liggja 20 hermann í valnum og 43 uppreisnarmenn. Uppreisnarmenn réðust á eina af höfuðstöðvum súdanska hersins í héraðinu með þeim afleiðingum að hörð átök brutust út. 25.5.2009 22:48
SÞ fordæma kjarorkutilraunir N-Kóreumanna Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsri megnri andúð yfir kjarnorkutilraunum Norður-Kóregumanna og fordæmir þær. Ráðið kom saman til fundar í kvöld vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna og samþykkti ályktun einróma um málið. Öryggisráðið segir kjarnorkutilraunirnar brjóta á skýran hátt gegn fyrri ályktun ráðsins frá árinu 2006. 25.5.2009 21:18
Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega,“ sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag. 25.5.2009 15:13
N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu. 25.5.2009 09:32
Loftflutningar hafa dregist saman um 23 prósent Samdráttur í vöruflutningum með flugi hefur að líkindum náð botninum. Þetta segir Giovanni Bisignani, formaður Alþjóðaloftflutningasambandsins. 25.5.2009 08:31
Leikstjóri Tortímandans sjúkur í vélmenni Leikstjóri nýjustu myndarinnar um Tortímandann hefur verið sérstakur áhugamaður um vélmenni allar götur síðan hann var barn. 25.5.2009 08:16
Gullpálminn til Austurríkis Gullpálminn á kvikmyndahátíðinni í Cannes féll austurríska leikstjóranum Michael Haneke í skaut í gærkvöldi. 25.5.2009 08:09
Í fangelsi fyrir að klæðast sem nunnur á Krít Sautján Bretar sitja nú í fangelsi á grísku eyjunni Krít og bíða ákæru fyrir að klæða sig upp sem nunnur og valsa þannig um bæinn Hania sem er vinsæll ferðamannastaður. 25.5.2009 07:32
Bankamenn ráðnir til stærðfræðikennslu í New Jersey Yfirvöld í New Jersey bjóða nú atvinnulausum bankamönnum vinnu þar sem reynsla þeirra úr viðskiptalífinu nýtist ágætlega. 25.5.2009 07:28
Nauðgað á hommabar í Kaupmannahöfn Fjörutíu og þriggja ára karlmaður, sem nauðgaði 25 ára karlmanni í eldhúsi á hommabar í Kaupmannahöfn um helgina, var handtekinn skömmu síðar og dvelur nú á réttargæslugeðdeild. 25.5.2009 07:24
Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju í nótt Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í tilraunaskyni í morgun. Auk þess skutu þeir á loft skammdrægri eldflaug. 25.5.2009 07:19
Eigandi H&M kaupir breskt þorp Sænski milljarðamæringurinn Stefan Persson, eigandi tískuverslunarkeðjunnar H og M, hefur ákveðið að kaupa heilt þorp nálægt Hampshire á Englandi. 25.5.2009 07:16
Þrettán ára drengur stakk annan til bana Þrettán ára gamall drengur sætir nú yfirheyrslum lögreglu í London vegna gruns um að hafa orðið öðrum sautján ára að bana með hnífstungu. 25.5.2009 07:13
Upplýst umræða um ESB-aðild lykilatriði Að fram fari upplýst opinber umræða um það sem felst í fullri aðild að Evrópusambandinu er einhver mikilvægasta forsendan fyrir inngöngu nýrrar aðildarþjóðar í sambandið. Þetta segir Graham Avery, sem starfaði um áratugaskeið í framkvæmdastjórn ESB og kom sem háttsettur fulltrúi hennar að aðildarsamningum margra ríkja, en hann er nú heiðursfélagi St.Antony‘s College við Oxfordháskóla og ráðgjafi rannsókna- og ráðgjafarstofnunarinnar European Policy Centre í Brussel. 25.5.2009 03:00
Tamílar viðurkenna fall leiðtoga síns Uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka hafa í fyrsta skipti viðurkenn fall leiðtoga þeirra, Velupillai Prabhakaran. Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að hinn „óviðjafnanlegi leiðtogi“ þeirra hafi látist og þeir hafi verið í sorg undanfarna viku. Talsmaður hópsins sagði BBC einnig að nú myndu þeir hætta öllu ofbeldi í baráttunni gegn réttindum tígranna. 24.5.2009 21:30
Þingmenn á Bretlandi segja af sér Fjórir þingmenn hafa nú sagt af sér í Bretlandi vegna misnotkunar á hlunnindum. Tveir til viðbótar hafa verið reknir og sex sagt að þeir muni ekki gefa kost á sér í næstu þingkosningum. 24.5.2009 22:00
Býflugnaskortur ógnar gróðri jarðar Vísindamenn hafa miklar áhyggjur af því hversu býflugum og öðrum skordýrum sem bera frjó á milli plantna hefur fækkað. 24.5.2009 17:56
Rosalega flott Þessi frétt er eiginlega skrifuð bara vegna þess hvað það er rosalega flott mynd sem fylgir henni. 24.5.2009 17:29
Hoppaðu þá helvítið þitt Reiður vegfarandi hrinti í vikunni manni fram af brú í Gunagzhou í Kína. Maðurinn sagðist ætla að fremja sjálfsmorð vegna skulda en hafði staðið á brúarhandriðinu í fimm klukkustundir. 24.5.2009 16:52
Páfi býður kínverskum kaþólikkum að snúa heim Benedikt páfi heimsótti í dag klaustrið Monte Cassino á Ítalíu. Það var lagt nánast í rúst í hörðum bardögum í síðari heimsstyrjöldinni. 24.5.2009 16:35
Trúarbragðastríð í Vínarborg Bæði skammbyssum og hnífum var beitt í bardaga milli síkka í indversku musteri í Vínarborg í dag. 24.5.2009 16:32
Dorrit með Rolls Royce í Rússlandi Associated Press fréttastofan hefur birt meðfylgjandi mynd af Dorrit Moussaieff forsetafrú ásamt stjórnarformanni Rolls Royce, þar sem þau eru í Sankti Pétursborg í Rússlandi. 24.5.2009 14:14
Lögregluforingi í máli Madeleine McCann falsaði gögn Gonalco Amaral lögregluforingi tók fljótlega þann pól í hæðina að foreldrar Madeleine hefðu orðið henni að bana fyrir slysni. 24.5.2009 11:39
Geimferjan getur ekki lent í Flórída Geimferjan Atlantis hefur enn ekki getað lent í Flórída vegna veðurs. Hún er nú búin að vera í geimnum tveim sólarhringum lengur en áætlað var. Í Flórída er lágskýjað og rok og rigning. 24.5.2009 09:42
Öryggisgæsla Bretadrottningar brást Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar segir að verið sé að rannsaka fréttir þess efnis að blaðamönnum frá slúðurblaðinu News of The World hafi tekist að komast inn í íbúð Elísabetar drottningar í Lundúnum. 24.5.2009 09:35
Harðar loftárásir í Pakistan Pakistanskar orrustuþotur gerðu í dag harðar loftárásir á víghreiður talibana í Orkazi héraði. Jafnframt börðust hermenn við talibana á jörðu niðri í stærsta bænum í Swat héraði. 24.5.2009 09:27
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu framdi sjálfsmorð Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu hefur framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af klettum skammt frá heimili sínu. Í bréfi sem hann skildi eftir sig bað hann um að lík hans yrði brennt. Þar segir einnig að áframhaldandi líf hans yrði aðeins byrði fyrir aðra. 23.5.2009 22:00
Von um samkomulag á Madagaskar Samkomulag er talið vera í uppsiglingu sem á að leysa stjórnmálakreppuna sem hefur verið á Madagaskar upp á síðkastið. Sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðana segir við BBC að núverandi stjórnmálaflokkar í landinu hafi komist að samkomulagi um tímabundna stjórn og drög að enandanlegu samkomulagi. 23.5.2009 20:27