Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svínaflensa verður inflúensa A Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur ákveðið að breyta nafni á flensuveirunni sem nú breiðist út um heiminn úr svínaflensu í inflúensu A (H1N1). Þetta er gert til þess að koma til móts við sjónarmið frá kjötframleiðendum og stjórnvöldum sem hafa áhyggjur af þessari nafngift. Engar vísbendingar hafa fundist um að svínaflensan smitist með neyslu svínakjöts. 30.4.2009 17:11
Breskir hermenn yfirgefa Írak Í dag yfirgáfu breskir hermenn borgina Basra í suðurhluta landsins og færast völdin þar með í hendur Bandaríkjamanna. Um tíma var barist harkalega í borginni sem var helsta miðstöð breska hersins í landinu. 30.4.2009 16:03
París teygir sig til hafs París, höfuðborg Frakklands, mun á næstu tveimur áratugum teygja sig alla leið til hafs og liggja þá að Ermarsundi. Nicolas Sarkozy forseti kynnti þessa hugmynd nú í vikunni og útfærslu hennar sem var í höndum arkitektsins Antoine Grumbach. 30.4.2009 12:45
Ók inn í hóp fólks í skrúðgöngu Að minnsta kosti tveir létu lífið þegar bíl var ekið inn í hóp fólks sem var að hylla hollensku konungsfjölskylduna. Beatrix drottning og fleiri úr fjölskyldunni óku um í opnum strætisvagni um götur smábæjarins Apeldoorn og er talið að ökumaðinn hafi ætlað sér að aka á vagninn. 30.4.2009 12:44
Fyrsta staðfesta svínaflensutilfellið í Hollandi Holland hefur bæst í hóp þeirra ríkja þar sem svínaflensan sem á uppruna sinn í Mexíkó hefur gert vart við sig. Um er að ræða þriggja ára gamalt barn en hollenska heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest málið. 30.4.2009 10:17
Bandaríkjamenn fitna í kreppunni Rúmlega 40 prósent vinnandi fólks í Bandaríkjunum hafa þyngst þrátt fyrir lækkandi laun og versnandi efnahagsástand. Þetta sýnir ný könnun vinnumiðlunar nokkurrar en könnunin náði til tæplega 4.500 manns sem enn eru í fullu starfi. 30.4.2009 08:55
Elsta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum Vísindamenn komu í síðustu viku auga á elsta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum. 30.4.2009 08:30
Fjarstýrð þyrla olli usla í indverska þinginu Neyðarástandi var lýst yfir í indverska þinghúsinu í gær þegar óvenjulegur vágestur birtist þar fyrirvaralaust. 30.4.2009 08:23
Bretar óánægðir með BT Breska fjarskiptafyrirtækið British Telecommunications nýtur minnstra vinsælda meðal þarlendra símnotenda samkvæmt nýrri könnun. BT var í einokunaraðstöðu þar til snemma á tíunda áratug síðustu aldar og hefur töluvert hallað undan fæti síðan samkeppni hófst á markaðnum. 30.4.2009 08:19
Mexíkóar frá vinnu fram á þriðjudag Öll vinna í Mexíkó, að undanskilinni nauðsynlegustu starfsemi, mun liggja niðri frá morgundeginum og fram á þriðjudag til að sporna við því að svínaflensan breiðist enn frekar út. Fólk er beðið að halda sig heima við og allt samkomuhald hefur verið bannað. 30.4.2009 07:25
París mun ná út að Ermarsundi París, höfuðborg Frakklands, mun á næstu tveimur áratugum teygja sig alla leið til hafs og liggja þá að Ermarsundi. Nicolas Sarkozy forseti kynnti þessa hugmynd nú í vikunni og útfærslu hennar sem var í höndum arkitektsins Antoine Grumbach. 30.4.2009 07:23
Kasparov reifst við saksóknara Skákmeistarinn Garry Kasparov, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, lét sjá sig við réttarhöldin yfir auðkýfingnum fyrrverandi Mikaíl Kodorkovskí í Moskvu í gær. Í hléi lenti hann í snörpu orðaskaki við einn saksóknaranna í málinu. Kasparov sagði það borgaralega skyldu sína að mæta við réttarhöldin og sýna Kodorkovskí stuðning. 30.4.2009 04:30
Byrjaður að dusta rykið Fyrstu hundrað dagar Baracks Obama í starfi forseta Bandaríkjanna þykja vel heppnaðir. Mannréttindasamtök segja þó hægt miða í mannréttindamálum. 30.4.2009 04:30
Svínum slátrað í Egyptalandi Viðbrögðin við svínaflensu eru ekki á sama veg í öllum ríkjum heims. Í Egyptalandi tóku stjórnvöld þá ákvörðun að slátra skyldi öllum svínum í landinu, en þau eru samtals 300 þúsund. 30.4.2009 04:15
Sýknaðir en í fangelsi Tveir bresku sakborninganna þriggja, sem á þriðjudag voru sýknaðir af ákærum um að hafa aðstoðað fjóra hryðjuverkamenn sem sprengdu sig í loft upp í London í júlí 2005, voru í gær dæmdir til sjö ára fangavistar fyrir aðrar sakir tengdar dvöl þeirra í þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn. 30.4.2009 04:00
Áströlskum hermönnum fjölgar í Afganistan Ríkisstjórn Ástralíu hefur ákveðið fjölga um 450 hermenn í herliði landsins í Afganistan. Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, sagði þetta gert til að herða sóknina gegn Talibönum sem hafa að undanförnu styrkt stöðu sína víða í landinu. Áströlsku hermönnunum er einkum ætlað að þjálfa afganska lögreglumenn og öryggissveitir. 29.4.2009 23:08
Mannskæðar árásir í Bagdad Að minnsta kosti 42 eru látnir og aðrir 68 mikið slasaðir eftir árásir vígamanna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Á annað hundrað manns hafa fallið á árásum á síðustu tveimur vikum. 29.4.2009 22:52
Viðbúnaðarstig hækkað í fimmta stig af sex Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr fjórða stigi í það fimmta en stigin eru alls sex. 29.4.2009 21:06
WHO íhugar að lýsa yfir næstefsta viðbúnaðarstigi Fulltrúar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, segjast skrefi nær því að lýsa yfir næst efsta viðbúnaðarstigi vegna svínaflensunnar. Það þýðir að ekkert lát er á útbreiðslu sjúkdómsins. Íslensk kona í Mexíkó, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrst, segir viðbúnað í landinu mikinn en hún sé ekki á leið heim í bráð. 29.4.2009 18:42
Sjúklingurinn á Spáni hafði verið í samskiptum við fólk nýkomið frá Mexíkó Heilbrigðisyfirvöld á Spáni tilkynntu fyrir stundu að svínflensa hefði greinst í sjúklingi þar í landi sem hefði ekki komið til Mexíkó þar sem sjúkdómurinn á upptök sín. Það virtist gefa til kynna að flensan væri að breiðast út en skömmu síðar kom í ljós að maðurinn hafði verið í samskiptum við fólk nýkomið frá Mexíkó. 29.4.2009 15:51
Barnið sem lést í Texas var frá Mexíkó Nú er komið í ljós að barnið sem lést í Texas ríki af völdum svínaflensu var frá Mexíkó en foreldrar þess höfðu ferðast með það yfir landamærin til þess að leita læknisaðstoðar. Fyrr í dag var greint frá því að um væri að ræða fyrsta dauðsfallið í Bandaríkjunum af völdum svínaflensu. Barnið var tveggja ára gamalt. 29.4.2009 13:16
Öllum svínum í Egyptalandi fargað Heilbrigðisyfirvöld í Egyptalandi hafa fyrirskipað að öllum svínum í landinu skuli fargað vegna svínaflensunnar sem vekur ugg víða um heim. Í yfirlýsingu frá egypska heilbrigðisráðherrans segir að þetta sé gert í varúðarskyni. 29.4.2009 12:44
Svínaflensan: Tveggja ára bandarískt barn látið Bandarísk heilbrigðisyfirvöld tilkynntu nú fyrir stundu um fyrsta dauðsfall af völdum svínaflensu í Bandaríkjunum. Um er að ræða tæplega tveggja ára barn í Texas. 29.4.2009 10:48
Norður Kóreumenn hóta kjarnavopnatilraunum Norður Kóreumenn hótuðu í morgun að gera tilraunir með kjarnorkuvopn og langdrægar eldflaugar ef Sameinuðu þjóðirnar féllu ekki frá refsiaðgerðum gegn Norður Kóreu og bæðust afsökunar á að hafa beitt þeim. 29.4.2009 10:45
Ástralar auka herstyrk í Afganistan Ástralar hyggjast fjölga í herafla sínum í Afganistan og senda þangað 450 hermenn til viðbótar við þá 1.100 sem þegar eru á staðnum. 29.4.2009 08:38
Bretar geta flett glæpamönnum í hverfinu upp Breski dómsmálaráðherrann Jack Straw mun á morgun kynna áætlun ríkisstjórnarinnar um að koma upp gagnagrunni á Netinu þar sem fletta má upp dæmdum afbrotamönnum í ákveðnum hverfum. Með þessu eiga íbúar að geta áttað sig á því hvers konar nágranna þeir eigi. 29.4.2009 08:15
Bandarískir svínabændur óhressir með svínaflensu Tom Vilsack, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna, hefur bænheyrt þarlenda svínabændur og farið þess á leit við stjórnvöld að nafni svínaflensunnar alræmdu verði breytt í H1N1-veiran í stað þess að kenna hana við svín. 29.4.2009 08:12
Varð ófæddum tvíburum sínum að bana Kona frá Sómalíu, búsett í Bretlandi, er fyrir rétti, ákærð fyrir að hafa orðið ófæddum tvíburum sínum að bana með því að sprauta sjálfa sig með lyfinu syntómetrín sem kemur hríðum af stað og þar með fæðingu, í þessu tilfelli tæpum mánuði fyrir áætlaðan fæðingartíma. 29.4.2009 08:09
Réðust inn í íbúð í Birkerød Fimmtán ára unglingur og tvítugur maður voru handteknir í nótt fyrir rán í bænum Birkerød á Norður-Sjálandi í Danmörku. Ræningjarnir spörkuðu upp hurð á íbúð í bænum og réðust þar á húsráðanda og mann sem var gestkomandi hjá honum. 29.4.2009 07:33
Umferðarslys í Kaliforníu Að minnsta kosti fjórir eru látnir og tæplega 40 slasaðir eftir að hópferðabifreið valt á þjóðvegi í Kaliforníu í morgun. Tildrög slyssins eru enn óljós en farþegarnir voru flestir franskir ferðamenn. Tólf sjúkrabílar og sjö björgunarþyrlur voru send á vettvang með hraði og vinnur björgunarlið nú að því að hjálpa farþegunum út úr flaki bifreiðarinnar. 29.4.2009 07:32
Bretar panta 30 milljónir gríma Breska heilbrigðisráðuneytið hefur pantað 30 milljónir gríma til að hylja vit fólks og verja það þannig fyrir svínaflensunni sem geisar í heiminum. Sérfræðingar hafa þó bent á að grímurnar veiti litla sem enga vörn gegn veirunni sem veldur svínaflensu. 29.4.2009 07:26
Litlar áhyggjur af Rússum Atlantshafsbandalagið verður með heræfingu í Georgíu í maí. Rússar hafa gagnrýnt þetta harðlega. Gregory Vashadze, utanríkisráðherra Georgíu, gefur ekki mikið fyrir gagnrýni Rússa og óttast ekki innrás þeirra. 29.4.2009 04:30
Áhrifin umdeilanleg ESB-umræða Íslendinga hefur vakið athygli í Noregi eftir alþingiskosningarnar, sérstaklega sú staðreynd að Samfylkingin getur myndað ríkisstjórn og gengið til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, ESB, þannig að Íslendingar verði komnir með evruna innan nokkurra ára. Norðmenn velta fyrir sér hvort og þá hvaða áhrif þetta hafi á norsk stjórnmál og EES-samninginn. 29.4.2009 04:30
Niðurstaðan áfall fyrir ákæruvaldið Þrír menn, sem grunaðir voru um aðild að sprengjuárásunum í London 7. júlí 2005, voru í gær sýknaðir af ákærum. 29.4.2009 04:30
Pólland bíður eftir evrunum Ríkisstjórn Póllands hefur samþykkt varaáætlun í evruvæðingu landsins. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir því að landið uppfylli ekki grundvallarskilyrði til þátttöku í gjaldmiðilssamstarfinu ERM-2 sem er nauðsynlegt fyrir upptökuna. 29.4.2009 04:15
Ekki velkominn til Sri Lanka „Þetta er furðulegt,“ sagði Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, um afstöðu stjórnvalda á Sri Lanka, sem neituðu að hleypa honum inn í landið. 29.4.2009 04:15
Breskur hermaður drepinn í kjölfar yfirlýsinga Brown Breskur hermaður var drepinn í suðurhluta Afganistans í kvöld degi eftir afdráttarlausar yfirlýsingar Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Hann heimsótti óvænt í gær bæði Afganistan og Pakistan og sagði vöggu hryðjuverka vera við landamæri ríkjanna. 28.4.2009 23:45
Demókrötum fjölgar í öldungadeildinni Arlen Specter, öldungadeildarþingmaður frá Pennsylvaníufylki, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að ganga til við Demókrataflokkinn en hann hefur verið þingmaður fyrir Repúblíkanaflokkinn allt frá árinu 1981. 28.4.2009 21:57
Schwarzenegger lýsir yfir neyðarástandi Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, lýsti í dag yfir neyðarástandi í ríkinu vegna svínaflensunnar. Stjórnvöld neyðist til að grípa til ráðstafana til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. 28.4.2009 19:14
Svínaflensan skrefi nær því að verða heimsfaraldur Alþjóða heilbrigðisstofnunin segir að svínaflensan sé skrefi nær því að verða heimsfaraldur. Það sé þó ekki óhjákvæmilegt að svo fari. 28.4.2009 18:41
Örlagarík myndataka yfir New York Talsmenn Hvíta hússins hafa beðist velvirðingar á því sem margir íbúar á Manhattan í New York töldu vera yfirvofandi hryðjuverkaárás þegar þota af gerðinni Boeing 747 flaug lágflug yfir borginni í gær með tvær F-16-orrustuþotur á eftir sér. 28.4.2009 08:45
Ný vefsíða býr fólk undir atvinnuviðtöl Hvað myndirðu gera við 100 jólatré í júlí, hvenær máttu skrökva og ef þú værir morgunkorn, hvaða tegund af því værirðu? Varla eiga margir von á því að þurfa að finna svör við ráðgátum á borð við þessar í atvinnuviðtölum en aðstandendur vefsíðunnar glassdoor.com telja það hins vegar ákaflega líklegt. 28.4.2009 08:19
Rændu greiðslukortum vopnaðir skrúfjárnum Tveir ungir menn voru rændir kreditkortum og neyddir til þess að gefa upp PIN-númer kortanna á Nørrebro í Kaupmannahöfn á sunnudagskvöldið. 28.4.2009 08:15
Sögufrægt flugskýli liggur undir skemmdum Flugskýlið, sem hýsti sprengjuflugvélina Enola Gay, þá sem flaug með kjarnorkusprengju og varpaði henni á japönsku borgina Hiroshima í ágúst 1945, er meðal þeirra sögufrægu minja í Bandaríkjunum sem eru í hvað mestri hættu á að eyðileggjast vegna vanrækslu og slælegs viðhalds. 28.4.2009 08:08
Segist hafa yfirheyrt fanga í mesta bróðerni Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur nú teflt fram einum liðsmanni sínum sem fullyrðir að hann hafi náð viðamiklum upplýsingum upp úr liðsmanni hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda án þess að beita til þess vafasamari aðferðum en að ræða við manninn um daginn og veginn. 28.4.2009 07:56
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent