Fleiri fréttir

Bush fundar með leiðtogum ESB um fjármálakreppuna

George Bush Bandaríkjaforseti fundar í dag um alþjóðlega stöðu efnahagsmála með Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, og Nicolas Sarkozy, Frakklands, en Frakkar eru í nú í forystu fyrir ESB.

IMF býður Úkraínumönnum 14 milljarða dala lán

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur boðið Úkraínumönnum fjórtán milljarða dala lán til bjargar efnahag þeirra. Það jafngildir nærri sextán hundruð milljörðum íslenskra króna á gengi Seðlabankans. Talsmaður Viktors Júsjenko, forseta Úkraínu, greindi frá þessu síðdegis í gær.

Kappræðurnar höfðu lítil áhrif á fylgi

Nýjasta Gallup könnun sem mælir stuðning við bandarísku forsetaframbjóðendurna sýnir að Barack Obama nýtur stuðnings 50% Bandaríkjamanna en John McCain nýtur stuðnings 43%.

Laxerað á norskum þjóðvegum

Það þarf ekki að standa úti í kaldri á og bíða þar og vona með öngulinn sinn eftir að lax bíti á í Tynset í Noregi þessa stundina, því nú er hægt tína þar lax upp af jörðinni í því magni sem hver vill.

Úkraína íhugar aðstoð frá IMF

Úkraínumenn íhuga nú hvort þeir eigi að sækjast eftir 3-14 milljarða dollara láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til þess að takast á við þá erfiðleika sem blasa við vegna fjármálakreppunnar í heiminum.

Morðið á Politkovskayu tekið fyrir dóm

Morðið á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskayu var tekið fyrir dóm í Moskvu í gær. Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir lögfræðing fjölskyldunnar.

Kanna hvaðan askan í pottum Maya kom

Efnagreining á eldfjallaöskunni sem hinir fornu Mayar í Mið Ameríko og Mexíkó notuðu til pottagerðar, getur að öllum líkindum komið vísindamönnum á snoðir um hvaðan hráefnið var fengið. Atli Steinn Guðmundsson segir frá.

Obama talinn fremri í pontunni í gær

Efnahagsvandinn var ofarlega á baugi í þriðju og síðustu kappræðum forsetaframbjóðendanna Baracks Obama og Johns McCain í gærkvöldi.

Yfirvinna að fara með Kaupmannahafnarlögreglu

Lögregluyfirvöld í Kaupmannahöfn óttast að yfirvinna muni sliga lögregluliðið á næstu mánuðum. Mikið hefur verið um tímafrek verkefni upp á síðkastið sem krefjast mikils mannafla í lengri tíma.

Átta tíma svefninn er bábilja

Það eru hreinar kerlingabækur að manneskjan þurfi átta klukkustunda svefn á sólarhring til að geta lifað og starfað eðlilega.

Vegaöryggi litlu bættara

Umferð á vegum nútímans er nokkurn veginn jafnhættuleg og hún var á 16. öldinni. Þetta er niðurstaða breskrar rannsóknar sem kafaði ofan í skýrslur dánardómstjóra Sussex á Englandi árin 1485 til 1688.

Abramovich kvíðir ekki afkomunni

Auðkýfingurinn og Íslandsvinurinn Roman Abramovich er aldeilis ekki kominn á horreimina þótt hann hafi í gær sagst ætla að fresta brúðkaupi sínu í ljósi efnahagsástandsins í heiminum.

Framkvæmdastjórn ESB blandar sér ekki í deilu Breta og Íslendinga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun ekki blanda sér í milliríkjadeilu Breta og Íslendinga. Jose Manuel Barroso, formaður framkvæmdastjórnarinnar, sagði í dag að embættismenn á vegum Evrópusambandsins væru reiðubúnir til þess að hjálpa Íslendingum og auðvelda öll samskipti. Hins vegar þyrftu Íslendingar og Bretar að ræða sín máli í milli.

Haider var drukkinn þegar hann keyrði á

Austurríski öfga hægri maðurinn Joerg Haider var undir áhrifum áfengis þegar hann lést í bílslysi á laugardag. Stefan Petzner, sem tók við af Haider sem nýr formaður Austurríska framtíðarflokksins, staðfesti þetta í samtali við Reuters fréttastofuna.

Flugræninginn var fyllibytta

Maður sem ætlaði að ræna tyrkneskri farþegaflugfél í morgun reyndist óvopnaður og sauðölvaður.

Brown vill breyta IMF

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, vill að starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði endurskipulögð í þeirri viðleitni að koma betra skikki á hið alþjóðlega fjármálakerfi og forða því að lausafjárkreppa lík þeirri sem nú ríkir endurtaki sig.

Juncker varar við of mikilli bjartsýni

Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar sem gegnir forystuhlutverki í evrumálum innan ESB þessi misserin, segir að bankakreppunni sé ekki lokið þótt hlutabréfaverð hafi hækkað töluvert í dag og í gær.

Sveitarfélög á Bretlandi bjartsýn á að fá greitt út úr bönkunum

Ernst&Young, skiptastjórar í Landsbanka og Kaupþingi á Bretlandi, hafa gefið Sambandi sveitarfélaga á Bretlandi góðar vonir um að kröfur á Landsbankann og Kaupþing fáist greiddar. E&Y hafa farið með þrotabú bankanna á Bretlandi og óskaði sambandið eftir því viðræðum við þá í ljósi þess að sveitarfélög víðs vegar um Bretland geymdu fúlgur fjár í bönkunum. Upphæðin sem sveitarfélögin voru með í íslensku bönkunum nemur rúmlega 858 milljónum punda.

Berlusconi skemmdi ræðupúlt í Hvíta húsinu

Vopnabræðurnir George Bush Bandaríkjaforseti og Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, gerðu sér glaðan dag í gærkvöld í Hvíta húsinu eftir að hafa stýrt aðgerðum til bjargar bönkum í löndunum tveimur.

Obama boðar aðgerðir í atvinnu- og húsnæðismálum

Skattaívilnanir fyrir fyrirtæki sem skapa störf og aðstoð fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum vegna húsnæðismála var meðal þess sem Barack Obamba, forsetaframbjóðandi demókrata, kynnti sem björgunaráætlun sína fyrir millistéttina í Bandaríkjunum.

Obama kynnir stefnumörkun í efnahagsmálum í dag

Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, mun síðar í dag kynna áætlun sína um það hvernig bjarga eigi bandarísku efnahagslífi úr þeim hremmingum sem nú standa yfir. Svohljóðandi tilkynning barst úr herbúðum hans fyrr í dag og sagt að um meiri háttar stefnumörkunarræðu væri að ræða.

Bönkum bjargað um alla Evrópu

Það fjölgar ört í hópi þeirra Evrópuríkja sem grípa til aðgerða til að bjarga bönkum með innspýtingu í fjármálakerfið.

Krugman hlýtur Nóbelsverðlaun í hagfræði

Bandaríkjamaðurinn Paul Krugman hlýtur Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár fyrir greiningu á viðskiptamynstrum og fyrir að staðsetja virkni í efnahagslífi eins og Nóbelsnefndin orðar það.

Sjá næstu 50 fréttir