Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Zapatero ætlar ekki að taka upp viðræður við ETA Jose Zapatero, forsætisráðherra Spánar, segir að ríkisstjórn hans sé ekki lengur reiðubúin til þess að ræða við ETA, aðskilnaðarsamtök Baska. Þetta kom fram í ítarlegu viðtali við Zapatero sem birt var í dagblaðinu El Pais um helgina. 30.6.2008 23:17
Nýnasistar ákærðir fyrir 20 morð Rússneskir saksóknarar eru tilbúnir með ákærur á hendur níu mönnum sem tilheyra gengi nýnasista og eru grunaðir um að hafa myrt 20 innflytjendur í Rússlandi. Auk þess er mennirnir grunaðir um 12 manndrápstilraunir. 30.6.2008 22:27
Vilja rannsaka bandarískar bankainnistæður í Sviss Bandaríska dómsmálaráðuneytið fór í dag fram á það að alríkisdómari heimilaði skattayfirvöldum í landinu að fá upplýsingar um bankainnistæður bandarískra ríkisborgara í Sviss. 30.6.2008 21:41
Hóta aðgerðum Bandarísk stjórnvöld ætla á næstunni að vinna að því á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að stjórnvöld í Simbabve verði beitt hörðum efnahagsþvingunum. 30.6.2008 17:42
Hvolpum bjargað úr hundaprísund Meira en hundrað hvolpum var bjargað úr hundaræktunarbúi í Flórída í morgun. Hundarnir voru í slæmu ásigkomulagi eftir að hafa verið lokaðir margir saman, í litlum búrum, alla ævi. 30.6.2008 16:41
Sarkozy heitir aðgerðum vegna skotóhappanna Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy hefur heitið aðgerða vegna óhappsins við hersýningu í Frakklandi í gær þegar alvöru byssukúlur voru notaðar í stað gervikúlna sem olli því að 17 manns særðust. 30.6.2008 16:24
Kenýa hvetur Afríkubandalagið til að reka Mugabe Raila Odinga, forsætisráðherra Kenýa, hefur hvatt Afríkubandalagið til þess að víkja Robert Mugabe, forseta Simbabve, úr bandalaginu þangað til hann leyfir frjálsar og sanngjarnar kosningar þar í landi. Að Odinga áliti ætti bandalagið einnig að senda friðargæslusveitir til landsins til þess að stuðla að frjálsum kosningum. 30.6.2008 16:14
Indland kemur á fót áætlun til hindrunar loftslagsbreytingum Indversk stjórnvöld hafa komið á stað áætlun sem varðar allt landið sem hefur það markmið að spyrna við hlýnun jarðar og afleiðingum hennar. Áætlunin byggir á meiri áherslu á sjálfbærum orkugjöfum og þá sérstaklega á sólarorku. 30.6.2008 14:32
Fékk leyninlega aukafjárveitingu vegna Íransmála Bandaríkjaforseti fékk í fyrra þrjátíu og þriggja milljarða króna leynilega aukafjárveitingu frá leiðtogum á Bandaríkjaþingi til að herða á aðgerðum leyniþjónustunnar gegn klerkastjórninni í Íran. Margir þingmenn spyrja nú hvort féð hafi verið notað í ólöglegar aðgerðir, svo sem eins og mannrán. 30.6.2008 12:26
Kosningar í Simbabve uppfylltu ekki kröfur Afríkubandalagsins Forsetakosningarnar í Simbabve uppfylltu ekki kröfur Afríkubandalagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eftirlitsmönnum sem voru viðstaddir kosningarnar á vegum bandalagsins. 30.6.2008 10:14
Forseti Sambíu fluttur á spítala Levy Mwanawasa, forseti Sambíu, var fluttur í skyndingu á spítala í gær. 30.6.2008 08:13
Gay Pride í 38. sinn í San Francisco Lesbíur á vélhjólum, íklæddar brúðarkjólum, voru áberandi á götum San Fransico í gær en þá var svokallað Gay Pride haldið þar hátíðlegt í þrítugasta og áttunda sinn. 30.6.2008 08:09
Vilja sérstakar athafnir fyrir skilnaði Formaður danskra samtaka sem kalla sig Presta- og sálfræðimeðferð vilja að sérstakar athafnir verði haldnar þegar hjón skilja. Æðstu menn kirkjunnar í borginni Ribe á Jótlandi taka vel í hugmyndina. Frá þessu er sagt í Kristilega Dagblaðinu í Danmörku. 30.6.2008 07:47
Íslenskur meintur byssumaður á Spáni Íslendingur á Spáni hefur verið kærður til lögreglunnar þar, fyrir hótanir og að beina byssu að konu á götu úti. 29.6.2008 18:38
Mugabe sór embættiseiðinn Róbert Mugabe sór í dag embættiseið sem forseti Zimbabwe en hélt síðan á leiðtogafund Afríkuríkja í Egyptalandi. Á fundinum verður fjallað um kosningarnar og hugsanlegar refsiaðgerðir á Zimbabwe. 29.6.2008 19:24
Barak Obama beðinn um skilríki í líkamsræktarklúbb Barak Obama er sennilega með þekktari persónum Bandaríkjanna í dag. Það kom þó ekki í vega fyrir að hann var krafinn um skilríki er hann ætlaði í líkamsræktarklúbb um helgina. 29.6.2008 12:30
Ofurmódel stökk í dauðann á Manhattan Ofurmódelið Ruslana Korshunova frá Kazhakstan framdi sjálfsmorð í gærdag með því að stökkva niður af svölum á níundu hæð íbúðabyggingar sem hún bjó í á Manhattan. 29.6.2008 11:31
Rannsaka hvarf barna úr flóttamannabúðum á Norðurlöndum Borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs hyggst hefja rannsókn á hvarfi barna úr flóttamannabúðum á Norðurlöndunum. Á hverju ári hverfur fjöldi barna úr þessum búðum og óttast er að þau verði mansali að bráð. 29.6.2008 11:06
Baskar greiða atkvæði um sjálfstæði héraðsins Héraðsþing Baska á Spáni samþykkti í gær að efna til atkvæðagreiðslu um hugsanlegt sjálfstæði héraðsins. 29.6.2008 10:05
Mugabe lýstur sigurvegari kosninganna í dag Robert Mugabe verður lýstur sigurvegari kosninganna í Zimbabwe í dag. Hann var einn í framboði í seinni umferð kosninganna og segir að hann hafi sigrað í öllum kjördæmum. 29.6.2008 10:03
Neyðarástand í Kaliforníu vegna mengunnar frá skógareldum Mengun vegna skógarelda í Kaliforníu er orðin mjög mikil. Reykur liggur yfir stórum svæðum eins og þoka. Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í ríkinu. 29.6.2008 09:51
Þúsundir reiðra Kínverja brenna lögreglustöðvar Nokkur þúsund æstir og reiðir Kínverjar réðust á opinberar byggingar í Guizhou héraðinu og kveiktu í lögreglustöðvum og lögreglubílum um helgina til að mótmæla andláti unglingsstúlku. 29.6.2008 09:45
Norðurlandabúarnir sem rænt var í Sómalíu lausir úr haldi Norðurlandabúunum tveimur sem rænt í Sómalíu, Svía og Dana, eru nú lausir úr haldi. Báðir eru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna. 28.6.2008 14:59
Mikil fækkun býflugna hækkar matarverð Dularfull fækkun hunangsbýflugna í Bandríkjunum gæti leitt til mikillar hækkunar á matarverði. Þetta helgast af því að margar landbúnaðarjurtir eru háðar því að býflugunar frjógvi þær. 28.6.2008 13:29
Miklar líkur á íslausum Norðurpól í sumar Heimskautaísinn við Norðurpólinn bráðnar nú svo hratt að miklar líkur eru á að Norðurpólinn verði íslaus í sumar. 28.6.2008 10:27
Reyna á að ná samkomulagi um tilhögun hvalveiða Ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins lauk í gær. Andstæðar fylkingar, sem eru með og á móti hvaðlveiðum, ákváðu í lok fundarins að reynt yrði að ná samkomulagi um tilhögun hvalveiða á næsta fundi. 28.6.2008 10:02
Misvísandi upplýsingar um kjörsókn í Zimbabwe Dagblað í Zimbabwe, sem er í eigu stjórnarflokksins, segir að kosningaþátttakan hafi verið mjög góð í forsetakosningunum í gær. Annað segja fréttastofur. 28.6.2008 09:59
Býður upp líf sitt á eBay Eftir misheppnað hjónaband langar Ástralanum Ian Usher að byrja upp á nýtt. Hann hefur sett líf sitt á uppboð á Ebay. 27.6.2008 21:58
Fangelsaður fyrir að drekka te Fimmtugur bandaríkjamaður lenti í fangelsi í tvo mánuði eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Honum var sleppt í dag þegar það var sannað að kókaín sem fannst í þvagi hans var tilkomið út af bólivísku tei sem móðir hans hafði gefið honum. 27.6.2008 21:38
Tsvangirai: Kosningar eru æfing í fjöldakúgun Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, leitaði í dag aftur á náðir sendráðs Hollands í höfuðborginni Harare eftir að hafa haldið stuttan blaðamannafund vegna forsetakosninganna sem fram fara í Simbabve. 27.6.2008 16:56
ESB vill að fjárfestar fái aðgang að orkulindum Rússa Leiðtogar Evrópusambandsins leggja hart að Rússum að veita fjárfestum aðgang að orkulindum þeirra. Rússar hafa undanfarin ár fært eignarhald á olíulindum sínum aftur til ríkisins. Forseti Rússlands og leiðtogar ESB ræða um orkulindir og öryggismál í Síberíu í dag. 27.6.2008 13:30
Lítil kjörsókn í Simbabve Dræm kosningaþátttaka hefur verið í Simbabve í morgun. Mugabe forseti ákvað að halda kosningar þrátt fyrir að flestir helstu leiðtogar heims hafi fordæmt þær. 27.6.2008 13:09
Fréttir frá landi á niðurleið Eitt af risavöxnum vandamálum Suður-Afríku er hin skelfilega glæpatíðni. Hér eru framin fleiri morð, nauðganir og aðrir ofbeldisglæpir en í nokkru öðru landi i heiminum. Ástandið er slíkt að stjórnvöld eru hætt að gefa tölfræðilegar upplýsingar um glæpatíðni. 27.6.2008 13:08
Sterkur jarðskjálfti á Andaman-eyjum nálægt Indlandi Jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter varð í dag á Andaman-og Nicobareyjum sem eru undan austurströnd Indlands. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna jarðskjálftans. Engar fregnri hafa borist af mann- eða eignatjóni en skelfdir íbúar eyjanna munu hafa hlaupið út úr húsum sínum þegar skjálftinn reið yfir. 27.6.2008 13:05
Tölvunarfræðiprófessor braust inn í samgöngukortakerfi Lundúna Hollenskur tölvunarfræðiprófessor ferðaðist ókeypis um London með almenningssamgöngukerfi borgarinnar alla síðustu viku. 27.6.2008 11:45
Ræða refsiaðgerðir gegn Simbabve í öryggisráði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjamenn muni taka þá hugmynd upp innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að beita frekari refsiaðgerðum gegn stjórnvöldum í Simbabve vegna stjórnmálaástandsins þar. 27.6.2008 10:26
Norður Kórea rífur kjarnorkuverið sitt Norður Kóreumenn eyðileggja kjarnaofn í kjarnorkuveri sínu í dag. Aðgerðinni er ætlað að sýna á táknrænan hátt vilja ráðamanna í Norður Kóreu til að láta af frekari kjarnorkuvopnaframleiðslu í landinu. Í gær afhentu stjórnvöld upplýsingar um kjarnorkuáætlun sína til Kínverskra stjórnvalda og í staðinn hefur George Bush Bandaríkjaforseti samþykkt að draga úr refsiaðgerðum gegn landinu og taka Norður Kóreu af lista yfir þau lönd sem styðja við hryðjuverk. 27.6.2008 09:13
Svíar gifta sig í bílnum sínum Þjóðkirkjan í Svíþjóð ætlar á brydda upp á nýbreytni á bíladögum sem haldnir verða í Vesteras á næstunni. Þar verður boðið upp á giftingar í gegnum bílalúgu og er reiknað með að hver athöfn taki rétt um sjö mínútur. Kirkjan gerir þetta í viðleitni sinni til að gera hjíonabandið aðgengilegra fyrir almenning, að því er segir í tilkyunningu frá þjóðkirkjunni. 27.6.2008 08:43
Ætlaði að drepa sig - drap ellefu í staðinn og lifði af Maður í Kalíforníu í Bandaríkjunum hefur verið fundinn sekur um að myrða ellefu manns þegar tvær lestir skullu saman árið 2005. Juan Alvarez, 29 ára, hafði ætlað að fremja sjálfsmorð og lagði því jeppanum sínum á miðja lestarteinana í Glendale í Los Angeles. Þegar á hólminn var komið snérist honum hins vegar hugur. 27.6.2008 08:12
Obama býðst til að grynnka á skuldum Hillary Keppinautarnir fyrrverandi Hillary Clinton og Barack Obama héldu í gærkvöldi sameiginlegan fjáröflunarkvöldverð í Washington sem ætlað var að berja í brestina og auka á samheldnina inna demókrataflokksins en þar hafa menn borist á banaspjót undanfarna mánuði í hörðustu forskosningum síðustu áratuga. 27.6.2008 08:07
Mars gæti hugsanlega fóstrað frumstætt líf Fyrsta jarðvegssýnið sem bandaríska könnunarfarið Fönix tók úr yfirborði rauða risans Mars hefur leitt í ljós að nálægt norðurpól plánetunnar er efsta lag hennar ekkert ósvipað því sem búast mætti við að finna í húsagörðum hér á jörðinni. Vekur þessi uppgötvun vonir vísindamanna um að á sléttum Mars væru hugsanlega aðstæður sem fóstrað gætu frumstætt líf. 27.6.2008 08:05
Skattpíndir Svíar Svíar halda því fram að þeir borgi hæstu skatta innan Evrópusambandsins og blaðamaður Aftonbladet tekur saman nokkur dæmi um hvað sænskir skattborgarar taka til bragðs þegar kemur að því að öðlast undanþágur frá löngum fingrum ríkissjóðs. 27.6.2008 08:01
Danskir stjórnendur óánægðari en aðrir Stjórnendur í dönskum fyrirtækjum eru þeir óánægðustu á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem náði til 2.500 stjórnenda í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. 27.6.2008 07:59
Kosið í Zimbabve í dag - Mugabe einn í framboði Önnur umferð í forsetakosningunum í Zimbabve fer fram í dag. Róbert Mugabe er einn í framboði. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar og keppinautur Mugave um embættið, Morgan Tsvangirai, dró sig í hlé á dögunum vegna ofbeldisöldunnar sem verið hefur í landinu undanfarið gegn andstæðingum stjórnarinnar. Hann hefur kvatt kjósendur sína til að taka þátt í kosningunum til þess að koma í veg fyrir frekari ofbeldisverk af hálfu stuðningsmanna Mugabes. 27.6.2008 06:54
Tólf ára stelpa stungin eftir MySpace rifrildi Tólf ára stúlka var stungin með hnífi í New Jersey eftir að MySpace deildur enduðu með skelfingu. Átjan ára gömul frænka stúlkunnar réðst á hana eftir að sú yngri eyddi athugasemd út af síðunni hennar. 26.6.2008 22:29