Fleiri fréttir

Reynt að kortleggja DNA-kóða súkkulaðis

Mars-súkkulaðifyrirtækið hefur hafist handa á rannsókn til þess að bæta súkkulaðiframleiðslu sem gengur út á að kortleggja erfðarmengi kakó-plöntunnar. Með því að skilja DNA-kóða plöntunnar gæti uppskera kakós verið ríkulegri þar sem hægt væri að finna leið til að mynda mótstöðu gegn pestum og vatnsskorti sem herja á plöntuna.

Refsiaðgerðum gegn N-Kóreu aflétt

Bandarísk stjórnvöld ætla að taka Norður-Kóreu af lista sínum yfir ríki sem styðja hryðjuverkasamtök. Norður-Kóreumenn hafa afhent viðsemjendum ítarlega skýrslu um kjarnorkuáætlun sína.

Vill skilgreina afleiðingar alnæmis sem hamfarir

Alþjóða Rauði krossinn telur að skilgreina beri afleiðingar alnæmis víða í Afríku og Asíu sem hamfarir og því beri að bregðast við alnæmisfaraldrinum eins og náttúruhamförum.

Fann gullin kaleik á hafsbotni

Fjársjóðir finnast enn! Kafarinn og fjársjóðsleitarmaðurinn Michael DeMar fann kaleik úr gulli grafinn á hafsbotni nærri Flórída. Kaleikurinn er ómetanlegur og er talinn vera úr skipinu spænsku galeiðunni Santa Margarita sem sökk í stormi árið 1622.

Ísraelski lögreglumaðurinn framdi ekki sjálfsmorð samkvæmt fjölskyldu hans

Fjölskylda hins ísraelska lögreglumanns, sem skaut sig við kveðjuathöfn franska forsetans Nicolas Sarkozy í Ísrael í gær, segir ekki koma til greina að hann hafi framið sjálfsmorð. Raid Asaad Raid Ghanan hafi verið hamingjusamur og góðhjartaður sem hafði enga ástæðu til þess að fremja sjálfsmorð.

Bætur vegna Exxon Valdez slyssins lækkaðar

Hæstiréttur Bandaríkjanna lækki í dag þær bætur sem olíufélagið Exxon Mobil þarf að greiða vegna olíuslyss sem varð undan ströndum Alska árið 1989 þegar risaolíuflutningaskipið Exxoon Valdez strandaði.

Tsvangirai vill samningaviðræður

Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn og stjórnarandstöðuleiðtoginn Morgan Tsvangirai ávarpaði fréttamannafund í dag og kallaði eftir pólitískum samningaviðræðum svo Simbabve fengi að hlú að sárum sínum.

Níu hundruð skógareldar í Kaliforníu

Slökkviliðsmenn í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum berjast nú við nærri níu hundruð skógarelda sem kviknuðu í þrumuveðri um síðustu helgi.

Afríkuleiðtogar funda um ástandið í Simbabve

Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku koma saman í Svasílandi í dag til að ræða ástandið í Simbabve. Forsætisráðherra Kenía varar við þjóðarmorðum þar, svipuðum þeim sem framin voru í Rúanda fyrir fjórtán árum, ef alþjóðasamfélagið grípi ekki þegar í taumana.

Ísraelar loka landamærum að Gaza

Ísraelar lokuðu í morgun landamærum sínum að Gaza-svæðinu. Það er svar við flugskeytaárás herskárra Palestínumanna þaðan á Suður-Ísrael í gær. Ísraelsmenn segja það gróft brot á vopnahlésskilmálum.

Hilton byggir 300 ný hótel í Asíu

Hilton-hótelkeðjan hefur uppi áform um að byggja 300 ný hótel í Asíu á næstu tíu árum. Fyrir á Hilton 47 hótel í álfunni.

Fjöldi talibana féll í loftárásum

Hersveitir á vegum afganskra stjórnvalda og bandamanna í Afganistan felldu í nótt 35 talibana eftir að hópur talibana gerði árás á tvo bæi í austurhluta landsins, nærri landamærunum að Pakistan. Frá þessu greindi lögreglustjóri héraðsins í morgun.

Rottum fjölgar í dönsku þéttbýli

Rottum hefur fjölgað mjög á þéttbýlissvæðum Danmerkur eftir því sem segir í tilkynningu frá sambandi sveitarfélaga í Danmörku.

Obama með töluvert forskot á McCain

Forsetaframbjóðandi Demókrata, Barack Obama, hefur töluvert forskot á keppinaut sinn, repúblikanann John McCain, við upphaf kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum.

Ungverskri kirkjuklukku stolið

Lögreglan í Ungverjalandi leitar nú að þjófum sem stálu 300 kg þungri koparklukku úr turni kirkjunnar í bænum Kadusnay.

Vopnahlé í Gaza vanvirt

Ísraelska lögreglan segir að Palestínumenn hafi skotið í það minnsta tveimur eldflaugum á ísraelska bæinn Sderot í dag. Ekkert manntjón hefur verið tilkynnt en ekki er lengra en í síðustu viku að samið var um vopnahlé á svæðinu.

Þýskir ferðamenn í haldi sómalskra sjóræningja

Sómalskir sjóræningjar hafa enn og aftur látið til skarar skríða, í þetta sinn gegn fjórum þýskum ferðamönnum sem voru á bát fyrir utan sjálfstjórnarsvæðið Puntland við Norður-Sómalíu.

Konur í Írak þjálfaðar til að finna sjálfsmorðssprengjur

Bandaríkjaher í Írak þjálfar nú konur til þess að finna sjálfsmorðssprengjur á öðrum konum. Aukning hefur verið á því að konur sprengi sig upp í Írak þar sem menningarvenjur gera þeim kleift að smjúga oft í gegnum öryggishlið.

Fögnuðu Jónsmessu með vatnsgusum

Í San Juan, úthverfi Manilaborgar á Filippseyjum, var haldið upp á Jónsmessuna í morgun með hefðbundnum hætti sem felur í sér að nær allir sem að koma verða rennblautir.

Hernaður talibana líklega kostaður með ópíumskattlagningu

Sameinuðu þjóðirnar telja að talibanar hafi grætt 100 milljónir bandaríkjadala með því að leggja 10 prósenta skatt á afghanska bændur sem rækta valmúa fyrir ópíumiðnaðinn. Líklegt er að þeir fjármunir séu notaðir til að kosta hernaðaraðgerðir uppreisnarmannanna.

Veitingamaður í Beirút býður upp á vopnarétti

Veitingahúsaeigandi í hinni stríðshrjáðu borg Beirut í Líbanon hefur fundið upp á nýstárlegri leið til að auka viðskiptin hjá sér. Allir réttirnir á matseðli staðarins bera nöfn þekktra vopna og stríðstóla.

Vopnasalar smygla Viagra inn til Gaza

Vopnasmyglarar á Gaza-svæðinu hafa nú snúið sér að smygli á öðrum varningi. Ástæðan er einfaldlega sú að búið er að smygla svo miklu af vopnum inn á svæðið að engir kaupendur að þeim finnast lengur.

Ekkert lífsmark í Filippseyjaferjunni

Kafarar hafa ekki fundið nein lífsmerki um borð í ferjunni sem hvolfdi við Filippseyjar um helgina. Einungis 38 manns komust lífs af úr slysinu. Fólkið var í sjónum í rúman sólarhring.

Lítt þekktur Tyrki mesti hugsuður heims

Lítt þekktur tyrkneskur stjórnmálamaður og rithöfundur er mesti hugsuður heimsins um þessar mundir samkvæmt könnun sem breska tímaritið Prospect og hið bandaríska Foreign Policy stóðu fyrir á Netinu fyrir skemmstu.

Sjá næstu 50 fréttir