Erlent

Sá mann með Madeleine litlu

Jane Tanner
Jane Tanner
Jane Tanner, vinkona McCann hjónanna, sagði frá því í dag að hún hefði séð mann fara á brott með barn frá hótelinu sem hjónin gistu á í Portúgal í sumar.

Í viðtali sem birtist á mánudaginn í sjónvarpi á Bretlandi segir Tanner að hún sé þess fullviss að Madeleine litlu hafi verið rænt.

Tanner var í hópi vina hjónanna sem snæddu á veitingastað kvöldið sem Madeleine hvarf. Hún hefur nú sagt frá því að hún hafi séð mann með barn yfirgefa hótelið. Ástæða þess að hún kemur fram nú er vegna þess að hún hefur meðal annars verið kölluð lygari í fjölmiðlum.

Einnig lágu McCann hjónin undir grun í september. Hún hefur lýst því þegar vinur hennar kom upp á herbergi, bankaði uppá og sagði Madeleine horfna.

"Síðan sá ég Kate og Fionu hlaupandi og kallandi á Maddie. Síðan sagði Kate við mig, Jane Madeleine er horfin, Madeleine er horfin"

"Þetta er það fyrsta sem ég heyrði."

Í síðasta mánuði létu McCann hjónin teikna mynd af manni sem sérfræðingar FBI gerðu eftir lýsingar Tanner.

Lögreglan hefur gefið það út að hún vilji tala við alla þá sem voru með McCann hjónunum kvöldið sem Madeleine litla hvarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×