Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sex ára drengur klæddur í sjálfsmorðssprengjuvesti Talibanar fengu Jamal Gul, sex ára afganskan dreng til að bera sjálfsmorðssprengju. Þeir settu hann í sprengjuvesti og sögðu honum að ef hann ýtti á takka myndi vestið sprauta blómum. "Þegar þeir settu vestið á mig vissi ég fyrst ekki hvað ég ætti að halda en svo fann ég fyrir sprengjunni," sagði Jamal við fréttamenn AP fréttastofunnar. 26.6.2007 11:30
Sven-Göran til Manchester City Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hefur tekið við framkvæmdastjórastöðunni hjá Manchester City. Fréttastofan Sky News skýrði frá þessu fyrir stundu. Eriksson, sem er 59 ára Svíi, hefur verið atvinnulaus eftir Heimsmeistarakeppnina sem fór fram síðasta sumar. Manchester City er við að taka yfirtökutilboði taílenska auðkýfingsins Thaksin Shinawatra. 26.6.2007 11:26
Dæmdur til dauða í Kína Kínverskur réttarstóll dæmdi í morgun mann frá Taívan, Chung Wan-yi til dauða. Maðurinn var dæmdur fyrir að stjórna eiturlyfjahring í Kína. Í gær var annar taívanskur maður líflátinn fyrir svipaðar sakir. 26.6.2007 11:25
Fellibylur í Pakistan Fellibylur reið yfir strendur Pakistan í morgun, aðeins einum degi eftir að flóð banaði yfir 200 manns í Karachi borg.Yfirvöld í Pakistan hafa flutt þúsundir manna á brott af lágum landsvæðum. 26.6.2007 10:44
Bílaeltingaleikur í Hollandi Ökumaður í Hollandi sem var undir áhrifum kókaíns brást illa við þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Í kjölfarið hófst mikill eltingaleikur sem fjöldi lögreglubíla og þyrla tóku þátt í. 26.6.2007 10:41
Evrópusambandið ræðir við Tyrki Evrópusambandið stækkaði í dag viðræðugrundvöll við Tyrkland þegar hafist var handa að ræða um hagtölur og fjármálastjórn í landinu. Enn var þó horft fram hjá tveimur mikilvægustu punktunum í aðildaviðræðunum, efnahags- og gjaldmiðilsmálum. 26.6.2007 10:40
Sjö farast í kolanámu í Rússlandi Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í metansprengingu í kolanámu í Rússlandi í gær. Kolanáman er í eigu stálsmiðjunni Severstal í Vorkuta. Þriggja manna er enn saknað og er þeirra leitað. 26.6.2007 10:19
Morðingi Önnu Lindh kærir illa meðferð Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur kært lækni og hjúkrunarkonu í Kumla-fangelsinu í Svíþjóð fyrir að taka ekki mark á kvörtunum sínum. Hann fékk blóðtappa í lungun í byrjun ársins. 26.6.2007 10:15
Skaut fangavörð til bana og lagði á flótta Fangi í Utah ríki í Bandaríkjunum náði byssu af fangaverði sem var að gæta hans og skaut hann til bana í dag. Lögregla yfirbugaði manninnn nokkru síðar á veitingastað í nágrenninu eftir eltingaleik. 25.6.2007 23:31
Gaddafi hvetur til stofnunar Bandaríkja Afríku Forseti Líbíu, Muammar Gaddafi hefur heitið því að berjast fyrir því að sameina ríki Afríku undir einni ríkisstjórn. Í ræðu sem hann hélt í Gíneu í dag sagði hann að sjálfstæð ríki í álfunni ættu sér enga framtíð, eina lausnin fælist í sameinaðri Afríku. 25.6.2007 22:28
Tveir látnir í vatnavöxtum á Bretlandi Tveir eru látnir eftir mikil flóð í kjölfar helliregns sem gengið hafa yfir Bretlandseyjar í dag. Björgunarsveitarmenn fengu ekkert að gert þegar maður drukknaði en fótleggur hans festist í niðurfalli. Þá hefur verið staðfest að þrettán ára gamall drengur hafi drukknað þegar áin Sheaf í Sheffield flæddi yfir bakka sína. 25.6.2007 22:06
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði gegn málfrelsi Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í dag gegn málfrelsi námsmanna þegar nemandi tapaði máli sínu fyrir réttinum. Nemandinn hafði veifað fána sem á stóð „Bong hits 4 Jesus“, sem útleggja mætti á þá leið: „Fáum okkur í haus fyrir Jesús“. 25.6.2007 21:05
Sarkozy skorar á alþjóðasamfélagið Forseti Frakklands skorar á alþjóðasamfélagið að sýna Súdönum hörku taki þeir ekki þátt í samvinnu um endalok átakanna í Darfur. Hann segir þögnina um stríðsglæpi í Darfur viðhalda átökum á svæðinu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir umheiminn hafa brugðist íbúum Darfurs. 25.6.2007 19:25
Hrapaði um tvær hæðir við björgun slökkviliðs Kínverskum manni var naumlega bjargað frá bruna á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Shanghaí á laugardag. Björgunarsveit og nágrannar fylgdust með þegar slökkviliðsmaður klifraði upp stiga og afhenti manninum öryggisbelti sem hann festi í handrið. Hann féll síðan um tvær hæðir en öryggislínan bjargaði honum frá því að hrapa til jarðar. 25.6.2007 19:15
Fatahreinsun sýknuð af þriggja milljarða skaðabótum Bandarískur dómari tapaði í dag máli sem hann höfðaði gegn eigendum þvottahúss í Washington vegna buxna sem týndust í hreinsun en komu síðar í leitirnar. Fatahreinsunin var sýknuð af rúmlega þriggja milljarða króna skaðabótakröfu. Ákæran var byggð á slagorði hreinsunarinnar sem sagðist tryggja ánægju viðskiptavina. 25.6.2007 18:59
Stjórn Alþóðabankans samþykkir tilnefningu Zoellicks Robert Zoellick hefur fengið blessun stjórnar Alþjóðabankans og mun hann því taka við af Paul Wolfowitz sem forseti bankans. Zoellick var tilnefndur af George Bush Bandaríkjaforseta og hann mun setjast á forsetastól 30. júní næstkomandi. 25.6.2007 18:09
Dularfullur hryggur rannsakaður Bandarískir vísindamenn leggja á næstu dögum af stað í 40 daga rannsóknarleiðangur norður á boginn að hinum leyndardómsfulla Gakkel-hrygg. Hryggurinn er staðsettur neðan sjávar milli Grænlands og Síberíu, þar sem Norður-Ameríku-, og Evrópuflekarnir skiljast að. Svæðið vakti athygli eftir að kunnugt varð um mikla uppsprettu heits vatns þar. Margir telja að á þessum afskektu slóðum sé auðugt og sérstakt lífríki að finna sem þróast hafi einangrað umhverfis hverina í aldanna rás. 25.6.2007 17:22
Skógareldar í Kaliforníu Miklir skógareldar í Kaliforníu hafa eyðilagt meira en 200 heimili og neytt um þúsund manns til að yfirgefa heimili sín. 460 slökkviliðsmenn eru að berjast við eldinn og búist er við sú tala muni tvöfaldast fyrir kvöldið. 25.6.2007 16:37
Fyrsta búrfæðing djöflaskötunnar Á sædýrasafni í Japan er fæðingu djöflaskötu ákaft fagnað en þetta er í fyrsta skipti sem þessi dýrategund fjölgar sér búri. Fæðingin gekk að óskum hjá hinni 4,2 metra löngu móður og litli djöflaskötuunginn byrjaði fljótlega að synda um búrið og leika sér. 25.6.2007 16:35
Tekinn af lífi á morgun þrátt fyrir banvænan sjúkdóm Jimmy Dale Bland, 49 ára karlmaður, verður líflátinn í Oklahoma á morgun með banvænni sprautu. Bland var dæmdur til dauða árið 1996 fyrir að skjóta Doyle Windle Rains í hnakkann. Lögfræðingur Bland hefur reynt að fá aftökunni aflýst vegna þess að Bland þjáist af krabbameini sem mun draga hann til dauða innan nokkurra mánuða. 25.6.2007 15:53
Þurfa ekki að greiða 3,3 milljarða vegna glataðra buxna Dómari í Washington í Bandaríkjunum sýknaði í dag eigendur fatahreinsunar af kröfu dómara í borginni um 3,3 milljarða króna skaðabætur vegna buxna sem týndust í hreinsun. 25.6.2007 15:49
Vesturlandabúar lögleg skotmörk „Málaliðar munu halda áfram að ráðast á vesturlandabúa á götum Indónesíu til að verja íslamska trú,“ sagði hryðjuverkamaðurinn Abu Dujana við CNN. Hann segir að vesturlandabúar séu lögleg skotmörk. 25.6.2007 15:19
Ákærður fyrir morð á barnshafandi kærustu sinni Bandarískur lögreglumaður, Bobby Cutts, verður færður fyrir rétt í dag og formlega ákærður um að hafa myrt barnshafandi kærustu sína. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Kærastan, Jesse Davis, fannst látin á laugardag en ýmislegt þykir benda til að hún hafi verið myrt á heimili sínu, þar sem tveggja ára sonur hennar og Cutts fannst yfirgefinn 15. júní. 25.6.2007 14:52
Dauða seli rekur á land í Danmörku Fjöldi selkópa hefur rekið á land við Anholt eyju í Danmörku. 41 kópur hefur fundist á svæðinu. Ekki er vitað með vissu hvaða veira það er sem er að drepa selina. Skógar- og náttúrustofnun í Danmörku er að rannsaka málið. 25.6.2007 14:23
Vilja að Bandaríkin framselji 13 leyniþjónustumenn Saksóknarar í Þýskalandi hafa óskað eftir því við Bandaríkin að 13 leyniþjónustumenn C.I.A verði framseldir til Þýskalands. Saksóknarnir halda því fram að leyniþjónustumennirnir hafi átt þát í að ræna þýskum ríkisborgara árið 2003. 25.6.2007 13:59
Al-Zawhari lýsir stuðningi við Hamas Ayman al-Zawhari, einn leiðtoga Al Qaeda og hægri hönd Osama Bin-Laden, ávarpaði múslima um allan heim á upptöku sem gengur um á netinu. Al-Zawhari lýsti yfir stuðningi við Hamas og óskaði eftir því að múslimar um allan heim myndu styðja Hamas með vopnum, peningum og ásrásum á bandaríkjamenn og Ísrael. 25.6.2007 13:42
Heilbrigðisyfirvöld í Kína setja reglur um líffæraígræðslu Heilbrigðisyfirvöld í Peking hafa veitt 13 sjúkrahúsum leyfi til að stunda líffæraígræðslur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir ólögleg viðskipti líffæra. Reglugerð sem bannar viðskipti með líffæri í Kína tók gildi 1. maí síðastliðinn. 25.6.2007 13:13
Fundu eftirlýstan stríðsglæpamann með gagnabanka Interpol Yfirvöld í Frakklandi handtóku fyrir skemmstu karlmann frá Rúanda, Issac Kamali, sem eftirlýstur hefur verið fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. 25.6.2007 13:00
Flugvél hrapar í Kambódíu Farþegaflugvél í Kambódíu hrapaði í dag. Að minnsta kosti 20 farþegar voru í fluvélinni og eru þeir taldnir látnir. 13 farþeganna voru frá S-Kóreu. Flugvélin, sem var að gerðinni AN-24, tilheyrði litlu flugfélagi sem heitir PMT Air. 25.6.2007 12:10
Shalit segist þurfa læknisaðstoð Gilad Shalit, hermaðurinn sem Hamas rændi fyrir ári síðan, sagði á hljóðupptöku sem að spiluð var í dag að hann þyrfti á læknihjálp að halda. Þá hvatti hann til þess að Ísraelar gæfu palestínskum föngum frelsi svo að hann kæmist undir læknishendur sem fyrst. 25.6.2007 11:59
Charles Taylor mætti ekki fyrir stríðsglæpadómstól Fyrrverandi forseti Líberíu, Charles Taylor, mætti ekki fyrir stríðsglæpadómstól í Haag í dag. Hann segir ástæðuna vera að hann vantar fjármagn til að ráða hæft lögræðingateymi. Réttarhöldunum hefur verið seinkað þar til í næstu viku. 25.6.2007 11:39
Blökkumönnum fækkar í bandaríska hernum Fjöldi blökkumanna sem skráir sig í bandaríska herinn hefur minnkað um þriðjung síðan stríðin í Írak og Afghanistan hófust. Samkvæmt gögnum sem að fjármálablað í Bandaríkjunum hefur sankað að sér kemur í ljós að fækkunin á við um allar fjórar herþjónustur landsins. Fækkunin er jafnvel enn dramatískari ef að varaliðið og þjóðvarðliðið er talið með. 25.6.2007 11:18
Hamas lofar hljóðupptöku af týnda hermanninum Talsmaður vopnaðs arms Hamas sagði í morgun að samtökin myndu gefa frá sér hljóðupptöku með ísraelska hermanninum sem vígamenn tóku í gíslingu fyrir ári síðan. Lítið sem ekkert hefur frést af hermanninum, sem heitir Gilad Shalit, síðan honum var rænt. 25.6.2007 11:11
Íranar í samkeppni við BBC og CNN Íranar ætla sér að setja á fót fréttastöð til þess að keppast við BBC og CNN. Markmið hennar verður að hjálpa umheiminum að komast undan ægishjálmi vestrænna fjölmiðla. Stöðin mun heita PressTV og fer í loftið þann 2. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram á íranska fréttavefnum FARS. 25.6.2007 10:37
Biskupakirkjan kýs gegn hjónabandi samkynhneigðra Biskupakirkjan í Kanada hefur kosið gegn því að samkynhneigðir fái að gifta sig innan kirkjunnar. Hjónaband samkynhneigðra er þó löglegt í Kanada. Þeir sem voru á móti sögðu að kirkjan ætti ekki að aðhyllast samkynhneigð. 25.6.2007 10:32
Lífstíðarfangelsi fyrir njósnir Egypskur kjarneðlisfræðingur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir njósnir. Maðurinn, Mohamed Sayed Saber Ali, var dæmdur fyrir að afhenda Ísraelum skjöl sem hann rændi úr egypskri kjarnorkustöð þar sem hann vann. Hann fékk rúmar milljón krónur fyrir vikið. Ali neitaði sakargiftum. 25.6.2007 10:11
Johnston með sprengjubelti um sig miðjan Ismail Haniya, leiðtogi Hamas, segir að mannræningjarnir sem halda breska blaðamanninum Alan Johnston hafi gert nýtt myndband þar sem Johnston sést íklæddur belti sem er hlaðið sprengiefnum. Myndbandið hefur enn ekki verið gert opinbert. 24.6.2007 20:27
Varnarmálaráðherra Spánar segir árásina hafa verið skipulagða Fimm friðargæsluliðar biðu bana í dag þegar sprengja sprakk við bíl þeirra í suðurhluta Líbanons í dag. Þrír hinna látnu voru frá Kólombíu en tveir frá Spáni. Þrír spánverjar slösuðust í sprengingunni. Enginn hefur lýst ábyrgð árásarinnar á hendur sér en varnarmálaráðherra Spánar segir að um skipulagða árás hafi verið að ræða. 24.6.2007 20:14
Brown lofar breytingum á Bretlandi Gordon Brown tók við embætti leiðtoga Verkamannaflokksins á fundi í Manchester í dag. Hann lofar breytingum í Bretlandi, bættu heilbrigðiskerfi og ætlar að berjast gegn fátækt. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra var á fundinum og sagði spennuna hafa verið gífurlega áður en tilkynnt var að Harriet Harmann dómsmálaráðherra yrði næsti varaformaður. 24.6.2007 16:56
Almennir borgarar í Afganistan verða illa úti í hernaðarátökunum Hermenn á vegum Bandaríkjahers og Atlantshafsbandalagsins hafa drepið í það minnsta 236 almenna borgara í Afganistan það sem af er ári. Þetta kemur fram hjá fréttastofu AP. Á sama tíma er talið að uppreisnarmenn í landinu hafi drepið 178 almenna borgara. 24.6.2007 15:53
Tala fallinna friðargæsluliða hækkar Nú er komið í ljós að fjórir spænskur friðargæsluliðar létu lífið þegar farartæki þeirra óku á jarðsprengju í suðurhluta Líbanons í dag. Sex eru slasaðir. Brynvarinn bíll þeirra brann til ösku og annar skemmdist mikið í sprengingunni. Sprengjan sprakk nálægt bænum Khiyam. 24.6.2007 15:20
Gordon Brown orðinn leiðtogi Verkamannaflokksins Gordon Brown tók nú á þriðja tímanum við embætti leiðtoga Verkamannaflokksins á fundi sem enn stendur yfir í Manchester. Harriet Harman var kosin varaformaður flokksins, en sex sóttust eftir embættinu. Brown sagðist vilja réttlæta hvern dag í embættinu sem flokkurinnn hefur treyst honum fyrir. 24.6.2007 14:47
Einn látinn á Glastonbury tónlistarhátíðinni Breskur karlmaður lést vegna ofneyslu eiturlyfja á Glastonbury tónlistarátíðinni í gær. Þrátt fyrir dauðsfallið segir lögregla minna um glæpi á hátíðinni í ár en í fyrra þrátt fyrir að gestum hafi fjölgað um 30 þúsund. 24.6.2007 14:39
Dauðir svanir voru sýktir af H5N1 Tveir dauðir svanir í Þýskalandi reyndust vera sýktir af H5N1 abrigði fuglaflensunnar. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í dag. Rannsóknarniðurstöður hafa staðfest að um H5N1 er að ræða en fuglarnir fundust í Bæjaralandi. 24.6.2007 13:51
Brown ætlar að leyfa mótmæli við þinghúsið Gordon Brown, sem tekur við embætti forsætisráðherra Bretlands á miðvikudag, ætlar að leyfa mótmælaaðgerðir fyrir framan þinghúsið í London. Strangar reglur eru í gildi varðandi mótmælaðgerðir fyrir framan bygginguna en forsætisráðherran tilvonandi ætlar að fella þær úr gildi. 24.6.2007 12:11