Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blair hitti Benedikt páfa Tony Blair forsætisráðherra Breta hitti Benedikt páfa í Vatikaninu í dag. Fundurinn ýtir undir sögusagnir þess efnis að forsætisráðherrann fyrirhugi að gerast Kaþólikki. 23.6.2007 14:43
Bandaríkjamenn íhuga að loka Guantanamo Bandaríkjamenn vinna nú að byggingu fangelsis í Afghanistan í samvinnu við yfirvöld þar. Fangelsið mun taka við föngum frá Guantanamo en Bandaríkjamenn segja fangelsið ekki koma í stað fangabúðanna á Kúbu. Hvíta húsið hefur hug á að loka Guantanamo og flytja grunaða hryðjuverkamenn annað. 23.6.2007 12:14
90 hafa látist í Afghanistan síðustu daga Meira en 90 manns hafa látist í aðgerðum Nató og Bandaríkjamanna í Afghanistan síðustu tíu daga. Forseti landsins fordæmir árásirnar og hvetur til samráðs svo koma megi í veg fyrir að aðgerðirnar kosti almenna borgara lífið.Um 60 talibanskir hermenn létust auk um 30 almennra borgarara í stærstu aðgerðum gegn talíbönum í Pakistan síðustu sex mánuði. 23.6.2007 10:05
Forseti Afghanistan fordæmir árásir Nató og Bandaríkjamanna Meira en 90 óbreyttir borgarar hafa látist í Afghanistan í aðgerðum Nató og Bandaríkjamanna síðustu daga. Forseti landsins fordæmir aðferðir þeirra og segir þá stuðla að dauða almennings. Fleiri óbreyttir borgarar hafa látist í Afghanistan á þessu ári af völdum bandalagsins, en af völdum uppeisnarmanna. 23.6.2007 10:01
Leiðtogar ESB ánægðir með stjórnarsáttmála Leiðtogar Evrópusambandsins náðu samkomulagi undir morgun um stjórnarsáttmála fyrir aðildarlöndin 27. Málamiðlun var gerð um að fresta breytingu á kosningavægi landanna miðað við höfðatölu til ársins 2014. Breytingin mun draga töluvert úr vægi Pólverja og það voru þeir afar ósáttir við. 23.6.2007 09:55
Vilja loka Guantanamo Bandarísk stjórnvöld leita nú leiða til að loka Guantanamo-fangelsinu. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld í Washington að loka því en það þykir vera ljótur blettur á mannréttindamálum í Bandaríkjunum. 22.6.2007 23:25
Pressa sett á Pólverja Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur hótað því að sniðganga Pólland í viðræðum um nýjan ESB-sáttmála. Pólverjar hafa lýst andstöðu sinni við þau drög sem liggja að sáttmálanum en hann á að koma í staðinn fyrir stjórnarskrá sambandsins. 22.6.2007 21:21
Fyrrverandi starfsfólk Eiffel turnsins sektað Fimmtán fyrrverandi starfsmenn Eiffel turnsins í París hafa verið sektaðir eftir að hafa dregið að sér fé af miðasölu. Tólf konur og þrír karlar drógu að sér hundruð þúsundir evra á árunum 1996 til 2002 eftir að þeir komust að veikleika í tölvukerfi miðasölunnar. Þeim er gert að greiða allt frá 2,000 og upp í 10.000 evrur í sektir. 22.6.2007 21:10
Atlantis lent í Kaliforníu Geimferjan Atlantis er nú lent heilu á höldnu á Edwards Air Force Base í Kaleforníu. Hún lenti klukkan 15:49 að staðartíma. Hætt var við lendingu í Flórída í dag vegna slæmra veðurskilyrða. Geimferjan hefur verið á ferð um sporbaug jarðar síðan áttunda júní og var með nægar eldsneytisbirgðar fram á sunnudag. 22.6.2007 20:19
50 dagar frá hvarfi Madeleine Það eru fimmtíu dagar frá því Madeleine McCann var rænt úr íbúð í Praia da Luz í Portúgal. Í tilefni af því var grænum og gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum til að vekja athygli á leitinni að stúlkunni. Og Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja. 22.6.2007 18:53
Óheppilegur dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan „Dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan var óheppilegur og bandalagið er að rannsaka málið," segir Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO. Hann kennir Talíbönum um hvernig fór, þar sem þeir hafi notað fólkið sem mannlegan skjöld. 22.6.2007 15:56
Reynt að lenda Atlantis Geimferðastofnun Bandaríkjanna ætlar að reyna til þrautar að lenda geimferjunni Atlantis í dag, þrátt fyrir slæma veðurspá. Ferjan hefur verið í tvær vikur á sporbaug um jörðu en ferð hennar tafðist vegna bilana um borð í alþjóðlegu geimstöðinni. 22.6.2007 15:45
Mannréttindasinni laminn af samföngum sínum í Kína Mannréttindasamtökin Amnesty International segja kínverskan mannréttindasinna ítrekað verið laminn af samföngum sínum að beiðni fangavarða. Chen Guangcheng er laminn fyrir að standa á réttindum sínum samkvæmt samtökunum. 22.6.2007 15:30
Barnsfaðirinn grunaður um aðild að hvarfi Davis Móðir hinnar ófrísku Jessie Davis, sem týnd hefur verið síðan 13 júní, telur að barnsfaðir Davis eigi sök á hvarfi hennar. Hún segir þó að hún vilji ekki fullyrða að barnsfaðirinn, Bobby Cutts, sé viðriðinn málið. 22.6.2007 15:05
Vara við hryðjuverkaárásum í Þýskalandi Þýsk yfirvöld vöruðu í dag við hættu á sjálfsmorðsárásum í landinu og sögðu einnig hættu á sams konar árásum í Bandaríkjunum og 11. sepetember 2001. 22.6.2007 14:06
Túristum til Sri Lanka fækkar Túristum sem ferðast til Sri Lanka hefur fækkað um 40% síðan í mái á síðasta ári. Fyrstu fimm mánuði þessa árs eru aðeins 23,4% búnir að ferðast til eyjunnar af þeim fjölda sem hafði ferðast til Sri Lanka fyrstu fimm mánuðina á síðasta ári. Hótel hafa ekki undan því að svara símtölum fólks sem eru að afpanta herbergi. 22.6.2007 13:12
Fimmtíu dagar liðnir frá hvarfi Madeleine Í dag eru fimmtíu dagar síðan Madeleine McCann var rænt úr sumarleyfisíbúð í Portúgal. Í tilefni af því var gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum klukkan tíu í morgun. 22.6.2007 12:26
Fuglaflensa í Tógó Rannsóknarniðurstöður staðfesta að H5N1 afbrigði fuglaflensunnar hafi fundist á alifuglabúgarði í Tógó. Eftir að óeðlilega margir fuglar drápust á búgarðinum, voru send sýni á rannsóknarstofu sem staðfestu fuglaflensuna. H5N1 er hættulegasta afbrigði flensunnar. 22.6.2007 11:33
Pólverjar segja lausn ekki í sjónmáli Pólverjar sögðu í dag að enginn árangur hefði náðst á fundum Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem er í forsæti Evrópusambandsins um þessar mundir, og Lech Kaczynski, forseta Póllands. Póllandi hefur þegar verið boðin málamiðlun. 22.6.2007 10:17
Skólastelpu í Bretlandi meinað að bera trúartákn Skólastelpa í Bretlandi ætlar að áfrýja til hæstaréttar til að snúa við banni sem hún fékk fyrir að ganga með skírlífshring í skólanum. Lydia Playfoot, sem er 16 ára, segir að hringurinn sýni fram á að hún hafi tekið þá ákvörðun að bíða með kynlíf þar til hún giftir sig. Hún segir að hringurinn sé trúartákn og ætti því að fá undanþágu frá reglum skólans sem banna skartgripi. 22.6.2007 10:17
Bush tekur á móti forseta Víetnam í sögulegri heimsókn Forseti Bandaríkjanna, George Bush, tekur á móti forseta Víetnam í sögulegri heimsókn. Forseti Víetnam, Nguyen Minh Triet, er fyrsti leiðtogi landsins til að heimsækja Bandaríkin síðan Víetnamstríðinu lauk árið 1975. Heimsóknin er sögð vera stórt skref fyrir bæði lönd til að jafna sig á sáraukafullri fortíð. 22.6.2007 09:54
Gates lofar bót á heilbrigðisþjónustu hersins Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lofaði í dag að hraða uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu bandaríska hersins. Hann sagði: "Þetta er eitthvað sem við getum, verðum og viljum laga". 21.6.2007 22:53
Flóðavörnum enn ábótavant í New Orleans Þrátt fyrir auknar varnir er mikil hætta á að stór hluti New Orleans færi á kaf ef fellibylur mundi geysa á svæðinu. Þetta kemur fram í rannsókn sem verkfræðingar bandaríska hersins hafa gert. 21.6.2007 22:37
Á fjórða þúsund hermanna hafa látist í Írak Nú hafa ríflega 3500 bandarískir hermenn látist í Íraksstríðinu, þar af 68 í júnímánuði. Tólf bandarískir hermenn hafa látið lífið í árásum undanfarna tvo daga. Alvarlegasta árásin var í Norðaustur - Bagdad í dag þegar herbíll var sprengdur með þeim afleiðingum að fimm bandarískir hermenn létust, auk þriggja óbreyttra íraskra borgara og írasks túlks. 21.6.2007 16:51
Eldsneyti úr ávöxtum Bandarískir vísindamenn halda því fram að hægt sé vinna umhverfisvænt eldsneyti úr ávöxtum, nánar tiltekið úr ávaktasykri. Slíkt eldsneyti á að innihalda mun meiri orku en Etanól sem notað er í bensín. 21.6.2007 16:50
Kona fær ekki bætur fyrir að vinna ekki lottó Helene De Gier tapaði í dag máli þar sem hún vildi fá skaðabætur fyrir að vinna ekki stóran lottóvinning. Málinu er þannig háttað að nágrannar De Gier unnu tæplega 1,2 milljarð í lottói. Sjö nágrannar hennar í bænum Heusden í Hollandi unnu pottinn, en vinningshafarnir voru dregnir eftir póstnúmeri. 21.6.2007 16:22
Frakkar lofa Abbas aðstoð Utanríkisráðherra Frakklands, Bernard Kouchner, segir að Frakkar muni aðstoða palestínsku ríkistjórnina með beinni fjárhagslegri aðstoð. Kouchner talaði við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í vikunni og upplýsti hann um áætlanir Frakka. Ekki er vitað hversu mikilli upphæð Frakkar ætla að verja í aðstoðina. 21.6.2007 15:32
Konu hermanns ekki vísað úr landi Yaderline Jimenez, eiginkonu Alex Jimenez sem saknað hefur verið í Írak síðan í maí, verður ekki vísað úr landi. Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna staðfestir það. Alex, sem er bandarískur hermaður, hafði sótt um græna kortið fyrir konu sína eftir að þau giftust árið 2004. Yaderline kom ólöglega til landsins frá Dóminíska Lýðveldinu. 21.6.2007 14:34
Sprengja finnst í bíl á Spáni Lögreglan á Spáni fann 100 kg af sprengiefni í bíl í Ayamonte, um 200 kílómetrum vestur af Sevilla. Einnig fundust hvellhettur í bílnum. Ekki kemur fram hver kom sprengiefninu fyrir. 21.6.2007 13:55
Páfi hefur áhyggjur af kristnum í Írak Benedikt XVI hefur miklar áhyggjur af kristnum íbúum í Írak og í öðrum miðausturlöndum, vegna ofbeldis og ofsóknum sem þeir verða fyrir. Hann segir kristið fólk á þessu svæði þjást andlega og veraldlega. 21.6.2007 13:29
Myndband sem líkir eftir árásunum 11. september Í byrjun mánaðarins var myndband með tölvulíkingum af árásunum á Tvíburaturnana í New York sett á You Tube síðuna. Myndbandið sýnir hvernig Boeing 767 flugvélarnar skullu á byggingarnar, ruddu öllu eldvarnarefni frá stoðsúlum þeirra og leiddi til hruns þeirra. 21.6.2007 12:58
H5N1 finnst í Tékklandi H5N1 afbrigði fuglaflensunnar fannst í kalkún á bóndabæ í Tékklandi í dag. Hermenn, lögreglumenn og dýralæknar hafa afgirt bóndabæinn þar sem veiran fannst. Veiran fannst um 150 kílómetra frá höfuðborginni Prag. 21.6.2007 12:53
Fingrafimur ræstitæknir í Glasgow Píanóhæfileikar pólsks ræstitæknis við háskólann í Glasgow uppgötvuðust í gegnum vefmyndavél þegar yfirmenn hans sáu hann laumast í píanó skólans á vinnutíma. 21.6.2007 12:48
Búist við erfiðum fundi í Brussel Leiðtogar Evrópsambandsríkjanna koma saman til fundar í Brussel í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um sáttmála um umbætur á samstarfinu. Þjóðverjar leggja til róttækar breytingar á samstarfinu en segja sáttmála sinn ekki nýja stjórnarskrá. 21.6.2007 12:45
Mubarak boðar til viðræðna Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur boðið fulltrúum Palestínu, Ísraels og Jórdaníu til viðræðna í næstu viku. Ríkisstjórnir landanna hafa þó ekki enn þekkst boðið. Ef fundurinn fer fram verður hann fyrsti fundur Mahmoud Abbas og Ehuds Olmert síðan Hamas komst til valda fyrir 18 mánuðum síðan. 21.6.2007 11:33
Austurríkismenn sleppa grunuðum njósnara Yfirvöld í Austurríki hafa leyst úr haldi fulltrúa rússnesku geimferðastofnunarinnar sem sakaður var um njósnir. Maðurinn, sem er rússneskur, var handtekinn í síðustu viku í eða við borgina Linz vegna gruns um njósnastarfsemi. 21.6.2007 11:17
Sandur hættulegri en hákarlar? Samkvæmt rannsókn feðganna Bradley og Barry Maron hafa fleiri látið lífið af völdum sands heldur en af völdum hákarla. Í rannsókninni kemur fram að 16 ungmenni létust í Bandaríkjunum eftir að drukkna í sandi á árunum 1990-2006. Á sama tíma létust 12 af völdum hákarlaárásar. 21.6.2007 11:06
Stöðuvatnið sem hvarf Jökulvatn í Chile tók upp á þeirri óþægilegu nýjung að láta sig hverfa. Vísindamenn eru ráðþrota og engar vísbendingar er að finna um hvert það brá sér. Vatnið var í Suður-Andes fjöllunum og þegar þjóðgarðsverðir fóru um svæðið í mars var það á sínum stað, um tveir hektarar að stærð, blandað misstórum ísjökum. Þeir fóru síðan aftur í síðasta mánuði og þá var það horfið. 21.6.2007 10:38
2% múslima í Indónesíu finnst í lagi að beita ofbeldi Könnun í Indónesíu hefur leitt í ljós að um 2% múslima í landinu telja að trú þeirra leyfi þeim að beita ofbeldi gegn þeim sem eru annarar trúar. Aðstandendur könnuninnar segir það þó samt eiga að valda áhyggjum. 240 milljónir manns búa í Indónesíu. 21.6.2007 10:18
Laminn til bana í Austin Lögreglan í Austin í Texas, Bandaríkjunum, biðlar nú til fólks sem gæti gefið upplýsingar sem hjálpa til við að góma gengismeðlimi sem lömdu mann til bana á þriðjudag. 21.6.2007 10:01
Ákærður fyrir barnaníð Maður sem hefur unnið mikið í nágrenni grunnskólans Orange Street í Bandaríkjunum, Dale Hutchings, hefur verið ákærður fyrir að misnota sjö börn. Maðurinn er talinn hafa misnotað börnin samtals yfir þúsund sinnum. Öll börnin voru undir 13 ára þegar misnotkunin byrjaði. Misnotkunin stóð yfir frá 1998-2007. 21.6.2007 09:49
Sænskur lögreglumaður skotinn til bana Sænskur lögreglumaður var skotinn til bana í bænum Nyköping um fimm leytið í dag, að því er kemur fram á fréttavef Dagens nyheter. Tveir lögreglumenn voru sendir til að sækja mann í íbúð hans en manninn átti að fara með í geðlæknismat. Hann var álitinn hættulegur umhverfi sínu og voru því tveir lögreglumenn sendir á staðinn. 20.6.2007 20:34
Dæmdir fyrir stríðsglæpi í Sierra Leone Dómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur dæmt þrjá menn fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni á tímum borgarastyrjaldarinnar í Sierra Leone. Um 50 þúsund manns týndu lífi í stríðinu sem endaði árið 2002 eftir 11 ára óöld. 20.6.2007 19:10
Mótmæla afnámi verkfallsrétts Hundruð verkalýðssinna mótmæltu á götum Brussel í Belgíu í dag vegna þess að ekki er gert ráð fyrir verkfalls- og mótmælarétti í nýjum drögum að stjórnarskrá Evrópusambandsins. Fólkið kom frá fjölda Evrópulanda og mótmælti skammt frá byggingu Leiðtogaráðs sambandsins. 20.6.2007 19:07
Flóttamönnum fjölgar Í dag er alþjóðlegur dagur flóttamanna. Á síðasta ári voru flóttamenn tæpar tíu milljónir og er talið vist að þeim fari fjölgandi í náinni framtíð. Talsmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna segir ástandið mjög alvarlegt. 20.6.2007 18:57