Erlent

Einn látinn á Glastonbury tónlistarhátíðinni

Það hefur rignt duglega á Glastonbury þetta árið.
Það hefur rignt duglega á Glastonbury þetta árið. MYND/AP

Breskur karlmaður lést vegna ofneyslu eiturlyfja á Glastonbury tónlistarátíðinni í gær. Þrátt fyrir dauðsfallið segir lögregla minna um glæpi á hátíðinni í ár en í fyrra þrátt fyrir að gestum hafi fjölgað um 30 þúsund.

171 glæpur hefur verið tilkynnur til lögreglu á hátíðinni. Þar af eru 124 mál tengd eiturlyfjaneyslu og tilkynnt hefur verið um 31 þjófnað úr tjöldum á svæðinu. Miklar rigningar hafa hins vegar sett mark sitt á hátíðina og hafa um þúsund manns slasast í drullusvaðinu sem myndast hefur, en hátíðin er haldin á landareign bónda nokkurs. Hátíðinni lýkur í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×