Erlent

Sex ára drengur klæddur í sjálfsmorðssprengjuvesti

Vera Einarsdóttir skrifar
Jamal Gul (til hægri) og bróðir hans Dad Gul þiggja hádegismat hjá afgönskum hermönnum.
Jamal Gul (til hægri) og bróðir hans Dad Gul þiggja hádegismat hjá afgönskum hermönnum. MYND/AP

Talibanar fengu Jamal Gul, sex ára afganskan dreng til að bera sjálfsmorðssprengju. Þeir settu hann í sprengjuvesti og sögðu honum að ef hann ýtti á takka myndi vestið sprauta blómum. "Þegar þeir settu vestið á mig vissi ég fyrst ekki hvað ég ætti að halda en svo fann ég fyrir sprengjunni," sagði Jamal við fréttamenn AP fréttastofunnar.

Talibanarnir sögðu drengnum að kasta sér í átt til bandarískra hermanna en drengurinn gekk ekki á lagið og fór til afganskra hermanna og bað um hjálp. Talibanar vísa sögunni á bug og segja hana hluta af áróðursstarfsemi gegn sér. Bæði afganskir og bandarískir hermenn eru þó sannfærðir um að saga drengsins sé sönn.

John Thomas talsmaður öryggismála hjá NATO segir atvikið gera það að verkum að hermenn geti ekki gefið sér að börn séu hættulaus. John vonast til þess að atburður sem þessi muni ekki endurtaka sig en segir ástæðu til að staldra við og fara varlega. Hann vill gera sem mest úr málinu svo Afganir geti verndað börnin sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×