Erlent

Johnston með sprengjubelti um sig miðjan

Alan Johnston hefur verið í haldi síðan í mars.
Alan Johnston hefur verið í haldi síðan í mars. MYND/AP

Ismail Haniya, leiðtogi Hamas, segir að mannræningjarnir sem halda breska blaðamanninum Alan Johnston hafi gert nýtt myndband þar sem Johnston sést íklæddur belti sem er hlaðið sprengiefnum. Myndbandið hefur enn ekki verið gert opinbert.

Johnston var rænt á Gaza ströndinni í mars og hefur hann nú verið í haldi mannræningjanna í 104 daga. Hamas samtökin hafa enn á ný sett ræningjunum úrslitakosti og gefið þeim frest fram á mánudag til að sleppa honum. Þeir hafa áður sett fram svipaða kröfu án þess að fylgja hótunum sínum um valdbeitingu eftir þegar ekkert heyrðist frá ræningjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×