Fleiri fréttir

Starfsmenn BBC í verkfall

Fréttamenn og aðrir starfsmenn breska ríkisútvarpsins, BBC, hófu í morgun sólarhringsverkfall til að mótmæla fækkun starfsfólks hjá stofnuninni. Til stendur að fækka störfum um fimmtung eða um alls fjögur þúsund. Verkfallið þýðir að ýmsir þættir sem eru í beinni útsendingu hjá BBC falla niður.

Skildu síamstvíburasystur að

Læknar í Singapúr skildu í morgun að indónesískar tvíburasystur sem voru samvaxnar á mjöðm. Þeir segja ástand þeirra stöðugt. Systurnar voru með ýmis sameiginleg líffæri og voru með samtals þrjá fætur. Þær eru tæplega eins og hálfs árs en aðgerðin tók tíu klukkustundir.

Fuglaflensa dregur einn til dauða

Yfirvöld í Víetnam tilkynntu í morgun um að 46 ára gamall maður hefði látist af völdum fuglaflensu þar í landi. Alls hafa nú alls 54 manns látist af völdum veikinnar í Víetnam. Maðurinn veiktist mjög skyndilega og var lagður inn á sjúkrahús og þremur þremur dögum síðar lést hann.

N-Kóreumenn við samningaborðið

Norður-Kórea hefur staðfest að hafa átt í viðræðum við Bandaríkin um kjarnorkuvopnaframleiðslu. Vonast til að viðræðurnar geti leitt til þess að Norður-Kórea hætti við áform sín um að hefja framleiðslu á slíkum vopnum. Lönd í kringum Norður-Kóreu hafa verið áhyggjufull að undanförnu yfir því að Norður-Kóreumenn hefji prófanir á kjarnorkuvopnum en yfirvöld í Pyongyang hafa lýst því yfir vilja til þess.

Laura Bush fékk óblíðar móttökur

Ekki voru allir jafn hrifnir af Lauru Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún heimsótti helga staði gyðinga og múslíma í Jerúsalem í gær. Þegar hún stakk bréfmiða í Grátmúrinn kröfðust mótmælendur þess að Ísraelsmaðurinn Jonathan Pollard, sem setið hefur í fangelsi í Bandaríkjunum frá árinu 1987 fyrir njósnir, yrði látinn laus.

Stemma stigu við ofdrykkju

Breskum krám og börum verður bannað að vera með svokallað <em>happy hour</em> til að koma í veg fyrir að viðskiptavinirnir verði ofurölvaðir. <em>Happy hour</em> er nokkurs konar útsala á ákveðnum drykkjum á ákveðnum tímum en við slíkar aðstæður freistast margur gesturinn til að drekka meira en hann þolir. Slík ofdrykkja er orðin að meiri háttar vandamáli í Bretlandi og hefur hún leitt til þess að ákveðin svæði í miðborgum eru þannig að aðrir koma ekki þangað á þessum tíma.

Leitar samkomulags meðal iðnríkja

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hyggst freista þess fyrir fund átta helstu iðnríkja heims í júlí að ná samkomulagi meðal þeirra um stuðning við Afríku og baráttu gegn veðurfarsbreytingum. Frá þessu greindi skrifstofa forsætisráðherrans í dag. Í vikunni mun hann heimsækja Ítali í þessum tilgangi og þá hyggur hann einnig á ferð til Moskvu og Washington.

Alifuglar bólusettir í Kína

Kínversk stjórnvöld hafa flutt meira en þrjár milljónir skammta af bóluefni gegn fuglaflensu til afskekkts svæðis í landinu eftir að farfuglar fundust dauðir af völdum veirunnar.

Fjölmiðlavald fjöldans

Fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch segir að rafrænir miðlar sogi til sín æ meira af auglýsingatekjum dagblaðanna. Dagblöð verði að skilja hlutverk sitt sem fréttaveitur óháð gömlu leiðunum til að dreifa fréttum á pappír. Murdoch telur fullvíst að valdið yfir fréttunum, fréttamatinu og því sem fréttamiðlar kalla staðreyndir sé með fínlegum og lúmskum hætti að flytjast frá fjölmiðlunum til almennings.

Ekki einfalt að flýta kosningum

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, kastar sprengju inn í þýsk stjórnmál með því að fara fram á að kosningar til Sambandsþingsins fari fram ári fyrr en áætlað var. Það eru þó ýmis ljón í veginum fyrir þeim áætlunum.

Hreyfing og hollmeti lykillinn

Hundruðum milljóna króna er varið á hverju ári í að finna út hvert leyndarmálið að háum aldri sé. Það kemur eflaust ekki á óvart að hollur matur og nægileg hreyfing sé rétta svarið en í þorpinu Bama í Kína, þar sem þessi tvö atriði eru í hávegum höfð, eru yfir 70 manns yfir eitt hundrað ára gamlir.

Bílsprengja sprakk við veitingahús

Bílsprengja var sprengd við veitingastað í Norður-Bagdad í dag með þeim afleiðingum að fjórir létust og yfir hundrað særðust. Sprengjan sprakk um hádegisbil að staðartíma þegar fjölmargir gestir snæddu þar hádegisverð, en hann er vinsæll meðal sjíta.

Gíslum fagnað við heimkomu

Það urðu gríðarlegir fagnaðarfundir hjá þremur rúmenskum blaðamönnum og fjölskyldum þeirra í dag þegar blaðamennirnir sneru til síns heima eftir að hafa verið í haldi uppreisnarmanna í Írak í tæpa tvo mánuði. Þremenningunum, sjónvarpsfréttamanni, kvikmyndatökumanni og blaðamanni, var rænt í Bagdad 28. mars ásamt túlki sínum og þess krafist að Rúmenar kölluðu herlið sitt frá Írak, annars yrði fólkið tekið af lífi.

Gömul íbúð páfa til sölu á eBay

Íbúð sem nýkjörinn páfi, Benedikt sextándi, leigði fyrir um 40 árum nærri borginni Bonn í Þýskalandi er nú boðin til sölu á uppboðsvefnum eBay. Joseph Ratzinger, sem tók sér nafnið Benedikt sextándi eftir páfakjör, bjó í íbúðinni á árunum 1959-1963 þegar hann kenndi guðfræði við háskóla þar í borg.

Schröder lætur reyna á stuðning

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hyggst láta reyna á stuðning við ríkisstjórn sína á þýska Sambandsþinginu fyrir 1. júlí næstkomandi, en fyrir þann tíma verður kosið um vantraustsyfirlýsingu sem lögð verður fram. Ákvörðun hans má rekja til stórtaps Jafnaðarmannaflokksins í héraðskosningum í Nordhrein-Westfalen í gær, en þar hefur flokkurinn verið við völd í nærri fjóra áratugi.

Laura Bush lofar gjörðir Mubaraks

Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, hrósaði í dag Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, fyrir að breyta lögum um forsetakjör í landinu. Frú Bush er nú á ferðalagi um Miðausturlönd og heimsótti Egyptaland í dag. Þar lauk hún lofsorði á stjórnarskrárbreytingu sem Egyptar kjósa um á miðvikudaginn og kveður á um að fleiri en einn geti boðið sig fram til forseta.

Mikið af gasi fannst við Noreg

Gífurlegt magn af gasi hefur fundist undan ströndum Noregs. Er talið að um 60 milljarða rúmmetra sé að ræða og er þetta einn mesti gasfundur sem um getur á þessum slóðum. 

Skallinn erfist frá mömmu

Sköllóttir karlmenn geta nú kennt mæðrum sínum um skallann. Ný rannsókn þýskra vísindamanna sýnir að það eru gen móðurinnar sem ráða því hvort karlmenn fá skalla eður ei en ekki föðurins eins og áður hefur verið talið.

Svíar andvígir NATO aðild

<font face="Helv"> </font>Andstæðingum þess að Svíþjóð sæki um aðild að Atlantshafsbandalaginu fer fjölgandi. Ný könnun sýnir að tæpur helmingur sænskra kjósenda er andvígur aðild en fylgjendur eru ekki nema 20 af hundraði og hefur fækkað um tvö prósentustig frá 2003.

Göran Persson gegn klámvæðingu

Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vill skera upp herör gegn klámvæðingu sænskra fjölmiðla. Hefur hugmyndum hans verið fálega tekið af fjölmiðlum, sem fullyrða að þetta sé ekkert annað en ósvífin tilraun til ritskoðunar.

Stórsókn gegn uppreisnarmönnum

Bandarískar og afganskar sveitir hafa hrundið af stað þremur viðamiklum aðgerðum í suður- og austurhluta Afganistans til þess að reyna að binda enda á árásir uppreisnarmanna í landinu og auka öryggi borgaranna. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. Herinn telur að baráttuþrek uppreisnarmanna úr röðum talibana og bandamanna þeirra sé að þverra og því var ákveðið að hefja stórsókn til þess að hrekja þá úr fylgsnum sínum.

Sjítamoska sprengd í loft upp

Bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Mahmoudiya suður af Bagdad í dag með þeim afleiðingum að fimm létust og 19 særðust, meirihlutinn börn. Reuters-fréttastofan hefur eftir vitnum að sprengingin hafi verið svo öflug að moskan hafi hrunið og létust nokkrir innan dyra.

Elgir valda vandræðum í Þrándheimi

Tveir elgir ollu nokkrum usla í morgunumferðinni í Þrándheimi í dag en svo virðist sem dýrin hafi villst inn í borgina. Samkvæmt <em>Aftenposten</em> fékk lögreglan í Þrándheimi fjölmargar tilkynningar frá fólki snemma í morgun um ferðir elganna tveggja á vegum sunnan miðbæjarins og munaði minnstu nokkrum sinnum að ekið yrði á þá.

Fannst á lífi í ruslagámi

Átta ára stúlka í Flórída, sem hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi og grafin undir grjóti í ruslagámi, fannst á lífi í dag. Lögregluþjónn sá glitta í hönd stúlkunnar og fótlegg undir grjóthrúgu í gámnum en þá voru sjö klukkustundir liðnar frá því að tilkynnt var um hvarf hennar. Ofbeldismaðurinn, sem hefur viðurkennt glæp sinn, er sautján ára unglingur sem amma stúlkunnar hafði skotið skjólshúsi yfir.

Hart sótt að Schröder

Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, kanslara, beið afhroð í fylkiskosningum í Nordrhein-Westfalen á sunnudaginn en flokkurinn hefur haldið þar um stjórnartaumana síðan 1966.

Starfsmenn BBC í verkfalli

Ellefuþúsund frétta- og tæknimenn breska ríkisútvarpsins BBC lögðu niður störf í sólarhring í gær til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði og einkavæðingu hluta stofnunarinnar. Til stendur að segja upp um 4 þúsund starfsmönnum og spara með því móti rúmlega 350 milljónir pund árlega.

Engin gleðistund

Breskir bjórsvelgir eiga ekki von á góðu núna. Hópur sem kemur fram fyrir hönd um helmings breskra kráa hefur lýst því yfir að nú eigi að hætta að vera með svokallaðan "Happy-Hour" eða gleðistundir. Þetta er gert í kjölfarið á miklum þrýsingi frá stjórnvöldum sem vilja ekki að almenningur drekki jafn mikið og gert er.

Alífuglar bólusettir í Kína

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að bólusetja þrjár milljónir alífugla í Quinghai-héraði í vesturhluta landsins eftir að næstum 200 gæsir fundust þar dauðar líklega að völdum fuglaflensu. Enn hefur þó enginn maður látist vegna fuglaflensu í Kína.

Nýr forseti Mongólíu

Nambariin Enkhbayar er nýkjörinn forseti Mongólíu. Hann er bókmenntafræðingur að mennt og sótti menntun sína til Bretlands. Hann kemur úr Byltingarflokki alþýðunnar sem er gamli kommúnistaflokkurinn í þessu fyrrverandi leppríki Sovétríkjanna.

Laura Bush í Mið-Austurlöndum

Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd. Hópur fólks mótmælti komu hennar harðlega þegar hún var á ferð í Jerúsalem.

Úsbeskir flóttamenn aftur heim

Stjórnvöld í Kirgisistan hafa meinað flóttamönnum frá Úsbekistan að koma inn í landið en þeir leituðu þar hælis eftir að átök brutust út í Andijan og nálægum borgum í síðustu viku. Flóttamennirnir ætla því sjálfviljugir aftur til Andijan og taka þar þátt í uppreisninni gegn stjórn Islam Karimov.

Fannst grafin lifandi

Átta ára stúlka fannst grafin lifandi í endurvinnslugámi í Lake Worth í Flórída í gær. Lögrelgumaður sá móta fyrir hönd hennar í gámnum og gróf hana því upp. Telpan hafði verið misnotuð kynferðislega og ljóst að hún var skilin eftir til að deyja. Því má telja kraftaverki líkast að hún hafi fundist.

Fimm látnir úr hermannaveiki

Fimm Norðmenn eru látnir úr hermannaveiki sem blossaði upp í Fredrikstad í Noregi. Tuttugu og fjórir í viðbót hafa greinst með sjúkdóminn. Enn er ekki vitað hvernig hann barst milli manna.

Frusu í hel

Leit stendur enn yfir í hlíðum Andesfjalla af nítján hermönnum sem talið er að hafi orðið úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í síðustu viku. 26 lík félaga þeirra hafa þegar fundist.

Karpað um kjarnorkumálin

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hvöttu í gær Írana til að sýna sveigjanleika við samningaborðið í viðræðum um kjarnorkumál sem haldnar verða síðar í vikunni.

Á fimmta tug beið bana í gær

Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði.

Útlit fyrir afhroð Schröders

Allt útlit er fyrir að flokkur Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, Jafnaðarmannaflokkurinn, bíði afhroð og tapi í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen en flokkurinn hefur verið þar við völd í tæpa fjóra áratugi.

S.þ. fordæma meintar pyntingar

Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu í morgun meintar pyntingar bandarískra hermanna á afgönskum stríðsföngum í herstöð skammt frá Kabúl árið 2002. Samtökin krefjast þess að málið verði rannsakað.

Sjö unglingsstúlkur drukknuðu

Að minnsta kosti sjö unglingsstúlkur drukknuðu undan ströndum Suður-Afríku í dag eftir að hafa farið að synda áður en strandverðir voru mættir á svæðið. Stúlkurnar voru á ferðalagi með skólafélögum og kennurum við austurströnd landsins.

Rúmensku gíslunum sleppt

Rúmensku blaðamönnunum þremur, sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak í nærri tvo mánuði, var sleppt í dag. Fjórði gíslinn, sem starfað hefur sem túlkur Rúmenanna, fékk einnig frelsi.

Kanslaraembættið í hættu

Samkvæmt nýjustu útgangsspám bíður þýski Jafnaðarmannaflokkurinn, undir forystu Gerhards Schröders kanslara, afhroð í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen. Ef fer sem horfir verður það gríðarlegt áfall fyrir Schröder og gæti orðið til þess að hann nái ekki endurkjöri í þingkosningunum á næsta ári. </font />

Sprenging í tveimur kvikmyndahúsum

Að minnsta kosti sextán særðust þegar tvær sprengjur sprungu nánast á sama tíma í tveimur kvikmyndahúsum á Indlandi í dag. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort einhver sé lífshættulega særður. Í dag er nákvæmlega ár síðan ný ríkisstjórn tók við völdum á Indlandi og ekki er talið ólíklegt að ódæðið tengist því.

Persson fengið nóg af brjóstum

Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur fengið nóg af myndum af berbrjósta konum í sænskum fjölmiðlum og boðar lagasetningu sem takmarkar slíkar myndbirtingar. Hann vill skoða leiðir til að koma í veg fyrir sömu þróun og í Bretlandi þar sem fáklæddar konur tröllríða tímaritum og dagblöðum.

Sjá næstu 50 fréttir