Fleiri fréttir

Hart tekið á klámmyndasendingum

Hver sá sem dreifir klámmyndum um farsíma má eiga von á allt að þúsund svipuhöggum, tólf ára fangelsi og tæplega tveggja milljóna króna sekt, nái lagafrumvarp fram að ganga í Sádi-Arabíu. Frumvarpið var lagt fram eftir að þrír karlmenn voru dæmdir til þess að þola tólf hundruð svipuhögg og sitja af sér fangelsisdóm fyrir að taka upp nauðgun með farsímamyndavél og senda vinum sínum.

Vanhanen í framboð til forseta

Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, lýsti því yfir í dag að hann hygðist bjóða sig fram til forseta landsins í kosningum í byrjun næsta árs. Frá þessu greinir finnska fréttastofan STT. Vanhanen hefur setið í stóli forsætisráðherra í tvö ár en samkvæmt STT mun hann hafa tjáð flokksfélögunum sínum í Miðjuflokknum að hann vilji fremur gegna forsetaembættinu sem er æðsta og virtasta embætti landsins.

Sextíu manns í gíslingu í Írak

Mannræningjar í Írak halda sextíu manns í gíslingu skammt frá Bagdad og hóta að drepa alla gíslanna yfirgefa ekki allir sjítar svæðið þegar í stað.

Óttast að mótmæli fari úr böndunum

„Japanskir innrásarhermenn deyi!“ hrópuðu þúsundir æstra mótmælenda í austurhluta Kína í morgun. Kínversk stjórnvöld virðast nú hafa af því nokkrar áhyggjur af mótmælin geti farið úr böndunum.

Vísar ábyrgðinni annað

Bandaríkjamenn og Bretar bera stóran hluta ábyrgðarinnar á því að Saddam Hussein gat smyglað olíu og stórgrætt á því, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Miklir þurrkar í Portúgal

Miklir þurrkar hafa verið í Portúgal síðustu mánuði og hefur vatnsbúskapur landsins ekki verið lakari í aldarfjórðung. Þurrkarnir hafa áhrif á yfir helming landsins og segir Veðurstofa Portúgals að úrkoma frá því október í fyrra sé innan við 65 prósent af meðaltalsúrkomu á sama tímabili á árunum 1961-1990.

Tvíburar í æðstu embætti Póllands?

Svo gæti farið að eineggja tvíburar settust í sæti forseta og forsætisráðherra Póllands á þessu ári, en þá eiga að fara fram bæði þing- og forsetakosningar. Bræðurnir Jaroslaw og og Lech Kaczynski hafa látið mikið að sér kveða í pólskum stjórnmálum að undanförnu. Samkvæmt skoðanakönnunum sem birtar voru í gær nýtur íhaldsflokkur, sem Jaroslaw fer fyrir, mest fylgis allra flokka og því gæti hann hugsanlega sest í forsætisráðherrastól eftir kosningar.

Sjö létust í árás á veitingahús

Sjö manns - fimm óbreyttir borgarar og tveir lögreglumenn - létust í sprengjuárás á vinsælan veitingastað í Baquba í Írak um hádegi í dag. Fimm slösuðust í árásinni, en veitingastaðurinn var þéttsetinn þegar sprengjan sprakk. Árásum á lögreglu og borgara í Írak hefur fjölgað aftur undanfarna daga eftir að dregið hafði úr þeim í kjölfar þingkosninga í landinu í lok janúar.

Arabar og lögregla tókust á í Íran

Að minnsta kosti einn lést í átökum araba og öryggissveita í borginni Ahvaz í suðurvesturhluta Írans í dag. Samkvæmt IRNA-fréttastofunni gengu arabar, sem eru minnihlutahópur í Íran, um götur borgarinnar og létu ófriðlega en lögregla svaraði þeim með því að skjóta á hópinn og beita táragasi. Talið er að arabarnir hafi verið að berjast fyrir sjálfstæði Khuzestan-héraðs sem hefur að geyma margar af bestu olíulindum Írans.

Margrét Danadrottning 65 ára

Margrét Þórhildur Danadrottning fagnar í dag 65 ára afmæli sínu. Hún tók við heillaóskum frá þegnum sínum í dag þegar hún kom ásamt manni sínum Hinriki prins, syninum Jóakim og sonarsonunum Nikolaj og Felix út á svalir Amalienborgar. Þúsundir voru saman komnar á torginu við höllina í góðu veðri og veifuðu dönskum fánum og var konungsfjölskyldan klöppuð fram á svalirnar í þrígang.

Elur barn í galleríi

Par í Þýsklandi hefur ákveðið að fara óvenjulega og listræna leið þegar það eignast frumburðinn í lok mánaðarins. Konan mun ala barnið í galleríi í Berlín og er búist að 30 manns verði viðstaddir fæðinguna auk föðurins. Þýska blaðið <em>Bild</em> hefur eftir föðurnum að gjörningurinn sé gjöf til mannkyns en parið vill andæfa hefðbundnum gildum samfélagsins.

Ítalir vilja ítalskan páfa

Ítalir vilja aftur ítalskan páfa og eru hræddir um að ef svo verður ekki muni kaþólska kirkjan loka dyrunum á þá fyrir fullt og allt í þeim málum. Í 455 ár var Ítali valinn í stól páfa eða þar til Jóhannes Páll annar, sem var pólskur að uppruna, var valinn, en hann sat á stóli í alls 26 ár.

Musharraf til Indlands

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, kom í dag í heimsókn til Indlands í fyrsta sinn í fjögur ár. Ríkin hafa lengi deilt um yfirráð í Kasmír-héraði og verið á barmi styrjaldar en undanfarið ár hafa staðið yfir friðarviðræður sem m.a. leiddu til þess að í síðustu viku voru áætlunarferðir á milli indverska og pakistanska hluta Kasmír í fyrsta sinn í tæpa sex áratugi.

Hundar bönuðu konu

Tveir hundar réðust á og bönuðu eiganda sínum, 74 ára gamalli konu á eftirlaunum. "Ég hef séð hundsbit áður en ég hef aldrei séð neitt þessu líkt," sagði James Peacock, lögreglustjóri í Wheeler-sýslu í Georgíuríki.

Tugir teknir í gíslingu

Súnnískir uppreisnarmenn tóku tugi sjíamúslima í gíslingu í bænum Madain, nærri Bagdad, og hótuðu að myrða þá alla ef sjíar hefðu sig ekki allir á brott frá borginni.

Varðist árás hákarls

Brimbrettamanni í Ástralíu tókst í dag að verjast árás tveggja metra hákarls með réðst á hann undan Bronte-strönd í Sydney. Maðurinn mun hafa stokkið af brimbrettinu sínu þegar hákarlinn réðst á hann og tókst að halda sig frá honum með brettinu, en hákarlinn beit tvisvar í brettið áður en hann hvarf á braut.

Heita leynd um kjör páfa

Ekkert spyrst út um hver verður næsti páfi fyrr en formlega verður tilkynnt um hver tekur við af Jóhannesi Páli II páfa. Þessu hétu yfirmenn öryggismála í Vatíkaninu, sem hafa það verkefni að tryggja að fjölmiðlar komist ekki að því hvað gerist í páfakjörinu nema eftir opinberum leiðum.

Lifa ekki af án breytinga

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fór hörðum orðum um Sameinuðu þjóðirnar og réttlætti umdeilt val sitt á nýjum sendiherra með því að hann væri besti maðurinn til að koma nauðsynlegum breytingum í gegn.</font /></b />

Íhuga að ráðast gegn mannræningjum

Yfirvöld í Írak íhuga nú að beita hervaldi til að frelsa 60 sjíta sem haldið er í borginni Madaen, en samningaviðræður við gíslatökumennina, sem eru súnnítar, hafa ekki skilað neinum árangri. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir ónefndum embættismanninn innan íröksku stjórnarinnar.

Í nýja herbúninga fyrir ferðamenn

Varðaskipti voru í hádeginu í dag við Kreml og ugglaust telja menn það ekki miklar fréttir. Það sem fréttnæmt er við varðaskiptin er að engir verðir af þessu tagi hafa þrammað við Kremlarmúra síðan síðasti Rússakeisari var drepinn árið 1918. Búningarnir sem verðirnir klæðast í dag eiga að minna á búningana sem verðir Nikulásar keisara klæddust á árunum 1907 til 1913.

Fleiri á hóteli en leyfilegt var

Miklu fleiri en leyfilegt var gistu á hótelinu í París sem brann til kaldra kola í gær. Félagsmálayfirvöld höfðu komið svo mörgum fyrir á hótelinu og um alla Parísarborg gista innflytjendur í sambærilegum eldgildrum.

Varðist innbrotsþjófi með garðálfi

Eldri kona í suðausturhluta Englands stökkti innbrotsþjófi á brott með því að kasta í hann einni dvergastyttunni sem hún hafði í garðinum sínum.

Yfirvöld geta illa hamið almenning

Tugþúsundir Kínverja létu ófriðlega og lögðu japanskar stofnanir í rúst í dag. Kínversk yfirvöld virðast eiga erfitt með að hemja reiði almennings.

Fimmtán látnir í eldsvoða í París

Að minnsta kosti fimmtán manns létust í eldsvoða sem varð á hóteli í miðborg Parísar í nótt. Meira en fimmtíu manns eru slasaðir, þar af nærri tuttugu lífshættulega. 250 slökkviliðsmenn voru þegar sendir á vettvang og tókst þeim að slökkva eldinn á neðstu hæðum hússins um klukkan þrjú í nótt. Snemma í morgun var þó enn einhver eldur á efri hæðum hótelsins, sem er á sex hæðum, og nokkir hótelgestir lokaðir þar inni.

Höfnun yrði áfall fyrir Evrópu

Hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins, yrði það áfall fyrir sameinaða Evrópu. Þetta sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti í sjónvarpskappræðum með ríflega áttatíu ungmennum í gærkvöldi. Chirac lét móðan mása um mikilvægi sameinaðrar Evrópu sem mótvægis við Bandaríkin, Kína og Indland.

Létust í tilræði við Bandaríkjaher

Lík nokkurra óbreyttra írakskra borgara lágu á víð og dreif utan við veitingastað í Bagdad í morgun eftir bílsprengingu í nágrenninu. Að minnsta kosti fjórir slösuðust í árásinni sem beint var að bandarískri herbifreið sem átti leið hjá. Þá var einnig gerð sprengjuárás á bifreið írakskra þjóðvarðliða í Bagdad í morgun og þar féll einn í valinn og þrír særðust.

Nýir menn í alþjóðageimstöðina

Þriggja manna áhöfn lagði í gær í tveggja daga ferð til alþjóðageimstöðvarinnar. Geimferjunni var skotið upp frá geimstöð Rússa í Kasakstan og heppnaðist geimskotið vel. Í áhöfninni eru Rússi, Bandaríkjamaður og Ítali. Rússinn og Bandaríkjamaðurinn taka við stjórn geimstöðvarinnar þegar þangað kemur og verða geimfararnir tveir í stöðinni næsta hálfa árið.

Hundrað enn saknað í verksmiðju

Enn finnast lík í rústum fataverksmiðjunnar sem hrundi í Bangladess um helgina og er tala látinna komin upp í 50. Um það bil hundrað manns er enn saknað og eru björgunarmenn úrkula vonar að finna fleiri á lífi. Verksmiðjan var fimm hæða há og hrundi hún til grunna.

Stjórn Berlusconis riðar til falls

Kristilegir demókratar á Ítalíu hafa ákveðið að segja sig úr ríkisstjórn Silvios Berlusconis. Ákvörðunin er áfall fyrir Berlusconi þrátt fyrir að leiðtogar flokksins kveðist ætla að styðja stjórnina áfram. Fjórir ráðherrar flokksins hverfa nú úr stjórn og er málum þá svo komið að Berlusconi er nánast neyddur til að segja af sér og efna til nýrra kosninga.

Væsir ekki um kardínálana

Nú er hún Snorrabúð stekkur sagði skáldið en það er ekki hægt að segja um vistarverur kardínálanna sem velja í næstu viku nýjan páfa. Þvert á móti. Þegar Karol Wojtyla tók þátt í páfavali árið 1978 gisti hann í hálfgerðum klefa án nokkurra þæginda. Þeir sem velja eftirmann Karols, sem síðar varð Jóhannes Páll páfi annar, hafa það öllu þægilegra. Hver þeirra mun gista hálfgerðri svítu með öllum helstu þægindum.

Rekinn úr skóla vegna farða

Nemandi í framhaldsskóla í San Bernardino í Kaliforníu er ósáttur við að hafa verið vísað úr skóla. Hann segir ástæðuna þá að hann gengi um með varalit á vörum og farða í kinnum. Hann lítur svo á að hann hljóti að mega ganga þannig um ef stúlkurnar í skólanum mega það. Að auki tengist farðinn heiðingjatrú hans. Skólayfirvöld vilja ekki tjá sig um málið.

Blaðamenn sýknaðir í Simbabve

Dómstóll í Simbabve komst fyrir stundu að þeirri niðurstöðu að tveir breskir blaðamenn hefðu ekki gerst brotlegir við lög þegar þeir dvöldu lengur í landinu en vegabréfsáritanir heimiluðu. Blaðamennirnir, sem starfa fyrir <em>Sunday Telegraph</em>, voru handteknir í kringum kosningarnar í landinu og einnig sakaðir um að starfa án heimildar í Simbabve.

Mesti eldsvoði í París í 20 ár

Tuttugu fórust þegar hótel í miðborg Parísar brann nánast til grunna í morgun. Þetta er mesti eldur í borginni í tvo áratugi. Auk þeirra tuttugu sem týndu lífi eru meira en fimmtíu manns slasaðir, þar af nærri tuttugu lífshættulega.

Ríkisstjórn á brauðfótum

Pólitískt líf Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, hangir á bláþræði eftir að enn einn flokkurinn sagði sig úr ríkisstjórn hans í morgun.

Chirac sakaður um hræðsluáróður

Frakkland hættir að vera til innan Evrópusambandsins hafni Frakkar evrópskri stjórnarskrá í kosningum, segir Jacques Chirac, forseti landsins. Gagnrýnendur saka hann um hræðsluáróður.

Ofbeldisverkum fjölgar aftur

Ofbeldismenn láta nú í vaxandi mæli til sín taka í Írak og mannfall er þar töluvert. Ekki færri en fjórir fórust í fjölda hryðjuverkaárása víðs vegar um landið í morgun.

Rainer fursti borinn til grafar

Rainer fursti af Mónakó var borinn til grafar í dag en hann lést í síðustu viku, 81 árs að aldri, eftir erfið veikindi. Jarðarför furstans fór fram í dómkirkjunni í Mónakó, á sama stað og hann gekk að eiga leikkonuna Grace Kelly fyrir tæpum fimmtíu árum, en hann var jarðsettur við hlið hennar. Fjöldi fyrirmenna var við jarðarförina, þar á meðal flestar konungsfjölskyldur Evrópu.

Sló pabba gamla við

Fimmtán ára stúlka hefur slegið föður sínum við með því að vera fljótari en hann þvert yfir Baffin-eyju í Norðaustur-Kanada. Það tók hina ensku Aliciu Hempleman-Adams aðeins tíu daga að ganga og renna sér á skíðum 240 kílómetra leið yfir heimskautaeyjuna þar sem hún glímdi meðal annars við fjörtíu stiga frost ásamt þremur félögum sínum.

Flestum starfsmönnum sagt upp

Útlit er fyrir að tæplega fimm þúsund starfsmönnum MG Rover bílaverksmiðjanna í Bretlandi verði sagt upp um helgina, en tilraunir til að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti hafa runnið út í sandinn. Búist er við að um þúsund manns muni starfa áfram hjá fyrirtækinu í Birmingham, í það minnsta tímabundið, en samningaviðræður við kínverska fjárfesta um yfirtöku í síðustu viku fóru út um þúfur og því fór fyrirtækið í greiðslustöðvun.

Reykháfur á Sixtínsku kapelluna

Reykháfi var í dag komið fyrir á Sixtínsku kapellunni, en það er liður í undirbúiningi þess að velja nýjan páfa. Kardínálar koma saman í kapellunni á mánudaginn kemur til að velja páfa og munu þeir ekki koma út úr henni fyrr en nýr páfi hefur verið kjörinn. Úr reykkáfnum munu koma svartur og hvítur reykur sem sýna það hverngi páfakjör gengur.

Telja að Ratzinger verði páfi

Þýski kardínálinni Joseph Ratzinger þykir líklegastur til þess að setjast í stól páfa samkvæmt breskum og írskum veðmöngurum. Líkurnar á að hinn 77 ára gamli Ratzinger verði páfi eru 4-1 samkvæmt William Hill veðbankanum í Bretlandi. Írski veðbankinn Paddy Power metur líkurnar enn meiri, eða 3-1, en flestir sem veðja leggja fé við eldri kardínála fremur en þá yngri og telja að kardínálarnir velji ekki mann sem sitji ekki mjög lengi.

Verðlaunahestur kemur í heiminn

Á Ítalíu er verðlaunahestur kominn í heiminn. Hvernig geta menn verið vissir um það? Jú, þetta folald er afkvæmi verðlaunahests. Skyldleikinn er töluvert meiri en alla jafna þar sem þetta folald er klónað. Faðirinn var verðlaunakappreiðahestur og það sem meira er: Hann er geldingur. Folaldið var klónað úr húðfrumu.

Kofi slær til baka

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sneri vörn í sókn í gær þegar hann sagði að Bandaríkin og Bretar bæru talsverða ábyrgð á að Saddam Hussein hagnaðist um milljarða króna á olíusmygli á meðan viðskiptaþvinganir SÞ voru í gildi.

Vopnasölubann áfram í gildi

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna náðu ekki samkomulagi um að aflétta vopnasölubanni til Kína á fundi sínum í Lúxemborg í gær. Málinu hefur því verið frestað um sinn og líklegast verður það ekki tekið upp á ný fyrr en árið 2006.

Hvatt til sakaruppgjafar

Háttsettur klerkur úr hópi súnnía hvatti í gær Jalal Talabani, forseta Íraks, að beygja sig ekki undir þrýsting Bandaríkjamanna heldur láta íraska uppreisnarmenn lausa úr fangelsum.

Sjá næstu 50 fréttir