Ofbeldisverkum fjölgar aftur 15. apríl 2005 00:01
Ofbeldismenn láta nú í vaxandi mæli til sín taka í Írak og mannfall er þar töluvert. Ekki færri en fjórir fórust í fjölda hryðjuverkaárása víðs vegar um landið í morgun. Eftir kosningarnar í Írak í janúar virtist sem uppreisnar- og hryðjuverkamenn hefðu nánast gefist upp. Ráðamenn hersetuveldanna vöruðu þó við því að andspyrna yrði viðvarandi vandamál um hríð. Undanfarið hefur þó mátt skilja þá sem svo að þeir álíti það versta afstaðið og andspyrnumennirnir virðast hafa orðið varir við það. Fréttamenn í Írak segja margt benda til þess að ný hrina árása sé hafin. Undanfarna daga hefur hver mannskæð árásin rekið aðra og mannfall er töluvert, sambærilegt á við sama tíma í fyrra, þó að fjöldi árása nú sé aðeins um þriðjungur þess sem var fyrir kosningar. Einnig hefur orðið breyting á skotmörkum. Þau eru ekki lengur fyrst og fremst bandarískir hermenn heldur írakskir hermenn, lögregla og á köflum óbreyttir borgarar. Að jafnaði falla tveir bandarískir hermenn daglega og árásir í gær kostuðu átján manns lífið, en al-Qaida deild Abus Musabs al-Zarqawis lýsti þeim á hendur sér. Lík lágu á víð og dreif utan við veitingastað í Bagdad í morgun eftir bílsprengingu í nágrenninu. Að minnsta kosti fjórir slösuðust í árásinni sem beint var að bandarískri herbifreið sem átti leið hjá. Þá var einnig gerð sprengjuárás á bifreið írakskra þjóðvarðliða í Bagdad í morgun og þar féll einn í valinn og þrír særðust. Tveir írakskir hermenn féllu í árás í Samarra.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Sjá meira