Erlent

Heita leynd um kjör páfa

Ekkert spyrst út um hver verður næsti páfi fyrr en formlega verður tilkynnt um hver tekur við af Jóhannesi Páli II páfa. Þessu hétu yfirmenn öryggismála í Vatíkaninu, sem hafa það verkefni að tryggja að fjölmiðlar komist ekki að því hvað gerist í páfakjörinu nema eftir opinberum leiðum. Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Páfagarðs, sagði að 40 til 45 mínútur liðu frá því hvítur reykur stigi upp af Sixtínsku kapellunni þar til umheiminum yrði sagt hver nýi páfinn væri. Hvíti reykurinn er til marks um að páfi hafi verið valinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×