Fleiri fréttir

Réðist á börn vopnaður hnífi

Eitt barn lést og fimmtán slösuðust, þar af tvö alvarlega, þegar starfsmaður leikskóla réðst með hnífi að leikskólabörnum og kennurum þeirra. Þrír kennarar særðust í árásinni.

Flugvél flaug á hús

Sex létu lífið, þeirra á meðal tvö börn, þegar lítil flugvél flaug á hús við golfvöll í Austin í Texas. Vélin breyttist í eldhnött þegar hún lenti á húsinu og fórust allir sem voru um borð í henni. Þrennt var í húsinu þegar atvikið átti sér stað en þau sluppu öll við meiðsl.

Grunaðir um aðild að Al-Kaída

Þrettán menn sem grunaðir eru um að eiga aðild að Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum eru nú í haldi lögreglu í Bretlandi. Mennirnir, sem eru á aldrinum nítján til þrjátíu og tveggja ára, voru handteknir í borgunum Luton, Blackburn og Bushey, skammt norður af London.

Bandaríska sendiráðinu lokað

Nokkrum deildum bandaríska sendiráðsins í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, verður lokað á morgun, fimmtudag, vegna öryggisráðstafana að því er segir í tilkynningu frá sendiráðinu í dag.

Harðir bardagar í Mósúl

Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum.

Gyðingar flytjast til Ísraels

Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili.

ESB brýtur alþjóðalög

Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar.

Auglýst eftir hirðfífli

Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár.

Súdanir mótmæla ályktun SÞ

Rúmlega 100 þúsund manns komu saman á götum Khartúm, höfuðborgar Súdans, og mótmæltu ályktun Sameinuðu þjóðanna sem veitir súdönskum yfirvöldum mánaðarfrest til að stöðva ofsóknir vígasveita í Darfur-héraði. Mótmælin voru skipulögð af hinu opinbera.

90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni

Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina.

Fangar struku í Svíþjóð

Þrír menn struku úr fangelsi í grennd við Stokkhólm í Svíþjóð með aðstoð grímuklæddra manna sem báru skotvopn. Þetta er í annað skiptið á rúmri viku sem fangar strjúka úr sænsku fangelsi.

Umdeild lög sett í Rússlandi

Rússneska þingið samþykkti í dag lög sem kveða á um að ýmis niðurgreiðsla á opinberri þjónustu verði felld niður. Lögin er hluti af umsvifamiklum umbótum á velferðakerfinu í Rússlandi.

Sri Chinmoy lyfti 308 kg manni

Hinn 73 ára gamli Shri Chinmoy lyfti rúmlega 300 kílógramma Bandaríkjamanni í síðustu viku. Tilgangurinn með því var að vekja fólk til meðvitundar um offituvandann.

Friðardúfur til Aþenu

Fimm friðardúfum, sem bera boðskap fimm trúarleiðtoga, var sleppt í Róm í dag. Þeim er ætlað að fljúga á Ólympíuleikana í Aþenu. Boðskapurinn sem dúfurnar flytja er frá Jóhannesi Páli páfa og æðstu trúarleiðtogum gyðinga og múslima.

Geimganga Padalka og Fincke

Bandarískur og rússneskur geimfari, fóru í dag í geimgöngu frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Þeir bjuggu sig meðal annars undir að taka á móti nýrri tegund af birgðaflaugum, sem verið er að hanna í Evrópu.

Halda upp á hertöku Gíbraltar

Bretar halda uppá það í dag að 300 ár eru liðin frá því að þeir hertóku Gíbraltarklettinn. Spánverjum er ekki skemmt, en Bretar segja að þetta komi þeim ekki við. Hátíðin er haldin til þess að minnast þess að breski flotinn hertók Gíbraltar árið 1704.

Þrír biðu bana á Gaza

Þrír Palestínumenn biðu bana í dag, þegar sprengja sem þeir hugðust granda ísraelskri jarðýtu með, sprakk í höndunum á þeim. Sprengingin varð í Rafha flóttamannabúðunum, á Gaza svæðinu, og dæmigerðar fyrir það sem gerist á nær hverjum degi, einhversstaðar á sjálfstjórnarsvæðum palestínumanna.

Byggðist á gömlum gögnum

Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu út öryggisviðvörun vegna hryðjuverkahættu sem byggðust á þriggja ára gömlum upplýsingum. Samkvæmt tilkynningu frá heimavarnarráðuneytinu var talið að hryðjuverkamenn hyggðu á árás á fjármálastofnanir í New York og Washington.

Kerry með leyniáætlun

John Kerry, frambjóðandi Demókrataflokksins til forsetaembættisins í Bandaríkjunum, gefur í skyn að hann muni ná samkomulagi um lyktir Íraksstríðsins nái hann kjöri sem forseti. Hann neitar hins vegar að gefa upp hvað hann hafi fyrir sér í þessum efnum.

Flugher berst við engisprettur

Engisprettufaraldur af nánast biblíulegri stærðargráðu herjar nú á nokkur lönd í Vestur-Afríku. Verst er ástandið á Malí og í Máretaníu, en í þessum löndum er vitað um nálægt 100 engisprettuský sem nánast éta sig í gegnum landið.

Þremur rænt og sleppt sama dag

Palestínskir vígamenn rændu þremur útlendingum í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Útlendingarnir unnu við kirkjustarf í Nablus og komu frá Bandaríkjunum, Írlandi og Bretlandi.

Forsætisráðherra slapp naumlega

Pakistanski forsætisráðherrann, Shaukat Aziz, slapp naumlega þegar sjálfmorðsárás var gerð að bílalest hans. Í sprengingunni létust bílstjóri ráðherrans og fjórir aðrir fylgdarmenn hans. 36 manns slösuðust í árásinni, þar af nokkrir alvarlega.

Flóð í Mexíkó

Miklar rigningar í Mexíkó hafa valdið flóðum í norðurhluta landsins en þar rignir sjaldan. Flóð hafa skemmt byggingar og vegi og fjöldi manna er án rafmagns. Í borginni Cocalco var rigningin svo mikil að þök fjölda húsa gáfu sig undan þunganum.

Gripið til aðgerða gegn Súdan

Sameinuðu Þjóðirnar hafa hótað að grípa til aðgerða gegn Súdan eftir að súdönsk yfirvöld höfnuðu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna sem samþykkt var í gær. Í ályktuninni segir að gripið verði til aðgerða gegn Súdan afvopni stjórnvöld ekki vígamenn í Darfur-héraði á þrjátíu dögum.

Ýtt verði á eftir umbótum

Nefndarmenn úr Ellefta September nefndinni, sem rannsakaði hvað fór úrskeiðis í tengslum við hryðjuverkin ellefta september árið 2001 í Bandaríkjunum, hafa hvatt bandaríska öldungadeildarþingmenn til að ýta á eftir umbótum sem mælt er með í niðurstöðum nefndarinnar.

Namibísk svikamylla

Efnahagsbrotadeild namibísku lögreglunnar vinnur nú að því að reyna að leysa umfangsmikið fjársvikamál, sem teygir anga sína til Íslands. Meira en 40 karlar og konur frá Namibíu eru flækt í málið, en þau lögðu verulegar fjárhæðir inn á bankareikning, sem tryggingu fyrir störf á Íslandi, í Alaska, Noregi, og á Grænlandi.

Friður á Fílabeinsströndinni

Forseti Fílabeinsstrandarinnar, Laurent Gbagbo og leiðtogi uppreisnarmanna skrifuðu undir friðarsamning í gær en vonast er til að þar með ljúki tveggja ára borgarastyrjöld í landinu. Mennirnir hittust í borginni Accra í Ghana ásamt leiðtogum tólf Afríkuríkja og Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna.

Freista þess að fá gísla úr haldi

Indverskur stjórnarerindreki er á leiðinni til Íraks til að freista þess að fá þrjá Indverja, sem setið hafa í haldi mannræningja í tíu daga, lausa. Mannræningjarnir hafa hótað að drepa gíslana dragi kúveiskt fyrirtæki, sem þeir vinna hjá, sig ekki út úr Írak.

Belgíska þjóðin syrgir

Konungur Belgíu, Albert annar, heimsótti í dag og huggaði fjölskyldur þeirra sem létust í stórri gassprengingu 30 kílómetra frá bænum Ghislenghien. Þá fór hann að slysstað og vottaði hinum látnu þar með virðingu sína.

Auglýsingar allan sólarhringinn

Margir kvarta undan því hversu margar auglýsingar séu í sjónvarpi en það eru ekki allir á sama máli. Nú hefur verið stofnuð bresk sjónvarpsstöð sem sýnir einvörðungu auglýsingar. Frá og með 6. september næstkomandi geta menn því horft á auglýsingar allan sólarhringinn án endurgjalds.

Súdönsk stjórnvöld hafna ekki

Súdönsk stjórnvöld ætla ekki að hafna ályktun Sameinuðu þjóðanna eins og upplýsingaráðherra þeirra tilkynnti í gær. Í ályktuninni eru Súdönum gefnir þrjátíu dagar til að afvopna skæruliða í Darfur-héraði.

Vatikanið gagnrýnir feminista

Vatíkanið gagnrýnir femínista harðlega í nýrri skýrslu um hlutverk karla og kvenna. Þar segir að femínistar geri að engu þann líffræðilegan mun sem sé á körlum og konum. Skýrslan ber nafnið: Bréf til Biskupa Kaþólsku Kirkjunnar um samvinnu karla og kvenna í kirkjunni og í heiminum.

Kerry vill endurskipuleggja

John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum sagði á þingi flokksins í gær að nái hann kjöri muni hann endurskipuleggja starfsemi leyniþjónustunnar hið fyrsta og vill hann að hún byggi á staðreyndum, sem stjórnmál eigi ekki að hafa áhrif á.

Danir í Öryggisráðið

Danir eru búnir að tryggja sér sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að því er danska blaðið Information greinir frá. Nýtt Öryggisráð verður kosið á allsherjarþinginu í haust og hafa Danir þegar tryggt sér atkvæði 114 þjóða, og vantar 14 atkvæði upp á að tryggja sér sætið.

Leigubílstjórar brjóta lög

Leigubílstjórar í Næstved í Danmörku ætla opinberlega að brjóta lög og hætta með því atvinnuréttindum sínum. Ástæðan er að sami maðaurinn ógnaði tveimur leigubílstjórum tvívegis sama sólarhringinn með fjaðurhnífi, til að komast hjá því að greiða fargjaldið, en í dönskum lögum er leigubílstjórum gert að aka hverjum þeim, sem óskar eftir þjónustu þeirra, skilyrðislaust.

Harðir bardagar í Fallujah

Harðir bardagar geisuðu í gærkvöldi milli bandarískra hermanna og írakskra skæruliða í borginni Fallujah. Bandaríkjamenn segja átökin hafa blossað upp þegar skæruliðar réðust á bækistöð þeirra vopnaðir byssum og sprengjum.

Mannskæð gassprenging í Belgíu

Að minnsta kosti 14 létu lífið og 200 slösuðust í sprengingu í gasverksmiðju í Belgíu í morgun. Gasverksmiðjan er á Ghislenghien iðnaðarsvæðinu sem er um 30 kílómetra suð-austur af Brussel.

Allir fangarnir fundnir

Fjórir fangar sem sluppu úr fangelsi í Svíþjóð síðastliðinn miðvikudaginn eru allir fundnir. Síðasti fanginn sem náðist var Tony Olsson en hann situr í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið tvo lögreglumenn og fremja bankarán.

Handsamar al-Qaeda meðlim

Pakistanska lögreglan hefur handsamað einn af meðlimum al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, Achmed Ghailani en hann er grunaður um að hafa átt aðild að sprengingunum í bandarísku sendiráðunum í Afríku árið 1998.

Mega halda kjarnorkuvopnunum

Bandaríkjamenn hafa fullvissað Ísraela um að ekki verði hróflað við kjarnorkuvopnum þeirra þó reynt verði að koma í veg fyrir að önnur ríki í Miðausturlöndum komi sér upp slíkum vopnum. Þetta lásu menn úr orðum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, á fundi Likudbandalagsins.

Skaut villihund sem drap barn

Ástralskur karlmaður sem sagði í viðtali á dögunum að hann hefði skotið dingóhund sem var með lík ungs barns í skoltinum árið 1980 hefur neitað að ræða við lögreglu. Hefði maðurinn greint frá þessu á sínum tíma hefði það getað komið í veg fyrir ein verstu réttarmistök í sögu Ástralíu.

Lánveitingarnar gerðu illt verra

Afskipti Alþjóða gjaldeyrissjóðsins af efnahagsþrengingunum í Argentínu gerðu illt verra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sjóðsins.

Flutt inn í ólympíuþorpið

Fyrstu íþróttamennirnir fluttust inn í ólympíuþorpið í Aþenu í gær. Þar var á ferð sex manna ræðaralið Grikklands.

Mikið mannfall í Falluja

Þrettán Írakar létust og fjórtán til viðbótar særðust í Falluja í fyrrinótt þegar kom til harðra bardaga á milli bandarískra hermanna og íraskra uppreisnarmanna.

Viðskiptasamningur Írana og Trykja

Íranar og Tyrkir skrifuðu undir tvíhliða viðskiptasamning í gær en hann er liður í átaki sem miðar að því að bæta og auka samskipti ríkjanna. Forsætisráðherra Tyrklands, Recept Erdogan, heimsótti varaforseta Írans, Mohammed Reza, í Teheran þar sem þeir skrifuðu undir samninginn.

Sjá næstu 50 fréttir