Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kerry til þjónustu reiðubúinn John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, tók formlega við útnefningu flokksins í gærkvöld og flutti mikilvægustu ræðuna á ferli sínum. Kerry lagði megináherslu á að hann hefði gegnt herþjónustu í Víetnam og að hann yrði sterkur og stöðugur leiðtogi. 30.7.2004 00:01
Staða Kerrys sterk Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum snýst í auknum mæli um að ná fótfestu í fjórum til fimm ríkjum sem talin eu ráða úrslitum um niðurstöðu kosninganna. 30.7.2004 00:01
Blóðbað í Baqouba Ein mannskæðasta sprengjuárás frá innrás Bandaríkjamanna í Írak kostaði 51 óbreyttan borgara lífið í borginni Baqouba í gær. Hryðjuverkaógn vofir yfir fulltrúafundi um næstu helgi sem leggja á grunn að þjóðþingi Íraka. </font /></b /> 29.7.2004 00:01
Eitur í barnamat Bandaríska alríkislögreglan fann eiturefnið rísín í tveimur krukkum af barnamat við rannsókn á dögunum. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í gærkvöldi. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna segir þó að ekki hafi verið um hreint rísín að ræða heldur hafi efnablandan verið náttúruleg, sömu gerðar og finnst í baunum sem barnamaturinn er unnin úr. 29.7.2004 00:01
Edwards lofar Kerry John Edwards, varaforsetaefni Demókrata, sagði í ræðu á flokksþinginu í Boston í gær að John Kerry, forsetaefnið, væri klár í baráttuna gegn hryðjuverkum. Líkt og aðrir Demókratar talaði hann þó gegn stríðsrekstri George Bush, Bandaríkjaforseta, og sagði að herafli yrði aðallega notaður til að verja Bandaríkin. 29.7.2004 00:01
Fordæma árásina í Baquba Bandaríkjamenn fordæma sjálfsmorðssprengjuárásina í Baquba í Írak í gær. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gærkvöldi að árásin myndi ekki draga úr áætlunum Bandaríkjamanna um uppbyggingu landsins. 29.7.2004 00:01
Dómurinn mildaður um 36 ár Stríðsglæpadómstóllinn í Hague mildaði í dag einn harðasta dóm sem hann hefur kveðið upp um 36 ár. Fyrrverandi hershöfðingi í her Króata í Bosníu, Tihomir Blaskic, var dæmdur árið 2000 fyrir stríðsglæpi og þjóðarhreinsanir í Bosníu árið 1993. 29.7.2004 00:01
Gíslatökum linnir ekki Hryðjuverkahópur Abu-Musab al-Zarqawi linnir ekki látum og heldur áfram gíslatökum og hótunum. Nýjasti gíslinn er vörubílstjóri frá Sómalíu, sem rænt var í morgun, þegar hann var við vinnu sína hjá fyrirtæki frá Kuwait, sem starfar í Írak. 29.7.2004 00:01
Fullkomin peningafölsun Falsaðir danskir hundrað krónu seðlar eru nú í umferð í Kaupmannahöfn og er óttast að þeir séu prentaðir ásamt Pundum, Dollurum og Evrum, í fullkominni prentsmiðju einhvers staðar í Austur- Evrópu. 29.7.2004 00:01
Kerry heldur ræðu sína í dag John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Hann segir ræðuna sem hann heldur í tilefni dagsins vera þá mikilvægustu á ferli sínum. 29.7.2004 00:01
Hóta blóðbaði í Evrópu Samtök sem sögð eru tengjast Al-Qaida hafa hótað að standa fyrir blóðbaði í Evrópu á næstunni. Í yfirlýsingu samtakanna, sem birtist á Netinu í dag eru Evrópuríki fordæmd fyrir að hafa ekki dregið herlið sín heim frá Írak og Afghanistan. 29.7.2004 00:01
Fá áfram að selja olíu Rússneski olíurisinn Yukos fær áfram að framleiða og selja olíu þrátt fyrir fyrri kröfur dómsvalda um að öll sala á afurðum fyrirtækisins yrði stöðvuð. Dómsmálaráðuneytið rússneska sagði bannið ekki ætlað að stöðva olíuframleiðslu Yukos. 29.7.2004 00:01
Hakakrossar í kirkjugarði Skemmdarvargar máluðu hakakrossa og tákn djöfladýrkenda á 32 leiði í kirkjugarði franskra gyðinga í gær. Maður sem færði blóm að leiði ættingja síns í kirkjugarðinum gerði lögreglu viðvart. Svo virðist sem skemmdarvargarnir hafi takmarkaða þekkingu á þeim málstað sem þeir predika, enda voru sumir hakakrossanna öfugir og líktust því fremur gamla einkennismerki Eimskipa en tákni um nasisma. 29.7.2004 00:01
Ráðstefnu frestað í Írak Ráðstefnu sem halda átti í Írak á laugardaginn hefur verið frestað til 15. ágúst að beiðni Sameinuðu þjóðanna. Forsvarsmenn ráðstefnunnar neita því að hryðjuverkin í gær hafi orðið þess valdandi að ákveðið var að fresta henni. 29.7.2004 00:01
Edwards ber Kerry lofi John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Ræðan sem hann heldur í kvöld er líklega sú mikilvægasta á ferli hans. 29.7.2004 00:01
NATO hunsar Frakka Allt bendir til þess að NATO muni þjálfa íraska hermenn innan landamæra Írak, þrátt fyrir að Frakkar hafi lagst gegn því. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, vill fá úr málinu skorið ekki síðar en í vikulok. 29.7.2004 00:01
Skæruliðar segja fangelsun ótæka Salvatore Manusco, leiðtogi kólumbískra skæruliða hélt ræðu á kólumbíska þinginu í gær og sagði það ólíðandi að nokkur manna sinna þyrfti að sæta fangavist. 29.7.2004 00:01
Ráðstefnu í Írak frestað Landsráðstefnu Íraka, sem átti að hefjast á morgun, hefur verið frestað um tvær vikur eftir að bílsprengja varð 70 manns að aldurtila á miðvikudag. Ráðstefnan er talinn mikilvægt skref í þróun Íraks í lýðræðisátt. 29.7.2004 00:01
Ódæðisverk í Kashmír Þrítug indversk húsmóðir var hálshöggvin í indverska hluta Kasmír héraðs í gær. Morðið hefur vakið mikinn óhug í héraðinu en fyrr í vikunni var karlmaður afhöfðaður ásamt tveimur börnum sínum. 29.7.2004 00:01
SÞ ályktar um Súdan Vígamenn hlekkja óbreytta borgara saman og kveikja í þeim í Darfur héraði í Súdan, en það eru engar blikur á lofti sem benda til þess að ógnaröldin sé á undanhaldi. 29.7.2004 00:01
Dómstóll kannar stríðsglæpi Alþjóðasakadómstóllinn í Haag hefur hafið rannsókn á meintum voðaverkum í norðurhluta Úganda, þar sem ríkistjórnin hefur barist við uppreisnarmenn í átján ár. Þetta er önnur formleg rannsókn Alþjóðasakadómstólsins, en í næsta mánuði hefst rannsókn á meintum stríðsglæpum í Kongó. 29.7.2004 00:01
Páfagarður kannar barnaklám Vatíkanið hefur meinað austurískum biskup að tjá sig opinberlega um barnaklámsmál sem kom upp í kaþólskum prestaskóla í umdæmi hans fyrir skemmstu. 29.7.2004 00:01
Aldrei í stríð af hentisemi John Kerry tók við útnefningu demókrata í gær sem frambjóðandi þeirra í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi. 29.7.2004 00:01
Handtekin fyrir súkkilaðiát Kona var handtekin af lögreglu og haldið í gæslu í þrjár klukkustundir fyrir að borða súkkulaðistöng á neðanjarðarlestarstöð í Washington þar sem neysla matvæla er bönnuð. 29.7.2004 00:01
Þjóðverjar latastir Slóvenar eru uppteknastir Evrópubúa meðan Þjóðverjar og Norðmenn eru meðal þeirra sem mest slæpast samkvæmt nýrri könnun á frítíma Evrópubúa. 28.7.2004 00:01
Hélt barni og móður föngnum Saksóknari í máli Michaels Jacksons heldur því fram að poppstjarnarn hafi haldið barni og móður þess föngnum á Neverlandi búgarði sínum, og neytt þau til að taka upp myndband til að kveða niður ásakanir um kynferðislega áreitni Jacksons gagnvart ungum drengjum. 28.7.2004 00:01
Mannskæðasta árás í mánuð Yfir fimmtíu manns létust og að minnsta kosti 70 særðust þegar öflug bílsprengja sprakk í Baqouba í Írak í morgun. Þetta er mannskæðasta sprengjuárás í Írak síðan þeir tóku aftur við völdum fyrir nákvæmlega mánuði. 28.7.2004 00:01
Öryggisvörður skaut þrjá Öryggisvörður í sendiráði Chile, á eyjunni Costa Rica, skaut þrjá manns til bana í gær og tók eigið líf í framhaldi. Síðdegis í gær tók hann tíu manns í gíslingu, embættismenn og aðra starfsmenn sendiráðsins. 28.7.2004 00:01
Há sjálfsmorðstíðni hermanna Sjálfsmorðstíðni meðal rússneskra hermanna hefur aukist verulega á þessu ári að sögn rússneska hersins. Fyrstu sex mánuði ársins frömdu 109 rússneskir hermenn sjálfsmorð, sem er 38% aukning frá síðasta ári. 28.7.2004 00:01
Hringja beint gegnum tölvuna Nú geta tölvueigendur hringt beint í heimilissíma og farsíma úr tölvunni ef þeir útvega sér nýtt forrit. 28.7.2004 00:01
Greiddu ekki lausnargjald Egyptar hafa neitað fréttum þess efnis að stjórn landsins hafi greitt hryðjuverkamönnum tugi milljóna í lausnargjald fyrir háttsettan erindreka Egypta í Írak, sem skæruliðar tóku í gíslingu fyrir tæpri viku. 28.7.2004 00:01
Kerry ausinn lofi á flokksþingi John Kerry mun leiða baráttuna gegn hryðjuverkum betur en George Bush, endurvekja von hjá fólkinu í landinu og stuðla að jafnrétti. Þetta segir hver ræðumaðurinn á fætur öðrum á flokksþingi Demókrata, sem nú stendur sem yfir í Boston. 28.7.2004 00:01
Sex farast í sprengingu í Kabúl Sex manns fórust í sprengingu sem varð í mosku í Kabúl í Afganistan í dag. Tveir þeirra voru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sem unnu að undirbúningi kosninga í landinu, en öfgafullir múslimar eru andvígir kosningunum. Ekki er þó fullyrt að þeir beri ábyrgð á tilræðinu. 28.7.2004 00:01
Skipað að hætta sölu á olíu Rússnesk yfirvöld hafa skipað olíurisanum Yukos að stöðva sölu á olíu. Yukos selur að meðaltali um 1,7 milljónir tunna á dag sem er 20 prósent af heildarolíuframleiðslu Rússlands. Ef af verður er líklegt er að þetta muni flýta fyrir hruni fyrirtækisins sem láðist að borga skatta upp á marga milljarða dollara. 28.7.2004 00:01
Læknar án landamæra frá Afganistan Samtökin, Læknar án landamæra, hafa ákveðið að hverfa frá Afganistan eftir 24 ára veru þar. Ástæður eru slæm öryggisskilyrði fyrir starfsmenn samtakanna en fimm voru drepnir í byrjun júní og hætta er á fleiri árásum. 28.7.2004 00:01
Tala látinna komin í 68 Tala látinna, eftir bílsprenginguna í Baquba í Írak í morgun hækkar enn og er komin í 68. Þetta er því orðið lang mannskæðasta tilræði skæruliða í landinu til þessa. Bíllinn sprakk í loft upp fyrir utan lögreglustöð við fjölfarna götu í borginni á háannatímanum í morgun. 28.7.2004 00:01
Hakkarar meiri ógnvaldar en mafían Rússneskir tölvuhakkarar eru að verða mun meiri ógnvaldar en rússneska mafían, sem þó er illræmd víða um heim. Að sögn yfirmanns í rússnesku lögreglunni, sem gerði Pútín forseti grein fyrir þessu. 28.7.2004 00:01
Skógareldar í Portúgal Miklir skógareldar hafa brotist út víða í Portúgal. Yfir 400 slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn til að koma í veg fyrir að hann nái að valda jafn miklu tjóni og í fyrra þegar minnst 18 manns fórust. 28.7.2004 00:01
Árásir í vesturhluta Íraks Skæruliðar gerðu árás á nokkrum stöðum á vesturhluta Íraks í dag með þeim afleiðingum að tveir erlendir hermenn létust og tvær flugvélar voru þvingaðar til nauðlendingar. Ekki er ljóst hvers lenskir hermennirnir voru en flestir hermenn á svæðinu eru bandarískir. 28.7.2004 00:01
Sendiráð opnuð á ný í Írak Sádi-Arabía hefur ákveðið að opna aftur sendiráð í Írak, segir forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi. Sendiráðum Sádi-Arabíu var lokað árið 1991 í Persaflóastríðinu en bandaríski heraflinn var staðsettur í Sádi-Arabíu á meðan á stríðinu stóð. 28.7.2004 00:01
Reagan talaði hjá demókrötum Ræða Ron Reagans á flokksþingi demókrata í fyrradag hefur vakið mikla athygli. Ron er sonur Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem er afar dáður af repúblikönum vestra. 28.7.2004 00:01
1700 vinna að niðurlögum eldanna Grikkir, Spánverjar og Ítalir hafa sent flugvélar til Portúgals til þess að hjálpa til við að slökkva skógarelda sem geisað hafa í landinu undanfarna daga. Þó að fleiri eldar hafi komið upp í ár en í fyrra hefur tjón vegna þeirra verið mun minna. 28.7.2004 00:01
Mannskæðustu átök í mánuð Átök dagsins í dag í Írak voru þau mannskæðustu frá því að Írakar tóku aftur við völdum fyrir réttum mánuði. Að minnsta kosti 111 manns létust í tveimur bílsprengingum og bardögum milli skæruliða og hermanna. 28.7.2004 00:01
Grunsamlegur hlutur í farþegarými Flugvél bandaríska flugfélagsins United Airlines, með 246 manns um borð, lenti í morgun heilu og höldnu á flugvellinum í Sydney í Ástralíu eftir að grunsamlegur hlutur fannst í farþegarýminu. Vélin var á leið frá Sydney til Los Angeles þegar hluturinn fannst. Ekki hefur verið upplyst hvaða hlutur þetta var eða hvort hann var hættulegur. 27.7.2004 00:01
Clinton harðorður í garð Bush Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var harðorður í garð George Bush forseta í ræðu sinni við setningu flokksþings Demókrataflokksins í Boston í gærkvöldi og sagði stefnu hans sundra þjóðinni. 27.7.2004 00:01