Erlent

Friður á Fílabeinsströndinni

Forseti Fílabeinsstrandarinnar, Laurent Gbagbo og leiðtogi uppreisnarmanna skrifuðu undir friðarsamning í gær en vonast er til að þar með ljúki tveggja ára borgarastyrjöld í landinu. Mennirnir hittust í borginni Accra í Ghana ásamt leiðtogum tólf Afríkuríkja og Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna. Árið 1999 varð valdarán á Fílabeinsströndinni og tveimur árum seinna braust út borgarastyrjöld. Fyrir stríðið var Fílabeinsströndin eitt af stöðugustu ríkjum Afríku og var lengi vel stærsti kakóframleiðandinni í álfunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×