Erlent

Kerry með leyniáætlun

John Kerry, frambjóðandi Demókrataflokksins til forsetaembættisins í Bandaríkjunum, gefur í skyn að hann muni ná samkomulagi um lyktir Íraksstríðsins nái hann kjöri sem forseti. Hann neitar hins vegar að gefa upp hvað hann hafi fyrir sér í þessum efnum. Stjórnmálaskýrendur hafa bent á að áður hafi forsetaframbjóðendur þóst munu eiga auðveldara með að leysa úr stríðsrekstri heldur en sitjandi forsetar. Þannig sagðist Richard Nixon búa yfir leynilegri áætlun til að binda endi á Víetnamstíðið þegar hann bauð sig fram 1968 og Dwight Eisenhower sagðist mundu geta bundið endi á stríðið í Kóreu. Kerry og stuðningsmenn hans hafa mjög gefið í skyn á síðustu vikum að næði Kerry kjöri yrðu samskipti Bandaríkjamanna við umheiminn vinsamlegri en þau eru nú. Kerry hefur gefið til kynna að erlendir þjóðhöfðingjar vilji heldur sjá hann í forsetaembættinu heldur en Bush. Enginn hefur þó getað nefnt nöfn í því samhengi enda væru slíkar yfirlýsingar ekki í takt við hefðir og venjur í alþjóðlegum samskiptum fullvalda ríkja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×