Erlent

Ýtt verði á eftir umbótum

Nefndarmenn úr Ellefta September nefndinni, sem rannsakaði hvað fór úrskeiðis í tengslum við hryðjuverkin ellefta september árið 2001 í Bandaríkjunum, hafa hvatt bandaríska öldungadeildarþingmenn til að ýta á eftir umbótum sem mælt er með í niðurstöðum nefndarinnar. Þeir segjast ekki treysta leyniþjónustu Bandaríkjanna til að ráðast í almennilegar umbætur. Eftir langar yfirheyrslur yfir æðstu mönnum Bandaríkjanna komst nefndin að þeirri niðurstöðu að heillavænlegast væri að stofna sérstaka deild gegn hryðjuverkum og að nýr yfirmaður leyniþjónustunnar ætti að vera yfir 15 ólíkum deildum leyniþjónustunnar til að sjá til þess að öll verkefni væru samræmd og að tryggja upplýsingaflæði á milli stofnana. Lee Hamilton, úr demókrataflokki sem var varaformaður nefndarinnar sagði að hann teldi að leyniþjónustan myndi ekki ráðast í nauðsynlegar umbætur nema að einhver væri fenginn sérstaklega til að ýta á eftir þeim og stjórna. Formaðurinn Thomas Kean sagði að leyniþjónusta Bandaríkjanna hefði gert óteljandi mistök vikurnar fyrir ellefta september og að helsta ástæðan fyrir að ekki var hægt að koma í veg fyrir árásirnar var vegna þess að alla samhæfingu milli stofnana vantaði. Hann sagði jafnframt að allar stofnanirnar yrðu nú að gefa eftir völd til að hægt sé að endurskipuleggja leyniþjónustuna. Kean sagði að ekki hefði verið tekið tillit til ábendinga um að landið væri illa búið undir forsetakosningarnar - of mikið regluveldi kemur í veg fyrir að hægt sé að tryggja öryggi á næstu mánuðum. Hann hvatti því öldungadeildarþingmenn landsins til að þrýsta á breytingar innan leyniþjónustunnar hversu óþægilegar sem þær kynnu að vera. Forseti Bandaríkjanna, George Bush, setti á laggirnar, eftir að á hann var þrýst, vinnuhóp til að skoða tillögur ellefta september nefndarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×