Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslensk stjórnvöld gerist sek um mannréttindabrot með beitingu einangrunarvistar Ný skýrsla Amnesty International segir íslensk stjórnvöld beita einangrunarvist í gæsluvarðhaldi í of miklum mæli. Framgangur þessi brjóti meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóðanna hvað varðar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu meðal annars. 31.1.2023 00:01
Meira en tíu bílar fastir í Grafarvogi vegna færðar og útköll um allt land Upplýsingafulltrúar Landsbjargar og almannavarna segja daginn hafa gengið vel fyrir sig. Mest sé um lítil verkefni og greinilegt að fólk hafi hlustað á veðurviðvaranir. 30.1.2023 22:20
Hafa samþykkt verkfallsboðun Starfsmenn Íslandshótela hafa samþykkt boðun um verkfallsaðgerðir. Rafræn atkvæðagreiðsla sem hófst á hádegi síðastliðinn þriðjudag lauk nú fyrir stuttu. Verkfall hefst í næstu viku, hafi samningar ekki náðst. 30.1.2023 22:04
Mega ekki skíra barnið sitt Kisu Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum. 30.1.2023 21:22
Stígamót alfarið á móti því að afnema klámbann Stígamót taka undir það að kominn sé tími til að endurskoða löggjöfina um klám enda nær hún illa utan um þann stafræna veruleika sem við búum við í dag. Samtökin eru hinsvegar alfarið á móti því að bann við klámi verði afnumið. Heldur þurfi að horfast í augu við það að klám er í raun stór ógn við lýðheilsu og jafnrétti og grípa til viðeigandi aðgerða. 30.1.2023 19:35
Hafa áhyggjur af strandaglópum Veðrið er farið að versna og eru appelsínugular og gular viðvaranir í gildi víða. Búið er að loka nokkrum vegum á Suður- og Suðausturlandi vegna veðurs. Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af því að fólk verði strand og komist ekki leiðar sinnar. 30.1.2023 17:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Efling krefst þess að miðlunartillaga ríkissáttasemjara verði felld úr gildi og hefur lagt fram stjórnsýslukæru vegna tillögunnar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. 30.1.2023 17:33
Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum líklega vegna veðurs Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum, Landeyjum og Vík eftir að Rimakotslína 1 leysti út skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er svæðið nú keyrt með varaafli og ættu því flestir að vera komnir aftur með rafmagn. Bilunin er líklega vegna veðurs. 30.1.2023 17:24
Kristrún farin í fæðingarorlof Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar er farin í fæðingarorlof og hefur kallað inn varaþingmann á Alþingi. 30.1.2023 17:18
Veginum um Hellisheiði lokað Veginum um Hellisheiði hefur nú verið lokað. Hvalfjarðargöngum var lokað í stutta stund en hafa þau nú verið opnuð aftur. 30.1.2023 17:14
Vindmylluveri í Klausturselsheiði mótmælt Landvernd hefur komið á fót undirskriftasöfnun þar sem skorað er á norska orkufyrirtækið Zephyr AS að falla frá áformum um að reisa risavaxið vindorkuver í landi Klaustursels á Fljótsdalsheiði. 30.1.2023 16:01
Verkfræðinemar við HR fengu Nýsköpunarverðlaun forsetans Axel Pálsson, Tómas Frostason og Tómas Orri Pétursson hlutu Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin hlutu þeir fyrir verkefnið „Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika“. 30.1.2023 15:41
Loka vegköflum undir Eyjafjöllum, við Reynisfjall og á Lyngdalsheiði Veginum undir Eyjafjöllum sem liggur frá Markarfljóti til Víkur í Mýrdal hefur verið lokað. Þá hefur veginum við Reynisfjall verið lokað, sem og Lyngdalsheiði. 30.1.2023 15:27
Hafa skilað inn stjórnsýslukæru vegna ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur skilað stjórnsýslukæru til ráðuneytis vinnumarkaðsmála vegna framferðis ríkissáttasemjara í kjaradeilu stéttarfélagsins og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir það ekki koma á óvart að hafa ekki fengið fund með ráðherra í morgun. 30.1.2023 14:03
Eldur í raðhúsi í Kópavogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að eldur kom upp í raðhúsi við Hrauntungu í Kópavogi í dag. 30.1.2023 13:52
Efling þarf að skila greinargerð á föstudaginn Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að Efling fengi til föstudags til að skila greinargerð í deilu félagsins við ríkissáttasemjara um hvort félaginu sé skylt að afhenda félagatal sitt vegna miðlunartillögu sáttasemjara. Fyrirtaka í málinu fór fram í héraðsdómi eftir hádegið. 30.1.2023 13:39
Karókí bridgespilara fyrir bí eftir að ælt var á græjurnar Hópur af bridgespilurum neyddist til að hætta við karókí eftir að ælt var á karókíræjurnar á Bankastræti Club. Hópurinn sem samanstóð af spilurum sem höfðu verið að keppa á Reykjavík Bridge Festival þurfti því að sætta sig við að spjalla saman en ekki syngja saman. 30.1.2023 13:23
Sektaður á leiðinni til mömmu á 37 kílómetra hraða Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður á Rás 2 er hugsi eftir að hafa í annað sinn á einu ári verið sektaður fyrir að aka á 37 kílómetra hraða í heimabæ sínum Akranesi. Skiptar skoðanir er á því hvernig bregðast eigi við kappakstri á Seltjarnarnesinu á föstudagskvöld. 30.1.2023 12:54
Samhæfingarstöð almannavarna virkjuð og öllu innanlandsflugi aflýst Samhæfingastöð Almannavarna var virkjuð á hádegi vegna lægðarinnar sem gengur yfir í dag en óvissustig almannavarna er í gildi vegna veðurs. Gular og appelsínugular verða í gildi á nánast öllu landinu fram á nótt. Búist er við að vegum verði lokað og breytingar hafa verið gerðar á flugáætlun. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir stutt í næstu lægð. Íþróttaæfingar hafa víða verið blásnar af. 30.1.2023 12:03
Takast á um félagatalið í dómsal í dag Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatala sitt, svo hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú eftir hádegi. Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir en óskað hefur verið eftir flýtimeðferð. 30.1.2023 12:00
Telur bæjaryfirvöld vilja fórna Ástjörn fyrir Haukahúsið Davíð Arnar Stefánsson, oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði, segir þyngra en tárum taki að bæjaryfirvöld telji sig þess umkomna að vera ósammála mati fagstofnunar um náttúruvernd. 30.1.2023 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður veðrið í forgrunni en enn ein lægðin nálgast nú óðfluga og hefur óvissustig almannavarna verið virkjað víða um land. Óttast er að röskun verði á samgöngum og flugfélögin höfðu vaðið fyrir neðan sig og flýttu ferðum í morgun. 30.1.2023 11:30
Harma að sjálfboðaliðar séu dregnir fyrir dóm Forsvarsmenn Knattspyrnufélags Akureyrar harma að ákæruvaldið hafi ákveðið að ákæra sjálfboðaliða sem fengnir voru til að sinna miðasölu og umsjón með risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Sér í lagi þar sem eigandi hoppukastalans hafi ítrekað lýst ábyrgð sinni í fjölmiðlum. Forseti bæjarstjórnar er annar sjálfboðaliðanna sem sætir ákæru. Meirihlutinn á Akureyri lýsir yfir fullu trausti við störf hans. 30.1.2023 10:18
Ætlar ekki að beita sér gegn miðlunartillögunni Vinnumarkaðsráðherra segist ekki ætla að beita sér fyrir því að ríkissáttasemjari dragi miðlunartillögu sína til baka. Hann segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara og segist ætla að funda með Eflingu þegar hann kemur heim frá Kaupmannahöfn. 30.1.2023 08:59
Börn staðin að þjófnaði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gær þar sem börn reyndust hafa gerst sek um lögbrot. Í báðum tilvikum var um að ræða þjófnað. 30.1.2023 07:45
Nágrannaerjur verði einna verstar í tví- og þríbýli Nágrannaerjur geta verið mjög fljótar að vinda upp á sig og verða oft einna verstar í tví- og þríbýli. Þetta segir lögfræðingur sem aðstoðað hefur nágranna við að ná sáttum í deilum sem oft enda í algjöran hnút. 30.1.2023 07:00
Heimildin óumdeild og ekki háð samþykki deiluaðila „Það er alveg ljóst að sáttasemjari hefur þessa heimild til að leggja fram miðlunartillögu og þarf ekkert samþykki deiluaðila til þess. Það er staðreyndin.“ 30.1.2023 06:34
Veðrið versni mjög eftir hádegi Óvissustigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna slæmrar veðurspár. Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi nánast á landinu öllu klukkan tólf á morgun. Veðurfræðingur segir að veðrið taki að versna mjög hratt eftir hádegi. 29.1.2023 23:01
Kallar eftir fundi með lögreglu og vill hraðamyndavél á Norðurströnd Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi mun óska eftir fundi með lögreglunni strax í fyrramálið vegna alvarlegs bílslyss sem varð í bænum á föstudag. Bæjarbúar vilja að gripið verði til aðgerða til að koma í veg fyrir hraðakstur, til dæmis með uppsetningu hraðamyndavélar. 29.1.2023 22:16
Icelandair flýtir flugi vegna óveðursins Icelandair hefur tekið ákvörðun um að flýta brottfarartíma nokkurra flugferða vegna slæmrar veðurspár á morgun. Mælt er með því að farþegar fylgist vel með. 29.1.2023 22:08
„Þetta er óþekkjanlegt“ Mikið tjón varð hjá ábúendum á bænum Skollagróf í Hrunamannahreppi þegar gríðarlegt krapaflóð varð í Hvítá aðfaranótt föstudags. Bóndi segir svæðið óþekkjanlegt og man ekki eftir öðru eins flóði. 29.1.2023 20:30
Heimurinn hrynji ekki þó tímalína raskist Mennta- og barnamálaráðherra heldur fast í tímaáætlun þjóðarhallar og telur raunhæft að höllin muni rísa árið 2025. Kostnaður við uppbyggingu eru tæpir fimmtán milljarðar og skipting milli ríkis og borgar liggur ekki fyrir. Upphaflega sagðist Reykjavíkurborg eiga tvo milljarða til. 29.1.2023 20:14
Vilja að Guðmundur Ingi beiti sér gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara Formaður Eflingar krefst þess að vinnumarkaðsráðherra beiti sér gegn umdeildri miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ráðherra neyddist þó til að fresta fundi með formanninum sem halda átti í fyrramálið. 29.1.2023 19:15
„Mesta ógn við borgaralegt frelsi á okkar tímum“ Þingmaður Pírata furðar sig á áformum forsætisráðherra sem hyggst skylda opinbera starfsmenn og kjörna fulltrúa á námskeið um hatursorðræða. Lögmaður telur að „öryggisþráhyggja“ hafi gripið um sig og segir valdhafa telja frelsi svo hættulegt að nauðsynlegt sé að takmarka það. 29.1.2023 19:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar krefst þess að vinnumarkaðsráðherra beiti sér gegn umdeildri miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ráðherra neyddist þó til að fresta fundi með formanninum sem halda átti í fyrramálið. 29.1.2023 18:12
Ráðherra fundar með Eflingu í fyrramálið Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra hefur boðað forystu Eflingar á fund til sín klukkan 08:30 í fyrramálið. 29.1.2023 15:38
„Ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar“ Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason segir fjölmiðla hafa misskilið yfirlýsingu sem hann gaf frá sér vegna ásakana á hendur honum sem komu fram í fyrra. Hann hafi aldrei gengist við öllum ásökunum fyrrverandi kærustu sinnar. 29.1.2023 14:42
„Ríkissáttasemjari að reyna að auka valdheimildir sínar“ Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur ríkissáttasemjara með nýjasta útspili sínu reyna að víkka út valdheimildir sínar. 29.1.2023 12:02
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur ríkissáttasemjara með nýjasta útspili sínu reyna að víkka út valdheimildir sínar. Kjaramálin verða í eldlínunni í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. 29.1.2023 11:59
Hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils sáttasemjara Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra en hún birti bréf þess efnis á Facebook síðu sinni. Hún segir traust verkalýðsfélaga til ríkissáttarsemjara skert og framferði hans óþolandi. 29.1.2023 09:44
Undarleg hljóð reyndust húsráðandi að berja svínakjöt með hamri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi vegna háværra dynkja sem bárust frá íbuð í hverfi 105. Þegar á vettvang var komið kom í ljóst að dynkirnir áttu sér eðlilegar skýringar. Húsráðandi var að berja svínakjöt með kjöthamri með tilheyrandi látum. 29.1.2023 09:35
Sprengisandur: Ný þjóðarhöll, kjaradeilur og hatursorðræða Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka. Hann ætlar að rekja starfssögu sína. 29.1.2023 09:20
Landsréttur sneri sýknu vanhæfa dómarans við Landsréttur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða fyrrverandi starfsmanni skaðabætur vegna blöðruboltaslyss. Landsréttur hafði áður sýknað borgina en einn dómara við Landsrétt var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Málið rataði til Hæstaréttar og svo aftur til Landsréttar, sem hefur nú komist að annarri niðurstöðu. 28.1.2023 23:01
„Hraðakstur er dauðans alvara“ Betur fór en á horfðist þegar tveir bílar, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Seltjarnarnesi. Sjónvarvottar telja að annar þeirra hafi verið á hátt í hundrað kílómetra hraða. Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar biðlar til fólks að aka varlega og eftir aðstæðum. 28.1.2023 19:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segum við frá glæfraakstri sem endaði með árekstri tveggja bíla þar sem fimm þurftu að fara á spítala. Að sögn lögreglu var hluti farþega ekki í bílbelti en enginn slasaðist alvarlega. 28.1.2023 18:00