Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gekk á nýju hrauni rétt fyrir sprengingu Ljósmyndari sem var á ferð við hraun úr gossprungunni á Reykjanesi sem opnaðist á öðrum degi páska varð vitni að því að maður fór upp á nýtt hraunið til að komast nær rennandi hrauntaumunum Nokkrum mínútum síðar varð sprenging neðanjarðar sem skók alla nærstadda. 11.4.2021 14:37
Dæmi um að fólk fari inn á þröng svæði milli hrauntungna Borið hefur á því að almenningur hafi farið langt inn á skilgreint hættusvæði við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavörnum. Í sumum tilfellum má lítið út af bregða til þess að fólk lokist inni, umlukið heitum hrauntungum. 11.4.2021 14:33
Barnasprengja í Mýrdalshreppi – nýr leikskóli byggður Það er engin lágdeyða í Vík í Mýrdal þó að þar liggi niðri meira og minna öll ferðaþjónusta vegna heimsfaraldursins, því nú á að fara að byggja þar nýjan leikskóla fyrir sextíu börn. Þá þarf sveitarfélagið meira af starfsfólki í grunnskólann og leikskólann því börnum í Mýrdalshreppi fjölgar svo hratt 11.4.2021 13:04
Fimmtíu orðið fyrir ofbeldi af hendi fyrrverandi maka Hundrað og tíu manns leituðu til Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri, í fyrra samkvæmt ársskýrslu Bjarmahlíðar. Fimmtíu þolendur tilgreindu ofbeldi af hálfu fyrrverandi maka. 11.4.2021 12:59
Hafa samband við eigendur brunnhúss þar sem kona féll Fulltrúar Mosfellsbæjar ætla að hafa samband við eigendur brunnhúss eftir að kona féll þar niður og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að brunnhúsið hafi verið lokað en einhver hafi opnað það. 11.4.2021 12:32
Bindur vonir við að hægt verði að slaka á aðgerðum um miðjan apríl Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að hugsa þurfi út í aðrar leiðir, ráði kerfið ekki við fyrirkomulag sóttkvíarhótela. Dýrt sé að hafa eftirlit með fólki og þarfnast skipulagið mikils mannafla. 11.4.2021 12:09
Segir fólk eiga það til að vera kærulaust við hraunið Opið verður fyrir umferð að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli til klukkan níu í kvöld, líkt og síðustu daga. Yfirlögregluþjónn segir útlit fyrir nokkuð gott veður en ítrekar að staðan á svæðinu sé háð sífelldu endurmati, vegna hættu á gasmengun. Fólki er þá ráðlagt að vera ekki of nálægt hrauninu. 11.4.2021 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, bindur vonir við að hægt verði að slaka á aðgerðum um miðjan apríl. Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru báðir utan sóttkvíar. Við heyrum í Þórólfi í hádegisfréttum. 11.4.2021 11:28
Eitt sóttkvíarhótel fullt og annað tekið í gagnið Sóttkvíarhótelið við Þórunnartún er orðið fullt og er nú unnið að því að taka Hótel Baron við Barónsstíg í Reykjavík í notkun sem sóttkvíarhótel. 11.4.2021 10:51
Tveir greindust utan sóttkvíar í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru báðir utan sóttkvíar. 11.4.2021 10:39
Sóttvarnalæknir og pólitík sóttvarna í Sprengisandi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ræðir um afnám takmarkana og dómsniðurstöðu um sóttkvíarhótel í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Einnig ætla þrír þingmenn að ræða pólitík í sóttvörnum. 11.4.2021 09:32
Hífðu konu upp úr brunni við Lágafellskirkju Kona sem féll um tvo metra niður í brunn nærri Lágafellskirkju í Mosfellsbæ var orðin köld og þrekuð þegar slökkviliðsmenn náðu að bjarga henni upp. Samferðarfólk konunnar náði að halda henni upp úr vatni þar til slökkvilið kom á staðinn. 11.4.2021 09:18
Mildir suðlægir vindar leika um landið Spáð er rigningu eða slyddu í flestum landshlutum í dag fyrir tilstilli lægðar vestur af landinu sem beinir mildum suðlægum vindum yfir landið. Búist er við því að gasmengun leggi yfir norðanverðan Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðið í dag. 11.4.2021 07:32
Ógnaði fólki í verslunum Karlmaður sem ógnaði starfsmönnum og viðskiptavinum í verslun í vesturhluta Reykjavíkur í gær gisti fangageymslur lögreglu í nótt. Hann er sagður hafa komið við sögu í fleiri slíkum málum fyrr um daginn. 11.4.2021 07:16
Þyrla Gæslunnar sótti veikan mann að gosstöðvum Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti fyrr í kvöld miðaldra karlmann sem missti meðvitund eftir að hafa gengið að eldgosinu í Fagradalsfjalli. Hann var kominn niður frá gosstöðvunum og var á bílastæðinu á svæðinu þegar hann féll niður. 10.4.2021 23:05
„Við erum aldrei á byrjunarreit en þetta myndi lengja aðeins líf veirunnar“ Misskipting bóluefnis gegn kórónuveirunni í heiminum gæti haft alvarlegar afleiðingar, að mati erfðafræðings. Sum bóluefni er auðvelt að uppfæra gegn nýjum afbrigðum en önnur gæti þurft að þróa frá grunni. 10.4.2021 21:39
Sækja vélsleðamann sem féll sex metra fram af brún í Súgandafirði Björgunarsveitir á Vestfjörðum vinna nú að því að koma vélsleðamanni sem varð undir sleða sínum í botni Súgandafjarðar af slysstað. Björgunarsveitir hafa verið við vinnu í rúma tvo tíma en hjálparbeiðni barst um klukkan hálf sjö. 10.4.2021 20:56
Hrafnslaupur upp í byggingakrana á Selfossi Krummapar á Selfossi hefur heldur betur komið á óvart með varpstað því þau hafa búið til laup hátt upp í byggingakrana í bænum. Fuglafræðingur segir hrafninn einn gáfaðasta fugl, sem fyrirfinnst. 10.4.2021 20:07
Segir viðbúnað á gossvæðinu „eitthvað sem gengur ekki til lengri tíma“ Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt og mælist gasmengun á Höfuðborgarsvæðinu í dag. Unnið er að breytingu á skipulögðum viðbúnaði á svæðinu. 10.4.2021 20:01
Tólf tilkynningar um meint ofbeldi eða harðræði starfsfólks leik- og grunnskóla í fyrra Tólf tilkynningar um meint ofbeldi eða harðræði af hálfu starfsfólks í leik og grunnskólum borgarinnar bárust barnavernd Reykjavíkur í fyrra. Flest málin snúast um harðræði en einnig eru dæmi um óeðileg samskipti af kynferðislegum toga. 10.4.2021 19:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýjar reglur um útivist gesta á sóttkvíarhótelum eru þegar komnar í gildi. Áhyggjuraddir hafa heyrst undanfarið um skerta útivist gesta sem þurfa að vera í sóttkví í fimm daga. Áður máttu gestir hótelsins ekki fara út vegna sóttvarnaástæðna. 10.4.2021 18:03
Gestir sóttkvíarhótela eiga nú kost á útivist Nýjar reglur um útivist gesta á sóttkvíarhótelum eru þegar komnar í gildi en enn er margt í útfærslu. Áhyggjuraddir hafa heyrst undanfarið um skerta útivist gesta sem þurfa að vera í sóttkví í fimm daga. Áður máttu gestir hótelsins ekki fara út vegna sóttvarnaástæðna. 10.4.2021 17:48
Gasmengun frá gosinu berst til höfuðborgarinnar Gasmengun frá eldgosinu í Fagradalsfjalli blæs nú yfir höfuðborgarsvæðið og flokkast loftgæði, samkvæmt mælingum Umhverfisstofnunar, miðlungsgóð til slæm. Loftgæðin eru hvað verst á suðausturhluta höfuðborgarsvæðisins og mælast rúm 200 míkrógrömm af brennisteinsgasi í Norðlingaholti. 10.4.2021 17:17
Hættustigi lýst yfir þegar vél með skakkt hjól þurfti að lenda Hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli á fjórða tímanum í dag þegar í ljós kom að nefhjól einkaþotu sem tekið hafði á loft frá flugvellinum hafði skekkst. Mikill viðbúnaður var á vellinum þegar vélin lenti, en engan sakaði. 10.4.2021 16:34
Segir misskilnings gæta um björgunarsveitartjaldið Otti Rafn Sigmarsson, liðsmaður í björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík, segir ekki rétt að björgunarsveitartjald við eldstöðvarnar á Reykjanesi hafi staðið þar sem nú hefur myndast ný sprunga. 10.4.2021 16:08
Gagnrýna „órökstuddar og jafnvel óvísindalegar“ aðgerðir Hópur fólks var saman kominn Austurvelli fyrr í dag til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. 10.4.2021 15:20
Njála dómsgagn í nágrannadeilu Landeigendur á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum unnu mál fyrir Landsrétti á dögunum, þar sem nágrannar þeirra á bænum Káragerði höfðu stefnt þeim vegna þess að þeir töldu sig eiga tilkall til hlunninda á sameiginlegu landi jarðanna tveggja. Þeir eiga það ekki, var niðurstaðan á tveimur dómstigum. 10.4.2021 14:00
Upplýsingar um landbúnað og matvælaframleiðslu aðgengilegar á einum stað Mælaborð landbúnaðarins var opnað fyrir helgi. Um er að ræða rafrænan vettvang þar sem upplýsingar um landbúnað og matvælaframleiðslu á Íslandi eru gerðar aðgengilegar á einum stað. 10.4.2021 13:00
Níu hundruð manns bólusettir á Selfossi í gær og í dag Um fimm hundruð manns úr Hveragerði, Þorlákshöfn, uppsveitum Árnessýslu og frá Selfossi fá bólusetningu í dag og fjögur hundruð manns af þessum svæðum fengu bólusetningu í gær. 10.4.2021 12:23
Heilbrigðisráðherra heimsækir sóttkvíarhótel Svandís Svarsdóttir, heilbrigðisráðherra, ætlar að heimsækja sóttkvíarhótelið við Þórunnartún í dag. Þar kynnir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður sóttvarnahúsa Rauða krossins, starfsemina fyrir ráðherranum. 10.4.2021 11:58
Vill opna sundlaug fyrir bólusetta og segir „uppgjafartón“ í sóttvarnalækni Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst eftir helgi leggja fram formlega tillögu í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg leiti leiða til að opna minnst eina sundlaug fyrir bólusettum eldri borgurum. Hún er ósammála sóttvarnalækni um að opnun gæti reynst erfið í framkvæmd. 10.4.2021 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni og virðist það renna í Geldingadali. Að óbreyttu verður opið fyrir umferð að gossvæðinu til klukkan 21 í kvöld. Rætt er við náttúruvársérfræðing á Veðurstofu Íslands í hádegisfréttum. 10.4.2021 11:40
Í gæsluvarðhald grunaður um umfangsmikla kannabisræktun Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla kom upp um umfangsmikla þurrkun kannabisefna í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á fimmtudag. 10.4.2021 11:22
Stefnir í fullt sóttkvíarhótel í dag eða á morgun Hótel Baron við Barónstíg í Reykjavík verður að öllum líkindum tekið í notkun sem sóttkvíarhótel í dag eða á morgun. Þar er allt klárt að sögn forstjóra Sjúkratryggina Íslands. Gert er ráð fyrir að sóttkvíarhótelið við Þórunnartún fyllist í dag. 10.4.2021 10:59
Einn greindist í gær og var í sóttkví Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví. 10.4.2021 10:43
Hraun frá fjórðu sprungunni virðist renna í Geldingadali Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni og virðist það renna í Geldingadali. 10.4.2021 10:10
Eldur í bílum barst næstum því í nærliggjandi hús Tveir slökkvibílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fóru í útkall í nótt þar sem logaði í fjórum bifreiðum utandyra í iðnaðarhverfi á Esjumelum. 10.4.2021 09:25
Fólk á eigin ábyrgð á gossvæðinu fyrir hádegi Lögregla og björgunarsveitir verða með vakt á gossvæðinu á Reykjanesi frá hádegi til miðnættis í dag en því verður lokað klukkan níu í kvöld. Ný gossprunga opnaðist á svæðinu í nótt en talið er að fleiri gætu opnast fyrirvaralaust. Svæðið er opið í dag en þeir sem ætla sér inn á gossvæðið fyrir hádegi er sagðir gera það á eigin ábyrgð. 10.4.2021 08:57
Þórólfur sýnir fordæmi og þiggur ekki bólusetningu sem læknir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ákvað að þiggja ekki boð í bólusetningu sem hann fékk sem heilbrigðisstarfsmaður á dögunum. „Ég er ekki að vinna með sjúklinga, þannig að ég bíð,“ segir Þórólfur. 10.4.2021 08:00
Enn ein sprungan opnaðist í nótt Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja líklegt að enn ein gossprungan hafi opnast á Reykjanesi í nótt. Talið er að nýjasta sprungan liggi miðja vegu milli gosstöðvanna sem opnuðust á hádegi á öðrum degi páska og sprungu sem opnaðist aðfaranótt miðvikudags. 10.4.2021 07:13
Rannsaka árás á hótelstarfsmann í Reykjavik Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú árás á hótelstarfsmann í Reykjavík í gærkvöldi. Meintur árásarmaður var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði en hún er sögð hafa upplýsingar um hann. 10.4.2021 07:06
Koma mjaldursins afar óvenjuleg Mjaldur synti inn í Reykjavíkurhöfn í hádeginu í dag en staldraði stutt við. Hvalasérfræðingar segja afar óvenjulegt að sjá mjaldra á þessum slóðum, hvað þá eina á ferð. 9.4.2021 21:33
Nýjar sprungur gætu opnast án fyrirvara Vísbendingar eru um að frá sunnanverðum Geldingadölum og norðaustur fyrir gossprungurnar liggi kvika grunnt og er því ekki hægt að útiloka að fleiri gossprungur opnist á næstu dögum eða vikum. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 9.4.2021 21:12
Þak í eigu bæjarins skapar mikinn vanda fyrir íbúa á Eiðistorgi Íbúi á Eiðistorgi hefur ekki getað lagfært húsnæði sitt vegna glerþaks yfir torginu í eigu Seltjarnarnesbæjar. Bærinn segist ekki hafa fengið ósk um kostnaðarþátttöku en húsfélag krafðist þess að bærinn færi í framkvæmdir á þakinu árið 2019. 9.4.2021 21:00
Hraunflæði aukist og enginn endir í augsýn Hraunrennsli í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur aukist töluvert undanfarna sólarhringa en venjulega dregur úr hraunflæði með tímanum. 9.4.2021 20:30