Fleiri fréttir

Æskilegt að styrkir miðist við landnýtingu til að auka verðmæti

Afnema þarf beingreiðslur í landbúnaði til að draga úr sóun og ýta undir verðmætasköpun. Réttara væri að láta greiðslur fylgja ræktarlandi ef menn vilja styrkja landbúnaðinn á annað borð. Þetta segir Daði Már Kristófersson dósent í hagfræði.

Tuttugu rafmagnsvespur í óskilum hjá lögreglunni

Mikið hefur borið á því að rafmagnsvespum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu og er lögreglan nú með hátt í tuttugu slíkar í sinni vörslu, sem ekki hefur reynst unnt að koma til eigenda þar sem ekki er vitað hverjir þeir eru.

Sívaxandi straumur til Fjallabyggðar

Áætlað er að um 100 þúsund ferðamenn hafi komið í Fjallabyggð árið 2013. Það þýðir 50 prósenta aukningu frá árinu 2010. Þetta kemur fram í samantekt sem unnin var fyrir sveitarfélagið.

Mesta jafnréttið á Íslandi sjötta árið í röð

Ísland er enn sem fyrr efst á lista yfir þjóðir heimsins þegar mið er tekið af jafnrétti kynjanna. Það er Alþjóðaefnahagsráðið, eða World Economic Forum, sem tekur listann saman árlega þar sem hundrað fjörutíu og tveimur ríkjum heims er raðað eftir stöðu jafnréttismála.

Hálka víða á landinu

Á Suðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir þó er hálka eða hálkublettir á nokkrum leiðum.

Fatlaður komst ekki á mynd um fatlaða

Guðjón Sigurðsson komst ekki á mynd um fatlaða listamenn vegna lélegs aðgengis fyrir hjólastóla í Bíói Paradís. Forsvarsmenn kvikmyndahússins segja ástandið ömurlegt og fjármagn vanti til að bæta það en verið sé að vinna í því.

Strætó fær tuttugu nýja strætisvagna

Um tíu milljónir farþega fara með strætó á þessu ári. Ef spár ganga eftir verða þeir nálægt ellefu milljónum 2015. Vögnum fjölgar og ferðatíðni verður aukin á annatímum auk þess sem strætisvagnar hefja akstur fyrr á sunnudagsmorgnum.

Borga meira fyrir þjónustu í framtíðinni

Öldruðum kemur til með að fjölga um þrjú til fjögur prósent á hverju einasta ári næstu áratugina. Öldrunarþjónusta er fjársvelt í dag og það þyrfti að bæta verulega í.

Fleiri konur á endurhæfingarlífeyri

Helmingi fleiri konur en karlar fá endurhæfingarlífeyri. Geðraskanir og stoðkerfissjúkdómar algengustu ástæður vinnutaps. Svipað og í öðrum vestrænum löndum.

Hornfirðingar fá betri gasmæli

Þrír loftgæðamælar á Reyðarfirði og einn á Egilsstöðum sendu ekki frá sér upplýsingar frá laugardegi fram á mánudagsmorgun vegna bilunar í gagnaflutningi. Mælir í Hornafirði pípti svo mikið vegna gasmengunar að rafhlaða sem átti að endast í þrjú ár tæmdist.

Lærum af mistökum segir ráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra flutti fyrir helgi ávarp á alþjóðlegri ráðstefnu í Síle um sjálfbært fiskeldi.

Ritstjóri brýtur blað

Akureyri vikublað hefur verið að festa sig í sessi sem einn af betri héraðsmiðlum landsins síðustu misserin.

20 kennurum færra í menntaskólunum

Nái áform ríkisstjórnarinnar fram að ganga munu um 20 menntaskólakennarar missa vinnuna. Fækkun heilsársnema í fjárlagafrumvarpinu gefur það til kynna. Stefnir rekstrargrundvelli skóla á landsbyggðinni í hættu, segir formaður FF.

Lokafrágangur við hjólastíg

Unnið er að lokafrágangi við endurnýjaða gönguleið og hjólastíg frá Starhaga í Vesturbæ að Einarsnesi í Skerjafirði.

Leiguskip látin sinna haustralli

Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar harma þá stefnubreytingu sem orðin er í hafrannsóknum hér við land vegna bágrar fjárhagsstöðu stofnunarinnar. Bæði rannsóknaskip stofnunarinnar liggja bundin við bryggju á meðan haustralli er sinnt af leiguskipum og greitt fyrir með aflaheimildum.

Sigið nú 40 metrar

Mælir í öskju Bárðarbungu sýnir að sigið í fjallinu heldur áfram með svipuðum hraða og verið hefur undanfarnar vikur. Mælingar úr lofti sýna að heildarsigið var orðið 40 metrar á föstudag.

Borg og lögregla skera upp herör gegn heimilisofbeldi

Borgaryfirvöld og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ganga í smiðju Suðurnesjamanna í víðtæku samstarfi við úrvinnslu heimilisofbeldismála. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar vinnur að aðgerðaáætlun.

Draga þarf úr álagi á dýrin

Þegar varað er við háum gildum brennisteinsdíoxíðs (SO2) í lofti þurfa dýraeigendur að hafa í huga að mengunin hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk.

Sullur í sláturlambi

Nýverið greindist vöðvasullur í sláturlambi hér á landi. Um er að ræða lirfustig bandorms (Taenia ovis), sem lifir í hundum og refum en smitast ekki í fólk. Sullurinn getur valdið óþægindum fyrir sauðfé og tjóni vegna skemmda á kjöti.

Harma ráðagerðir menntamálaráðherra

Kennarafélag Fjölbrautaskólans við Ármúla harmar ráðagerðir menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssonar, að skerða aðgang nemenda eldri en 25 ára að bóknámi við framhaldsskóla.

KÚ kærir MS og KS

Mjólkurbúið KÚ hefur kært Mjólkursamsöluna (MS) og Kaupfélag Skagfirðinga (KS) til Samkeppniseftirlitsins fyrir brot á Samkeppnislögum.

Bangsadagur á leikskólum

Börn víða á leikskólum landsins mættu með bangsana sína í skólann, sum jafnvel líka bara enn á náttfötunum.

"Mikið má skýrsluhöfundurinn skammast sín“

"Ranghugmyndirnar eru svo svakalegar að ég held að það muni líða langur tími þangað til að ég geti borið eitthvað traust til þeirra sem tjá sig um mig og vini og bandamenn í þessu plaggi,“ segir Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata.

Vodafone ætlar ekki að áfrýja

Vodafone ætlar ekki að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur vegna lögbanns á skráaskiptasíðurnar deildu.is og Pirate Bay.

Fjórar milljónir renna í minningarsjóð Lofts

Miklar vinsældir góðgerðarpizzunnar úr smiðju Hrefnu Sætran meistarakokks munu koma útigangsmönnum í Reykjavík til góða á næstunni en þeir munu fá nýja skápa, ný rúm og sængurföt og ýmis raftæki, húsgögn og húsmuni inn á gistiskýli og athvörf sín í borginni.

Nýr hjólastígur frá Starhaga í Skerjafjörð

Nú er unnið að lokafrágangi við endurnýjaða gönguleið og hjólastíg frá Starhaga í Vesturbæ að Einarsnesi í Skerjafirði. Nýi hjólastígurinn tengir hjólastíginn á Ægissíðu við hjólastíg í Skerjafirði.

Sjá næstu 50 fréttir