Taka verður tillit til annarra stéttarfélaga þegar samið er við lækna Hjörtur Hjartarson skrifar 27. október 2014 20:00 Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra vonast til að lausn finnist í kjaradeilu lækna og stjórnvalda sem fyrst. „Ég tel það skyldu beggja samningsaðila að leita leiða til þess að búa svo um hnúta að við stöndum betur í samkeppni,“ segir Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.„Fólk heima í stofu veltir eflaust fyrir sér, afhverju leysir heilbrigðisráðherra ekki bara málið?“„Ef heilbrigðisráðherra hefði tækin til þess þá væri hann örugglega búinn að því en þetta mál er flóknara en svo.“ Fleiri ráðuneyti komi að samningsgerðinni og þó heilbrigðisráðherra hafi áður sagt að hann telji kröfur réttmætar er það í höndum fjármálaráðuneytisins að ákvarða tilboð um kaup og kjör til lækna.„Stærsti hlutinn af samningsumboðinu liggur hjá fjármálaráðuneytinu, gengur ekki vel að sannfæra Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra um að setja meiri pening í þetta?“„Ég bara veit það að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hefur á þessu fullan skilning en á herðum fjármálaráðherra Íslands hverju sinni hvíla gríðarlegar skyldur. Hann ber ábyrgð gagnvart fleirum en þessu eina stéttarfélagi, hann ber sömuleiðis ábyrgð gagnvart aðilum vinnumarkaðarins og Seðlabankanum um stöðugleika í þjóðfélaginu. Þannig að í því verki verður fjármálaráðherrann, sama hvaða nafn svo sem hann ber, að taka tillit til margra fleiri þátta.“Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherraEn hvar svo sem valdið liggur vill almenningur að deilan leysist og að samið verði við lækna. „Ég er sammála því að kjör lækna verði að bæta og hef talað fyrir því. Hvernig það er gert er flóknara mál en að hægt sé að slengja því fram með einni handsveiflu. Því miður er veruleikinn ekki sá.“„Veistu til þess að fjármálaráðherra hafi aukið umboð samninganefndarinnar?“„Ég þekki það ekki.“„Kemur til greina að setja lög á lækna?“„Nei, ekki í mínum huga.“„Hefur það verið rætt innan ríkisstjórnarinnar?“„Nei“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira