Innlent

Lokafrágangur við hjólastíg

Svavar Hávarðsson skrifar
Frágangi lýkur í nóvember.
Frágangi lýkur í nóvember. mynd/rvk
Unnið er að lokafrágangi við endurnýjaða gönguleið og hjólastíg frá Starhaga í Vesturbæ að Einarsnesi í Skerjafirði.

Nýi hjólastígurinn tengir hjólastíginn á Ægisíðu við hjólastíg í Skerjafirði. Stígurinn er upplýstur.

Hinum megin við Suðurgötu hefur einnig verið lagður hjólastígur frá Þorragötu að Bauganesi.

Gönguleiðin frá Starhaga að Einarsnesi hefur einnig verið endurnýjuð með steyptri gangstétt. Nú er unnið að því að þökuleggja og ganga frá tengingum við hjóla- og göngustíga á Ægisíðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×