Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki hægt að lækka gjöld fyrir Hörpu Reykjavíkurborg getur ekki gefið Hörpu afslátt af fasteignagjöldum eins og Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, kallaði eftir í Fréttablaðinu fyrr í vikunni. Þetta segir aðstoðarmaður borgarstjóra. 18.8.2012 08:30
Kræklingur úr Hvalfirði getur valdið eitrun Matvælastofnum varar við neyslu á kræklingi sem safnað er í Hvalfirði. Sýni af sjó sem voru tekin í Hvalfirði í lok síðustu viku, til greiningar á eitruðum þörungum, leiddu í ljós að dynophysis-þörungar sem geta valdið eitrun voru yfir viðmiðunarmörkum. 18.8.2012 07:00
„Þið mynduð skilja Gretti betur en ég“ Svissneskur íslenskunemi er farinn að skilja okkar ylhýra mál eftir þriggja vikna nám. Hann hafði reyndar nokkuð forskot því hann kann forníslensku. Hann myndi hins vegar hóa í Íslending ef Grettir Ásmundarson kæmi að spjalla. 18.8.2012 06:00
Slapp vel úr bílveltu Talið er að ökumaður bifreiðar hafi sloppið án teljandi meiðsla þegar bifreið hans valt út af Hellisheiðinni um klukkan níu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá lögreglu var hann einn í bílnum og fluttur á slysadeild til skoðunar. Slysið er í rannsókn. 17.8.2012 22:35
Lýst eftir Ölmu Lögreglan lýsir eftir Ölmu Maureen Vinson. Alma er fædd 1998, 162 cm að hæð með blá augu og skollitað hár (dökkt í rót). Alma er með húðflúr á innanverðum úlnlið, tattú aftan á hálsi og lokk í tungu. Þegar síðast var vitað var hún klædd í svarta úlpu, gallabuxur, bláa adidas-peysu og í svörtum adidas-skóm. Alma strauk frá Hvammstanga mánudaginn 13.8. sl. Vitað er um ferðir hennar á höfuðborgarsvæðinu eftir þann tíma. Þeir sem vita hvar Alma er niðurkomin eða vita eitthvað um ferðir hennar frá 13.8. sl. eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 455 2666. 17.8.2012 20:09
Engin börn inni í skólanum Slökkviliðið hefur náð tökum á eldi sem kom upp í þaki íþróttahússins við Fellaskóla í Breiðholti. Mikill reykur barst frá svæðinu stuttu eftir að eldurinn kom upp um klukkan korter yfir sjö. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu rifu slökkviliðsmenn þakplötur upp til þess að slökkva í síðustu glóðunum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og eru nú allir slökkviliðsmenn farnir af vettvangi. 17.8.2012 19:49
Ekkert komið fram sem kallar á breytingar á sænsku leiðinni Ekkert hefur komið fram sem kallar á breytingar á Sænsku leiðinni svokölluðu, sem ætlað er að stemma stigu við vændi hér á landi að sögn innanríkisráðherra. 17.8.2012 18:44
Allir átjan ára og yngri fengið skólavist Vel gengur að innrita í framhaldsskóla fyrir haustið. Allir undir átján ára aldri hafa fengið skólavist og menntamálaráðherra er bjartsýn á að allir eldri nemendur fái einnig inni í skóla. 17.8.2012 18:39
Vill að íslenska ríkið höfði mál gegn ESA Fjármálaráðherra hefur lagt til við ríkisstjórnina að íslenska ríkið höfði mál gegn ESA, eftirlitsstofnun EFTA vegna sölu á byggingum til Verne, sem rekur gagnaver í Keflavík. 17.8.2012 18:30
Jarðskjálfti í Mýrdalsjökli Jarðskjáflti af stærðinni 3,8 varð við Austmannsbungu í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ísland fylgdu nokkrir minni skjálftar í kjölfarið. Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist og ekki fylgir honum mikill órói. 17.8.2012 17:06
Tímavélin Reykjavík Walk opnar í Iðuhúsinu á morgun Margmiðlunarsýningin Reykjavík Walk verður opnuð í Iðuhúsinu í Lækjargötu á Menningarnótt á morgun. Sýningin veitir einstaka innsýn í Reykjavík fyrri tíma þar sem áhorfendur upplifa gamla tíma í bland við nýja. "Áhorfendur setjast inn í klefa með hreyfanlegum sætabúnaði. Leiknu efni, þrívíddarteikningum og ljósmyndum er blandað saman til þess að endurskapa ásýnd Austurstrætis frá árinu 1912 til dagsins í dag. Farið er yfir sögulega viðburði og er einstaklega skemmtilegt að upplifa hvernig miðborgin og aðbúnaður borgarbúa hafa þróast á ekki lengri tíma en einni öld,“ segir í tilkynningu. 17.8.2012 17:00
Geir Haarde í fjölmiðla Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, mun stjórna spjallþætti á ÍNN í vetur. Hann er einn þriggja nýrra þátttastjórnenda á stöðinni en hinir eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Randver Þorláksson, fyrrverandi Spaugstofumaður. Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri ÍNN er ánægður með viðbótina og bendir á að Geir og Sigmundur Davíð séu báðir reyndir fjölmiðlamenn. 17.8.2012 16:30
Sjálfstæðisflokkurinn vill gera vínveitingar mögulegar Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til á borgarráðsfundi að reglum um vínveitingaleyfi verði breytt þannig að þær komi ekki í veg fyrir að dvalarheimili aldraðra geti fengið leyfi til að selja áfengi. Tillögunni var fresta á fundinum. 17.8.2012 16:00
Stærsti nýnemahópur í sögu HR hefur nám Háskólinn í Reykjavík tók í gær á móti stærsta hópi nýnema í sögu skólans. Nýnemadagar voru í skólanum í dag og í gær. 17.8.2012 15:43
Tekinn í Leifsstöð með kíló af amfetamíni Karlmaður á þrítugsaldri hefur að undanförnu setið í gæsluvarðhaldi eftir að hann var stöðvaður við komuna til landsins með mikið magn af amfetamíni. Maðurinn, sem er pólskur og hefur verið búsettur hér, var að koma frá Varsjá þegar tollgæslan stöðvaði hann við hefðbundið eftirlit í Leifsstöð. Hann reyndist vera með tæpt kíló af amfetamíni, sem hann hafði að hluta til innvortis og að hluta í tveimur sjampóbrúsum. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og er rannsókn vel á veg komin. 17.8.2012 15:20
Níræður ökumaður tekinn ölvaður Ökumaður bíls var stöðvaður á Suðurnesjum í gær vegna þess að lögreglan grunaði að hann væri ölvaður. Lögreglumenn voru við umferðareftirlit þegar sást til bílsins sem ekið var yfir á öfugan vegarhelming, þannig að bifreið sem kom úr gagnstæðri átt þurfti að hægja á sér og víkja. Ökumaðurinn, tæplega níræður karlmaður, reyndist vera ölvaður. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum. 17.8.2012 15:08
Íslandsmet slegið í fiskveiði Íslandsmetið í mestum afla sem smábátur yfir 10 brúttótonn hefur fengið í einum túr var slegið nýlega. Það var báturinn Bíldsey SH sem kom með 22,5 tonn í land eftir einn túr þann 13. ágúst. Fyrra metið var 22,3 tonn. Frá þessu er 17.8.2012 14:53
Skemmdist í árekstri við innkaupakerru Tjón varð á leigubifreið í vikunni þegar stjórnlaus innkaupakerra lenti á bílnum. Bifreiðin var kyrrstæð við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar innkaupakerran hentist út úr Fríhöfninni á mikilli ferð og lenti á bílnum. 17.8.2012 14:27
Vilja lögfesta samning um réttindi fatlaðra Stjórn Öryrkjabandalags Íslands skorar á Alþingi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta var samþykkt á aðalstjórnarfundi bandalagsins í gær. 17.8.2012 14:14
Engar ákvarðanir teknar um ákæru á hendur mótmælendum Engar ákvarðanir hafa verið teknar um ákæru á hendur fólki sem mótmælti við rússneska sendiráðið í Garðastræti fyrr í sumar. Jón HB Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, staðfestir í samtali við Vísi að mál nokkurra aðila séu í rannsókn og þau mál séu ennþá til meðferðar hjá embættinu. 17.8.2012 13:35
Eldur í Fellaskóla Eldur er kominn upp í Fellaskóla í Breiðholti. Allt tiltækt slökkvilið er á leiðinni á staðinn en töluverðan reyk leggur frá þaki skólans, að sögn sjónarvotts. Nánari upplýsingar þegar þær berast. 17.8.2012 19:24
Þeir sem laumuðust í flugvélina verða ákærðir Ákæra verður gefin út á hendur hælisleitendunum tveimur sem laumuðust upp í flugvél Icelandair í júlí síðastliðnum. Þetta staðfestir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Suðurnesja í samtali við fréttastofu. 17.8.2012 13:18
Óvenjumörgum hreindýraveiðileyfum skilað Óvenjumörgum hreindýraveiðileyfum hefur verið skilað ónotuðum í sumar, þar sem margir hafa kol fallið á skotprófi, sem nú er krafist í fyrsta sinn. 17.8.2012 12:26
Borgin gefur rithöfundum Gunnarshús Borgarstjórinn Jón Gnarr mun undirrita gjafarafsal á morgun við athöfn í Gunnarshúsi en borgarráð hefur ákveðið að færa Rithöfundasambandi Íslands húsið að gjöf. Gunnars hús var heimili rithöfundarins Gunnars Gunnarssonar. 17.8.2012 12:09
Pussy Riot sekar um óeirðir Þrír meðlimir pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot hafa verið fundnir sekir um óeirðir á almannafæri þegar þeir stóðu fyrir svokallaðri pönkmessu í dómkirkju í Moskvu í febrúar síðastliðnum. 17.8.2012 11:43
Mótmæla við rússneska sendiráðið Um sextíu til sjötíu manns eru nú við sendiráð Rússlands á Garðastræti í Reykjavík. Þau eru saman komin til að sýna samstöðu með meðlimum rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot. 17.8.2012 10:21
Þriðji leigjandinn flytur inn í Hörpu Stórsveit Reykjavíkur flytur í dag inn í Hörpu og verður þar með þriðji leigjandinn í húsinu, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperunni. Hljómsveitin mun marsera inn í húsið í hádeginu í dag með pompi og prakt. 17.8.2012 09:48
Börkur sat einn að upptökum á Hrauninu Börkur Birgisson, dæmdur ofbeldismaður, fékk afrit af myndbandsupptökum af skýrslutökum lögreglunnar yfir brotaþolum, vitnum og ákærðu í máli hans og tólf annarra karlmanna. Einn verjenda í málinu segir ákæruvaldið mismuna verjendum í málinu. Saksóknari segir að Börkur hafi komist yfir myndböndin fyrir mistök. 17.8.2012 09:00
Crowe leitar að tónleikastað fyrir Menningarnótt Svo virðist sem að stórleikarinn Russell Crowe ætli sér að halda tónleika á Menningarnótt í Reykjavík. Á Twitter-síðu sinni í dag leitaði hann eftir hjálp við að finna tónleikastað. 17.8.2012 08:45
Hælisleitandi tekinn við Sundahöfn Ungur hælisleitandi var handtekinn við Sundahöfn laust fyrir klukkan eitt í nótt eftir að hann hafði komist inn á öryggissvæði og ætlaði að lauma sér um borð í Skógarfoss. 17.8.2012 06:57
Lagarfljótsormurinn fyrir sannleiksnefnd Fimmtán árum eftir að verðlaunum var heitið fyrir hvern þann sem næði að mynda Lagarfljótsorminn kemur tökumaður fram og gerir tilkall til verðlaunanna. Málið fer fyrir sannleiksnefnd skipaða af yfirvöldum á Héraði. 17.8.2012 11:00
Gengur hratt á makrílkvótann Makrílveiðar uppsjávarveiðiskipa HB Granda hafa gengið vel í sumar. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að í byrjun vikunnar var búið að veiða um 11.400 tonn af makríl á vertíðinni og þá voru óveidd um 4.500 tonn. Hlutfall síldar í makrílaflanum hefur aukist upp á síðkastið, en skip sem eru á síldveiðum norðan við helsta makrílveiðisvæðið hafa jafnframt verið að fá 10-20% meðafla af makríl. 17.8.2012 11:00
Vilja fá Íslendinga í læknanám í Slóvakíu Einn besti háskóli í Austur-Evrópu býður íslenskum stúdentum að þreyta inntökupróf fyrir læknanám í Slóvakíu. Ræðismaður Slóvakíu heldur inntökuprófin hér á landi taki sex áhugasamir nemendur þau. 17.8.2012 10:00
Icelandair var stundvísasta flugfélagið Af flugfélögum landsins var Icelandair oftast á réttum tíma síðastliðinn hálfa mánuð. Iceland Express stóð sig einnig vel. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var á vefnum túristi.is. 17.8.2012 09:59
Tekinn í Leifsstöð með falsað vegabréf Karlmaður var handtekinn í Leifsstöð í gær þegar hann framvísaði norsku vegabréfi, en grunsemdir vöknuðu um að hann væri ekki lögmætur handhafi að. Var hann því færður til frekari skoðunar þar sem grunurinn var svo staðfestur með andlitssamanburði. Maðurinn er nú til rannsóknar. Meðal annars er unnið að því að reyna að staðfesta hver hann er svo og að athuga hvort hann kunni að vera eftirlýstur einhversstaðar. Þetta er 21. skilríkjafölsunarmálið sem upp kemur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þessu ári. Á sama tíma í fyrra höfðu 15 slík mál komið upp í flugstöðinni. 17.8.2012 09:55
Hækkun kemur sér illa fyrir ráðstefnuhús Hörpu Forsvarsmenn í ferðaþjónustu telja mun líklegra að fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á gistingu muni leiða til tekjutaps fyrir ríkissjóð en að hún skili meiru í kassann. Tilgangurinn með breytingunni er þó sagður að auka tekjur um tvo og hálfan milljarð. 17.8.2012 09:15
Fá aukaverkanir af lyfleysum Sjúklingar sem taka þátt í lyfjarannsóknum upplifa oft og tíðum aukaverkanir lyfja, jafnvel þó þeir taki ekki lyfin sjálf heldur lyfleysu. Þýsku prófessorarnir Paul Enck og Winfried Häuser skrifa grein um málið í New York Times. 17.8.2012 08:30
Ekkert öðruvísi að búa á eldfjallasvæði „Maður fær með móðurmjólkinni hvernig það er að búa við rætur eldfjalls,“ segir Elín Einarsdóttir, oddviti sveitarstjórnar í Mýrdalshreppi og deildarstjóri í grunnskólanum í Vík í Mýrdal. „Þetta er svo sem ekkert öðruvísi en annars staðar. Að minnsta kosti ekki fyrir þá sem eru fæddir og uppaldir á svæðinu.“ 17.8.2012 08:00
„Það er verðstríð alla daga“ „Við erum bara í sjöunda himni,“ segir Jóhannes Jónsson, eigandi matvöruverslanakeðjunnar Iceland. „Þetta er alveg æðisgengið.“ 17.8.2012 07:00
Verða að hafa trú á þorpunum fyrir vestan „Það hefur aldrei verið mín meining að nota þetta hús sem sumarhús,“ segir Ómar Sigurðsson sem í júlí síðastliðnum keypti hús á Bíldudal. Í grein Fréttablaðsins um húsnæðisskort þar í bæ sagði að það hús yrði nýtt sem sumarhús en í því býr nú fimm manna fjölskylda sem þarf að finna sér nýtt húsnæði sem er ekki heiglum hent í húsnæðisskortinum. Af þeim sökum hefur Ómar frestað því að flytja inn í húsið. „Ég keypti mér bát sem ég gerði út frá Bíldudal í sumar og mun gera í haust og í framtíðinni.“ 17.8.2012 07:00
Tvær bílveltur á Ladárdalsheiði Tveir bílar ultu út af veginum um Laxárdalsheiði á milli Búðardals og Hrútafjarðar í gærkvöldi. Fólk úr báðum bílunum var flutt á heilsugæslustöð til aðhlynningar, en engin slasaðist alvarlega. 17.8.2012 06:56
Næstum því undarlegt atvik í Kömbunum Vegfarandi hringdi í lögregluna á Selfossi í nótt og tilkynnti um menn, sem væru að ýta bíl upp kambabrekkurnar. 17.8.2012 06:55
Viðræður í Grindavík stóðu fram á kvöld Viðræður Framsóknarmanna, Grindavíkurlistans og Samfylkingarinnar stóðu fram á kvöld í gær, um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur, eftir að meirhlutasamstarf Framsóknar- og Sjálfstæðismanna sprakk í fyrrakvöld. 17.8.2012 06:52
Nú er bara að reikna og semja „Þetta er nokkuð borðleggjandi, að meta tjónið sem Iceland Express varð fyrir, svo að ég geri ráð fyrir að fljótlega verði hægt að setjast niður og semja um skaðabæturnar,“ segir Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, lögmaður Iceland Express. 17.8.2012 06:00
Aldrei heitara í sumar en í gær Hitastigið í Reykjavík náði 20,9 stigum á hitamæli Veðurstofunnar. Það er í fyrsta sinn í sumar sem hitinn fer yfir tuttugu gráður. Veðurblíðan lék við borgarbúa í gær eins og flesta aðra daga í sumar og útlit er fyrir það sama næstu daga. 17.8.2012 06:00