Fleiri fréttir

Kannski næst stærstu eldarnir

Sinubruninn í Laugardal við Ísafjarðardjúp er annar eða þriðji stærsti jarðeldur sem vitað er til að hafi orðið á Íslandi. Talið er að um tíu hektarar hafi brunnið nú í Laugardal.

Breiðholtshrottar áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist inn á karlmann í Breiðholti þann sjötta júlí í sumar, svipt hann frelsi, hótað honum ofbeldi og neytt hann til að millifæra hátt í fimm hundruð þúsund krónur yfir á bankareikning þeirra. Mennirnir munu sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli þeirra, en þó ekki lengur en til sjöunda september. Rannsókn lögreglu á brotum mannanna er lokið og nú er niðurstöðu Ríkissaksóknara beðið varðandi það hvort gefin verði út ákæra í máli þeirra.

Vill sjá fjárfestingu í nýsköpun

Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri Innovit, hvetur lífeyrissjóði og fjársterka aðila til að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir aldrei fyrr hafa verið jafnmikið af nýjum viðskiptatækifærum fyrir fjármagnseigendur á Íslandi.

Forsetinn tekur á móti ólympíuförum

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tekur í dag á móti íslensku þátttakendunum á ólympíuleikunum í London á Bessastöðum. Íþróttafólki, þjálfurum og öðrum starfsmönnum sem voru á Ólympíuleikunum er boðið til móttökunnar ásamt forystu ÍSÍ, formönnum sérsambanda þeirra íþróttagreina sem Íslendingar kepptu í sem og fréttamönnum og ljósmyndurum íslenskra fjölmiðla sem viðstaddir voru Ólympíuleikana.

Þurfa nú lítt á íslenskum höfnum að halda

Jens K. Lyberth, aðstoðarsjávarútvegsráðherra Grænlands, segir að viðunandi niðurstaða hafi náðst í viðræðum sjávarútvegsráðherra Íslands og Grænlands í deilunni um uppskipun á makríl sem veiddur er í grænlenskri lögsögu.

Brákaði rifbein í hjólaferð um landið

Félagarnir Róbert Þórhallsson og Baldvin Sigurðsson, sem eru að hjóla hringinn í kringum landið til að safna áheitum fyrir Styrktarfélaga Krabbameinssjúkra barna, eru núna staddir á Akureyri. Þeir ætla að vera í Varmahlíð í kvöld og verða komnir til Reykjavíkur á laugardaginn.

Magn af makríl við landið helst stöðugt

Magn makríls í íslenskri lögsögu er svipað núna og undanfarin ár miðað við fyrstu niðurstöður rannsóknarleiðangurs Hafrannsóknarstofnunar. Vísindamenn urðu varir við makríl sem virðist hafa komið úr klaki við Ísland á tveimur stöðvum úti af Suðvesturlandi.

Sumarlegt þema í samkeppni

Þema fjórðu og síðustu ljósmyndakeppninnar sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar er „Svona er sumarið“. Fréttablaðið vonast eftir myndum frá þátttakendum sem endurspegla á sem fjölbreytilegastan hátt sumarið sem er að líða. Skilafrestur fyrir sumarmyndirnar er 22. ágúst en myndir skal senda á netfangið Ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is.

Góðgerðar æfing dagsins

Crossfit hreyfingin í Reykjanesbæ ætlar á morgun að láta gott af sér leiða um leið og hún hamast og lyftir þungum hlutum. Haldið verður sérstakt góðgerðar WOD (work of the day; æfing dagsins). Æfingin verður til styrktar FSMA félaginu á Íslandi og þátttökugjald verður 2.500 kr. sem rennur beint til félagsins.

Unnið að hættumati vegna eldgosa í byggð

Undirbúningur við gerð frekara hættumats vegna eldgosa á byggðum svæðum á Suðurlandi er hafinn. Fjölmargir aðilar koma að verkefninu. Heildarkostnaður hleypur á hundruðum milljóna og kemur féð að hluta úr Ofanflóðasjóði.

Tæplega 400 leigjendur eiga í vandræðum með framfærslu

Alls hafa 62 fasteignaeigendur sem leitað hafa til umboðsmanns skuldara þurft að setja hús sín á sölu. 341 leigjandi hefur litla sem enga greiðslugetu að mati stofnunarinnar. Við það bætast 53 í félagslegu húsnæði.

Vilja hækka eftirlaunaaldur

Stjórnvöld hafa átt í viðræðum við stéttarfélög opinberra starfsmanna um stórtækar breytingar á lífeyriskerfi þeirra.

Fjöldi dýra drepist í Miklakonungsdal

„Ástandið er hrikalegt,“ segir Vera Asscheman, íbúi á spænsku eyjunni La Gomera, einum af Kanaríeyjum. Þar hafa skógareldar logað í níu daga og ekki sér fyrir endann á þeim. „Slökkviliðsmenn voru að segja að þeir muni ekki ráða niðurlögum eldanna næsta sólarhringinn,“ segir hún.

Stöðvuðu fíkniefnasölu í Austurborginni

Lögreglan stöðvaði fíkniefnasölu í Austurborginni, eftir ábendingu um að tiltekinn maður væri að líkindum að stunda slíkt athæfi. Lögreglumenn fundu manninn og í farmhaldi af því var farið í húsleit, þar sem lögregla naut aðstoðar fíkniefnahunds frá Tollgæslunni. Þar fannst töluvert magn af fíkniefnum, en lögregla gefur ekki upp magn né tegundir. Jafnframt fundust þar ýmsir munir, sem taldir eru vera þýfi úr innbrotum, sem viðskiptavinir mannsins hafa notað sem gjaldmiðil í fíkniefnaviðskiptum við hann.-

Rán í matvöruverslun

Rán var framið í matvöruverslun í Kópavogi í gærkvöldi þar sem karlmaður hrifsaði peninga úr peningakassa búðarinnar og komst undan. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort hann ógnaði starfsfólki verslunarinnar, eða hvort hann var vopnaður barefli eða öðru, né heldur hversu mikla fjárhæð hann hafði upp úr krafsinu. Hann er ófundinn.-Þá var brotist inn í leikskóla við Nauthólsveg í Reykjavík í gærkvöldi og þaðan stolið fartölvu og spjaldtölvu. Sá þjófur er líka ófundinn.-

Akranesviti orðinn klár menningarviti

Boðið er upp á tónlistarviðburði og fleiri listasamkomur í Akranesvita sem hefur vísað sjófarendum leið í 65 ár. Þar fara fram upptökur á tónlistarviðburðum enda á hljómburðurinn þar að vera álíka þeim í Péturskirkju í Róm.

Tóku dópaðan ökumann með hníf

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók út úr dópaðann ökumann á þrítugsaldri úr umferð í gær. Hann var með hníf í fórum sínum og reyndist réttindalaus eftir að hafa misst skírteinið áður fyrir sömu sakir. Hann er visatður í fangageymslu, en verður yfirheyrður þegar af honum verður runnið. Lögreglan á Akureyri tók líka ungan ökumann úr umferð þar í bæ í gærkvöldi, undir áhrifum áfengis og fíkniefna, auk þess sem hann var líka búinn að missa prófið vegna fíkniefnaaksturs áður.-

Fagmenn brutust inn í bíla í Þorlákshöfn

Brotist var inn í að minnstakosti tvo bíla í Þorlákshöfn í nótt og fartölvu stolið úr öðrum þeirra. Lögregla er nú að rannsaka hvort farið hefur verið inn í fleiri bíla, en þjófarnir stóðu fagmannlega að verki, dýrkuðu bílana upp með þartilgerðum tækjum og læstu þeim svo á eftir sér. Lögregla segir þetta óvenjulegt, því yfirleitt brjóti þjófar rúur í bílunum til að komast inn í þá.-

Réðust á leigubílstjóra

Tveir karlmenn réðust á leigubílstjóra í austurborginni í gærkvöldi og veittu honum áverka á höfði. Hann var fluttur á slysadeild en reyndist ekki alvarlega meiddur. Mennirnir höfðu tekið sér far með bílnum, en þegar komið var á ákvörðunarstað sögðust þeir ekki eiga fyrir farinu, og réðust á bílstjórann. Hann telur að þeir hafi verið undir áhrifum fíkniefna, en af skeyti frá lögreglu má ráða að þeir hafi komist undan og séu ófundnir.

10% skjólstæðinga missa húsið

Um tíu prósent þeirra sem gert hafa samninga með aðstoð umboðsmanns skuldara hafa misst húsnæði sitt vegna greiðsluerfiðleika. Stór hluti þeirra er of tekjuhár til að vera gjaldgengur í félagslegt stuðningskerfi sveitarfélaga.

Íslenskir listamenn sendu Pútín bréf

Stjórn bandalags íslenskra listamanna sendi í dag Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og tveimur rússneskum saksóknurum ákall þar sem þess er krafist að þrjár listakonur úr pönk-rokksveitinni Pussy Riot verði látnar lausar úr haldi og öllum ákærum á hendur verði látnar niður falla.

Enginn bjór á landsleikjum í bráð

"Almennt séð er mín skoðun sú að íþróttir fara ekki saman með áfengi. Mér finnst betur fara á því að þessu sé ekki blandað saman, án þess að ég sé að taka afstöðu til þessa máls,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og íþróttamálaráðherra.

Tíu milljónir úr Samfélagssjóði Landsbankans

Landsbankinn veitti í dag samfélagsstyrki að upphæð tíu milljónir króna úr Samfélagssjóði bankans. Veittir voru tuttugu styrkir, fimm að upphæð 1 milljón króna hver, fimm að fjárhæð 500 þúsund krónur og tíu að fjárhæð 250 þúsund krónur. Alls bárust tæplega 500 umsóknir um samfélagsstyrki að þessu sinni.

Sígarettustubbar á eldsvæðinu

Umgengni veiðimanna við Laugardalsvatn í Ísafjarðardjúpi er oft á tíðum slæm og hafa þeir skilið eftir sig sígarettustubba og annað rusl í náttúrunni, jafnvel á þeim svæðum sem hafa orðið jarðvegseldum síðustu vikna að bráð.

Studdu ekki innleiðingu sænsku leiðarinnar hér á landi

Réttarvörslukerfið studdi ekki innleiðingu sænsku leiðarinnar hér á landi á sínum tíma. Lagaprófessor sem fór yfir kosti og galla þessarar leiðar fyrir Alþingi og skrifaði sjálft frumvarpið segir reynsluna hafa staðfest efasemdir sínar. Formaður Landssambands lögreglumanna tekur í sama streng og telur nær ógjörning að fara eftir lögunum.

Þurfa að taka á sig 15 prósenta tekjuskerðingu

Hótelrekendur þurfa að taka á sig fimmtán prósenta tekjuskerðingu ætli þeir að halda verðum óbreyttum þrátt fyrir hærri virðisaukaskatt. Hótelhaldari segir að taka þurfi tillit samkeppnisaðstöðu íslenskra ferðaþjónustuaðila því erlendir ferðamenn hafi um margt annað að velja.

Emma Watson elskar Of Monsters and Men

Emma Watson er stödd hér á landi við tökur á myndinni Noah í leikstjórn Darren Aronofsky eins og flestum ætti að vera kunnugt. Hún hefur verið dugleg að segja vinum sínum á samskiptasíðunni Twitter frá dvöl sinni hér á landi. Nýjasta "tístið“ hennar snýr að íslensku tónlistarfólki. Nú síðdegis sagðist hún dýrka Of Monsters and Men, Sóley og Ólaf Arnalds við þetta setur hún merkið "#goiceland".

Undirbúningur fyrir haustþingið hafinn

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er byrjaður að undirbúa sig af fullum krafti fyrir komandi þing sem verður sett þann 11. september næstkomandi. Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Ögmundur fjölda mála sem hann lagði fram til kynningar á síðastliðnu vorþingi.

Vill ekki fyllerí

Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga fallega um Reykjavíkurborg, stilla áfengisdrykkju í hóf og henda rusli í þar til gerðar ruslatunnur. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag sem Jón Gnarr borgarstjóri, Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og Einar Örn Benediktsson formaður stjórnar Menningarnætur héldu í dag.

Burðardýr í tveggja og hálfs árs fangelsi

Mareme Laye Diop var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Hún kom með 402 grömm af alsæludufti innvortis í líkama sínum í flugi frá Berlín til Keflavíkur þann 15. maí síðastliðinn. Úr efninu er hægt að framleiða um 5500 alsælutöflur með um 80% styrkleika. Hún játaði brot sitt fyrir dómi og var litið til þess við ákvörðun refsingar en auk þess var litið til þess að hún var samvinnuþýð við lausn málsins. "Einnig er litið til þáttar ákærðu í brotinu, en rannsókn málsins hefur beinst að ákærðu sem svonefndu "burðardýri", en ekki sem skipuleggjanda brotsins. Loks er litið til þess að ákærða hefur ekki áður gerst sek um refsiverðan verknað svo kunnugt sé,“ segir í dómnum.

Frumkvöðlar kynna afrakstur sumarsins

Næstkomandi föstudag munu fyrirtækin tíu sem hafa tekið þátt í frumkvöðlaverkefninu Startup Reykjavík kynna fyrir fjárfestum hugmyndir sínar og viðskiptatækifæri. Markmið verkefnisins var að hjálpa sprotafyrirtækjum að komast eins langt með sínar viðskiptahugmyndir og hægt er á stuttum tíma. Hvert fyrirtæki hefur fengið tveggja milljóna króna fjárfestingu, skrifstofuaðstöðu og aðstoð og leiðbeiningar fyrir 6% eignarhlut Arion banka í hverju fyrirtæki.

Munu kalla eftir geðheilbrigðisáætlun

Tillaga um að unnin verði ný geðheilbrigðisáætlun fyrir fanga með geðraskanir verður lög fyrir Alþingi í haust. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, en nefndin mun í heild sinni leggja tillöguna fram. Nefndin fundaði í dag með forsvarsmönnum fangelsismála, heilbrigðisyfirvalda og Geðhjálpar í morgun.

Björgunarsveitir leituðu ferðakonu við Glym

Björgunarsveitir frá Akranesi og Borgarfirði voru kallaðar út í dag til leitar að ferðakonu sem saknað er við Glym í Hvalfirði. Einnig var björgunarsveitafólk af höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu. Konan, sem er erlendur ferðamaður, varð viðskila við hóp sem gekk upp með fossinum.

Barn klemmdist á milli dráttavélar og húsveggs

Barn klemmdist á milli dráttarvélar og húsveggs nærri Hvolsvelli á sunnudag. Barnið missti meðvitund en komst fljótlega til meðvitundar aftur og munu meiðsli þess vera minniháttar miðað við aðstæður. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar kemur líka fram að á föstudag féll kona af hestbaki í Húsadal og brotnaði illa, meðal annars á handlegg. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna og flutti til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Sama dag féll kona í Galtalæk og var flutt með sjúkrabifreið til aðhlynningar. Hún er ekki talin hafa slasast alvarlega.

Ríkissaksóknari tekur ekki undir að heimildin sé ofnotuð

"Ég skal ekki segja hvort heimildin er ofnotuð," segir Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, spurð út í ummæli sem birtust í gær í Úlfljóti, tímariti laganema, um að dómstólar beiti of oft heimild til að úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald með vísan til almannahagsmuna.

Frítt í strætó á Menningarnótt

Á Menningarnótt verður frítt í strætó. Auk þess verða allir vagnar strætó settir í að ferja fólk til síns heima eftir að dagskrá lýkur. "Þannig verður óhætt að skilja bílinn eftir heima,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á facebook síðu sinni.

Vanhugsað að hækka gistináttaskatt

Sú hugmynd að hækka gistináttarskatt úr 7% í 25,5% er vanhugsuð og hún mun hamla framþróun í ferðaþjónustu á komandi árum, segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Snædrekinn kominn til Reykjavíkur

Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn liggur nú við Ytrihöfn í Kollafirði. Það lagðist að bryggju um níu leytið í morgun.

Segir sænsku leiðina ekki virka

Formaður Landssambands lögreglumanna telur sænsku leiðina ekki virka eins og henni var ætlað. Hann hvetur til þess að löggjöfin verði endurskoðuð og annarra leiða til að taka á vanda sem fylgir vændi verði leitað.

Gestur í Bláa lóninu gripinn með hjartastuðtæki

Gestur í Bláa lóninu var handtekinn í gærkvöld. Um er að ræða karlmann á þrítugsaldri sem grunaður var um vörslur fíkniefna. Hafði sígarettupakki fallið úr vasa á baðslopp mannsins á bakka lónsins og reyndist í honum vera glær poki. Í pokanum var grænt efni sem talið er vera kannabisefni.

Líf að færast í skiptibókamarkaði

Nú þegar styttist í skólasetningu í framhaldsskólum landsins fer líf að færast í skiptibókamarkaði. Í þessari viku byrjaði ásóknin smám saman að aukast og gera starfsmenn ráð fyrir undir lok vikunnar verði allt komið á fullt.

Um 30 lítrum af málningu stolið í innbroti

Brotist var inn í atvinnuhúsnæði í Garðabæ í nótt. Þar var stolið 30 lítrum af málningu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um málið um klukkan tuttugu mínútur í átta í morgun og rannsakar hún málið nú.

Nýmæli í úthlutun listamannalauna

Bryddað verður upp á nýmælum við úthlutun starfslauna listamanna fyrir árið 2013. Annars vegar geta fleiri en einn listamaður sótt um starfslaun vegna samstarfsverkefna. Hins vegar getur einn listamaður sótt um laun í mismunandi sjóði ef verkefnið fellur í fleiri sjóði en einn. Frá þessu er greint

Stýrihópur starfar gegn lúpínunni

Að frumkvæði umhverfisráðherra starfar nú stýrihópur sem hefur það hlutverk að finna leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum alaskalúpínu og skógarkerfils á náttúru Íslands. Þessar tegundir teljast ágengar, dreifa úr sér og ógna því lífríki sem fyrir er í vistkerfum.

Sjá næstu 50 fréttir